Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2001
DV
Jóhannes Páll páfi annar
Hitaöi upp fyrir kynþáttaráöstefnu
Sameinuöu þjóöanna.
Kynþáttahatur
móðgar Guð
Jóhannes Páll páfi annar talaði um
kynþáttahatur í vikulegu ávarpi sínu
í gær. Hann harmaði uppgang þjóð-
emishyggju, kynþáttaofbeldis og mis-
réttis. „Kynþáttafordómar eru synd
sem gróflega móðgar Guð,“ sagði páfi.
Tilefni umræðu páfa er að fjórir
dagar eru í kynþáttaráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í Durban í Suður-
Afríku. Mikill styr hefur staðið um
ráðstefnuna. Arabar og gyðingar,
með Bandaríkin á bak við sig, deila
um hvort flokka eigi síonisma sem
kynþáttahatur. Samkvæmt trúarhug-
myndum gyðinga eru þeir Guðs út-
valin þjóð. Einnig er deilt um hvort
veita eigi bætur fyrir þrælahald í for-
tíðinni. ísraelar og Bandaríkjamenn
hóta að sniðganga ráðstefnuna.
Afganistan:
Rauði krossinn
hittir kristniboða
Fulltrúar Alþjóða Rauða krossins
hittu í gær fanga talebanastjórnar-
innar í Afganistan sem sakaðir eru
um ólöglegt trúboð. Þetta var fyrsta
sambandið sem tveir Bandaríkja-
menn, tveir Ástralar og fjórir Þjóð-
verjar hafa viö umheiminn síðan
þeir voru handteknir fyrir þremur
vikum. Talebanastjómin segir aö
fyrsta og mikilvægasta hluta rann-
sóknarinnar glæpsins sé lokið. Ekki
verður látið uppi hver niðurstaðan
varð. Yfirvöld hafa lýst því yfir að
16 afganskir fangar, sem handteknir
voru með Vesturlandabúunum,
muni koma fyrir rétt. Einnig hefur
verið ákveðið að ættingjar og sendi-
menn fái að heimsækja vestrænu
fangana.
Látin, 22 ára aö aldri.
Ung poppstjarna
fórst í flugslysi
Söng- og leikkonan Aaliyah fórst í
flugslysi á Bahama-eyjum á laugar-
dagskvöldið. Aaliyah var ásamt 8
öðrum á leið til Miami í lítilli
Cessna-einkaflugvél þegar kviknaði
í vélinni og hún hrapaöi, skömmu
eftir flugtak. Aaliayh var ein fræg-
asta ryþma- og blús-söngkona
heims. Hún var einungis 22 ára
gömul þegar hún lést, en hafði þeg-
ar verið tilnefnd til Grammy-verð-
launa og var að hasla sér völl i kvik-
myndaleik. Hún hafði skrifað undir
samning um að leika í framhaldi af
hinni vinsælu kvikmynd Matrix áð-
ur en hún lést.
Krónprinsessan Mette-Marit:
Grét sig inn í hjörtu
norsku þjóðarinnar
DV, ÓSLÓ
Norskir fjölmiðlar eru flestir á
einu máli um að krónprinsessan,
Mette-Marit, hafi komið vel fyrir á
brúðkaupsdegi sínum. Undir at-
höfninni í Dómkirkjunni grét hún
sig inn í hjörtu þjóðar sinnar með-
an biskupinn, Gunnar Stálsett, tal-
aði til hjónakomanna. Biskupinn
sagði í ræðu sinni að nú hæfist nýr
kafli í lífi hennar og hún byrjaði
hann með óskrifað blað. Með þessu
var biskupinn að vitna til þess að
ólifnaðurinn og eiturlyfjaneyslan,
sem var fylgifiskur Mette-Marit áð-
ur en hún kynntist krónprinsinum,
Hákoni Magnúsi, væri að baki.
Það er einmitt biskupinn í Ósló,
Gunnar Stálsett, sem á hvað
stærsta þáttinn í þvi að Mette-Marit
hefur unnið hug og hjarta þjóðar
sinnar. Hann hefur, allt síðan sam-
band hennar og krónprinsins
spurðist út, stutt parið og talað já-
kvætt um prinsessuna þrátt fyrir
vafasama fortíð hennar.
í brúðkaupsveislunni í höllinni,
Kossinn
Krónprinshjónin Mette-Marit og
Hákon kyssast fyrir utan kirkjuna
eftir brúökaupiö.
talaði Haraldur konungur til
tengdadóttur sinnar og bauð hana
velkomna í fjölskylduna. í ræðu
sinni sagði kóngurinn að eftir að
hann og drottningin kynntust
henni persónulega hefði aldrei ann-
að hvarflað að þeim en að styðja
ráðahag krónprinsins og standa við
bakið á parinu í því mótlæti sem
mætti þeim í upphafl. Kóngurinn
sagði hana verðuga drottningu og
gaf henni titilinn, Hennar konung-
lega hátign krónprinsessa Mette-
Marit.
Krónprinsinn talaði einnig til
konu sinnar undir borðum í brúð-
kaupsveislunni. En áður en hann
beindi orðum sínum að krón-
prinsessunni þakkaði hann foreldr-
um sínum, kónginum og drottning-
unni, fyrir stuðninginn og sagði að
það hefði ekki alltaf verið auðvelt
fyrir þau að vera foreldrar hans.
Hákon prins fór síðan mörgum orð-
um um kosti konu sinnar og endaði
ræðuna á þessum orðum. „Mette-
Marit, ég elska þig“. -GÞÖ
Bolaslagur í Bosníu
Hópur Bosníu-Serba fylgist meö bolaslag í bænum Manjaca, austur af Banja Luka. Meira en 20 þúsund manns lögðu
leiö sína til bæjarins í þessum tilgangi, en hann er fæöingarstaöur serbneska rithöfundarins Peter Kocic.
Taívanar vilja opna á
samskipti við Kína
Taívönsk efnahagsmálanefnd
leggur til að gerð verði alger stefnu-
breyting í samskiptum við Kína og
opnað á viðskipti milli landanna. Ef
tillögur nefndarinnar verða færðar í
framkvæmd mun ljúka 50 ára banni
á beinum tengslum milli ríkjanna
og stífum takmörkunum á fjárfest-
ingu. Chen Shui-bian, forseti Taí-
vans, fagnaði tillögum nefndarinnar
og sagðist verulega ánægður. Nefnd-
in samanstendur af 120 stjórnmála-
mönnum og leiðandi aðilum í við-
skiptalíflnu. Chen forseti skipaði
hana til þess að finna úrræði við
hrakandi efnahagslífi landsins.
Nefndin leggur til að 5 milljarða
króna takmörkun á fjárfestingum
Taívana í Kína verði aflögð og Kín-
verjum verði enn fremur leyft að
fjárfesta í fasteignum í Taívan. Auk
Forseti og ráðgjafi
Chen Shui-bian forseti og utanríkis-
stjórí hans Tsai Ing-wen vilja sættast
viö Kína á efnahagslegum forsendum.
þess vill hún viðræður við kínversk
stjórnvöld um að virkja „tenging-
amar þrjár“, þ.e. bein viöskipti,
samgöngur og samskipti. Nú liggur
bann við þessum tengingum við
Kína. Viðræðumar gætu hafist þeg-
ar löndin tvö verða meðlimir í
Heimsviðskiptastofnuninni á næsta
ári.
Chen forseti lýsti því yfir að
stjórn hans myndi leggja fram
innan tveggja vikna yfirgripsmikla
áætlun sem byggð verður á tillögum
efnahagsmálanefndarinnar.
Samskipti Kína og Taívan hafa
verið bönnuð síðan kínverski
Koumintang-flokkurinn flúði til
Taívans undan Kommúnistaflokkn-
um árið 1949. Kínversk stjómvöld
gera tilkall til Taívans og segja eyj-
una óaöskiljanlegan hluta Kína.
Stuttar fréttir______
Mamma kallar á Soltys
Allsherjarleit er
hafin um gervöll
Bandaríkin að
úkraínska fjölda-
morðingjanum
Nikolay Soltys sem
grunaður er um að
hafa myrt sex úr
fjölskyldu sinni
með hnífi. Móðir hans birtist í sjón-
varpi á föstudag og bað hann að
gefa sig fram. Hann er efstur á lista
FBI yfir eftirlýsta menn í Banda-
ríkjunum.
Gin- og klaufaveiki á ný
Sex ný tilfelli gin- og klaufaveiki
hafa fundist á Norðymbralandi í
Englandi. Talið var að komist hefði
veriö fyrir veikina á svæðinu, en nú
er ljóst að annaðhvort hefur hún
legið í dvala eða borist aftur inn í
héraðið. 1979 tilfelli veikinnar hafa
nú fundist á Bretlandi.
Bush endurskipuleggur
George Walker Bush Bandaríkja-
forseti notaði tækifærið í fríinu í
Texas um helgina til að skjóta loku
fyrir lengi vanrækt stjórnunar-
vandamál hjá alríkinu. Bush er eini
Bandaríkjaforsetinn hingað til með
viðskiptagráðu frá Harvard.
Grafnir lifandi
Krufning hefur leitt í ljós að sex
Portúgalar, sem fundust grafnir á
ferðamannaströnd Brasilíu á fóstu-
dag, voru grafnir lifandi. Áður hafði
þeim verið misþyrmt.
Chirac vinsælli
Stuðningur við
Jacques Chirac
Frakklandsforseta
eykst á meðan
Jospin forsætisráð-
herra kemst í ónáð.
Ný skoðanakönnun
leiðir í ljós að 60
prósent Frakka
telja forsetann leysa starf sitt vel en
6 prósent fleiri eru óánægð með
Jospin. Það er þó Chirac sem sakað-
ur er um spillingu.
Fílar gengu berserksgang
Þrír villtir fílar tröðkuðu bónda
og son hans til dauða þegar þeir
gengu berserksgang í Bangladesh í
fyrradag. Þeir skemmdu einnig hús,
akra og slösuðu 10 sem reyndu að
koma fórnarlömbunum til bjargar.
Condit er niðurbrotinn
BGary Condit,
þingmaður frá Kali-
forníu, kvartaði í
tímaritsviðtali und-
an því að hafa ekki
fengið að lýsa sorg
sinni vegna hvarfs
lærlings síns,
Chöndru Levy, fyrir bandarísku
þjóðinni. Fyrsta viðtali hans á dög-
unum var frekar illa tekið.
Afhöfðaður fyrir nauögun
Maður í Saudi Arabíu var afhöfð-
aður um helgina fyrir nauðgun og
vopnað rán. Hann var dæmdur fyr-
ir að ræna og nauðga ungum
drengjum.
Kosið á Fídji-eyjum
Fyrsti dagur þingkosninga í
Kyrrahafseyríkinu Fídji var á laug-
ardag. Kosningamar standa yfir
fram að næstu helgi. Nokkur
spenna er á Fídji vegna kosning-
anna og er skemmst að minnast
valdaráns George Speight í fyrra.