Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001
ÐV
Utlönd
11
Chandra Levy sást eftir 30. apríl:
Nýjar vísbendingar
í lærlingsmálinu
Nýjar vísbendingar birtast nú í
mannshvarfsmáli lærlingsins
Chöndru Levy.
Lyklasmiðurinn John Woodfolk i
Washington segist hafa séð Levy i
maí. Hingað til hefur rannsókn
málsins gengið út frá því að lærling-
urinn hafl ekki sést síðan þann 30.
apríl, þegar hún sagöi upp aðild
sinni að líkamsræktarstöð. Hún var
talin hafa horfið í síðasta lagi þann
1. maí, þegar hún sendi tölvupóst
frá heimili sínu.
Woodfolk segir Levy hafa komið
til sín í fyrstu vikunni í maí. Hann
telur hana hafa látið gera afrit af
íbúðarlykli. Að sögn hans borgaði
Levy með greiðslukorti en hann hef-
ur ekki undir höndum kvittun.
Rannsakendur í máli Levy hafa
ekki undir höndum neina staðfest-
ingu á því að Levy hafi notað
greiðslukort eftir 30. april.
Gary Condit
FBI ðlyktar að þingmaöurinn hafi ekki
átt í tygjum viö 18 ára prestsdóttur.
Lögregla hefur dregið úr leit
sinni að Levy í skógum og yflrgefn-
um byggingum nærri íbúð hennar.
Þar með er lokið þriggja vikna ítar-
legri leit að lærlingnum og verður
ekki leitað að nýju nema vísbend-
ingar gefi sérstakt tilefni til.
Enginn er grunaður af lögreglu
um að hafa átt þátt í hvarfl Levy.
Þingmaðurinn Gary Condit hefur
þó verið yflrheyrður fjórum sinnum
í tengslum við málið. Hann átti í
ástarsambandi við hana. Condit er
af mörgum talinn rúinn trausti eftir
að hafa logið að lögreglunni og beð-
ið flugfreyju sem hann átti í sam-
bandi við að gera slíkt hið sama.
Fréttir í gær gáfu honum þó nokkra
huggun. Bandaríska alríkislögregl-
an ályktar að ekkert sé hæft í ásök-
unum prests sem sagði Condit hafa
verið í tygjum við 18 ára dóttur
sína.
% M fr .
\ ' •--SfrVflÍHk, m'
Fjör í fjörunni
Haghentu sandlistamennirnir Daniel Glover frá Bandaríkjunum og Dennis Luijer frá Hollandi grafa upp risaeðlu í fjör-
unni í borginni Zeebrugge í Noröur-Belgíu. Nú fer fram Sandkastalahátíö í borginni og hefur hún dregiö aö sér 60
listamenn frá mörgum löndum. Afrakstur hátíöarinnar veröur til sýnis þann 10. ágúst.
Lokatilraun til bjarg-
ar friðarviðræðum
Ríkisstjórnir Bretlands og írlands
birta í dag tillögur sínar sem ætlað
er að bjarga friðarsamkomulagi,
kenndu við fostudaginn langa, milli
deiluaðila í Norður-írlandi. Tillög-
urnar hafa verið í smíðum síðan að
viðræður til bjargar friðarferlinu á
Norður-írlandi fóru út um þúfur
fyrir þremur vikum. Friðarferlið
stöðvaðist þegar David Trimble,
leiðtogi Ulster-sambandssinna,
sagði af sér sem fyrsti ráðherra
samsteypustjórnar flokks sins og
Sinn Fein, stjórnmálaarms frska
lýðveldishersins.
Bæði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, og Bertie Ahern,
forsætisráðherra írlands, hafa sagt
að tillögurnar sem kynntar verði í
dag séu lokatilraun til að koma frið-
arferlinu af stað aftur. Ef það ekki
tekst verður að grípa til nýrra kosn-
inga á Norður-írlandi eða, í versta
David Trimble
Tekur ekki þátt í stjórn nema írski
lýöveldisherinn afvopnist.
falli, að breska stjórnin taki aftur
við stjómartaumnum, sem þýðir
sigur andstæðinga friðarferlisins
meðal mótmælenda.
í tillögunum er tekið á helstu
deilumálum sem komið hafa í veg
fyrir samkomulag. Þ.á m. brottflutn-
ingi breskra hermanna, endurbæt-
um innan lögreglusveita, sem eru
að mestu skipaðar mótmælendum,
treystingu pólitískra stofnana og af-
vopnun frska lýðveldishersins.
Síðasta atriðið er einmitt ástæða
þess að David Trimble sagði af sér.
Hann lét hafa eftir sér í gær að ef
ekki væri tekið á því máli þá myndi
flokkur hans aldrei taka þátt í ríkis-
stjórn með Sinn Fein. Leiðtogar
Sinn Fein segja að tillögurnar megi
hvergi víkja frá upphaflega friðar-
samkomufaginu. Þeir leggja áherslu
á endurbætur innan lögreglu og
fækkun í setuliði breska hersins.
GG!
Ef TRAFFIC er ekki inni
pá færðu liana FRITT næst
begar Dú kemur.
BONUSUIDEO
R0FABÆ 9
MÁl/AHLÍÐ 25
ÁNANAUST15
GRUNDARSTÍG 12
GRENSÁSVEGI 40
LÆKJARGÖTU 2. HAFN.
BREKKUHÚSI 1
MJÓDD
GRÍMSBÆ
GRUNDARSTÍGUR
LÓUHÓLUM 2
NYBYLAVEGI 16
ENGIHJALLA 8
ÞVERH0LTI 2, M0SF.
UNDIRHLÍÐ 2, AKUR.
LAUGALÆK 6
SMIÐSBUÐ 4, GARÐABÆ
KLEPPSVEGI 150
GODAHRAUNI VESTM.