Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Blaðsíða 4
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2001
J»V
10 þúsund manns tóku undir brekkusönginn í Herjólfsdal:
Arna tekið eins
og poppstjörnu
- tókst bara eins og til stóð, sagði þingmaðurinn fyrrverandi
DV, VESTMANNAEYJUM: ______________
„Þetta tókst bara eins og til stóö
og mér sýnist allir ánægðir,“ sagði
Ámi Johnsen, fyrrverandi alþingis-
maður, þreyttur en ánægður með
móttökurnar sem hann fékk í
brekkusöngnum á þjóðhátíðinni í
Eyjum á sunnudagskvöldið.
Hafi einhverjir efast um að Árni
Johnsen, fyrrum alþingismaður,
gæti staðið fyrir brekkusöngnum á
þjóðhátið í ljósi atburða síðustu
vikna urðu þeir hinir sömu að
skipta um skoðun um leið og Árni
kom fram kl. 11 á sunnudagskvöld-
ið. Hans biðu milli 9 og 10 þúsund
manns og var greinilegt að fólkið
var mætt til þess eins að taka þátt í
brekkusöngnum. Um leið og kveikt
var á varðeldinum og Árni steig
fram fór fagnaðaralda um hópinn og
var engu líkara en hljómsveit á
heimsmælikvarða væri að stíga á
sviö í Herjólfsdal. Hafa ekki margir
íslenskir skemmtikraftar fengið
aðrar eins móttökur og trúlega eng-
inn stjómmálamaður.
Árni var meö sitt venjulega pró-
gramm með lögum eins og Bjama-
staðabeljurnar, þekkt Eyjalög, Bálið
brennur og endaði á þjóðsöngnum
sem hver söng með sínu nefi en all-
ir stóðu upp og sýndu með því þjóð-
söngnum virðingu sina. Þessu lauk
svo með því að 127 blys lýstu upp
Þjóðsöngurinn
Árni Johnsen endaöi á aö syngja Ó,
Guö vors lands ...
Herjólfsdal
eitt fyrir hvert
ár sem þjóðhá-
tíð hefur verið
ihaldin í Vest-
mannaeyjum.
Sennilega verð-
ur þjóðhátíðar-
innar 2001
lengst minnst
fyrir veðurblíð-
una sem var
alla dagana.
Flesta dagana
var sólskin og
hlýtt og varla
bærðist hár á
höfði. Fyrir
vikið var yfir-
bragð hátíðar-
innar með
miklum ágæt-
um og gestir
vel útlitandi
þrátt fyrir
átökin við
Bakkus sem
aldrei er langt
undan á útihá-
tíðum.
Annars er
það um þjóðhá-
tíðina í Vestmannaeyjum að segja
að hana sóttu um 9.000 manns og fór
hátíðin að mestu vel fram. Hún var
sett á fóstudaginn með hefðbundn-
um hætti, hátíðarræðu, hugvekju,
kórsöng, lúðrablæstri og íþróttum
ungmenna. Brennan var á sínum
stað á föstudagskvöld, flugeldasýn-
ing á laugardaginn og hápunktur-
inn var að venju á sunnudagskvöld-
ið þegar Árni hóf upp raust sína
með brekkukómum.
Kvölddagskráin var fjölbreytt þar
sem margir landsþekktir skemmti-
kraftar skemmtu og á kvöldin var
dansað á tveimur pöllum og allt
fram á 7. tímann á mánudagsmorg-
uninn. Vestmannaeyingar búa yfir
mikilli reynslu í hátíðahaldi sem
þessu og fátt sem kemur mönnum á
óvart, og ef eitthvað ber út af eru
lögregla og gæslulið fljót að grípa
inn í. -ÓG
i-jor i DreKKunni
Þúsundir tóku undir meö Árna Johnsen í brekkusöngnum á sunnudagskvöld.
Þingmaöurinn fyrrverandi kom, söng og sigraöi.
Þingvallavatn:
Rafvirki synti yfir
- enginn kuldahrollur
Fylkir Þ. Sævarsson, raf-
virki og áhugamaður um
himdarækt til manneldis,
synti á laugardaginn yfir
Þingvallavatn. Að eigin sögn
synti Fylkir tæpa fhnm kíló-
metra á tveimur klukkutím-
um. „Bein loftlína þar sem ég
fór yflr er svona 4,3 kíló-
metrar en ég tók vitlaust mið
í upphafi þannig aö það
teygðist aðeins á þessu hjá
mér. Þetta gekk ótrúlega vel og ég
fékk ekki einu sinni kuldahroll þeg-
ar ég kom upp úr.
Það kom margt fólk til að fylgjast
Fylkir Þ.
Sævarsson,
með, bæði þegar ég fór ofan í
og til að taka á móti mér. Fé-
lagar í björgunarsveitinni
Tryggva á Selfossi fylgdu
mér yfir og félagi minn var
með í bátnum og gaf mér
orkudrykk annað slagið."
Fylkir sagðist vera búinn
að æfa vel fyrir sundið. „Ég
hef verið að synda í Soginu,
Úlfljótsvatni og náttúrlega í
Þingvallavatni þannig að ég
var vel undir þetta búinn, enda
óvinnandi ef maður er ekki í góðu
formi.“
-Kip
Björn Bjarnason:
Hrægammar
setjast aö Árna
Engu er líkara en
hrægammar hafi sest
að Áma Johnsen og
fellt hann. Þetta segir
Björn Bjarnason
menntamálaráð-
herra í nýjum pistli á
vefsíðu sinni. „Þegar
ég les sumt af því,
sem skrifað er vegna
máls Áma Johnsens,
eða hlusta á það, sem
sagt er í útvarpi eða sjónvarpi, dettur
mér í hug dýralífsmynd frá Afríku.
Hjörð af dýrum er á ferð um gresjuna,
eitt þeirra heltist úr lestinni og ekki
líður á löngu, áður en það er umkringt
af hrægömmum, sem linna ekki látum,
fyrr en þeir hafa fellt dýrið og drepið
með því að rífa úr þvi innyflin," segir
ráðherrann.
Hann segir að Árni, sem fyrstur
manna hafi sagt af sér þing-
mennsku vegna ásakana um spill-
ingu, muni taka út sína refsingu.
„Árni er ekki lengur í opinberri
stöðu og verður því ekki hafður
að skotspæni vegna þess“ segir
Björn. -sbs
Björn
Bjarnason.
Jón Steinar Gunnlaugsson:
Jón Baldvin
víkur sérkenni-
lega að mér
„Jón Baldvin
Hannibalsson víkur
að mér og málsvöm
minni fyrir Magnús
Thoroddsen fyrir
rúmum tíu árum í
þessu viðtali með
mjög sérkennileg-
um hætti,“ segir
Jón Steinar Gunn-
laugsson hæstarétt-
arlögmaður. í viö-
tali í DV um helgina rifjar Jón Bald-
vin upp í tilefni af viðtali blaðsins
við Davíð Oddsson á dögunum að
vegna áðurnefndrar málsvarnar
hafi Jón Steinar beitt því í
málsvöm sinni að víða væri pottur
brotinn .og dróttaði því að mér
að ég hefði misnotað aðstöðu mína
til að kosta afmælisveislu konu
minnar“ eins og hann segir orðrétt
í viðtalinu
„Þessi ummæli sendiherrans gefa
tilefni til að rifja upp þau atvik sem
hann víkur hér að. Til þess að gera
það þarf ég að komast í gögn sem ég
hef ekki við höndina sem stendur
en hef þegar gert ráðstafanir til að
afla. Þegar ég hef fengið þau í hend-
ur mun ég óska eftir að DV birti
svör mín,“ segir lögmaðurinn. -sbs
Jón Steinar
Gunnlaugsson.
1 Veðríð í dag
•'Á K. E Cf"
4T f -yP'
'■jf'v' 43f*
Skúrir suöaustanlands
Fremur hæg norðlæg eöa breytileg átt en
norðan 8-10 m/s austanlands síðdegis. Skúrir
í kvöld, einkum sunnan til. Skýjað en
úrkomulítið á Noröur- og Austurlandi á
morgun, skúrir suöaustanlands en skýjaö meö
köflum og stöku síðdegisskúrir vestan til. Hiti
8 til 17 stig aö deginum.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRi
Sólarlag i kvöld 22.11 22.17
Sólarupprás á morgun 04.57 04.26
Síödegisflóö . 20.30 00.33
Árdegisflób á morgun 08.14 12.47
Skýríugar á veöurtáknma
.Kwndatt 10V-Hm -10° *
> VINDSTYRKUR j mefnim á stíkfmdu *Vrost HEJOSKÍRT
■&> gy o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
:ú Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
Q ö ==
ÉUAGANGUR PRUIVUF VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Allt eftír v
Í't/jrluu
Stökkvandi fiskar boða regn
Þegar máfar og svartbakar setjast
saman í miklum hópum á fjörusker
boöar þaö storm og óveöur.
Þegar hani galar oft og óvanalega fýrr
en hann er vanur táknar það
snjókomu.
Ef fiskar og smáseiði stökkva upp úr
sjó og vatni boöar þaö regn.
Bjartviöri í uppsveitum
Noröan 3 til 8 m/s og bjartviöri sunnan- og vestanlands en annars
skýjaö aö mestu. Hætt viö síðdegisskúrum suðvestanlands. Hiti 7 til 17
stig, hlýjast í uppsveitum.
Miövíkudáj
Vlndur: C
3-8 m/s \
m
Híti 7" til 17“
Norbanátt og bjart sunnan-
og vestanlands en annars
skýjaö aö mestu
suövestanlands. Hlýtt í
uppsveltum.
Fimmtudaj
Vindur: //">
6-12 tn/B
Hiti 9“ tit 16“
Litur út fyrir staöviöri og
birtu víöast hvar.
Norövestanátt á miðum
10-15 m/s noröaustur af
landinu en annars hæg
norövestlæg átt.
Fostudagjur
Vindur: //"'
6-10 m/B
Hiti 9° til 16°
Hæg breytlleg átt og bjart
vebur vibast hvar. Fremur
hlýtt í vebrl.
1 Veöríö kl. 12
AKUREYRI alskýjaö 10
BERGSSTAÐIR skýjaö 10
BOLUNGARVÍK léttskýjaö 11
EGILSSTAÐIR alskýjaö 10
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 12
KEFLAVÍK skýjaö 12
RAUFARHÖFN alskýjaö 8
REYKJAVÍK skýjaö 13
STÓRHÖFÐI skýjaö 12
BERGEN úrkoma 13
HELSINKI skýjaö 20
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 20
ÓSLÓ úrkoma 20
STOKKHÓLMUR slydda 16
ÞÓRSHÖFN skýjaö 11
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma 14
ALGARVE heiöskírt 28
AMSTERDAM rigning 21
BARCELONA léttskýjaö 27
BERLÍN skýjaö 21
CHICAGO skýjaö 22
DUBLIN
HALIFAX
FRANKFURT
HAMB0RG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEWYORK
ORLANDO
PARlS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
súld
þoka
rigning
skýjaö
skýjaö
rigning
súld
hálfskýjað
heiöskírt
skýjaö
mistur
alskýjaö
skýjaö
skýjaö
þokumóöa
heiöskírt
15
16
18
21
7
21
16
28
24
10
27
23
21
24
23
'18
■atiia»iii5ammfiá;tfA»iiii»->i.NiiL-itPiiHi