Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2001 I>V Fréttir Ríkiö býður 2,8 milljarða í Orkubú Vestfjarða: Uggandi ef tilboðið stendur óhaggað - segir forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar og efast um lögmæti aðgerða. Frá Patreksfiröi Sala á eignarhlut Vesturbyggöar í Orkubúi Vestfjaröa myndi ekki leysa fjár- hagsvanda sveitarfélagsins, hvorki aö mati forseta bæjarstjórnar né félags- málaráöherra. „Viö erum mjög uggandi um framtíðina ef þetta tilboð stendur óhagg- að,“ segir Hauk- ur Már Sigurðs- son, forseti bæj- arstjórnar Vest- urbyggðar. Á Fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var um helgina, afhentu ráðuneytisstjórar iðnaðar-, fjár- mála- og félagsmálaráðuneytis sveit- arstjórnum á Vestfjörðum tilboð í eignarhlut þeirra í Orkubúi Vest- fjarða. Samkvæmt tilboðunum hafa verið dregnar frá kaupverði van- skilaskuldir sveitarfélaganna og kostnaður við lagfæringar á íbúðum í félagslega kerfinu á Vestfjörðum. Kaupverðið er skv. tilboðinu 2,8 milljarðar kr. en frá því dragast 535 milljónir kr. til að gera félagslega kerfið rekstrarhæft. Síðan bætast við vanskU einstakra sveitarfélaga og eru dæmi um að einstök sveitar- félög fái ekkert fyrir hlut sinn. Lenti undir hjóli dráttarvélar Ellefu ára gamall drengur lenti undir dráttarvél á Hauganesi við Eyjafjörð um klukkan átta síðastlið- ið fóstudagskvöld. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni á Dalvík var verið að við vinna við slátt þeg- ar slysið átti sér stað en drengurinn hafði farið að dráttarvélinni sem ekið var mjög hægt. Hann lenti und- ir afturhjóli vélarinnar og var flutt- ur með sjúkrabifreið á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri til skoðun- ar. Að sögn föður drengsins var hann nokkuð marinn en ómeiddur að öðru leyti. Hann dvaldi á sjúkrahús- inu eina nótt og fékk að fara heim til fjölskyldu sinnar á laugardags- kvöldið. Fjölskyldan er þakklát fyr- ir að ekki fór verr. -MA/sbs „Við áttum þær væntingar að tilboðið myndi ganga lengra í þá átt að leysa vandamál sveit- arsjóðanna hér vestra, fremur en að leysa vanda Ibúðalánasjóðs. Að við hér í Vest- urbyggð hefðum eftir sölu á Orku- búinu til dæmis haft möguleika á að ganga í að- kallandi viðhaldsframkvæmdir, svo sem viðgerð á skólahúsnæði, götum, vatnsveitum, sem og ýmsar aðrar nýframkvæmdir en allt slíkt hefur setið hér á hakanum í heilan ára- tug. Miðað við tilboðið eins og það birtist okkur nú verður þetta ekki framkvæmanlegt þrátt fyrir sölu,“ segir Haukur Már Sigurðsson. Efast um lögmæti Jafnframt benti Haukur Már á í samtali við DV að sér virtist sitt- hvað í tilboði þessu orka tvímælis. Þannig væri ætlun ríkisvaldsins bersýnilega sú að Ibúðalánasjóður gengi af hörku fram við að ná fulln- aðaruppgjöri vegna félagslega hús- næðiskerfisins vestra. Hitt bæri á að líta að þeir fjármunir sem úr sölu á Orkubúinu kynnu að koma væru eign viðkomandi sveitarsjóða og þeim fjármunum bæri fyrst og fremst að ráðstafa í heimaranni. „Við viljum að sjálfsögðu greiða okkar skuld en til þess viljum við nota fjármuni þess sjóðs sem eign- irnar eiga. Ég efast um lögmæti þess aö ganga svona á eignir sveit- arsjóða á meðan ekki hefur verið fullreynt um verðmæti eigna félags- lega íbúðakerfisins. Því mun ég óska eftir því við Samband ísl. sveit- arfélaga að réttmæti laga um félags- lega kerfið verði kannað og þá sér- staklega innlausnarskylda, að und- angengnu uppboði eigna," sagði Haukur Már og sagði sveitarstjórn- armenn í Vesturbyggð nú ætla að íhuga næstu skref í málinu. Hólmavík kemur illa út Aðrir sveitarstjórnarmenn sem hafa látið í sér heyra vegna tilboðs ríkisins í Orkubúið eru hreint ekki kátir. Þannig á Hólmavíkurhreppur að greiða niður 60% af lánum sín- um í félagslega íbúðakerfmu með fénu sem fengist fyrir eignarhlut Hólmvíkinga. Hreppurinn er þó ekki í vanskilum og hefur sveitar- stjórinn, Þór Öm Jónsson, sagt að mun skynsamlegra væri fyrir hreppinn að greiða niður önnur óhagstæðari lán, en íbúðalánin. „Við göngum eins langt og verða má við að leysa vanda sveitarfélag- anna á Vestfjörðum með þessu til- boði. Ég ímynda mér að það sé ekki hægt að komast hærra í verðlagn- ingu á Orkubúinu," sagði Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra í samtali við DV í gærkvöld. Hann sagði sina trú vera þá að þeir peningar sem sveitarfélögin fengju frá ríkinu fyr- ir eignarhluti sina ættu að fara langt með að leysa fjárhagsvanda þeirra. Hins vegar væri ljóst að í sumum sveitum, til að mynda Vest- urbyggð, dygðu Orkubúspeningam- ir ekki til aö leysa viðvarandi fjár- hagsvanda. Þar þyrftu önnur ráð að koma til, svo sem niðurfelling lán- ardrottna á dráttarvöxtum. Félagsmálaráðherra sagði enn fremur að fljótt á litið virtist Hólma- víkurhreppur koma illa út úr til- boði ríkisins. „Hluti skýringarinnar er væntanlega sá að sveitarfélagið hefur fengið mjög há lán út á íbúðir sínar, eða að meðaltali 10 milljónir. Formúlan til að gera félagslega íbúðakerfið hjá sveitarfélögunum rekstrarhæft er færa þær niður í það verð að eðlileg leiga á viðkom- andi stað standi undir rekstri þeirra, og þar er ég að tala um 33 til 43 þús. kr. á mánuði,“ sagði ráð- herrann. Hann bætti því við að far- ið yrði yfir alla útreikninga áður en gengið yrði til samninga, en al- mennt mætti segja að Hóhnvíkingar hefðu staðið í góðum skilum með sínar skuldbindingar. -sbs DV-MYND SBS Bráðabirgöavegur Vegageröarmenn hafa gert nýjan veg yfir Noröfjaröará fyrir umferö stærri bíla. Á myndinni er gröfustjórinn, Rúnar Hákonarson. Norðfjörður: Bráðabirgðabrú Vegagerðarmenn á Austurlandi unnu um helgina að gerð bráða- birgðavegar yfir Norðfjarðará. Sem kunnugt er skemmdist brúin yfir ána í vatnavöxtum í siðustu viku og er nú aðeins fær bilum sem eru þrjú tonn og þaðan af léttari. Hefur brúin raunar verið styrkt til þess að sú um- ferð geti farið yfir hana. Stærri bíl- um verður hins vegar ekið nýja veg- inn þar sem ánni er veitt í gegnum fjögur ræsi. Með þessu komast þungaflutningar til og frá Neskaup- stað í samt lagt að nýju en svo verð- ur hafist handa um smíði nýrrar brú- ar í stað þeirrar gömlu og löskuðu svo fljótt sem verða má. -sbs Menntaskólinn Egilsstöðum: Nemendur búa á hóteli Menntaskólinn á Egisstöðum verð- ur settur í dag. í gær var tekið á móti nýnemum og foreldrum þeirra og þeim kynnt starfsemi skólans. Aðsókn að skólanum er meiri en í fyrra en þá voru um tvö hundruð og fimmtíu nem- endur í skólanum en þeir eru um þrjú hundruð i ár. Að sögn Helga Ómars Bragasonar skólameistara er Qöldi nýnema svipað- ur og í fyrra. „Það hefur aftur á móti dregið úr brottfalli úr námi. Þetta hef- ur leitt til þess að heimavistin eru yf- irfull. Við höfum því gripið til þess ráðs að leigja öll herbergin á Hótel Valaskjálf og endurleigja nemendum þau. Ég reikna með að það verði um fjörutíu nemendur í Valaskjálf en eitt hundrað og fimmtán á heimavistinni. Ómar segir að flestir nemendumir í skólanum séu af Austurlandi en það slæðist alltaf einhverjir í skólann sem eru utan fjórðungs. „Við höfum ekki verið að kynna skólann neitt sérstak- lega eða verið að laða nemendur að með öðrum hætti. Ég tel minna brott- fall úr skólanum stafa líklega af því að árgangurinn sem kom inn í fyrra var mjög öflugur en við höfum líka verið að reyna að bæta okkur i starfi og veita nemendum betri þjónustu." -Kip Veðrið ki. 12 AKUREYRI úrkoma 8 BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK alskýjaö 8 EGILSSTAÐIR súld 9 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 11 KEFLAVÍK léttskýjaö 9 RAUFARHÖFN súld 7 REYKJAVÍK léttskýjaö 9 STÓRHÖFÐI léttskýjaö 10 BERGEN rigning 14 HELSINKI skýjaö 17 KAUPMANNAHÖFN þokuruðningur 17 ÓSLÖ þoka 17 STOKKHÓLMUR þokumóöa 17 ÞÓRSHÖFN skúrir 11 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 14 ALGARVE þokumóöa 18 AMSTERDAM skýjaö 22 BARCELONA léttskýjaö 20 BERLÍN skýjaö 21 CHICAGO skýjaö 21 DUBLIN léttskýjaö 9 HALIFAX léttskýjað 14 FRANKFURT heiöskírt 19 HAMBORG léttskýjaö 20 JAN MAYEN súld 8 LONDON mistur 19 LÚXEMBORG léttskýjað 20 MALLORCA léttskýjaö 21 MONTREAL léttskýjaö 18 NARSSARSSUAQ alskýjaö 13 NEW YORK heiöskírt 21 ORLANDO þokumóða 25 PARÍS 19 VÍN heiöskírt 19 WASHINGTON hálfskýjaö 19 WINNIPEG heiöskirt 15 Veðriö í kvöld Sólargangur ogsjávarföll Jf 5 10' Á REYKJAVIK Sólarlag í kvöld 21.01 Sólarupprás á morgun 05.58 Síðdegisflóó 13.25 Árdeglsflóó á morgun 01.55 AKUREYRI 20.53 05.35 17.58 06.28 I Rigning suövestanlands Vaxandi suðaustanátt, 8 til 13 m/s, og fer að rigna suðvestanlands undir kvöld. Hiti 5 til 16 stig, hlýjast sunnanlands. ^*"-VINDATT 10 °<— HITI 1$ -10° & ^VINDSTYRKUR í metrum á sekúndu ^FROST HEIDSKÍRT 43 43 o IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ AISKÝJAÐ V,v w w Ö RiGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOiYIA fei = ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNiNGUR ÞOKA Allt eftír Skýin á himnum Alls staöar í andrúmsloftinu er vatn í kringum okkur en í mismiklu magni þó. Vatnið er oftast í formi ósýnilegrar gufu en stundum sem ský. Skýin myndast þegar aö loft kólnar, en þaö gerist oft þegar að loftiö þrýstist upp. Þau geta einnig myndast þegar raki eykst í loftinu. Skýin gefa upplýsingar um hvernig veöriö muni þróast. w . sVö'1 * 4 ó Á4 4 Dálítil rigning víða um land Austan- og noröaustanátt, víöa 8-13 m/s og dálítil rigning, einkum sunnan- og austanlands. Hiti veröur 8 til 16 stig. Mi&viku Víntíur: 8-13 EéEjH Fimrrrtu iBgnj, Föstud u o Hiti 6° til 16“ 4*4* Norölæg átt, 8 tll 13 m/s vestan til og úrkomulítlö en annars hægarl og dálitil rignlng eöa súld, elnkum á Austuriandl. Fremur svalt i veöri Vindur: í O V. 5-8,0 Á J Hiti 6° til 16“ Norövestlæg átt, dálítll súld eöa rigning noröan til, en skýjaö meö kóflum og stöku skúrlr sunnan tll. Hlti 6 til 16 stlg, hlyjast sunnanlands. Vínduri ( x-x,nK w Hiti 6“ til 16“ WW Norövestlæg átt, dálítil súld eöa rlgnlng noröan til, en skýjaö meö köflum og stöku skúrir sunnan tll. Hitl 6 tll 16 stlg, hlýjast sunnanlands. Páll Pétursson Viö göngum eins langt og veröa má.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.