Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2001, Page 9
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001
9
X>-V
Útlönd
SUZUKI BILAJR HF
Skeifunni 17. Simi 568 51 00.
Margaret Thatcher
Áhrif hennar í íhaldsflokknum eru
vís til aö knésetja Kenneth Clarke.
Skipulagöari bullur
Vel skipulögö ólæti, peningafölsun
og fíkniefnasala fylgja nútímabullum.
Fótboltabullur
auka umsvif
Fótboltabullugengi i Bretlandi
eru aö verða stöðugt skipulagðari,
auk þess að vera farin að teygja
anga sína inn í skipulagða glæpa-
starfsemi. Þetta kom fram þegar
breska lögreglan kynnti nýja rann-
sókn á fótboltabullum i gær.
Fótboltabullur láta sér ekki leng-
ur nægja að berja hverjar á öðrum.
Gengin eru nú mörg hver komin í
samband við annars konar glæpa-
menn sem stunda peningafölsun
sem og fíkniefnasölu. Mannfjöldinn
á fótboltaleikjum er tilvalinn mark-
aður fyrir flkniefnasölu, auk þess
sem hann veitir skjól fyrir lögreglu.
Ofbeldisglæpum fótboltabullna
fjölgaði á síðasta ári i fyrsta skipti í
fjögur ár. Bullurnar eru orðnar
mun skipulagðari að sögn lögreglu
og samhæfa sig í gegnum farsíma og
Netið. Auk þess fer ofbeldið nú oft
fram fjarri leikvöngum sem gerir
lögreglu erfiðara fyrir.
Breska íhaldiö:
Thatcher styöur
Duncan Smith
Vindurinn blæs í segl Iains
Duncans Smith í baráttunni um
leiðtogasæti í breska íhaldsflokkn-
um. The Times skýrir frá því í dag
að Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra, styðji evruand-
stæðinginn Duncan Smith gegn
evrusinnanum Kenneth Clarke,
fyrrverandi fjármálaráðherra. Þetta
er enn eitt bakslagið fyrir Clarke,
en í vikunni hét fyrrverandi fram-
bjóðandinn Michael Ancram stuðn-
ingi við Duncan Smith, í ofanálag
við stuðning fráfarandi leiðtoga,
Williams Hagues. Svo virðist sem
afstaða Clarkes í evrumálinu sé að
fella hann í leiðtogaslagnum. 300
þúsund meðlimum íhaldsflokksins
gefst færi á að kjósa á milli Duncans
Smith og Clarke í næsta mánuði.
Svíþjóö:
Myrt í morgun-
umferðinni
39 ára gömul kona fannst myrt
við hraðbraut, nærri Landskrona í
Svíþjóð, um hádegið í gær. Réttar-
læknar segja hana hafa dáið um
morguninn, um 20 metra frá hrað-
brautinni. Samkvæmt sænska
Aftonbladet var lögreglan enn að
rannsaka málið í morgun og fóru
sveitir lögreglumanna með leitar-
hunda um svæðið og vonuðust til að
finna spor eftir morðingjann. Lög-
reglan vildi ekki tjá sig um hvort
eitthvað hefði fundist. Konan bar
engin ummerki þess að um kynferð-
isbrot hefði verið að ræða. Lík
hennar fannst hálffalið inni i runna
og þótti hending að vegavinnumenn
rákust á það svo skömmu eftir
morðið. Talið er að konan sé af er-
lendum uppruna.
Eigurnar endurheimtar
Kevin Nel, bóndi í Zimbabe, skoöar hér eigur sýnar sem hann endurheimti eftir aö landtökumenn tengdir Mugabe
forseta landsins réðust á jöröina hans og yfírtóku hana á laugardaginn síöastliðinn.
Kanslari kneyfar
Gerhard Schröder Þýskalandskansi-
ara þykir sopinn góöur.
Deilt um áhrif
áfengis á heilsu
Spænsk rannsókn á almennum
áhrifum áfengisneyslu á heilsufar
manna leiðir í ljós fylgni milli mik-
illar drykkju og vellíðunar. Hingað
til hefur verið talið að einungis hóf-
samleg drykkja sé mönnum holl.
Rannsóknin var gerð á 19.500
manns víða á Spáni. Þátttakendur
voru spurð hvað þeir drykkju,
hversu mikið og hvemig þeir litu á
heilsu sína. Einnig var horft til ald-
urs, félagslegs bakgrunns og hvers
þess sem gæti haft áhrif á heilsuna.
Rannsóknin sýndi að þeir sem
neyttu einhvers áfengis urðu síður
veikir en þeir sem ekki drekka.
Rannsóknin er í þversögn við niður-
stöður skandinavískra rannsókna
sem tengja áfengisneyslu við slæma
heilsu. Það kann að skýrast af mis-
munandi drykkjuvenjum. Hins veg-
ar greinir rannsóknin ekki
langtímaáhrif neyslunnar.
1,3 GLS • Ný aflmikil vél
Meðaleyðsla 5,6 I
1.080.000,-
Breskar hersveitir, um 400
manns, munu að öllum líkindum
fara inn í Makedóníu á morgun eða
yfir helgina til að undirbúa komu
3500 manna friðargæsluliðs NATO.
Sendiherrar aðildarlanda hernaðar-
bandalagsins ákváðu þetta á fundi
sínum í Brussel í gær. Ákvörðunin
var tekin eftir að ríkisstjórn
Makedóníu samþykkti frumvarp
sem fara á fyrir makedónska þingið
sem greiðir götu fyrir friðargæslu á
vegum NATO. Auk þess hafa leið-
togar albanskra skæruliða gefið lof-
orð sitt um að afvopnast.
Hlutverk bresku hersveitanna er
að setja upp bækistöðvar i
Makedóníu og meta ástandið áður
en allt friðargæsluliðið kemur sér
fyrir. Samkvæmt áætlunum munu
NATO-hersveitirnar ekki dvelja
lengur en 30 daga í Makedóniu. Efa-
semdaraddir segja það óhóflega
bjartsýni og benda á að friðargæsla
í Bosníu hafi aðeins átt að standa i
eitt ár en enn séu þar hersveitir.
Svo virðist sem vopnahlé sé
smám saman að komast á í
Makedóníu. Þó hafa borist fréttir af
endurteknum smáskærum í kring-
um þorpið Tetovo sem byggt er Al-
bönum að meirihluta. Þær skærur
hafa þó aðeins farið fram með létt-
vopnum og í engu líkar þeim ofsa-
fengnu átökum sem áttu sér stað i
síðustu viku.
Telja þeir sem til þekkja að
vopnahlé sé að ná fótfestu.
Makedónska daghlaðið Vest greindi
þó frá því i morgun að lítill hópur
albanskra skæruliða hafi heitið
berjast áfram.
Makedónsk stjórnvöld hafa heitið
að veita skæruliðum sakaruppgjöf,
nema þeim sem gerst hafa sekir um
stríðsglæpi eða neita að láta vopn
sín af hendi. Sakaruppgjöf var eitt
af skilyrðum skæruliða fyrir að láta
vopn af hendi. Makedónskir sak-
sóknarar hafa undirbúið ákærur
um stríðsglæpi gegn 11 leiðtogum
skæruliða.
Megawati biður þjóð-
arbrotin afsökunar
Dregur úr átökum
Makedónskir hermenn hlaupa hér skotgröf fyrr í vikunni. Átök eru nú einangr-
uö viö eitt þorp i Makedóníu og eru þau ekki hörð.
Megawati Sukarnoputri, forseti
Indónesíu, bað uppreisnargjörn
þjóðarbrot í landinu afsökunar fyrir
áratuga mannréttindabrot í þjóðhá-
tíðarræðu sinni í morgun. Héruðin
Aceh og Iryan Jaya eru afar rík af
náttúruauðlindum en þar búa ein-
ungis um 6 milljónir manna.
Megawati sagðist, samfara afsökun-
arbeiðninni, jafnframt útiloka að
þau fengju sjálfstæði. Mikill órói er
í Aceh en uppreisnarmenn hafa
barist fyrir sjálfstæði héraðsins í
áratugi. Mannréttindasamtök segja
að minnsta kosti 1500 óbreytta borg-
ara hafa látist í átökum þar síðan í
janúar. Megawati, sem var valin í
forsetastólinn eftir að forveri henn-
ar, Abdurrahman Wahid, var rek-
inn á grundvelli vanhæfni seint í
síðasta mánuöi, tekur persónulega
ábyrgð á því að leysa deiluna.
Stjórnmálaskýrendur segja heill
Megawati Sukarnoputri
Tekur á rótföstum vanda Indónesíu-
ríkis: Spillingu og uppreisnum
þjóöarbrota.
Megawati í forsetaembættinu
standa og falla með því hvemig hún
höndlar sjálfstæðissinnana, sem
ógna alvarlega samheldni landsins.
í stjórnstU Megawati kveður við
nokkuð nýjan tón í indónesískum
stjórnmálum. Hún biður landsmenn
að veita fjölskyldu sinni engar íviln-
anir, og beinir þeim tUmælum tU
fjölskyldu sinnar að nýta sér ekki
tengslin við forsetaembættið.
Friðargæslulið á leið-
inni til Makedóníu