Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2001 Fréttir Deilur útgerða ferðaþjónustubáta á ísafirði: Hörð átök um ferju- bryggjuaðstöðu - krafist aðgerða bæjaryfirvalda Haröar deilur eru um notkun á ferjubryggju þeirri sem upphaflega var gerð fyrir ms. Fagranes í Sunda- höfninni á ísafirði. Eftir að rekstri Fagranessins var hætt tóku Sjóferð- ir Hafsteins og Kiddýjar ehf. við því hlutverki er varðar þjónustu við eyjarnar á isafjarðardjúpi. Af frum- kvæði og ósk fyrirtækisins var ráð- ist í endurbætur á bryggjunni í fyrra til að hún nýttist betur smærri farþegabátum en Fagranes- ið er. Síðan hefur fyrirtækið haft þar aðstöðu fyrir tvo farþegabáta sína, annan 25 sæta og hinn 50 sæta. Undanfarna mánuði hafa hins vegar staðið yfir harðar deilur um aðstöð- una og vilja aörar útgerðir nú einnig fá að nýta plássið. í sumar var þess krafist að bæjar- yfirvöld beittu sér í málinu og að Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar yrði gert skylt að gefa eftir legu- pláss við bryggjuna. Þegar blaða- maður DV var staddur á ísafirði um mánaðamótin síðustu hafði útgerð- in fengið skriflega skipun um að ganga að þessum kröfum. Bæjar- stjórinn á ísafirði ritaði starfsmönn- um ísafjaröarhafnar 16. júlí sl. Þar greindi bæjarstjóri frá þeirri ákvörðun sinni að Hornströndum ehf. verði gert kleift að taka farþega og skila af sér við flotbryggju þar sem Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar Ferjubryggjan umdeilda Hér hafa Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar haft aöstöðu eftir að m/s Fagranes hætti siglingum um ísafjarðardjúp. Fyrir- tækið hefuryfir að ráða tveim nýjum sérsmíðuðum og öfiugum farþegabátum sem samanlagt taka 75 farþega. Guðný, annar af tvelm bátum Hornstranda ehf. Fyrirtækið hefur til þessa verið með aðstöðu við svokallaöa Lóðsbryggju. hafa aðstöðu. Jafnframt gaf bæjar- stjóri hafnarstarfsmönnum fyrir- mæli um að koma þeirri ákvörðun til framkvæmda. í samtali við þau hjón, Hafstein Ingólfsson og Guðrúnu Kristjönu Kristjánsdóttur, kom hins vegar fram að þau teldu sig í fullum rétti, enda hefðu endurbætur á bryggj- unni verið gerðar að þeirra ósk. Bjóst Hafsteinn þá jafnvel við að bæjaryfirvöld myndu láta skera á landfestar að morgni 30. eða 31. júlí til að þóknast kröfum annarra út- gerða. Sagðist hann hvergi gefa eft- ir í málinu. Starfsmaður hafnarinnar hafði reyndar tjáð Hafsteini að hann tæki ekki þátt í slíku ofbeldi og því yrði bærinn að kalla til lögreglu ef knýja ætti fram ósk bæjarstjóra. Blaða- maður DV fylgdist siðan með fram- vindu mála en ekkert varð þó af hót- unum um að reka skip Sjóferða frá bryggju í það skiptið. Á fundi bæjarráðs ísafjarðarbæj- ar á þriðjudagskvöldið gerðist það síðan að lagt var fram bréf frá Vil- hjálmi H. Vilhjálmssyni hrl., lög- manni Homstranda ehf. á Isafirði. í bréflnu segir m.a.: „Þann 19. júní ritaði umbjóðandi minn, Henry Bæringsson, bæjarráði bréf fyrir hönd Hornstranda ehf. þar sem kvartað var yfir því að Hornströndum ehf. væri búin mun verri aðstaða við ísafjarðarhöfn en Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar ehf...“ Minnir lögmaðurinn einnig á bréf um ákvörðun bæjarstjóra og segir síðan: „Fyrir hönd umbjóð- anda míns er óskað eftir að henni verði komið til framkvæmda þegar í stað þannig að þeim aðilum sem reka ferðaþjónustubáta verði búin sambærileg aðstaða. Að öðrum kosti er brotið gegn jafnræðisreglu stjómsýsiulaga." Á fundi bæjarráðs var bókað vegna bréfs lögmannsins: „Bæjar- ráð beinir því til hafnarstjórnar að fyrirhugaðri stefnumótun í málefn- um ísafjarðarhafnar varðandi ferju- siglingar verði hraðað.“ -HKr. Framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð: Þingmenn jákvæðir en ráðuneyti þungt í taumi DV, PALVlk? Kynningarfundur um málefni framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð var haldinn nýverið á Dal- vík. Þar vom saman komnir flestir þingmenn Norðurlands eystra, full- trúar frá menntamálaráðuneytinu, bæjarfulltrúar Dalvíkurbyggðar og Ólafsfjarðar ásamt Hermanni Tómassyni sem kynnti skýrslu sem hann hefur unnið um framhalds- skóla við utanverðan Eyjafjörð en þar búa um 3.300 manns, þar af hátt í þrjú hundruð á framhaldsskól- aldri. Óhætt er aö segja að viðbrögð þingmanna við þessum hugmynd- um hafi verið jákvæð og ekki annað hægt að skilja en að þeir myndu all- ir leggja hugmyndinni lið. Fulltrúar frá menntamálaráðuneytinu höfðu hins vegar alla fyrirvara á því að þessar hugmyndir gætu orðið að veruleika og gengu svo langt að segja að yrði framhaldsskóli settur á stofn á Dalvík gæti það kippt stoð- unum undan rekstri Verkmennta- skólans á Akureyri óg Menntaskól- ans á Akureyri. I skýrslu Hermanns Tómassonar er gert ráð fyrir skóla sem býður upp á almennt framhaldsnám fyrir nemendur á fyrstu 2 námsárum og að skólinn geti tekið til starfa haust- ið 2002. Hann bendir á að á nokkrum stöðum á landinu séu Mælir meö framhaldsskóla Hermann Tómasson kannaði allar forsendur fyrir framhaldsskóla við utan- veröan Eyjafjörð. Margt mælir með slíkum skóla. starfandi framhaldsskólar sem þjóna sambærilegum fólksfjölda og er á svæðinu við utanveröan Eyja- fjörð. Framhaldsskóli í heimabyggð er besta leiðin til að tryggja íbúunum aðgang að góðri framhaldsmenntun, um leið og unniö er að því að styrkja byggðina á svæðinu og er í raun eitt stærsta hagsmunamál íbúa við utanverðan Eyjafjörð. Markmiðið er að tryggja nemendum sambærilega menntun við betri að- stæður og fyrir lægra verð. Þaö á aftur að leiða til þess að fleiri muni sjá sér fært að stunda nám, brottfall nemenda mun minnka og árangur i námi batna. -hiá DV-MYND DANÍEL V. ÖUFSSON Frá framkvæmdum - við gatnagerð og lagnagerð á Bifröst. Umrót á Bifröst: Skólaþorp myndast í hrauninu DV, BIFRÓST: Borgarverk hf. vinnur í sumar að umfangsmiklum jarðvegsfram- kvæmdum á Bifröst. Framkvæmdir fela í sér endurnýjun á fráveitukerfi byggðarlagsins alls og gatnagerð í Hrauns- og Bakkahverfum Nem- endagarða. Borgarbyggð tekur þátt í þessum framkvæmdum með háskól- anum og stendur auk þess fyrir end- urhótum á aðveitu fyrir kalt vatn. Þá er Vegagerðin með miklar framkvæmdir við færslu á þjóðvegi 1 hjá Bifröst og nýrri vegtengingu háskólasvæðisins við hann. Sú aö- gerð mun stækka byggingarland há- skólasvæðisins og bæta öryggi bama á Bifröst. Þama er orðið til stórt og þrótt- mikið skólaþorp og ekki séð fyrir endann á þróun þess. -DVÓ OA-deild stofnuð á Akranesi: Ráðist gegn hömlulausu ofáti DV, AKRANESI:_____________________ Ný deild OA-samtakanna var stofnuð á Akranesi nýlega í hús- næði Fjölbrautaskólans og verða fundirnir framvegis þar á miðviku- dagskvöldum kl. 20. Overeaters Anonymous er félagsskapur karla og kvenna af öllum sviðum þjóðfé- lagsins sem hittast til að finna lausn á sameiginlegum vanda - hömlu- lausu ofáti. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er löngun til að hætta því. OA er ekki megrunarklúbbur og setur engin skilyrði um þyngdartap. Með því að viöurkenna vanmátt okkar gagn- vart mat og að kasta frá sér þeirri hugsun að maður þurfi á „vilja- styrk" að halda til að stjórna áti sínu, verður maður fær um að halda sig frá ofáti - einn dag í einu. OA-félagar styðja hver annan í að fást við líkamleg og tilfinningaleg einkenni hömlulauss ofáts og mæla með tilfinningalegum, andlegum og líkamlegum bata með iðkun 12- spora kerfisins. OA-félagar benda á að félagsskap- ur þeirra sé ekki „enn einn megrun- arklúbburinn". Þeir segja að aukakílóin séu afleiðing þess sjúk- | dóms sem matarfiknin er. OA legg- ur því áherslu á aö vinna á orsök- um vandans, matarfikninni, fremur en afleiðingum hans, þyngdinni. OA-samtökin eru í mikill uppsveflu um þessar mundir. Margir hafa fundið lausn á vanda sínum með þvi að viðurkenna van- mátt sinn gagnvart mat og átta sig á að lausnina er ekki að finna í töfra- lausnum. Fyrr í þessum mánuði var árleg i ráðstefna OA í Evrópu haldin á Bif- röst í Borgarfirði. Það var helgar- prógramm sem um 50 manns tóku þátt í, þar af 20 útlendingar. OA- deild er einnig starfrækt í Borgar- nesi, hún fundar á mánudagskvöld- um kl. 21 í kjallara Borgarbrautar 49, en alls eru deildirnar 12 á land- inu. Nýliðum er velkomið að koma beint á fund, það þarf enginn að boða komu sína eða skrá sig, enda halda OA-samtökin ekkert félagatal. Þeir sem óska frekari upplýsinga geta sent tölvupóst á þjónustunet- fang samtakanna; oa@oa.is. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.