Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 I>V Fréttir 9 Hafnir á höfuðborgarsvæðinu stækka: Afkasta 60 prósentum skipaflutninga á landinu - gert ráð fyrir nýjum höfnum í Eiðsvík og á Geldinganesi Um 3,1 milljón tonna af vörum fara árlega um Reykjavlkur- og Hafnarfjarðarhafnir. Er það meira en 60% af allri vöru sem fer um hafnir landsins. í svæðisskipulagi átta sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu sem gildir til 2024 koma fram hugmyndir um stækkun hafna á svæðinu. Þar er gert ráð fyrir landfylling- um í Sundahöfn í Reykjavík og þróun hafnar og hafnarsvæða i Eiösvik og Geldinganesi. Þá er einnig gert ráð fyrir stækkun Hafnarfjarðarhafnar sem og stækk- un hafna I Straumsvík og í Kópa- vogi. Við Sundahöfn er gert ráð fyrir hafnsækinni starfsemi ásamt flutn- ingastarfsemi. Skipulagshugmynd- ir miðast við að stækkun hafnar- mannvirkja i Sundahöfn anni þeirri aukningu á hafnastarfsemi sem gert er ráð fyrir í Reykjavík á skipulagstímanum. Því til viðbótar eru nú einnig áætlanir um hafnar- starfsemi í Eiðsvík og í Geldinga- nesi. Þá er miðað við að hafnarað- staða sú sem nú er í Ártúnshöfða verði flutt í Gufunes eða Geldinga- nes. í Kópavogi er ekki búist við mikilli stækkun hafnarmannvirkja. Hlut- verk þeirrar hafnar verði fyrst og fremst á sviði viðgerða og þjónustu. í Hafnarfirði er nú unnið að stækkun Suðurhafnar til að auka þjónustumöguleika við útgerð flskiskipa og almenna þjónustu við flotann. Þá er áfram gert ráð fyrir flotkvíum á þessum stað og við- gerðaþjónustu. Gert er ráð fyrir að starfsemi Norðurhafnarinnar Skipulagshugmyndir gera verði flutt og það landsvæði nýtt til stækkunar á miðbænum fyrir íbúöabyggð. Auk alls þessa eru einnig uppi hugmyndir um stækkun Straums- víkurhafnar sem líklega er talin þörf á ef hugmyndir um stækkun álversins verða aö veruleika. -HKr. Garðyrkjumenn framtíðarinnar Þorlákshafnarbúar hafa í nógu að snúast I sumar enda fagnar bærinn hálfrar j aldar afmæli á þessu ári. Afmælisdagskráin hófst fyrr í sumar en hátíöar- höldin ná hámarki á Hafnardögum 10. til 12. ágúst nk. Ungu piltarnir á myndinni eru að snyrta blómabeð við ráðhús Ötfushrepps. Þeir heita Hólmar Karl Hólmarsson, Andri Magnússon og Magnús Sveinbjörnsson. Sundahöfn helsta vöruhöfnin ráö fyrir nýjum hafnarmannvirkjum í Eiðsvík og á Geldinganesi. Metafli í Grundarfirði: Þröngt um skipin DV. GRUNDARFIRÐI: Metafla var landað í Grundar- fjarðarhöfn í sið- asta mánuði. Alls var landað 2268 tonnum en á sama tíma í fyrra var landað 1410 tonn- um. Heildaraíli á árinu var í byrjun mánaðar kominn í rúm tíu þúsund tonn en allt síð- asta ár var landað rúmum 15 þúsund tonnum. Það er orðið þröngt um skipin í Grundarfjaröar- höfn og ekki að ástæðulausu sem hafnar- og sveitarstjórn hafa unnið að því að stóra bryggjan verði lengd um 100 metra. Framkvæmdir heQast að líkindum fljótlega en verkið var boðið út í júní síðastliðnum. Alls bárust ellefu tilboð, það lægsta rúm- ar 66 milljónir og það hæsta um 136 milljónir. Kostnaðaráætlun gerði Grundarfjörður Metafli náðist á land í Grundarfirði í síðasta mánuði. ráð fyrir framkvæmd upp á 84 millj- ónir. Meðan á framkvæmdum stendur i sumar og haust mun enn aukast á þrengslin við höfnina og eru viö- skiptavinir hafnarinnar beðnir að sýna þolinmæði og samstöðu meðan að ástand varir. -DVÓ/SHG Beiðni um viðbótarfjárveitingu Myndlistaskólans á Akureyri frestað: Skólastjóri vonar að samning- ur tryggi rekstrargrundvöllinn Myndlistaskólinn á Akureyri fór nýlega fram á 2,5 milljóna króna viðbótarfjárveitingu fyrir árið 2001 hjá Akureyrarbæ vegna hækkana á helstu kostnaðarliðum. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjóra og visar þar til lokaskýrslu starfs- nefndar um myndlistarmenntun á Akureyri en í henni áttu sæti Þröst- ur Ásmundsson, Gunnar Ragnars og Jakob Bjöms- son. Nefndin tel- ur að til þess að tryggja að áfram verði hægt að Helgi Vilberg, skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri. tryggja fjölþætt nám í myndlist á Akureyri verði m.a. að tryggja fjár- magn til að sinna námskeiðahaldi, fornámi og námi í sérdeildum með svipuðum hætti og verið hefur, námskeiðahald í Myndlistarskóla Arnar Inga verði styrkt til jafns við Myndlistaskólann og gerður verði samningur um styrkveitingar frá bæjarsjóði til Myndlistaskólans fyr- ir skólaárin 2001 til 2002 og 2002 til 2003. Helgi Vilberg skólastjóri segist ekki líta á afgreiðsluna sem höfnun, þetta hafi veriö eölileg afgreiðsla á erindinu sem verði afgreitt eftir verslunarmannahelgina og þá gerð drög að samningi. Helgi segist vona að sá samningur tryggi rekstrar- grundvöll Myndlistaskólans á Akur- eyri til lengri tíma. -GG Notaðir bíiar hjá Suzuki bíium hf. Suzuki Baleno Wagon, bsk.Skr. 4/97, ek. 73 þús. Verð kr. 850 þús. Suzuki Baleno GL, 3 d., ssk.Skr. 3/98, ek. 53 þús. Mazda 323F, 5 d., ssk. Skr. 12/99, ek. Opel Astra GL st., bsk. Skr. 3/98, ek. 32 þús. Verð kr. 980 þús. Sjáöu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---///A............. SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100 Daihatsu Terios SX, bsk. Suzuki Wagon R+, 4wd, 5d.Skr. 8/00, ek. 12 þús. Verð kr. 1.090 þús. Suzuki Jimny, 3 d., bsk. Skr. 12/98, ek. 36 þús. Verð kr. 1150 þús. Suzuki Swift GLX, 5 d„ bsk.Skr. 9/97, ek. 34 þús. Verð kr. 630 þús. Daihatsu Applause Xi, 4 d., ssk.Skr. 10/98, ek. 15 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.