Alþýðublaðið - 02.03.1969, Síða 7
Heimilið.
Alþýðublaðið 2. marz 1969 7
Margoft hcyrist kvartað og kvein-
að undan heimilisstörfunum. Orsök-
in er þó ekki sti, að þau séu leiðin-
legri eða erfiðari cn önnúr störf.
Rétta skýringin felst miklu frernur
{ þeirri staðrevnd, að þetta hlut-
skipli er ekki beinlínis „valið“ á
sarna hátt og við kjósum okkur
önnur störf. Við hlckkjumst við
uppþvottavaskinn, af því að við
gifturn okkur og eignumst börn.
Ymist erum við alveg bundnar við
heimilið og förum á mis við þá.
snertingu við umheiminn, sem við
lifðum og hrærðumst í, meðan við
vorum lausar og liðugar, eða við
vinnum heimilisstörfin í frítímum
okkar frá annarri vinpu og litum
þau hornauga, af því þau ræna
okkur kærkominni hvíldarstund og
afslöppun.
En mitt í þessari umdeildu ver-
öld heimílisltarfanna vil ég þó
benda á, að þau hafa samt einn
höfu.ðkost í föí með sér. Þau falla
sérstaklega vcl inn í æskilegt sam-
band við börnin. Samhliða húsverk-
unum er miklu auðveldara að
hjálpa litla snáðanum að hnýta
skóreimarnar, finna skólatöskuna
fyrir það, sem er dálítið eldra eða
hjálpa elzta barninu með erfiða
þýðingu en sé maður setztur niður
með spennandi bók eða farinn að
horfa á skemmtilegan sjónvarpsþátt.
Við matargerð og önnur innanHús-
störf er húsmóðirin aftur á móti á
faraldsfæti hvort sem er.
Það er lireinn og beinn óþarfi
eða beinlínis rangt að skipuleggja
vinnudaginn sérstaklega vegna upp-
eldisstarfanna. F.inu sinni var sú
tíð, að ég sknmmtaði mér sam-
vizkusamlega ákveðinn • tínta á
hverjum degi til þess að sinna börn-
unum. Kg safnaði þeim umhverfis
mig og sagði: Ja’ja, nú . .... En þau
kærðu sig ekkert um slíkt tilstand.
Þau vildu hvorki spjalla við mig
né segja frá viðburðum dagsins eft-
ir neinum óskum .eða tilskipunum.
MF.ÐAN EG ÞVÆ OPP
Nú. er ég reiðubúin að. sinna börn
unum á ólíkustu tfmum dagsins,
meðan .ég er að vinna heimilis-
vérkin. Þegar ytigsta dóttirin kem-
ur og þykist liafa orðið fyrir barð-
inu á einhverjum úti á leikvellin-
urn, get ég hlustað á allt hennar
mas um þetta, sem hann gerði og
hún sagði, án þess að það pirri mig
eða trufli. Eg stend kannski við
uppþvottinn, en það hindrar mig
ekki í þeirri viðleitni að reyna að
sjá „harmleikinn“ með augum átta
ára telpu og hjálpa henni dálítið til
þess að líta atburðina í réttu ljósi.
Og þegar ég nokkru síðar stend
við strauborðið, er það beinlínis
kærkomin tilbreyting, ef börnin
koma til mín með einhver áhyggju-
eða áhugantál eða vilja þylja lexíur
sínar.
Þegar barnið kerriur heim úr skól-
anum, er það oftast dálítið þreytt
og óupplagt að hefja heimanámið
þegar í stað. Þá er svo notalegt að
sitja og slappa af í eldbúsinu, þar
sem ég er að matselda. Hugsanirnar
reika víða, og sumar þeirra verða
að orðum, af því að mamma er
þarna nálæg og sýnir þess engin
mcrki, að verið sé að ónáða hana.
EÐLILEGT SAMTAL
Þegar ég er að vinna húsverkin,
tala börnin oftast við bakið á mér
eða álútt höfuðið, af því að ég
þarf að. horfa á það, sem ég er að
gera. Þetta hefur meira að segja
vissa . kosti í för með sér. Undir
vissum kringumstæðum getur verið
auðveldara að trúa baki fyrir við-
kvæmum vandamálum en tveimur
rannsakandi augum.
Þetta smáspjáll og þessi félags-
skapur byggist hins vegar á því,
að ég noti ekki tækifærið þegar í
stað til þess að skipa barninu að
hjálpa til. Eigi barnið sífellt von á
því, forðast það brátt að köma .í
nálægð móðurinnar, meðan hún er
að heimilisstörfum. Það eru engar
líkur fyrir því, að börnin séu áfjáð-
ari í að vinna húsverkin en móðirin
sjálf, og þar sem þau hafa kannski
allt annað í hyggju næsta hálftím-
Framhald á bls. 15
Þrekjn hné.
Það er nVkilvægt að sitja og standa rétl.
Sé set.ð skulu fætur'tiir vera þétt saman en
aldrei, að annar fóturinn sé lagður í kross
yfir hinn. Standið líka með beina fætur.
Sokkar:
Krepe sokkar, án munsturs grenna línur
hnésins, veljið gjarnan dökka sokka, eða
jafnvel svarta.
Veljið rkó í falleguim lit gjarnan með
einihverju skrauti og not ð aldrei hælalausa
skó.
Hnén of neðarlega:
Fæturnir sýnast styttri en þeir eru, ef hnén
eru of neðarlega. Reynið að velja sokka og
skó í jsem líkustum lit, það lengir fótinn.
Skórnir skulu vera með dálitlum hæl og ekki
háir á risíiina.
Þreknir öklar:
Notið sokka með lóðréttu munstri, helsl
dökka. Hálfsokkar eru bannvara Skór skulu
ekki vera með riilarbandi eða reimaðir upp,
það garir öklana enm fyrirferðarmoiri.
Of grannir fætur:
Sokkar: Hálfsokkar gera granna fætur
þreknari, veljið grófprjónaða eokka, eða gróf
mun(stu,r. Notið ljósa liti en forðizt þá dökku,
sérstaklega svart.
Skór:
Veljið sportlega skó, með reimum eða r'sl-
arböndum og stórum spennum. Varist samt
að hafa of þykka hæla á skónum.
um sokka skó og fallega fætur....