Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2001 DV Fréttir Sjávarútvegs-, stjórnskipunar- og umhverfismál verða helstu baráttumál Samfylkingarinnar: Afnám gjafakvót- ans sett á oddinn - stjórnarseta Sjálfstæöisflokksins veldur því að þrískipting valdsins er óljós DV-MYND HILMAR ÞÓR Vilja róttækar stjórnkerfisbreytingar Frá kynningarfundi Samfylkingarinnar í Þjóðmenningarhúsinu í gær. F.v.: Jóhanna Sigurðardóttir, Bryndís Hlöðversdóttir og Jóhann Ársælsson. Alison EastwoodAfnám gjafa- kvótans verður sett á oddinn hjá Samfylkingunni á Alþingi í vetur, að sögn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar. Al- þingi verður sett í dag og kynnti Samfylkingin helstu baráttumál sin fyrir komandi þing á fundi í Þjóð- menningarhúsinu í gær. Auk sjáv- arútvegsins eru stjórnskipunar- og umhverfismál ofarlega á blaði flokksins. Össur sagði í samtali við DV að svo virtist sem Sjálfstæðisflokkur- inn og sjávarútvegsráðherra ætluðu að halda til streitu hrárri línu LÍÚ, þ.e.a.s. einokun á aflaheimildum gegn takmörkuðu veiðigjaldi. Sú staða geri það að verkum að Sam- fylkingin muni leggja miklu meiri áherslu á afnám gjafakvótans en ella. „Við erum þeirrar skoðunar að það skipti öllu máli fyrir réttlætið í landinu að gjafakvótinn verði af- numinn," segir Össur. Opnar rannsóknarnefndir Formaður Samfylkingarinnar segir einnig þörf fyrir róttækar stjórnkerfisbreytingar eins og fram kemur í áherslum flokksins. Hann bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið ákaflega lengi við völd og hafi seilst langt umfram hina eðli- legu þrískiptingu valdsins. „Við viljum skerpa skilin milli fram- kvæmdavaldsins og löggjafarvalds- ins. Það skiptir gríðarlegu máli að samþykkja lög um opnar rannsókn- arnefndir til að þingið geti sinnt að- haldshlutverki sínu.“ Samfylkingin mun einnig leggja fram frumvarp um fjárreiður flokk- anna og mun það í sjöunda skipti sem slíkt verður reynt á Alþingi. Þá vill flokkurinn að ráðherrar afsali sér tímabundið þingmennsku til að skerpa valdaskilin og enn fremur hyggst flokkurinn kynna nýja að- ferð við að skipa hæstaréttardóm- ara. Eitt kjördæmi er einnig á dag- skrá eins og áður hefur komið fram. Kjördæmapotið er sennilega nei- kvæðasta hlið stjórnmála nútímans á íslandi, að mati Össurar, en með einu kjördæmi yrði sá vandi úr sög- unni. Virkjanaumræðan yfirskyggt allt Össur telur að umhverfismálum hafi ekki verið sinnt sem skyldi vegna þess að virkjanaumræðan hafi yfirgnæft allt annað í þeim málaflokki undanfarið. Tvær þings- ályktunartillögur munu líta dagsins ljós í vetur um umhverfismálin, m.a. að kortlegga náttúruna til að geta verðmetið hana. Miklu púðri verður eytt í umhverfismálin í vet- ur samkvæmt tillögum flokksins. Enn fremur verða kynntar þings- ályktunartillögur um siðareglur í stjórnsýslunni og fyrir alþingis- menn. Lagt er til að skoðað verði hvort rétt sé að skrá sérstaklega hlutabréfaeign þingmanna, svo dæmi sé tekið. -BÞ Frá Húsavík Húsavíkurlisti: Bjartsýnn á samstarf Kristján Ás- geirsson, oddviti Húsavíkurlistans, sem er með hrein- an meirihluta í bæjarstjórn Húsa- vikur, segist bjart- sýnn á að þau öfl sem að listanum standa muni kjósa að halda áfram samstarfi fyrir næstu kosningar, eins og raunar hafi komið fram á fundi H-listans á dögunum. „Pólitíska landslagið hefur þó breyst á þessu kjörtímabili. Húsa- víkurlistinn var myndaður af fulltrúum Alþýðuflokks og G-lista Alþýöubandalags og óháðra. Nú er bakland H-listans í Samfylk- ingunni, Vinstri grænum og Óháðum. En menn munu væntan- lega fara sér hægt á næstunni og m.a. bíða niðurstöðu sameining- arkosninganna 3. nóvember nk. Ef af sameiningu bæjarins og 6 sveitarfélaga veröur þá er t.d. ljóst að nafnið Húsavíkurlistinn verður ekki við hæfi lengur og sameining hefði ýmsar breyting- ar í för með sér sem taka þarf af- stöðu til.“ Kristján Ásgeirsson hefur verið bæjarfulltrúi á Húsavík lengur en honum mun eldri menn muna. En ætlar hann að gefa áfram kost á sér í næstu sveitarstjórnarkosn- ingum? „Það er ekki tímabært að úttala sig um það. Það er seinni tima verkefni að raða mönnum á lista.“ -JS , Kristján Ásgeirsson. Bylting í endurnýj- un holræsalagna DV, AKRANESI:_____________________________ Þessa dagana er í fyrsta skipti verið að beita nýrri tækni á Akranesi við end- urnýjun holræsalagna. Fram til þessa hefur ekki verið um annað að ræða en að skipta um eða endurleggja gamlar holræsalagnir með viðeigandi raski þeg- ar þær þjóna ekki lengur sínu hlutverki vegna slits og annarra galla. Nú hefur Fóöraö Hér er unnið að plastfóðrun bilaöra holræsalagna á Akranesi á dögunum. Fyrir og eftir Þessar myndir sýna ástand lagna fyrir og eftir viðgerð. Ljóst er að þessi nýja tækni er algjör bylting, enda þarf ekki að grafa upp heilu göturnar eins og gert hefur verið. verið þróuð tækni til þess að klæða gamlar lagnir að innan með trefja- styrktu plastefni og gera gamlar lagnir sem nýjar. Meginkostur þessarar nýju tækni er sá að ekki þarf að grafa upp götumar heldur er verkið unnið með þvi að þræða efnið innan í lagnirnar á milli götubrunna. Eftir þræðinguna er efnið þanið út í lagnimar og hert með sér- stakri tækni. Allar tengingar inn á lagn- irnar hafa verið mældar inn fyrir fram mjög nákvæmlega og að lokinni herslu er búnaður sendur inn í lagnimar og göt fræst á klæðninguna þar sem niður- fóll og heimæðar tengjast við. Ákveðið var að gera við lagnir í Vita- teig með þessum hætti en þær voru orðnar nánast ónothæfar og samanfalln- ar á einum stað. Undirbúningur verks- ins hófst í ágúst og sjálf fóðrunin hófst 17. september og lauk á þrem dögum. Það er fyrirtækið Fóðrun ehf. sem ann- ast verkið en það fyrirtæki hefur nýlega fest kaup á búnaði til þessara fram- kvæmda. -DVÓ Verslunar- og skrifstofuhúsnæði eykst stöðugt: Aukningin 125 prósent á 18 árum Verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu hefur stóraukist á undanförnum 18 ámm samkvæmt tölum Þjóðhagsstofnunar. Er aukning- in í rúmmetrum 125% en landsfram- leiðsla hefur á sama tíma aukist um 60%. Við opnuú Kringlunnar á sínum tíma, með sitt 20 þúsund fermetra verslunarrými, jókst verslunarrými um 10-12% en það rými er nú orðið 35 þúsund fermetrar. Þegar Smáralind verður opnuð í næsta mánuði er enn áætlað að við bætist 10-12% af versl- unarhúsnæði. Smáralind er samtals 63.000 fermetrar en þar af er flatarmál verslunarrýmis 40 þúsund fermetrar. Áætlað er að verslunarrými á höf- und fermetrar. Frá 1997 hefur verslun- svæðisins aukist úr 1,4 fermetrum á uðborgarsvæðinu sé nú um 380 þús- arrými á hvern íbúa höfuðborgar- mann í 2,1 fermetra árið 2001. -HKr. Umsjön: Gylfi Kristjánsson netfang: gylfik@dv.is Ráðið að spara Sú merka stofnun innan „stofn- unar allra landsmanna", Útvarps- ráð, hefur farið mikinn í sparnað- aráformum sínum að undanförnu enda sitja þar ábyrgir menn eins og allir vita. Út- varpsráðs- menn hafa verið „blóðugir upp fyrir axlir“ í niður- skurði og skorið á báðar hendur af miklum krafti. Það nýjasta úr herbúðum ráðsins er að ákveðið mun að út- varpsráð fundi í framtíðinni aðeins á tveggja vikna fresti í stað viku- lega eins og verið hefur. Sennilega hugnast mörgum þessi ákvörðun en útvarpsráð hefur ekki gefið upp hversu mikinn sparnað þessi ráð- stöfun hefur í fór með sér. Sótt aö Sólveigu Menn hafa verið að glugga í til- lögur þær sem leggja á fyrir Lands- fund Sjálfstæðisflokksins um hin ýmsu málefni þjóðarinnar og hefur eitt og annað vakið þar athygli eins og gefur að skilja. Það vakti t.d. tals- verða athygli að ekki er verið að eyða miklu púðri eða plássi í sjávarútvegs- málin og þykir það benda til þess að á lands- fundinum verði „einhugur" um þann málaflokk eins og venjulega þótt vitað sé um skiptar skoðanir innan flokksins. Þá hefur það ekki síður vakið athygli að Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra fær nokkuð harða „krítik" á störf sín og þykir það benda til þess að sæti hennar á ráðherrabekknum sé farið að hitna. Páll ekki vinsæll Þá liggur það fyrir sem reyndar hefur verið vitað fyrir fram að sjálfstæðismenn eru ekki par hrifn- ir af Páli Péturssyni félagsmála- ráðherra og störfum hans í ríkis- stjórninni og gagnrýna þeir störf hans af hörku. Páll, sem hefur marga fjöruna sopið í ólgusjó stjórnmálanna, lætur sér þc væntanlega fát um finnast o$ svarar af krafti ef af líkum lætur. Gagnrýni sjálfstæðismannanna hef- ur hins vegar orðið til þess að menn velta því fyrir sér hvort Sjálfstæðisflokkurinn vilji jafnmik- ið í félagsmálaráðuneytið og i heil- brigðisráðuneytið. Þórsarar kátir Þórsarar á Akureyri hafa ekki verið jafn kátir um langt árabil enda árangur félagsins góður að undanfórnu þar sem hæst ber sigur i 1. deild knattspymunnar sem tryggði sæti í úr- valsdeild að ári. Svo fór handbolt- inn af stað og ekki minnkaði ánægja Þórsara þá. Lið þeirra leikur nú í fyrsta skipti um langt árabil í efstu deild enda að- eins keppt í einni deild. í fyrstu um- ferðinni unnu Þórsarar sigur á sama tíma og KA tapaði sínum leik og Þórsarar voru þar með fyrir ofan KA á stigatöflunni. Því var vel fagn- að en KÁ-menn segja væntanlega að spurt skuli að leikslokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.