Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 Skoðun DV Hvernig finnst þér veðrið hafa verið í sumar? Guðni Guðnason: Þaö hefur veriö sæmilegt á köflum, svona ágætt veöur til útivistar. Enginn afsláttur Jón Sigurðsson veitingamaöur hringdi: í bréfí frá Sigurði sem birtist í DV síðastliðinn mánudag kvartar mað- urinn mjög undan háu verði í veit- ingahúsum hérlendis. Ekki telur hann upp alla þá miklu kostnaðar- liði og opinberu álögur sem veit- ingamenn verða að standa undir. Ein af rangfærslum Sigurðar er að hann segir aö veitingahús fái bjórinn á heildsöluverði. Þetta er Veitingamenn okra ekki á viðskiptavinum sínum eins og Sigurður staðhœfir og þeir fá ekki áfengi á lœgra verði í Ríkinu en aðrir við- skiptavinir. rangt. Við verðum aö kaupa ölið á sama útsöluverði og aðrir. Þar að auki verðum við að bera kostnað af rýrnun á kranaölinu sem alltaf er nokkur. Það eru ótal aðrir kostnaöarliðir sem veitingahús verða að standa undir sem að lokum lenda á við- skiptavininum. Veitingamenn okra ekki á við- skiptavinum sínum eins og Sigurð- ur staðhæfir og þeir fá ekki áfengi á lægra verði í Ríkinu en aðrir við- skiptavinir. Magnús Kristjánsson: Sara mjög gott þaö sem af er sumri. Ég vona að hinn helmingurinn veröi jafngóöur. Erla Pétursdóttir: Þaö hefur veriö frekar kalt í Rvk en hlýtt á ísafiröi þannig að ég er sátt. A Austurvelli Þaö getur vel veriö aö þaö sé bara oröiö sýnilegra en engu síöur líöur ekki sá dagur aö maöur rekist ekki á svona hóp og þaö vita allir sem rölta reglulega í miöbænum. Margrét skrífar: Töluverð umræða hefur verið undanfarið um ástandiö i miðbæn- um að degi til. Margir hafa ímugust af svokölluðum rónum sem hægt er aö sjá á hverjum degi á Austurvelli og Lækjartorgi. Þetta ógæfufólk ráfar um ofurölvi og illa til reika og ekki fer á milli mála að þama eru einstaklingar á ferð sem búa við mikil vandamál. Það er hægt að full- yrða að svona fólki hefur fjölgað til muna í miðbænum. Það getur vel veriö að það sé bara orðið sýnilegra en engu síður líður „Sumarlokanir og fjársvelt- ar meðferðarstofnanir er eitthvað sem við eigum ekki að líða. “ ekki sá dagur að maöur rekist ekki á svona hóp og þaö vita allir sem rölta reglulega í miðbænum. Eitt- hvað hlýtur að hafa breyst. Sumir segja þetta sé vegna þess að arftaka Keisarans sé nú að finna í miðju Austurstrætinu en aðrir segja að skýringin sé mun alvarlegri og hún liggi í verri þjónustu hins opinbera við þetta fólk. Sumarlokanir og fjársveltar meðferðarstofnanir er eitthvað sem við eigum ekki að líða. Við verðum að muna að þetta fólk hefur líka rétt, rétt til heilsu og bata. Endurbætum frekar þjónust- una við þetta fólk og hjálpum því til heilsu i eitt skipti fyrir öll í staðinn fyrir að koma meö heimskulegar lýðskrumshugmyndir um bann við ölvun á sérstökum svæðum. Fyrir utan mannlega harmleikinn sem hlýst af óreglu þá er það mjög dýrt fyrir samfélagið að missa heilan einstakling út í iðjuleysi og sjálfstortímingu. Reynir Hermannsson: Mjög gott, ég hef allavega komist í sóibaö. Helga Helgadóttir: Þaö hafa veriö fáir góöviörisdagar en þeir hafa þó veriö yndislegir. Þór Olafsson: Ég hef nú reyndar veriö eitthvaö er- lendis í sumar en sá tími sem ég hef eytt á íslandi hefur veriö góöur. Slæmt ástand í miðbænum Garri Mark er að Þá hefur það loksins sannast í eitt skipti fyrir öll að Þorsteinn á Borg hafði rangt fyrir sér þeg- ar hann sagði í Gunnlaugssögu ormstungu að ekki væri mark að draumum. Enda trúði Þor- steinn svo sem ekki sjálfur sínum eigin yfirlýs- ingum eins og fram kemur í sögunni. En Garri hefur loksins fengiö þá staðfestingu á drauma- ráðningum og forlagatrú sem hann þurfti og mun nú óragur láta konuna á efri hæðinni spá fyrir sér í bolla í framtiðinni. í DV í gær er upp- ýst að Bæjarpósturinn á Dalvík hafi birt spádóm dalvískrar völvu um síðustu áramót og þar sýn- ist Garra sem flest sé komið fram og, það sem meira er, spádómur völvunnar sé ekki svo al- menns eðlis að hann hljóti að koma fram hvað sem gerðist, eins og titt er um svona spádóma, heldur sé þama veriö að spá ólíklegustu hlutum. Þegar spádómar um hið fjarstæðukennda ganga eftir þá er ekki annað hægt en staldra við og kanna málið betur. Hlð fjarstæöukennda Og það sem var fjarstæðukenndast af öllu í spádómi völvunnar hafði ekkert með veðurfar, náttúruhamfarir eða iþróttir að gera - þótt völv- an hafi raunar náð ágætum árangri í þeim efn- um líka. Það fjarstæðukenndasta sneri aö stjóm- draumum málamanninum Áma Johnsen. Um Áma segir völvan: „Árni Johnsen veröur í sviðsljósinu í vor. Ég finn fyrir þessu að þetta verði mikið fjöl- miðlafár. Mikið blásið út og gott ef Árni stendur ekki sterkari eftir.“ Hér er greinilega næm manneskja á ferðinni því þessi orð voru töluð í janúar. Aðeins er um tvennt að ræða til skýring- ar á þessari framsýni. Annaðhvort er völvan ein- faldlega forspá eða þá að hér er á ferðinni ein- hver sem vinnur í byggingavöruverslun og hefur fylgst með úttektum Árna á nöfn ístaks og bygg- ingamefndar Þjóðleikhússins. Sá hinn sami hef- ur áttað sig á að svona nokkuð gengi ekki til lengdar og því séð fall Áma fyrir af þessum sök- um. En þar sem Ámi verslaði mest fyrir sunnan og völvan er á Dalvík hallast Garri að því að hið fyrra sé rétt, völvan sé einfaldlega svona forspá. Heilabrot En það er einmitt þessi niðurstaða - að völvan sé í raun og veru sannspá - sem hefur valdið Garra talsverðum heilabrotum. Völvan spáir því nefnilega líka að Árni muni standa sterkari eftir þetta gjömingaveður en hann var fyrir það. í sjálfu sér er freistandi að segja að þetta hljóti að vera mistök hjá völvunni en þaö er alls ekki nægjanlega sannfærandi afgreiðsla. Hin æpandi ____________________________________ 1 staðreynd er sú að hún spáði fyrir um Árnamál- ið sem þá var talið fjarstæðukennt. Því ætti hún ekki að geta spáð fyrir um fjarstæðukenndar lyktir þess líka? Þessi spádómur hefur vakið ótölulegar spumingar og þá ekki síst þá hvort það geti verið að Sjálfstæðisflokkurinn muni koma Árna til hjálpar þegar mestu lætin eru hjá. Eða kemur kannski einhver annar honum til hjálpar? Er kannski helgarviðtalið fræga við Davíö í DV til marks um að þaðan sé að vænta hjálparhandar - mörgum fannst jú forsætisráð- hera vera að verja sinn mann dálítið þar? Marg- ar fleiri spumingar vakna viö þessi tíðindi en vegna þess að Garri hefur ekki sjálfur spádóms- gáfuna verður hann einfaldlega að bíða ásamt þúsundum annarra spádómsgáfulausra lands- manna eftir næsta þætti í sápu- óperunni um Árnamálið! u3fH Undarlegar skoð- anakannanir Kristján hringdi: Mikið verð ég hissa þegar ég sé skoðanakannanir um stjórnmáia- flokkana og kemst að því að allt að fjórðungur þjóðarinnar styður jafn- hættulegar hugmyndir og Vinstri grænir boða. Ég hef aldrei verið tal- inn vera mikill hægrimaður en mál- flutningur Vinstri grænna er mér ekki aö skapi. Það yrði þjóðinni ekki til góða að minu viti ef Ög- mundur Jónasson stjórnaði efna- hagsmálunum eða Kolbrún Hall- dórsdóttir stjórnaði því hvað við mættum sjá í sjónvarpinu. Við myndum uppskera þjóðfélag forræð- ishyggju og afturhalds. Fólkinu í landinu væri ekki treyst fyrir einu eða neinu heldur væru „góðar“ rík- isstofnanir sem sæju um þetta fyrir okkur. Ég vona að samborgarar mínir átti sig fyrr en seinna á því hvað Vinstri grænir eru að boða í raun og veru. Bjórglas. Endurvinnsla á gleri Auöunnjskrifar: Mér er fyrirmunað að skilja eitt varðandi endurvinnslu á drykkjar- ílátum. Hvemig stendur svo undar- lega á, að endurgreiðsla fæst fyrir áldósir, plast- og glerflöskur, sem áður hafa geymt gos eða djús eða aðra þá drykki sem ríkið telur holl- ari þeim sem ég kýs að slökkva þorstann með, en ekkert fæst fyrir bjórflöskur? Ég er mikill bjórmað- ur. Mér fmnst fátt betra en að svolgra i mig öl þegar viðrar jafn vel og undanfarið eða eftir vinnu. Nú er svo komið að minjarnar um drykkju sumarsins eru að sprengja af sér allar minar hirslur. Hvers á ég að gjalda? Bílastæöi í Noregi eru nú komnar sérstakar bakkperur sem eiga aö koma í veg fyrir slys. Vandamál meö bílastæöi Blleigandi skrifar: Hér í miðborginni eru viða þrengsli með bUastæði. Þröng bíla- stæði gera það að verkum að menn þurfa að bakka út án þess að sjá svo vel hvað kann að vera fyrir aftan bifreiðina. í Noregi eru nú komnar sérstakar bakkperur sem eiga að koma í veg fyrir slys. Þá gefa bakk- ljósin frá sér sérstakt hljóö þegar bakkað er, eins og er t.d er í mörg- um vörubUum. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.ls Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.