Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800,5777
Stafræn útgáfa: Heímasíða: http://www.netheimatís/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Byggðin út t Viðey
Eitt fallegasta og skemmtilegasta byggingarland í
Reykjavík viröist munu standa autt á næstu árum. í tillög-
um að svæðisskipulagi sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu til ársins 2024 er ekki gert ráð fyrir því að byggt
verði í Viðey. Það er óskiljanlegt. í Viðey er hægt að koma
fyrir álíka stórri byggð og rúmast í Hlíðahverfinu í
Reykjavík. Eyjan er að flatarmáli jafnstór og allt það um-
talaða svæði sem fer undir umdeildan Reykjavíkurflug-
völl. En Viðey skal standa auð um sinn.
Ekkert í náttúrufari Viðeyjar mælir gegn því að þar rísi
falleg byggð á ný. Eyjan er að stærstum hluta mómýrar og
gömul tún sem engin ástæða er til að varðveita. Fagurt
stuðlaberg er á norðurhluta hennar og snotrir hamrar í
kringum Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju sem óþarfi er að
hrófla við, en að öðru leyti er allt land Viðeyjar, hálfur
annar ferkílómetri, tilvalið byggingarland. Það er í sjálfu
sér ekki eftir neinu að bíða. Auðvelt er að brúa úr Klepps-
vík og þar með geta skóflurnar byrjað.
í reynd er furðulegt að ekki skuli vera hafin byggð í eyj-
unni fyrir margt löngu. Reykvísk byggð hefur verið að
teygja sig austar með árunum og nú er svo komið að
byggðin er runnin saman við Mosfellsbæ í austri. Á loft-
mynd að sjá er eins og gleymst hafi að byggja á besta
staðnum á leiðinni, úti í Viðey, sem hefur útsýni yfir
Sundin blá, suður á Bugtina og út til Esjunnar. Óvíða á
höfuðborgarsvæðinu er að finna fegurra byggingarstæði.
Óvíða er hægt að skapa skemmtilegra samfélag.
Höfuðborgarsvæðið hefur verið að þenjast út á síðustu
áratugum í takt við fjölgun íbúanna. Iðnaðarmenn hafa
vart haft undan við að reisa íbúðarhús og á síðastliðnum
árum hafa ný hverfi risið þar árlega. Rösklega 5800 íbúar
voru í Reykjavík árið 1900 en voru nærri tuttugufalt fleiri
einni öld siðar. Fjölgun íbúa í nágrannabæjunum hefur og
verið gríðarleg á síðustu árum - ekki er til dæmis langt í
það að íbúafjöldinn í Kópavogi hafi tvöfaldast á tveimur
áratugum.
Það sætir því furðu að eitt besta byggingarlandið á
þessu svæði öllu hafi verið skilið út undan um árabil. Og
enn furðulegra er að nýjar tillögur um skipulag svæðisins,
allt fram á miðjan þriðja áratug nýrrar aldar, skuli ekki
fela í sér byggð í eyjunni. Fremur er horft til byggðar allt
í kringum Úlfarsfell og þar á eftir, upp úr 2024, er litið suð-
austur í Hafravatn. Það er eins og Viðey sé heilagt vé,
nema hún sé svo nálæg mönnum að þeir sjái ekki kosti
hennar sem framtíðarbyggingarlands Reykjavíkur.
Arkitektar vinna nú að því að hanna skemmtilega
íbúðabyggð í Gufunesi, í skjóli Geldinganess. Á gömlum
öskuhaugum borgarinnar og athafnasvæði umdeildrar
Áburðarverksmiðju á að rísa nýtískulegt hverfi á næstu
árum fyrir um það bil tólf þúsund íbúa. Gert er ráð fyrir
talsverðum landfyllingum þar sem komið verður fyrir
nýrri höfn, bryggjuhverfi og ylströnd. í frumtillögum er
einnig gert ráð fyrir göngubrú úr þessu nýja hverfi út í
Viðey. Það er góð hugmynd.
Úr þessu nýja hverfi í Gufunesi á að vera hægt að ganga
inn í kyrrlátt samfélag Viðeyjar á næstu árum. Viðey á að
vera ögrandi verkefni hugmyndaríkra arkitekta. Þar er
upplagt að búa til sérstæða byggð, í reynd lítið þorp með
snotrum miðbæ og steinlögðum götum sem hlykkjast um
eyjuna fögru. Húsin mættu vera gamaldags í útliti og taka
mið af þeim sögufrægu byggingum sem eru fyrir í eynni,
Viðeyjarstofu og litlu kirkjunni sem þar stendur sperrt
við hliðina. Byrja mætti strax.
Sigmundur Ernir
DV
Skoðun
Sótt að lífeyrissjóðum
Hart er nú lagt að fulltrú-
um stærstu lífeyrissjóða
landsmanna að þeir lýsi yfir
sameiginlegum áhuga til
þátttöku í risaálbræðslu við
Reyðarfjörð. Fremstir í
flokki fara fulltrúar íslensku
fj árm álafyrirtækjanna sem
lagt hafa fram 50% hlutafjár
í Hæfi, þ.e. íslandsbanki
FBA, Eignarhaldsfélag Al-
þýðubankans, Landsbanki
íslands og Þróunarfélag ís-
lands. En Hæfi ehf. var
stofnað af ofanskráðum fjár-
málafyrirtækjum sem lögðu
til helming hlutafjár á móti Norsk
Aluminium til að undirbúa byggingu
álbræðslu við Reyðarfjörð.
Það athyglisverða við þennan und-
irbúning allan er að ekkert er farið að
ræða formlega við Landsvirkjun um
hugsanlegt orkuverð sem hlýtur að
vera grundvallaratriði til þess að
unnt sé að leggja mat á hagkvæmni
álbræðslunnar.
Hvert er áætlað orkuverð?
Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar
frá því fyrir síðustu gengisfellingu
Sveinn
Aðalsteinsson
er viOskiptafræöingur
og einn stofnenda Um-
hverfisvina.
hljóðaði upp á 90 milljarða
áætlaðan kostnað við gerð
750 MW Kárahnjúkavirkj-
unar (4890 GWh) sem í dag
samsvarar ríflega 100 millj-
örðum. Þetta þýðir að selja
verði orkueininguna á ca
2,40 kr./Kwst. (24 mills).
Landsvirkjunarmenn láta
hins vegar sem þeir geti selt
orkueininguna á mun lægra
verði, jafnvel þó aö ljóst
megi vera að Landsvirkjun
hefur aldrei áður ráðist í
jafnumfangsmikla og flókna
framkvæmd og þar af leið-
andi alls óvíst að kostnaðaráætlun,
sem byggir á reynslu af fyrri fram-
kvæmdum, muni koma til með að
standast. Sem dæmi um hversu
óhemjuumfangsmikið verk þetta er
má nefna að stærsta stíflan, sem ætl-
að er að stífla Hafrahvammagljúfur,
verður 190 m há. Áætlað efnismagn
sem í hana fer eru 9-10 milljónir
rúmmetra eða samsvarandi 50-faldri
ársframleiðslu á steypu! Stærsta lón-
ið, Hálslón, verður 24 km langt og í
því verður 75 m sveifla flóðs og fjöru!
Vandamálin sem upp munu rísa
Samkeppnishæfni Reyöaráis
Reyðarál Gömul álver
Álverö (USD) 1500 1500
Súrál - 350 -375
Rafskaut -110 -120
Vinna -100 - 225
Annaö -75 -180
Fjármagnskostn. -664 -100
Raforka (afgangur) -201 - 500
Kwst./tonn 14.000 15.000
Mllls/Kwst. 14,4 33,3
Ofanskráö tafla sýnir greiðslugetu Reyðaráls samanborið við gömul álver.
Fjármagnskostnaður Reyöaráls er 50% hærri en ajmennt gerist með ný álver
og margfaldur samanborið við gömul (ÍSAL/Norðurál).
vegna þeirrar óhemjuaureðju sem
safnast mun fyrir í lóninu og fok-
vandamál því tengd eru alls óleyst og
því léttvægt að segja að menn trúi
því ekki að Landsvirkjun muni ekki
flnna lausn. En hvað mun það og
önnur viðlíka vandamál, sem eftir á
að kljást við, ef af framkvæmdum
verður, koma til með að kosta?
Fundur um arðsemismat
Landsvirkjun hélt kynningarfund
um arðsemismat á sl. ári, þar sem er-
lendur sérfræöingur, Robin Adams,
upplýsti m.a. að verð það sem Lands-
virkjun hefur fram til þessa fengið
fyrir raforkusölu til stóriðju (10—15
mills, þ.e. 1-1,50 kr./Kwst) er sam-
svarandi því lægsta sem þekkist og
þá aðallega meðal þeirra þjóða þar
sem stjórnarfar er mjög ótryggt og
aðilar notast við vopn eða mútur.
Engar upplýsingar komu fram um
það hvers vegna Landsvirkjun neyð-
ist tii að sæta slíkum afarkostum. í
næsta verðflokki fyrir ofan þennan
flokk eymdarinnar, þ.e. 15-20 mills,
þar sem ástand mála er tryggara,
finnast þau lönd sem einkum laða til
sín nýjar álbræðslur og Landsvirkj-
Lexía um aðhald
Alþjóð hefur að undanförnu orðið
vitni að óyggjandi dæmi um aðhalds-
hlutverk fjölmiðla (“fjórða valdinu").
Slík dæmi eru því miður sjaldgæf.
Þess vegna er umfjöllunin um mál
Áma Johnsen nánast einsdæmi á
síðari tímum, þótt fáir velkist í vafa
um að spilltar gjörðir hans séu tæp-
ast einsdæmi.
Þegar fjölmiðlamenn hafa til þess
vilja og fá til þess tíma geta þeir
vemdað alþjóð fyrir spilltum stjórn-
mála- og embættismönnum, sem
brjóta lög og svívirða siðalögmál.
Með eðlilega hnýsni, vönduð vinnu-
brögð, eftirfylgni og upplýsingalög
að vopni geta fjölmiðlamenn komið
upp um hagsmunapot og spillingu og
þar með hreinsað til þar sem óþrif er
að finna. Til þess eiga fjölmiðla-
mennirnir að hafa burði og fá til
þess tima og tækifæri hjá ritstjórum,
fréttastjórum og útgefendum.
Aðhald heldur spilllngu niðri
Ef rökstuddur grunur leikur á, að
stjórnmála- og embættismenn beiti
óyndisúrræðum til að fela sannleik
og reiða fram ósannindi eiga fjöl-
miðlamenn að komast að hinu rétta
Kjallari
Friðrik Þór
Guðmundsson
blaOamaOur og
stjórnmálafræOiingur
Það er ekki fyrr en fjölmiðlamenn og hinir heiðarlegri í
hópi stjómmálamanna fara af stað, að skilaboðin ná í
gegn. Þess vegna fá óheiðarlegir stjómmálamenn og
embœttismenn (þeir eru sem betur fer í minnihluta)
oftast að stunda sína miður þokkalegu iðju óáreittir.
og upplýsa alþjóð. Ef hags-
munir og *starfsheiður*
slíkra manna eru metnir
hærra en sannleikurinn
og hagsmunir almennings
eiga fjölmiðlamenn aö
leiðrétta kúrsinn. Ef
kjörnir og ráðnir starfs-
menn á framfæri skatt-
greiðenda misnota að-
stöðu sína á að draga
gerninginn fram í dags-
ljósið. Þaö veitir aðhald
og aðhald kemur f veg fyr-
ir spillingu.
Spillingin þrífst aö
óbreyttu ágætlega í okkar fámennis-
þjóðfélagi. Oftast dugar ekki að ein-
staklingar út í bæ bendi á ósómann
með rökum og gögnum. Það er ekki
fyrr en fjölmiðlamenn og hinir heið-
arlegri í hópi stjórnmálamanna fara
af stað, að skilaboðin ná í gegn. Þess
vegna fá óheiðarlegir stjórnmála-
menn og embættismenn (þeir eru
sem betur fer í minnihluta) oftast að
stunda sína miður þokkalegu iðju
óáreittir; leyna upplýsingum, draga
taum hagsmunapotara, skrumskæla
sannleikann, kenna öðrum um, falsa,
hylma yfir. Tvennt virðast slíkir
menn einkum verja með hvaða ráð-
um og dáð sem er; hagsmuni sína og
sinna bandamanna og eigin starfs-
heiöur og afkomu. Dæmin sína að
menn eru reiðubúnir að ganga ansi
langt í að verja sig og sína fyrir
sannleikanum. Minnugir skilaboða
Hávamála, um að orðstír nái út yfir
gröf og dauða, dettur sumum mönn-
um ekkert betra ráð í hug, þegar þeir
hafa brotið af sér og klúðrað, en að
sópa óþægindunum undir teppið;
hylma yfir og kenna öðrum
um.
ðigil
iri
hagsmunum æör
í Árna-málum hafa fjöl-
miðlarnir sinnt aðhaldshlut-
verki sínu með ágætum. En
þeir fjölmiðlamenn sem nú
berja sér á brjóst eftir vel-
heppnaða afhjúpun á ósann-
indum og fjárdrætti fyrsta
þingmanns Suðurlands (sem
jafnframt var/er formaður
samgöngunefndar Alþingis
og ráösmaður í Flugráði)
eiga ekki að láta hér staðar numið,
heldur líta á málið sem fyrsta skref-
ið í tímabærri umfjöllun um spilling-
armeinsemdirnar sem þrífast í
stjómkerfinu. Um leið á alþjóð að
draga lærdóm af málinu og liðsinna
fjölmiðlum við upplýsingaöflun; það
skilar árangri. Almenningur á ekki
aö líta undan þegar hann verður
vitni að því þegar spilltir og/eða
misvitrir stjórnmála- og embættis-
menn svívirða lögin, siðalögmálin og
lýðræðið. Sannleikurinn verður að
vera eiginhagsmununum æðri.
Þegar svo verður komið, að aðhald
almennings og fjölmiðla hefur
styrkst til muna, hika eiginhags-
munapotararnir og hætta við ósóma-
vinnubrögð sín. J því er galdurinn
fólginn. Og klúðri menn sjá þeir að
það borgar sig að segja sannleikann
strax en hylja hann ekki; þá verða
viðbrögðin í samfélaginu sársauka-
minnst og orðstírinn ekki skemmd-
ari en svo, að hann megi endurbæta
með iðrun og nýjum siðum.
Friðrik Þór Guðmundsson
un dreymir nú að komast í. í mati
Þorsteins Siglaugssonar rekstrarhag-
fræðings sem hann vann fyrir Nátt-
úruverndarsamtök Islands er einnig
miðað við þetta verðbil (sjá meðf.
töflu). í þriðja flokknum, þ.e. 20-25
mills, eru siðan lönd þar sem eigend-
ur gamalla álbræðslna sjá sér fært að
stækka og njóta hagnaðar.
ÍSAL og Noröurál
Af framansögðu ætti að vera nokk-
uð ljóst að hverju Landsvirkjun bæri
að stefna til að auka arð fyrirtækis-
ins og ná því verðuga markmiði að
lækka almennt raforkuverð um
20-30% á næstu 10 árum. Að sjálf-
sögðu liggur beint við að virkja enn
frekar á hagkvæmasta virkjana-
svæði Landsvirkjunar, Þjórsár-
Tungnársvæðinu. Einingarverð
orkunnar sem þaðan fæst er tugum
prósenta lægri en í tilfelli Kára-
hnjúkavirkjunar auk þess sem sára-
lítil landspjöll hljótast af. Þessu til
viðbótar geta gömul álver borgað
mun hærra verð fyrir orkuna,
þannig að stækkun þeifra hlýtur að
hafa algeran forgang.
Sveinn Aðalsteinsson
Má senda bréf
„Stutt eftir að islendski forsetin vitj-
aði i Föroyum, fáa vit aftur heilsan av
hægsta rikisstigi. Hesaferð er tað írski
forsetin, sum hevur sent föroyingum
bræv. Listastefnan letur ikki bara
hurðar upp fyrir listini. Ta íslendski
forsetin, Ólavur Ragnar Grímsson, vitj-
aði í Föroyjum herfyri, varð nógv gjört
burturúr, at loyvi túhetta kravdist frá
donsku drotningini. Men ein og hvör
forseti kann tó senda bröv, sum honum
lystir, verður upplýst af Lögmansskriv-
stovuni, haðani tó dentur verður lagd-
ur á, að bröv frá forsetum eru sera
óvanlig í foroyskum postkassum."
Helga Hjörvar, forstjóri Norræna
hússins i Færeyjum í Dimmalætting
Ljótt blaö
„Á fyrsta útgáfudegi
Fréttablaðsins sagði rit-
stjórinn að það kæmi í
ljós eftir þrjá mánuði
hvort tilraunin heppnað-
ist. Allt frá fyrsta degi
hafa hin faglegu vinnubrögð ritstjórnar
Fréttablaðsins verið framar vonum.
Undantekningarlítið hafa fréttirnar
verið ágætlega undirbúnar, vel skrifað-
ar og kjarni hvers máls komið skýrt
fram. Aðrir þættir útgáfunnar hafa
verið í ólagi. Framleiðslan á Frétta-
blaðinu hefur verið Akkilesarhæli þess
allt frá fyrsta degi. Uppsetning og
hönnun blaðsins er umdeilanleg en
hún er engan veginn illa unnin. Mynd-
vinnsla og prentun blaðsins er á hinn
bóginn til háborinnar skammar. Niður-
staðan er því að blaðið, sem er huggu-
legt frá hendi blaðamanna og hönnuða,
er ljótt þegar lesandinn fær það í hend-
ur. Þessi staðreynd á stóran þátt 1 því
að auglýsendur eru enn ekki búnir að
gera það upp við sig hvort blaðið sé
ruslpóstur eða virðulegur fjölmiðill.“
Ásgeir Friögeirsson á pressan.is
Spurt og svaraö
Hvað finnst þér um það að Islandi hefur verið meinuð aðild að Al
Grétar Mar Jónsson,
formadur FFSÍ
Bara
kjaftaklúbbur
„Það er mjög sérkennilegt og
maður áttar sig ekki á þessum
dularfullu vinnubrögðum. Ég hélt
að allir mættu vera aðilar að þessum samtökum
sem er náttúrlega bara kjaftaklúbbur sem ég er ekki
viss um að við eigum eitthvað að vera að hlusta á
heldur fara okkar eigin leiðir. Það er allt í lagi að
fljóta með ef við megum og okkur ekki hent út en
við eigum ekki að dekstra þá. Við verðum að fara að
drepa hval, hvort sem við nýtum hann í hagnaðar-
skyni eða ekki. Hann gengur svo nærri fiskistofnun-
um enda éta hvalirnir óhemju magn þegar þeir eru
látnir óáreittir og eru í verulega samkeppni við okk-
ur veiðimennina og ruglar nýtingarhlutfallið."
Svanfnður Jónasdóttir
alþingismadur
Er ekki vel
undirbúin
„Ég met það ekki svo að ís-
landi hafi verið meinaður að-
gangur, það er einföld ákvörðun
okkar. Það sem einhverjar þjóðir eru að gera
þarna er að koma í veg fyrir fyrirvarann sem
við setum, vilja stemma stigu við hvalveiðum í
hagnaðarskyni. Við gátum alltaf búist við þessu
en leiknum er ekki lokið. Það er afar gott að við
loks hreyfðum málinu, nú sjáum viö hvaða
möguleika við eigum en ég hef á tilfinningunni
að utanríkisþjónustan hefði þurft að vinna betri
undirbúningsvinnu. Það skaðar okkur mikið að
sendinefndir komi til svona fundar ekki nógu
vel undirbúnar."
Guðmundur Hallvarðsson
alþingismaöur
Áttum að byrja
í sumar
„Þetta er allt mjög sérkennilegt
og er hið versta mál fyrir þær
þjóðir sem við höfum einna mest
unnið með. Það kemur einnig mjög á óvart hvernig
sænski formaðurinn hagaði sér f allri umræðunni og
atkvæðagreiðslunni. Svíar eru alltaf tilbúnir ef það
er þeim þóknanlegt og þénanlegt að greiða atkvæði
gegn okkur. Þar er enginn norrænn samstarfsvilji á
ferðinni. Við hljótum að muna þessa afstööu þeirra í
málinu. Við áttum að hefja hvalveiðar í sumar en nú
mundi þaö líta út eins og eitthvert upphlaup eða
uppþot. Það væri því ekki skynsamlegt þótt Norð-
menn, Japanir og Bandaríkjamenn geri það líka.
Hræsni fulltrúa þessara þjóða nær engu tali.“
Gráa svæðið
Oddur Olafsson
skrifar
Það kann að þykja
erfitt að greina gráa
svæðið á milli fyrir-
greiðslu fyrir aðra og
eigin hagsmuna. Sumir
stjórnmálamenn eru
afar duglegir að hygla
kjördæmum sinum og
telja aðalhlutverk sitt á
löggj afarsamkundunni
að veita fjármunum úr
opinberum sjóðum til
kjósenda sinna. Oft eru
þessir menn duglegir
og ósérhlífnir og er
aldrei amast yfir því að það sem ein-
um er fært er tekið frá einhverjum
öðrum.
í raun má telja að fyrir-
greiðslupólitíkusarnir séu aö gæta
eigin hagsmuna þegar þeir beita öllu
sinu atgervi og völdum til aö hlú að
kjósendum sínum. Það er gert með
mörgum og mismunandi hætti, en
undantekningarlítið með því að afla
fjár og dæla því inn í kjördæmi sín
eða heimabæi. Þannig kaupa þeir
kjósendur til fylgis við sig. Það þyk-
ir yfirleitt ekki beysinn þingmaður
sem ekki getur skaffað vegarspotta,
forðað fyrirtæki frá gjaldþroti eða
komið upp skóla þar sem hans er síst
þörf.
Þannig dugnaðarforkar eru hátt
metnir af kjósendum og eru taldir
gulls ígildi og fátt getur komið í veg
fyrir endurkjör þeirra, svo
lengi sem þeir kæra sig um aö
sitja á þingi.
Greiöasemi
En þegar fyrirgreiðslan er
snar þáttur í opinberum störf-
um getur svo farið að þeir sem
hana stunda hætti að gera
greinarmun á þörfum umbjóð-
endanna og eigin hagsmunum.
Ef maður er alltaf að gera öðr-
um greiða með því að útvega
framlög til þessa og hins getur
svo farið einn góðan veðurdag
aö maður geri sjálfum sér greiða og
láti skrifa smáræði hjá ríkinu. En
það kann stundum að vera bitamun-
ur en ekki fjár hvar greiðasemin
lendir.
Alþingismenn hafa margir verið
drjúgir að skaffa kjósendum sínum
fjármuni til ýmissa verka og eru þá
ósínkir að ganga í opinbera sjóði eða
útvega fé með öðrum hætti og hljóta
yfirleitt þakkir og aðdáðun fyrir.
Þeim mun meira sem þeir færa heim
í kjördæmið, eða sveitarfélagið sitt,
vex álit á þeim sem hæfum stjórn-
málamönnum. Því skal engan undra
þótt pólitikusar leggi mikið á sig til
að fá það orðspor að vera fyrir-
greiðslumenn.
En þegar farið er að stunda fyrir-
greiðslu fyrir sjálfan sig vandast
málið. Þjóöin hefur staðið á öndinni
sólarhringum saman vegna þess að
þingmaður lét skrifa smáræði hjá
ríkisstofnun sem fór síðan til einka-
nota. En hve oft hefur hann ekki ver-
ið boðinn og búinn aö útvega öörum
bæði stórt og smátt.
Aldrei er verið að fetta fingur út í
það þegar þingmenn eru að hygla
kjördæmum sínum og kjósendum,
stundum með ærið ósvífnum hætti.
Launln
Annars er það undarleg stjórnsýsla
sem lætur brot af svona tagi henda.
Þingkjörinn nefndarmaður valsar um
í verslunum og lætur skrifa vörur hjá
ríkisstofnun og senda þær heim tU
sín. Hvenær fór seta í byggingarnefnd
að leyfa úttektir á byggingavöru? Þeg-
ar farið er að grennslast fyrir kann-
ast enginn við aö nefndarmaðurinn
hafi prókúru og því ekkert leyfi tU aö
kvitta á reikninga.
En eftir að upp komst varð uppi
fótur og fit í mörgum eftirlitsstofn-
unum, sem allar þykjast ætla aö
rannsaka málið ofan í kjölinn, eins
og það er kallað.
Sjálfsagt verður einhver eftirleik-
m- vegna alls þessa máls. En hitt má
telja víst að lítil umræða mun fara
fram um gráa svæðið sem fyrir-
greiðslupólitíkusar valsa um og
verða menn að meiri eftir því sem
þeir eru örlátari við kjósendur sína
og hljóta þingmennsku að launum.
Þórunn Gestsdóttir
sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar
Rangar forsend-
ur fyrir höfnun
„Ég tel það vafalaust að við eig-
um að vera í Alþjóða hvalveiðiráð-
inu og við eigum einnig að stunda
hvalveiðar og hefðum átt að vera byrjuð að veiða
hrefnu, enda nóg af henni. Þegar þessi dýr eru látin
óáreitt raskast lííkeðjan. En forsendumar fyrir höfn-
uninni eru rangar og Alþjóða hvalveiðiráðið er ekki
samkvæmt sjálfu sér. Sjálfskipuð umhverfiverndar-
samtök, eins og Greenpeace, hafa fengið hljómgrunn
meðal þjóða heims en þeirra markmið em málum
blandin, hugsjónin er ekki nógu rökrétt. Ef menn
eru ósáttir eiga þeir ekki að vinna eins og þeir held-
ur setjast niður og skiptast á skoðunum. Ofbeldi leið-
ir sjaldan til þess eins og er þeirra verklag."
Ársfundur Alþjóöa hvalveiöiráösins hafnaöi á mánudag aöild íslands vegna fyrirvara þess um aö þaö sé ósammála ráöinu um aö leyfa engar hvalveiöar í hagnaöarskyni.
Þegar fyrírgreiðslan er orðin snar þáttur í opinberum störfum geta þeir sem hana
stunda hœtt að gera greinarmun á þörfum umbjóðenda sinna og eigin hagsmunum.