Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2001, Side 23
27
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001
ITilvera
Madonna á afmæli
Poppstjarnan
Madonna, sem heit-
ir fullu nafni
Madonna Louise
Veronica Cicco, á
afmæli i dag og er
43 ára. Madonna,
sem er þekkt fyrir
djarfa og ögrandi framkomu, er lík-
lega ein vinsælasta poppstjarna
heimsins í dag. Hún giftist á síðasta
ári breska kvikmyndaleikstjóranum
Guy Ritchie og hefur ákveðið að
leika í nýjustu mynd hans.
Madonna og Ritchie eiga saman
soninn Rocco en fyrir átti hún dótt-
urina Lourdes Maria Ciccone Leon.
Gildir fyrir föstudaginn 17. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.r
i Deilur í fjölskyldunni
1 hafa áhrif á fyrri hluta
dagsins en seinni hluti
hans einkennist af ró.
Þér gengur vel að ráða fram úr minni
háttar vanda og hlýtur mikið lof fyrir.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Þú gengur í gegnum
erfitt timabil á ástar-
málunum. Einhver
spenna bíður þín í dag
og skemmtilegir atburðir en fólk
gæti verið ósamvinnuþýtt við þig.
Hrúturinn (21. mars-19. anríH:
J’VÞér hættir til að vera
fús til að fórna þér
fyrir aðra og í dag ætt-
ir þú að hugsa meira
um sjálfan þig. Ljúktu þvi sem þú
hefur lengi frestað.
Nautið 120. april-20. maít
Reyndu að fara út og gera
j eitthvað sem veitir þér út-
rás og þá tilfinningu að
þú hafir áorkað ein-
hverju. Vinátta kemur sér vel núna og
hjálpar þér að skilja ýmislegt.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúní):
Ef þú hyggur á ferðalag
'skaltu vera viss að allt sé
vel undirbúið. Vertu ekki
of fljótur að dæma fólk
því þeir sem þú ert ef til vill búinn að
afskrifa gætu verið á þinu bandi.
Krabbinn (22. iúní-22. iúitn
Þú ert i góðu ástandi til
kað skipuleggja ýmsar
breytingar í dag og færð
góðar hugmyndir.
Hresstu upp á minnið varðandi ákveð-
in atriði sem eru að hða þér úr minni.
Llónið (23. iúlí- 22. ágústt:
1 Varastu að verða of
upptekinn af eigin
málefnum og þannig
spilla kannski fyrir
öðrum. Hvers konar list á vel við
þig í dag.
Mevian (23. áeúst-22. sept.l:
Það er rólegt yíir fé-
lagslifinu. Þú gætir
j«»þurft að taka á þig
f aukna ábyrgð. f dag
finnurðu ef til vill eitthvað sem
þú taldir glatað.
Vogln (23. sept.-23. okt.i;
S Þú gætir þurft að fresta
einhveiju vegna breyttr-
ar áætlunar á síðustu
' f stundu. Það verður létt
yfir deginum, jafnvel þótt þú lendir
í einhverjum deilum.
Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.):
Forðastu að sýna fram
á yfirburði þína í tima
. —jjog ótíma, lítillæti er
* líklegt til að vekja að-
dáun núna. Óvænt ferðalag gæti
komið upp á.
Bogamaður (22. nðv.-2i. des,):
t>ú ert í góðu jafnvægi
i dag og lætur fátt fara
í taugamar á þér. Það
kemur sér vel þar sem
upp koma ýmis vandamál.
Happatölur þínar era 8, 13 og 30.
Steingeltin m. des.-19. ian.):
Vertu skipulagður í
dag og gerðu ráð fyrir
einhverjum töfum.
Haltu timaáætlun, það
er mikilvægt til þess að þú lendir
ekki í vandræðum.
Sjóstangamót á Dalvík um helgina:
S
Attatiu aflaklær
skráðar til leiks
Haldið verður um komandi helgi
árlegt mót Sjóstangaveiðifélags Ak-
ureyrar. Það hefur verið haldið
mörg undanfarin ár en þátttakan er
aldrei betri en nú því til leiks eru
skráðir alls 82 keppendur. Mótið
hefst á fostudagsmorgni þegar róið
Á sjó
Veiðimenn raða sér á borðstokk-
inn við veiðar.
verður út frá Dalvík á vel á öðrum
tug báta. Farið verður út klukkan 6
um morguninn og komið inn síðdeg-
is. Aftur verður haldið til veiða á
laugardag.
Misjafnt er hvað hver keppandi
dregur mikinn afla úr söltum sæ á
hverju móti en algengur afli eftir
hvert mót er 25 til 30 tonn. Nokkur
sjóstangaveiðimót eru haldin hér á
landi á sumri hverju og Landssam-
band sjóstangaveiðifélaga mun á
lokahófi á Fosshótel KEA á Akur-
eyri á laugardagskvöldið veita afla-
DV-MYNDIR SBS
Aflakær
Áhuginn ver einlægur þegar rennt var fyrir þorsk í Eyjafiröinum á dögun-
um á vegum Sjóstangaveiðifélags Akureyrar.
Fagur fiskur úr sjó
Þessi ungi veiöimaöur var ánægð-
ur með afiann.
sælum veiðimönnum verðlaun fyrir
árangur sumarsins, auk þess sem
aflaklær móts Akureyrarfélagsins
verða heiðraðar.
Rösklega 100 félagar eru í
Sjóstangaveiðifélagi Akureyrar og
er starfsemi félagsins kraftmikil. Að
sögn Sigfúsar Karlssonar, sem á
sæti í stjórn félagsins, fer áhugi á
þessu tómstundagamni vaxandi,
enda ódýrt áhugamál, segir hann.
Norðlenskum fjölmiðlungum var í
fyrri viku boðið í siglingu um Eyja-
fjörð þar sem þeir fengu að kynnast
sjóstangaveiði af eigin raun, auk
þess sem dagskrá mótsins sem í
hönd fer var kynnt.
Komu
eftir 30
DV, SIGLUFIRÐI:
„Við byrjuðum að koma saman árið
1998 en þá voru einmitt 30 ár síðan
hljómsveitin Stormar hætti. Þetta er
að sjálfsögðu bara til gamans. Við
erum komnir á góðan aldur og búnir
að koma okkur sæmilega fyrir og þá
er alveg tilvalið að fara að slaka að-
eins á þessu daglega brauðstriti. Við
erum ekki að þessu til að þéna pen-
inga því við látum allt sem inn kemur
renna til ýmissa menningarmála hér í
Siglufirði, við eru héðan þó í dag
séum við allir brottfluttir nema einn
og höfum sterkar taugar til bæjarins,"
sagði Theódór Júlíusson, leikari og
einn meðlimur hljómsveitarinnar
saman
ára hlé
Storma sem var vinsæl danshljóm-
sveit í Siglufirði og nágrenni á árun-
um 1960-1968.
Theódór sagði að hljómsveitin hitt-
ist nokkrum sinnum á ári og spilaði á
2-4 böllum yfir árið. Alltaf 1-2 í
heimabænum Siglufirði og líka á
skemmtistaðnum Broadway á Sigl-
firðingakvöldum. Stormarnir eru sex
en voru aldrei aflir samtímis í hljóm-
sveitinni í gamla daga, þá voru þeir
ýmist fjórir eða fimm. Þess má geta að
fyrir skömmu afhenti hljómsveitin Fé-
lagi um Þjóðlagasetur í Siglufirði 150
þúsund krónur sem er framlag sveit-
arinnar til menningarstarfsemi í ár.
-ÖÞ
DVJVIYND ÖRN ÞÓRARINSSON.
Virðulegir Stormar.
Hijómsveitin Stormar á heimaslóð árið 2001, virðulegir borgarar. Frá
vinstri Ómar Hauksson skrifstofustjóri, Siglufiröi, Jósep Blöndal heilsu-
gæslulæknir, Stykkishólmi, Friðbjörn Björnsson endurskoðandi, Rvík.
Theódór Júlíusson leikari, Reykjavík, Árni Jörgensen, ritstjórnarfulltrúi
Morgunblaösins í Reykjavík og Hallvarður Óskarsson málarameistari,*
Reykjavík.
Danskir dagar að hefjast í Hólminum:
„Nu rejser vi til Stykkisholmur“
- rætt um að Olsen-bræður muni leggja lykkju á leið sína og halda vestur
PVT STYKKISHÓLMI:
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið af krafti við undirbúning dag-
skrár hinna árlegu dönsku daga i
Stykkishólmi sem hafa laðað að sér
ferðamenn þúsundum saman.
Danskir dagar hefjast á föstudaginn
og standa um helgina, dagana
17.-19. ágúst. í ár eins og fyrri ár
hefur dagskráin verið faglega undir-
búin og sjaldan verið fjölbreyttari
og skemmtilegri. Latibær og töfra-
DV-MYND KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTIR
Danskt í Hólminum
Frá dönsku dögunum á síðasta ári þar sem íslenski ísinn var vinsæll í
góöa veðrinu.
maöurinn Bjarni koma í heimsókn,
hið árlega uppboö Lionsmanna fer
fram, boðið verður upp á danskt
hlaðborð á Fosshótel Stykkishólmi,
sælkeraferðir með Sæferðum,
bryggjuball, hoppkastala, fjölteíli,
lifandi tónlist á veitinga- og kafli-
húsum, golfmót í léttum dúr, furðu-
fatagöngu, svo eitthvað sé nefnt af
hinni veglegu dagskrá þeirra
Hólmara.
Einnig hefur heyrst að Olsen-
bræður muni láta sjá sig í Hólmin-
um en þeir verða að skemmta þessa
daga í Reykjavík. Ormurinn Júlíus
verður með á Dönskum dögum í ár
eins og í fyrra. Ekki tókst honum að
hafa viðkomu á öllum heimilum í
Stykkishólmi í fyrra en verið er að
bæta úr því núna og gaman að sjá
hver stærðin á honum verður í lok-
in. Hann mun að sjálfsögðu skipa
stóran sess í skrúðgöngu leikskóla-
barna fyrsta dag hátíðarinnar.
-DVÓ
Matvælaiðnaður
ITil sölu nýleg stálborð, bæði veggborð og
frístandandi á hjólum. Henta vel fyrir
kjötvinnslur, bakarí o.fl.
Nánari upplýsingar gefur Einar í síma
893 2345.