Alþýðublaðið - 02.03.1969, Page 2
2 Al'þýðublaðið 2. marz 1969
Alþýdu
blaðið
'JftltitJðray}
Kristjáit Bcr'sl ólattsoft <áfc.)
Ðeaedlkt CröndíU
Í'réttxutjórl:
fiisurjón Jóhannssoa
Ausl?*tniriiatJ6ri:
öirurjón Ari SJgurJónsioa
TÚtgefandi:
Nýja ■fit'sáfufíIaRÍS
jprentnniöja Alþýðublaðsin?,
Öðruv/s/ blað
í dag kemur Alþýðublaðið út í nýjum bún-
ingi. Og við vonum að það sé ekki útlitið
eitt sem hefur breytzt, heldur sé samset'n-
ing blaðslns að öðru leyti líka önnur en
ver|ð hefiur, efnisval annað og efnismeðferð
af öðrum toga spunnin. Það sem vakir fyrir
ckkur tmeð þessari breytingu er að gera Al-
þýð rblaðið að öðruvísi blaði, öðruvísi en
■það hefur veritð áður og öðruvísi en hin
tolöc in eru.
Þ; ð er engin ástæða til 'að draga dul á
’það að útgáfa Alþýðublaðsins hefur að
fund mförnu verið f járhagslega örðug, eins
og raunar útgáfa fleiri blaða. Þróunin hef-
ur orðið hér sem ivíða annars staðar að
minni blöðin hafa búið við síversnandi hag,
en risarnir vaxið að 'sama iskapi. Erlendis
'hefur þetta leitt til þess að fjölmörg dag-
blöð hafa orðið að hætta að koma út. Hér
hafa tílagblöðin fimm hins vegar þradkað
enn, þótt líf sumra þeirra hafi verið býsna
örðugt.
Ein af ástæðum þess, hve illa minni blöð-
unum hefur vegnað, er sjálfsagt sú að blöð-
umum hefur svipað of mikið hverju til ann-
ars. Þrátt fyrir mismunandi stjórnmála-
skoðanir blaðanna hefur omikið af efni
þeirra í rauninni verið hið sama í þeim öll-
um, samskonar fréttir sagðar á samskonar
eða svipaðan hátt. Alþýðublaðilð ætlar sér
núna að gera tilraun til að breyta þessu;
framvegis ætlar það sér ekki að fýlla síður
sínar með efni, sem aðrir fréttamiðlar geta
gert jafngóð eða betri skil, heldur ætlar
bllaðið að reyna að fara nýjar leiðir, auka
fjölbreytni efnisins, en þó umfram allt að
leitast við að isbera isig úr, vera öðruvísi en
hin blöðin. Ef þessi tilraun okkar tekst
verður íslenzk dagbl'aðaútgáfa fjölbreytt-
ari eftir en áður.
Alþýðublaðið hefur bomið út í tæplega
hálfa öld. Það hefur gegnt miklu hlutverki
cg kynnt þjóðinni! hugmyndir jafnaðar-
manna, sem smám saman hafa unnið ál-
mennt fylgi og mótað það þjóðfélag, sem.
við búum í. Alþýðublaðið hefur verið mál-
gagn lýðræðislegs og ábyrgs flokks, sem oft
hefur tekið á sínar herðar erfið verk og ó-
ivinsæl, af því að hjá þeim hefur ekki veriíð
komizt. Aðrir hafa þá gert yfirboð eða ráð-
izt í ábyrgðarleysi á stefnu blaðsins. En
smám saman hefur það bomið í Ijós, að hin
fasta og ábyrga hugsjóna- og umibótastefna
Alþýðuflokksins og Alþýðublaðisihis hefur
reynzt þjóðinni farsæl, en uppþot og lýð-
skrum skammgóður verrnir. Alþýðublaðið
vonar að íhinium nýja búningi isínum hljóti
það avikinn styrk og geti lengi enn háð á-
byrga baráttu fyrir hinum góða málstað
jafnaðarmanna.
mBmmmmMsm
Vísnaþáttur
OMSJÓNs GESTUR
giÍðfennsson.
T;I. er ein grein bókmennta á
fslai di, sem lítt er í hávegum
höfS og sjaldan getið opinberlega,
en tað eru markaskrárnar. Þó
hafa
taka
alltaf verið til menn, sem
þair fram yfir aðra lesningu
og cunna jafnvel utan að. Ekki
get :g þó hrósað mér af því. Hins
Tegi r hafa tvci fjármörk loðað
mér öðrum fremur í minni, enda
eige ídur þeirra mikijs megandi
hér áður fyrr, hvor á sínu sviði:
•köls ;i gamli og Nikulásar kirkja
í C dda á Rangárvöllum. Odda-
kirk a átti, að því, er segir í Vil-
chin imáldaga, afeyrt |bæði eyru,
en :ölski lýsti sínu fjármarki á
þess, leið einhvern tírna, þegar
vel lá á honum, og hafa bæði
mörkin nokkuð til síns ágætis:
Minu lýsi ég rnarki hér,
menn svo viti að það er satt,
þrírifað í þrístýft er
og þrettán rifur ofan í hvatt.
*
Undanfarið hafa verið venju
fremur miklar umræður um skóla
kerfið og ýmislegt að því ■ fundið.
Eftirfarandi vísa, sem fjallar um
slakan námsárangur, mun hins
vegar talsvert eldri, en hevrir þó
undir einn og samá málaflokkinn:
Lítið í þér vitið vex,
þó verði limir stórir.
Þegar dragast þrír frá sex,
þá eru eftir fjórir!
•k
Þessi vísa hefur verið eignuð Jó-
hannesi Benediktssyni á Gnúpu-
felli og talin ort um eiginkon-
una:
Girnistu að ég gleypi þig,
grundin naðurs stétta?
Ætlarðu að vaða ofan í mig
eða hvað er þetta?
★
Þegar konur fengu rétt til há-
skólanáms, kvað Andrés Björns-
son:
Kvenfólkið vill komast að
með karlmönnum í háskólann.
En eitt er verst og það er það,
ef þjófurinn barnar dómarann.
★
Pali Olafsson orti um Björn son
sinn:
Þó ég ætti þúsund börn
með þtísund afbragðs konuni,
tnest ég elska mundi Björn
og móðtirina að honum.
Fallegt barn er Bjössi mínn,
bjartur jafnt á hár og skinn.
Engan líka á hann sinn,
þótt aldraður sé faðirinn.
Bjarni Jónsson frá Gröf hcfur
eftirfarandi sögu að segja:
A víni hef ég löngum lyst,
leik mér oft að böguth.
Ég hef verið frá því fyrst
fullur á Iaugardöguin.
*
Sá ágæti vísnasiniður, Hjálmar
Þorsteinsson frá Hofi, kveðúr á
þessa leið:
Þó ég ekki hafi hitt
haldið rétta á taunnnim,
ef þú velttr vaðið tnitt,
varaðu þig á stxaumnum.
Þessi vísa er líka eftir Hjáltnar
og þarf ekki skýringar við:
Yfir nóttin færir frið,
fegurð óttu þrotin.
Þá er hljótt að lilusta við
húsa-tóttarbrotin.
★
Jón S. Bergmann yrkir þessa
fallegu haustvísu:
Blómin falla hleik í dá,
1
bylgjuhallir riuka,
breiðist mjallar blæja á
bera fjallahnjúka.
Ranki send,:r (þætlfnum 'ei!ir-
farandi sléttubandavísu, sem hann
kallar Gras:
Sárin græðast — ekki er
aftæk björgin þráða.
Árin glæðast — hvergi hér
herjar pestin bráða.
Ólína Jónasdóttir kveður um
dalailminn: v
Fjöllin bá með bros á brá,
björtum gljáum sölum.
Alltaf þrái ég ilminn frá
ykkar lágu dölum.
★
Sigurður Breiðfjörð yrkir ,eft-
irfarandi sláttuvísur:
Sólin ekki sinna verka
sakna lætur. i
Jörðin undan grlmú grætur.
Grasabani, komdu á fætur.
Ef þú hefur heiftarlund
við heilög stráin,
nú þar dagsins birtir bráin,
berðu að þeim hvassan ljáinn.
Og að lokum gamall húsgang-
r: |
Kötturinn skjótti kom í nótt,
klóraði mig í framan,
vasaði ótt m?ð vélið mjótt,
var það ekki gaman.
Söngkona
í klaustur
Þessi unga stúlka heitir Francis
Dunlop og hún er 21 árs. Hún
hefur öðlazt frægð sem dægur-
lagasöngkona, en nú hefur hún
skyndilega ákveðið að draga sig
í hlé og ganga í klaustur. A mynd
inni sést hún ásamt liijómsveit-
inni, sem hún hefur sungið með
að undanförnu, en piltarnir verða
víst bráðum að fara að leita sér
að nýrri söngkonu.