Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2001, Blaðsíða 11
11
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001
DV_______________________________________________________________________________________________________Hagsýni
Ný skilti í Hveragerði:
Útskorin eik
í stað járns
Þegar ekið er um Hveragerði
vekja útskorin tréskilti með fram
götunum athygli manns. Þau benda
á þá þjónustu sem boðið er upp á í
nærliggjandi stofnunum. Flest skilt-
in sýna kunnugleg tákn, svo sem
merki pósts, apóteks, tjaldstæðis,
sundlaugar og fleiri slík. Önnur eru
nýstárlegri. Skiltin eru úr eik og eft-
ir útskurðinn hafa þau verið brennd
og lökkuð.
Að sögn ferðamálafulltrúans í
Hveragerði,
Davíös Samú-
elssonar, voru
þau sett upp í
vor. Það þótti
við hæfi í þess-
um „blómstr-
andi bæ“ að
hafa tréskilti í
stað járns. Framleiðandi skiltanna
er Axel Björnsson í Hafnarfirði.
Hann kveðst hafa framleitt skilti
af ýmsum gerðum árum saman, ým-
ist úr lerki eða eik. Verð á einu
stykki er 10.000. miðað við að merki
sé báðum meg-
in, en 5.000 ef
aðeins er
merki öðrum
megin. Sé um
bók- eða tölu-
stafi að ræða
er prísinn
1.200 á staf.
Magnafsláttur er gefinn ef um stór-
ar pantanir er að ræða. Axel segir
viðhald skiltanna fara eftir stað-
setningu þeirra. Séu þau áveðurs
þurfi að pússa þau upp og lakka á
þriggja ára fresti en mæði lítið á
þeim telur hann þau halda sér í sex
ár. -Gun
Skólavörur:
Það er ekki þörf á
að kaupa allt nýtt
Þegar blaðamaður var lítil stúlka
var það einn af hápunktum skóla-
ársins að kaupa skólavörurnar. Að
velja rétt var afskaplega mikilvægt
og við þær kringumstæður breytt-
ust venjuleg innkaup i vísindi og
listir. Til dæmis þurfti strokleðrið
sem keypt var að vera bæði
fallegt og vel lyktandi, möpp-
ur og stílabækur að vera í
fullkomnu litasamræmi og
yddarinn meistaraverk í
hönnun. Væntanlega er
ástandið eitthvað svipað í
dag, nema hvað úrvalið er
meira og valið því erfiðara. En
fallegar skólavörur geta kost-
að sitt, ekki sist þegar kaupa
þarf fyrir mörg börn. Þó alltaf
sé stemning að fara í bæinn og
velja sér skóladót er engin þörf
á að sleppa sér i eyðslu.
Þeir sem vilja spara á
þessu sviði hafa til
þess nokkra
möguleika.
Þegar börnin
koma heim
með inn-
kaupalistana
er ekki skyn-
samlegt að
fara með þá í
búðina og
kaupa allt
sem á þeim
stendur.
Mun vitur-
legra er að
athuga fyrst
hvað er til á
heimilinu.
Það er nefni-
lega ekki
nauðsynlegt
að kaupa
nýja reglu-
inn og kaupa þá hluti sem á vantar
og upplifa stemninguna í skólabyrj-
un.
Möppur
Verið opin fyrir notkunarmögu-
leikum þess sem til er á
heimilinu. Ef börnin vant-
ar t.d. teygjumöppur úr
pappa er hægt að nota
möppur sem ýmis
fyrirtæki, svo sem
tryggingafélög, senda
til viðskiptavina með
upplýsingum og setja
litskrúðuga teygju á
þær og jafnvel límmiða
yfir fyrirtækismerkið.
Bréfabindi, eða möppur,
eru til á flestum heimil-
um. Þær geta endst í
mörg ár en yf-
irleitt þeg-
ar keypt-
ar eru
nýjar
möppur
er það
vegna
þess að út-
litið er
ekki rétt,
pokémon-
myndin
sem virk-
aði svo vel
í fyrra er
ekki
spennandi
í ár. Því
getur ver-
ið gott að
kaupa ein-
lita möppu
sem barn-
ið fær svo
að skreyta
með
skemmti-
legum
allt hitt dótið á hverju ári. Oft liggja
þessir hlutir um allt heimili og ein-
ungis þarf að fmna þá og taka sam-
an. Víst er þó að ekki finnst allt á
listanum á heimilinu og þá er hægt
að gera sér
ferð í bæ-
Kostar sitt
stiku, þó alltaf sé gaman aö fá nýjar skólavörur getur veriö dýrt aö kaupa allt nýtt á hverju ári.
penna, blý- Þw' er ráð aö kanna hvaö til sé á heimilinu áður en fariö er
anta, liti, og ; verslunarleiöangur.
límmiðum og þá nýjum á hverju ári
ef vill.
Litir og skriffæri
Trélitir og blýantar eru til í tuga-
tali á hverju heimili þar sem eru
börn og þvi óþarfi að kaupa nýtt
sett á hverju ári. Safnið gömlu litun-
um saman og yddið þá vel. Kaupið
ódýrt pennaveski, eða saumið
skjóðu með rennilás og notið fyrir
alla trélitina. Hið sama má gera við
blýanta, þeir eru til á flestum heim-
ilum. Eingöngu þarf að safna þeim
saman og ydda þá vel og þeir eru til-
búnir til notkunar á nýjan leik. Tús-
slitir eru hins vegar ekki eins auð-
veldir því þeir vilja þorna upp og
skemmast.
Yddarar, strokleður, reglustikur,
limstifti, skæri, sirklar, gráðubogar
og allt hitt dótið sem nemendur
þurfa á að halda dugar flest lengur
en í einn vetur og ekkert mælir á
móti því að það sé notað aftur. Til
að barnið geti haldið vel utan um
þessa hluti og týni þeim ekki er
nauðsynlegt að það eigi gott penna-
veski sem rúmar þá alla.
Bækur og blöö
Yfirleitt þarf að kaupa nýjar stíla-
og reikningsbækur en oft eru til
slíkar bækur frá fyrra ári þar sem
aðeins hefur verið skrifað á nokkr-
ar síður. Ef um er að ræða gorma-
bækur má einfaldlega rífa þær úr og
nota aftur.
Athugið að oft má gera góö kaup
í slíkum bókum þegar þær eru seld-
ar 5 eða fleiri saman í pakka. Þó
ekki þurfi að nota þær allar í vetur
kemur annað skólaár fyrr en varir.
Vinnubókarblöð eru seld í 100 stk.
pakkningum og oft er meira en
helmingur þeirra eftir þegar skóla-
árinu lýkur. Notið afgangana og
kaupið ekki nýja pakka fyrr en þeir
eru búnir. Vel gæti farið svo að þeir
entust út veturinn. -ÓSB
Takmarkað sætaframboð!
Ferðaávcsun DV og Sólar gíldír nú sem 75,000
kr. ínneígn í víku eða tveggja vikna ferð tíl
Algarve í Portúgal 31. ágúst. Gíldír fy
fleiri.
Lengdu sumarið og njóttu afbragðsþjónustu og
vandaðra gististaða með DV og Sól.
Ávtsunin bídur þín á DV, Pverholtí H,