Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2001 DV Fréttir Verslunarmannafélag Reykjavíkur: Helmingsfjölgun á atvinnuleysisskrá - uppsagnir á auglýsingastofum Verulega hefur fjölgað á atvinnu- leysisskrá hjá Verslunarmanna- félagi Reykjavíkur síðustu daga, að sögn Magnúsar L. Sveinssonar, for- manns félagsins. Skráðir VR-félagar án vinnu þessa dagana eru á bil- inu 500 til 600 en voru um helm- ingi færri þegar meint góðæri var sem mest og best. „Fólk kemur hratt inn á skrá en fer líka hratt út aftur. Það sést á því að talsvert er auglýst eftir fólki til starfa víða um borgina þessa dagana," sagði Magnús og kvaðst vænta að margir, sem nú eru skráðir at- vinnulausir, hefðu að störfum að hverfa i Smáralind sem verður opnuð innan fárra daga. „Stóra höggið eru auðvitað þessar uppsagnir hjá Flugleið- um,“ segir formaður VR. Hann bætir þó við að það séu ekki síst VR-félagar sem starfað hafa hjá fyrirtækjum í tölvu- og tæknigeir- anum sem nú eru á atvinnuleysis- skrá. Þau fyrirtæki hafa mörg hver verið að rifa seglin undan- farið til að mæta samdrætti. Á auglýsingastofum hefur verið talsverður samdráttur undanfar- ið og nokkrum tugum starfs- manna samanlagt verið sagt upp störfum. Rétt eins og tölvufyrir- tækin hafa dregið starfsemi sína saman hafa auglýsingastofurnar dregið úr starfsemi nýmiðlunar- deilda sinna sem fyrir einum til tveimur árum var settur mikill kraftur í að byggja upp. Halldór Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hvita hússins, seg- ir að samdráttur auglýsingastof- anna sé mjög breytilegur eftir því á hvaða sviði viðskiptavinir þeirra hafa verið. Fyrirtæki á sviði fjármála, ferðaþjónustu og i bílaflutningi eru þau sem mest hafa dregið úr auglýs- ingum sínum - og þar með viðskipt- um við auglýs- ingastofur. „En þegar mál eru skoðuð í víðu samhengi er sam- drátturinn í almennum auglýs- ingum kannski ekki svo mikill í ár þegar haft er í huga að það síð- asta var metár,“ segir Halldór. -sbs Magnús L. Sveinsson. Halldór Guö- mundsson. Eyddi 13,4 milljónum um- fram heimildir Ársskýrsla Alþingis vegna starfa 125. löggjafarþings 1999-2000 og rekstur ársins 2000 er komin út. Þar kemur glögglega fram að sjálft lög- gjafarþingið fer ekki að lögum um fjárlög sem það sjálft setur. Fjárheimildir ársins 2000 á fjár- lögum og fjáraukalögum námu sam- tals 1.466,8 milljónum króna. Yfir- færðar ónýttar fjárheimildir frá fyrra ári voru 24,1 milljón króna. Heildarfjárhæð til ráðstöfunar var því 1.490,9 milljónir króna. Útgjöld Alþingis umfram sértekj- ur voru aftur á móti 1.504,3 milljón- ir króna, eða 13,4 milljónir umfram fjárheimild ársins. Þetta staðfesta með undirritun sinni Halldór Blön- dal, forseti Alþingis, Karl M. Krist- jánsson, rekstrar- og fjármálastjóri, og Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis. Þá er einnig að flnna árit- un endurskoðenda sem undirrituð er af Sigurði Þórðarsyni ríkisendur- skoðanda og Sigurjóni I. Haralds- syni. í lokaorðum endurskoðenda segir: „Það er álit okkar að ársreikning- urinn gefi glögga mynd af afkomu Alþingis á árinu 2000 og efnahag 31. desember 2000 1 samræmi við lög og góða reikningsskilavenju." (Feit- letrun blaðsins.) -HKr. Sprenging í Norðurmýri Lögregla og slökkvilið voru köll- uð út að gatnamótum Kjartansgötu og Gunnarsgötu í Norðurmýrinni í Reykjavík laust eftir miðnætti að- faranótt sunnudagsins vegna sprengingar. Einhver óprúttinn hafði komið fyrir og sprengt flugeld milli rafmagnskassa og steinsteyps veggs á götuhorninu. Sprengingin olli töluverðum skemmdum á raf- magnskassanum, hann beyglaðist og rafmagns- og símasambandslaust varð í húsunum í kring. Fljótlega var rafmagni og síma komið á aftur en lögregla tók við málinu. Ekki er vitað hver stóð fyrir „fýr- verkeríinu". -fin Ferhyrndur hrútur dv-mynd sigurður k. hjálmarsson Þeir eru líklega ekki margir hrútarnir sem hafa fjögur horn en Ijósmyndari DV rakst þó á einn slíkan I Mýrdalnum á dög- unum. Hrúturinn, sem er vægast sagt hornprúöur, er í eigu Einars G. Þorsteinssonar, bónda á Sólheimum í Mýrdal. Hugmyndir um heimili eða gistiskýli fyrir fólk í neyslu: Blað brotið gagnvart heimilislausum fíklum - þetta fólk verður einhvers staðar að vera, segir borgarstjóri Borgarráð Reykjavíkur hefur sam- þykkt að fela félagsmálastjóra borg- arinnar viðræður við annars vegar heilbrigðisráðherra og hins vegar félaga- samtök i borginni vegna vanda heimil- islausra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði í samtali við DV í gærkvöld að hug- myndir væru uppi um að reka tvö heimili. Annað fyrir fólk sem er í neyslu og hitt fyrir fólk sem er að koma úr meðferð. „Það hefur reynst erfltt fyr- ir fólk sem er i neyslu að fá gistingu ef það er undir áhrifum. Hugmyndin er að þetta yrði eins og heimili þess. Að fólkið yrði þarna með fasta bú- setu,“ segir borgarstjóri. í tengslum við þessa starfsemi yrði hugsanlega rekið gistiskýli fyrir allt að 20 ein- staklinga. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Gagnrýnt hefur verið í seinni tíð að einkum sé litið á flkniefnda- vandann sem lögreglumál. DV spurði borgarstjóra hvort borgaryf- irvöld væru að vissu leyti að brjóta blað með þessum hugmyndum. Hvort yfirvöld væru að viðurkenna raunveruleikann eins og hann er. „Já, það má kannski orða það þannig. Við vitum að fólk í harðri vímuefnaneyslu á hvergi höfði sinu að að halla og spurningin er hvort ekki sé rétt að hýsa það þrátt fyrir að fólkið sé undir áhrifum þessara efna. Menn eru að horfast í augu við að einhvers staðar verður þetta fólk að vera,“ segir Ingibjörg Sól- rún. Borgarstjóri ítrekar að þótt vímuefnaneytendum verði e.t.v. boðið upp á þessa lausn geti fólkið brennt brýr að baki sér. Erfltt sé að hýsa þá sem séu mjög illa á sig komnir annars staðar en í fanga- klefum. Sumir hafi komið sér út úr húsi þrátt fyrir ítrekaða fyrir- greiðslu yfirvalda og dæmi séu um einstaklinga sem hafi tugi árang- urslausra meðferða á bak við sig. „Sumt af þessu fólki hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar feng- ið húsnæði á okkar vegum en ein- faldlega ekki reynst í húsum hæft,“ segir borgarstjóri. Ekki er vitað hvar þetta húsnæði fyrir neytendur kæmi til með að vera og ekki er heldur afráðið hvort um tvö heimili verður að ræða og eitt gistiskýli eða ein- hverja blöndu af þessu tvennu. Þá er ekki gert ráð fyrir að um aðra þjónustu en gistingu yrði að ræða. Fólkinu væri þannig ætlað að elda ofan í sig og þrífa í kringum sig. Hugmyndir borgarráðs gera ráð fyrir að Reykjavíkurborg, ríkið og félagasamtök myndu deila kostnaði við þetta en hann liggur ekki fyrir. Erfitt er að meta stærð þessa hóps sem um ræðir en borgarstjóri telur að fjöldinn gæti numið 30-50 manns. -BÞ Fjórir vilja formanninn Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa áhuga á for- mannssætinu i samgöngunefnd Al- þingis en Árni Johnsen gegndi því embætti þar til hann sagði af sér þingmennsku. Þingmennirnir sem um ræðir eru Arnbjörg Sveinsdótt- ir, Árni R. Árnason, Guðmundur Hallvarðsson og Kristján Pálsson. Stöð 2 greindi frá. Ábyrgar fiskveiöar í dag hefst í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna um ábyrgar fiskveiðar í vistkerfl sjávar. Alls munu fulltrúar um 75 þjóða sækja ráðstefnuna sem er sú umfangsmesta sem haldin hef- ur verið hér á landi. Ráðstefnan er á vegum Matvæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, í boði íslenskra og norskra stjóm- valda. Forsetinn fékk þann fyrsta Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti íslands og vemdari Lands- söfnunar Kiwanishreyfingarinn- ar, fékk fyrsta K-lykillinn afhent- an við athöfn á Bessastöðum í gær. Meö því var landssöfnun Kiwanis ýtt úr vör en afrakstur hennar rennur til geðsjúkra. Söfn- unin hefst í dag, 1. október, með sölu K-lykilsins, og stendur til 6. október. Fá aðgang að jörðum Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að heimila skotveiðimönn- um aðgang að nokkrum jörðum í eigu ríkisins á komandi rjúpna- veiðitímabili 2001. Um er að ræða ellefu eyðijarðir í umsjá jarðadeild- ar ráðuneytisins og Skógrækar ríks- ins. Arnbjörg Sveins- dóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var hætt komin í bílslysi fyrir helgi. Hún var farþegi i bíl sem endasteypt- ist. Arnbjörg var _____ flutt meö sjúkrabíl til Egilsstaða og síðan með sjúkra- flugi til Reykjavíkur, þar sem hún fór í aðgerð. Þingmaðurinn er nú kominn heim af sjúkrahúsinu. Fresta fluginu Flugfélagið Jórvík hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðu áætlunarflugi sínu til Hafnar í Hornafirði um óá- kveðinn tíma. Ástæðan er sú ákvörðun Flugfélags íslands að halda áfram flugi til Hafnar í mán- uð, að ósk bæjarráðs Hornafjarðar. 2,3 milljarðar í fyrra Ferða- og risnu- kostnaður ráðu- neyta og ríkisstofn- ana hefur aukist um tæplega 27% milli ára 1998 og 2000. Alls hefur kostnaðurinn auk- ist um 492 milljón- ir. Þessar upplýsingar er að finna á heimasíðu Jóhönnu Sigurðardóttur þingmanns. Kostnaðurinn á síðasta ári var 2,3 milljarðar króna. Mbl. greindi frá. Fjær landinu Fjölþjóðlegur leiðangur hefur komist að því að úthafskarfastofn- inn hefur færst frá íslandi sem nem- ur mörg hundruð mílum. íslending- ar, Norðmenn, Rússar og Þjóðverjar tóku þátt í leiðangrinum og mældu 2,1 milljón tonna með svokallaðri trollaðferð. RÚV greindi frá. -MA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.