Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Blaðsíða 24
Louise
Jonasson á
Kjarvalsstöðum
Kanadíski listmálarinn Louise
Jonasson opnar sýningu í miðrými
Listasafns Reykjavíkur á
Kjarvalsstöðum í dag kl. 17.00 sem
ber yfirskriftina Minningar um ey
eða Island Souvenir. Tilefni
sýningarinnar má rekja til
heimsóknar forsaetisráðherra
Manitóba, Gary Doer, til íslands
en að hans ósk sýnir Louise verk
sín hér á landi sem fulltrúi þeirra
íslendinga sem flutt hafa vestur
um haf. Myndir Louise eru sterk
sjálfstæð listaverk og fer hún
ótroðnar slóðir við gerð verka
sinna. Louise kemur í fyrsta skipti
til íslands í tilefni sýningarinnar
en í sýningarskrá, sem gefin er út
af þessu tilefni, segir Svavar
Gestsson, fyrrum aðalræðismaður
íslendinga í Kanada, að það stappi
nærri yfimáttúrlegum tíðindum
hve margt í myndverki Louise sé
íslenskt og á þá við það litaval og
þá náttúrusýn sem listmálarinn
endurspeglar í verkum sínum þótt
hún hafi aldrei stigið fæti á
íslenska grund.
Opnanir
JAKOB SMARI ERLINGSSON
OPNAR SYNINGU I EDEN I dag
verður opnuð í Eden í Hveragerði
myndlistarsýning á verkum Jakobs
Smára Erlingssonar. Um er að ræöa
40 akrýl- og vatnslitamyndir sem
Jakob hefur málaö á síðustu þremur
árum. Flestar myndirnar eru af
fuglum en einnig eru
landsslagsmyndir á sýningunni. Þetta
er tíunda einkasýnings Jakobs
Smára sem búsettur er í
Vestmannaeyjum og fyrsta sýningin
uppi á landi. Sýningin er opin á sama
tíma og Eden og stendur yfir til 10.
september næstkomandi.
Myndlist
GUÐNI HARÐARSON I GALLERI
FOLD Um helgina opnaði Guðni
Harðarson málverkasýningu í
baksalnum í Gallerí Fold, Rauöarár-
stíg 14-16. Sýninguna nefnir lista-
maðurinn Ihugun en á henni eru um
20 verk, unnin með akrýllitum á
striga. Opið er daglega frá 10-18,
laugardaga frá 10-17 og sunnudaga
frá 14-17 en sýningin stendur til 9.
september.
BJÖRG ÓRVAR í ÁLAFOSSKVOS
Listakonan Björg Orvar sýnir ný mál-
verk í sýningarsal Álafossverslunar-
innar 7 Alafosskvos í Mosfellsbæ.
Sýningin er opin 9 til 18 virka daga
og 9 til 16 laugardaga til 27. októ-
ber.
NÆRVERA LISTAR í NORRÆNA
HUSINU Nærvera listar er heiti á
sýningu I Norræna húsinu sem
opnuð var um síöustu helgi. Er þarna
um ræöa menningarhátíð Eystra-
saltslandanna á Noröurlöndum og
sýna Eistar bókband, Lettar textíl og
Litháar raf.
KRISTINN MÁR INGVARSSON
SYNIR A MOKKA Sunnudaeinn 12.
ágúst var opnuð sýning á verkum
Kristins Más Ingvarssonar
Ijósmyndara á Mokka-kaffi við
Skólavörðustíg. Þar sýnir hann 8
nýjar Ijósmyndir sem flestar eru
unnar á þessu ári. Sýningin ber
titilinn Sending og er þetta þriðja
einkasýning Kristins. Sýning Kristins
er opin á afgreiöslutíma Mokka milli
klukkan 9.30 og 23.30 alla daga
vikunnar en henni lýkur 4.
september.
Nágrannar undirrita vinabæjarsáttmála á fiskroð:
Reykjanesbær
og Varnarliðiö
verða vinir
DV, SUDURNESJUM:
Undirritaður hefur verið vinabæj-
arsáttmáli á milli Reykjanesbæjar og
Vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli
og verður það að teljast merkisvið-
burður þar sem þetta er einsdæmi í
heiminum, að því best er vitað. Und-
ir síðustu helgi var undirrituð yflr-
lýsing um að treysta sameiginleg
vináttubönd og að vinna að sameig-
inlegum hagsmunum Reykjanesbæj-
ar og bandarísku flotaflugstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli.
Það voru þeir Ellert Eiriksson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Sir
Mark Anthony, kafteinn yfir flota-
stöðinni, sem undbrituðu sáttmál-
ann á fiskroð. Ellert rifjaði upp í
ræðu sinni að sér væri í bamsminni
vinsamleg samskipti amerískra her-
manna við bömin á jólum 1944 og að
þá hefði verið lagður fyrsti steinninn
í þann vináttugrunn sem nú væri
verið að treysta.
Ellert sagði að yfirmannaskipti í
varnarliðinu væru tið og því væri
nauðsynlegt fyrir nýja menn að
ganga að slíku samkomulagi vísu í
stað þess að um munnlegt samkomu-
lag væri að ræða. Sir Anthony hefur
verið kafteinn í tvö ár og þakkaði
hann Ellerti mjög fyrir einlægan
vilja til að ganga frá þessu sam-
komulagi og nefndi að strax yrði haf-
ist handa við að efla öll samskipti á
sviði menningar og íþrótta - þrátt
fyrir frábær samskipti við bæjarbúa
gætu samskiptin batnað enn. -ÞGK
Vinir
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJANSSON.
Fulltrúar Reykjanesbæjar og Varnarsvæöisins á fundi þar sem
vináttubönd voru hnýtt.
-rE
DV-MYNDIR ELMA GUÐMUNDSDÓTTIR
Til reiðu fyrir gesti
Viö Hafnarbraut 54 í Neskaupstaö, efri hæö, er íbúö sem brottfluttir Noröfirö-
ingargeta nýtt sér þegar þeir koma í heimahagana.
Norðfirðingafélagið í Reykjavík fær milljónagjöf:
Gáfu æsku-
heimilið
DV, NORÐFIRÐI:
Þeir Stefán, Tryggvi Þór og Víðir
Herbertssynir færðu í sumar Norð-
firðingafélaginu í Reykjavík íbúð í
Neskaupstað að gjöf. íbúðin er efri
hæð í húsi því sem var æskuheimili
þeirra bræðra en faðir þeirra, Herbert
A. Jónsson, lést á síðasta ári. Þeir
bræður eiga hús í Mjóafirði, þangað
sem þeir eiga ættir að rekja, og áskilja
sér aðeins eina viku á ári í íbúðinni í
Neskaupstað.
Margir lögðust á eitt við að lagfæra
íbúðina. Teppi voru fjarlægð og gólf
lögð parketi og gjafir bárust, svo sem
gluggatjöld, sófasett, þvottavél og sjón-
varp, svo eitthvað sé nefnt. Það er von
gefenda og stjómar Norðfirðingafé-
lagsins að þessi frábæra aðstaða verði
til þess að Norðfirðingar búsettir
syðra fari oftar í heimsókn á æsku-
Ofninn er listaverk
íbúðin er vistleg en þessi
miöstöövarofn vakti athygli okkar.
Listmálari prýddi ofninn.
stöðvarnar. íbúðin er að Hafnarbraut
54 og er þaðan frábært útsýni yfir
Norðfjörð. í henni eru 3 svefnher-
bergi, sem í eru sex rúm, stór stofa og
eldhús og að sjálfsögðu baðherbergi.
-Eg
Kveðjukossinn
Keppandi lítur um öxl meöan eiginkona kveöur manninn sinn áöur en hann heldur á haf út.
DV-MYNDIR EINAR J.
Snemma beygist krókurinn
Þessi litli gutti átti ekki í erfiöteikum meö aö lyfta ár-
inni þó áö hún væri talsvert stærri en hann.
Sjá nánar: Lífið eftlr vlnnu á Vísi.is
Vinir og fjöiskyldur sæfaranna mættu í fjöruna til aö
.............hvetjasína menn tijdáöa.
Kajakmara-
þon í mikl-
um mótvindi
Kajakmaraþon Kajakklúbbsins fór fram á laugardaginn
og var það í þriðja skiptið sem slikt maraþon er haldið.
Róið er frá Geldinganesi upp í Hvammsvík eða alls um 41
kílómetra leið. Mikil aukning hefur átt sér stað í
kajaksportinu að undanfórnu og kom því ekki á óvart að
fleiri þátttakendur vom skráöir til leiks nú en nokkru
sinni fyrr. Alls hóf tuttugu og einn þátttakandi keppni en
að visu skiluðu sér aðeins tiu á leiðarenda. Aldrei áður
hafa jafn mikil affóll verið í kajakmaraþoninu og kenna
menn helst miklum mótvindi um. Sigurvegari í ár var
Sveinbjöm Kristjánsson en hann var um flmm og hálfan
tima á leiðinni sem er um klukkutíma lakari árangur en
náðist í fyrra þegar fyrsti maður í mark kom á fjórum tím-
um og þrjátíu og tveimur minútum.
Klárir í bátana
Tuttugu og einn þátttakandi lagöi í
hann á iaugardaginn en aöeins tíu
skituöu sér í mark.
MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2001
DV
Tilvera