Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001
Fréttir
DV
Skattarnir komnir:
Eirfkur á toppnum
- Hagkaupserfingjarnir allt um kring
Eiríkur Sigurðsson, fyrrura kaup-
maður í 10-11 verslununum, er lang-
hæsti greiðandi opinberra gjalda á
landinu en hann greiðir tæpar 100
milljónir í skatta. Ganga má út frá því
að sala hans á 10-11 verslununum á ár-
inu valdi þessari skattbyrði. Það var
Baugsveldið sem keypti á annan tug
verslana af Eiríki sem hagnaðist vel
á sölunni enda voru þær á einkaeigu
hans.
Upphafið í Starmýri
Eiríkur hefur fengist við verslunar-
störf allt frá bamæsku þegar hann ólst
upp í austurbæ Reykjavíkur en Sigurð-
ur faðir hans stofnaði og rak verslun-
ina Víði í Starmýri. Sú verslun flutti
siðar niður í Austurstræti og varö
stórveldi á sínu sviði. Eiríkur og
Matthías bróðir hans tóku við rekstr-
inum við andlát fóðursins og lentu síð-
ar í viðskiptalegu þroti. Upp úr því
stofnaði Eiríkur 10-11 verslanirnar
einn síns liðs og blómstruðu þær í
höndum hans. Afraksturinn má nú
lesa í skattskránni þar sem á herðar
hans eru lagðar 93 milljónir í skatta.
Ingibjórg borgar mest
Allt um kring Eirík á listanum yfir
hæstu greiðendur opinberra gjalda
2001 má sjá erfmgja Hagkaupsveldis-
ins, Jónínu S. Gísladóttur, ekkju
Pálma Jónssonar í Hagkaupi, Sigurð
Gisla Pálmason, Jón bróður hans og
yngri systur þeirra, þær Ingibjörgu
og Lilju. Þar sem Eiríkur Sigurðsson
er búsettur á Seltjamamesi og greið-
ir því skatta i Reykjanesumdæmi er
Jónína ekkja Pálma í toppsætinu yfir
greiðendur hæstu gjalda í Reykjavík;
samtals er henni gert að greiða tæp-
ar 38 milljónir í skatta. Af bömum
hennar greiðir Ingibjörg Pálmadóttir
hæstu skattana eða um 15 milljónir
króna. Systkini hennar greiða minna
enda deila þau öll skattbyrðinni með
mökum sínum en Ingibjörg býr ein
ásamt þremur bömum sínum rétt
við Hljómskálann.
Allir hinir
í öðru sæti topplistans í Reykja-
vík situr Guðmndur T. Sigurðsson,
Funafold 30, með 20 milljónir, Jón
Guðmundsson, Skúlagötu 20, með
19 milljónir og Jón Hjartarson,
Haðalandi 2, með 18 milljónir.
Sjötta sætið skipar svo Færeyingur-
inn Jákup Dul Jacobsen í Rúm-
fatalagernum. Hörður Sigurgests-
son, fyrrum forstjóri Eimskip*afé-
lagsins, nær ekki nema 17. sætinu
með tæpar 12 milljónir í skatta og
skríður þar rétt yfir Kristin Björns-
son, forstjóra Skeljungs, sem er
nokkrum krónum undir.
í Reykjanesi er Benóný Þórhalls-
son í Grindavík í öðru sæti á eftir
Eirlki skattakóngi en Benóný er
gert að greiða rúma 53 milljónir í
Eiríkur Sigurðsson
Trónir á toppnum eftir sölu á 10-11 verslunum sinum á árinu.
Pálmi Jónsson
Erfmgjarnir hafa ávaxtaö pund hans
vel og eru enn aö.
Deilir skattbyröi
meö konu
sinni og er i
Liija Pálmadóttir
/ sjötta sæti
eignaskattalist-
ans ásamt eigin-
manni sínum,
Jón
Pálmason
Líkt og systkinin.
í sjötta sæti á
Reykjanesi.
skatta. Þar á eftir
er Sólveig Edda
Bjarnadóttir í
Hafnarfirði með
30 milljónir.
Heildarskattar
í Reykjavík þetta
árið nema tæp-
um 48 milljörð-
um og í Reykj-
ansumdæmi eru
þeir rúmir 32
milljarðar. -EIR
13. sæti. Baltasar Kormáki.
Skattakóngar landsbyggðarinnar
Það er útgerðarmaður í Grímsey
sem slær Samherjafrændum og öðr-
um við á topplista skattstjórans á
Norðurlandi eystra. Henning Jó-
hannesson í Grímsey greiðir tæpar
12 milljónir í skatta á meðan Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, stendur í rétt rúmum 8
milljónum.
í Vestmannaeyjum er það einnig
fyrrum útgerðarmaöur og skip-
stjóri á Gandi sem er efstur með
tæpar 16 milljónir í skatta. Á hæla
honum fylgir Guðbjörg M. Matthí-
asdóttir, ekkja Sigurðar Einarsson-
ar, með 9,5 milljónir.
Á Vesturlandi er Aðalsteinn
Haraldsson trillukarl efstur með 19
milljónir og Marteinn Gíslason,
skipstjóri í Snæfellsbæ, í öðru sæti
með þrisvar sinnum minni skatt-
byrði.
Vestur á ísaflrði trónir ekkja á
níræðisaldri á toppnum með 16,5
milljónir I skatta. Ekkjan heitir
Kristjana Ólafsdóttir og háa skatta
í ár getur hún þakkað eða kennt
um því að hún seldi rækjubát í
fyrra.
Á Austurlandi er það Gunnar
Ásgeirsson, skipstjóri og útgerðar-
maður á Höfn, sem greiðir hæstu
skattana eða tæpar 9 milljónir. í
öðru sæti er Jón Karlsson, útgerð-
armaður á Djúpavogi, með tæpar 7
milljónir. -EIR
Kópavogshöfn:
Vesturbakki vill
reisa 5000 fer-
metra vöruhús
Fyrir skömmu hélt hafnarstjórn
Kópavogs fund með tveimur fyrirtækj-
um sem sótt hafa um aðstöðu við
Kópavogshöfn, Eignarhaldsfélaginu
Vesturbakka ehf., sem sótt hefúr um
aðstöðu við Vesturvör 32b og c, og
Landnema ehf. sem sótt hefur um að-
stöðu við Vesturvör 32a.
Á fundinn mætti fyrir hönd Land-
nema ehf. Sigurður Björnsson i forfóll-
um Tryggva Sigurðssonar og frá Vestur-
bakka voru mættir Kristinn Már Þor-
steinsson verkfræðingur og Kristinn
Ragnarsson arkitekt. Fram kom hjá full-
trúum Eignarhaldsfélagsins Vestur-
bakka ehf. að ijármagn væri tryggt til að
reisa allt að flmm þúsund fermetra
Honco-vöruhús með minnst 7 metra loft-
hæð. Það væri vöntun á slíku vöruhúsi
og kæmi höfninni til góða.
Fram kom hjá fulltrúa Landnema
ehf. að hjá kanadíska fyrirtækinu sem
fjármagnar fyrirtækið væri verið að at-
huga aðstöðu á írlandi ef dráttur yrði á
lóðaúthlutun við Kópavogshöfn. Bæði
þessi fyrirtæki verða með hafnsækna
starfsemi, sem svo er kölluð. -DVÓ
Háskólinn á Akureyri:
30% aukning
í aðsókn
Ásókn nemenda í Háskólann á Ak-
ureyri er um 30% meiri í ár en hún
var í fyrra. Nú stefhir í að um 900 nem-
endur stundi nám við skólann í vetur
en þeir voru tæplega 690 í fyrra. Mest
er fjölgunin í rekstrardeild þar sem
nemendum mun flölga um 125, úr 168 í
293, og í kennaradeild þar sem þeim
fólgar um 84 eða úr 258 í 342. Þá tekur
ný deild til starfa við skólann, upplýs-
ingatæknideild, en í henni munu 33
nemendur stunda nám til BS-prófs í
tölvunarfræði.
Að sögn Bjarna P. Hjarðar, deildar-
forseta rekstrardeildar, má ætla að
þessa miklu fjölgun nýnema í deild-
inni megi skýra með tvennum hætti.
Annars vegar sé rekstrardeildin að
sanna sig sem valkostur fyrn þá sem
áhuga hafa á viðskiptatengdu námi,
deildin sé önnur af tveimur upphaf-
legu deildum skólans og sífellt fleiri
séu að átta sig á tilvist hennar. Hins
vegar bendir Bjami á að rekstrardeild-
in bjóði upp á fjamám sem hófst af
krafti í fyrrahaust, þegar kennt var á
Reykjanesi hópi sem náði ágætum ár-
angri. „Nú höfum við breikkað væng-
hafið og tökum inn á annað hundrað
bamemendur á 10 stöðum á landinu.
Og þar má í raun skýra þessa tvöfóld-
un nýnema í deildinni," segir Bjami.
Kennsla hefst þann 20. ágúst. -BG
Veðriö í kvöld | Sólargangur og sjávarföll Veðrið á morgun Veðrið
• 15°
3
-7°
>>
V 3) v/r.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag I kvöld 22.31 22.34
Sólarupprás á morgun 04.37 04.03
Síödegisflóö 17.06 21.39
Árdegisflóö á morgun 05.23 09.56
Skýringar á veðurtáknum
Kwndatt 10V-Hm
V
9°.
Bjartviðri á Norðurlandi
Hæg suðlæg eða breytileg átt - skýjaö veröur
að mestu og skúrir á sunnan- og vestanverðu
landinu. Bjartviðri á Noröurlandi en hætta á
síðdegisskúrum. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast í
innsveitum á Noröurlandi.
-io° \V1NDSTYRKUR Vcr»ncr i nwtrum á sðkfmdu 1 HEIDSKÍRT
íD o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AtSKÝJAO
w \á
RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA
b? “tr =
ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Ástand fjallvega
Vegir landsins
Upplýsingar um ástand og opnanir á
fjallvegum, vegaframkvæmdir og
vegalokanir er aö fá hjá Vegagerð-
inni. Heimasíöa hennar er
www.vegag.is en einnig er hægt aö
hringja í þjónustusíma hennar.
m
V»flir á akyggáum ivmðum MýxulajöRUU
eru lokaðlr þar tH annað
v«»Ur .uQiý.t www.vagag.ls/faard
Norðan og noröaustan
Norðaustan 5 til 10 m/s veröa um suöaustanvert landiö og dálítil súld
eöa rigning þegar líöur á daginn en annars fremur hæg norölæg átt,
skýjaö með köflum og þurrt aö mestu.
Föstud
Vindur:
3-8 l«/S
m
S
Hiti 7° til 17°
Norölæg átt, 3 tll 8 m/s.
Dálítil súld eöa rignlng
austanlands en yflrleltt
bjart veöur um
suövestanvert landlö.
Laugari
Vindur: (
3-5 nV* \
Hiti 7° til 17°
Fremur hæg norölæg eöa
breytlleg átt, lítlls háttar
rigning eöa skúrlr austan
tll, en annars skýjaö meö
köflum og þurrt aö mestu.
Sunnudi
Vindun
3-5 m/s
'■jgur
S
Hiti 9° til 18°
Hæg norölæg eöa
breytileg átt, víöa bjart
veöur til landsins, en sums
staöar þokuloft vlö
ströndina, elnkum noröan
og austan til
AKUREYRI
BERGSSTAÐ IR
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐ IR
KIRKJUBÆJARKL.
KEFLAVÍK
RAUFARHÓFN
REYKJAVÍK
STÓRHÖFÐ I
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBUN
HAUFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEWYORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
BYGGT A UPPl-VSINGUM FRA VEÐURSTOfU
skýjaö
alskýjaö
úrkoma
skýjað
skýjaö
rigning
alskýjað
skýjaö
skýjaö
skýjað
léttskýjað
léttskýjað
skýjað
skúrir
þokumóð a
heiðskírt
skýjað
heiðskírt
léttskýjaö
skýjað
léttskýjaö
léttskýjaö
léttskýjað
skýjaö
léttskýjaö
heiöskírt
heiöskírt
skýjaö
heiöskírt
skýjaö
léttskýjað
léttskýjaö
léttskýjaö
9
9
10
9
9
9
9
9
9
12
16
11
16
11
9
17
25
16
26
13
17
19
15
4
17
16
22
21
6
23
23
19
24
18
18
Snatej