Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 22
42 Islendingaþættir Umsjón: Hafsteinn Thorarensen MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2001 DV 3 85 ára Fanney Jónsdóttir, Hjallaseli 47, Reykjavík. Kristín Jónasdóttir, Þórufelli 4, Reykjavlk. 80 ára María Jónsdóttir, Tjarnargötu 43, Reykjavik. Sigríöur Helgadóttir, Kjarrvegi 15, Reykjavík. Aöalsteinn Steindórsson, Hverahvammi, Hveragerði. 75 ára Kristín Anna Claessen, Skildingan, Reynistaö, Reykjavík. Þorvaröur Ellert Erlendsson, Höfðabraut 3, Akranesi. Helga Brynjólfsdóttir, Víðilundi lOb, Akureyri. Helga Sigurgeirsdóttir, Vallholtsvegi 17, Húsavík. Sveinbjörn Guömundsson, Hörgsási 2, Egilsstöðum. 70 ára Helga B. Tuiinius, Þingholtsstræti 31, Reykjavík. Höröur Jónsson, Bakkaflöt 3, Garöabæ. Sigrún Árnadóttir, Ánahlíð 18, Borgarnesi. Dúi Eövaldsson, Holtagötu 3, Akureyri. 60 ára Björg H. Eysteinsdóttir, Háaleitisbraut 89, Reykjavík. Guörún Sigurðardóttir, írabakka 8, Reykjavik. Fanney Halldórsdóttir, Kötlufelli 7, Reykjavík. Gunnar V. Guömundsson, Lindarbraut 5, Seltjarnarnesi. Hermann Níelsson, Birkiteigi 8, Keflavík. Pétur Garöarsson, Grundargötu 6, Siglufirði. Örn Ernst Elísson, Skútagili 3, Akureyri. 50 ára Finnbogi Finnbogason, Hellulandi 1, Reykjavík. Guörún Jónsdóttir, Marklandi 6, Reykjavík. Páli Kristinsson, Lækjasmára 96, Kópavogi. Hjördís Gunnþórsdóttir, Þingvallastræti 25, Akureyri. María Árnadóttir, Nesbakka 2, Neskaupstað. 40 ára Heiðar Guðjónsson, Laugavegi 30b, Reykjavík. Arna Emiiía Vigfúsdóttir, Tómasarhaga 21, Reykjavík. Heiöa Magnúsdóttir, Reykási 47, Reykjavík. Ólafur Hermannsson, Eskiholti 1, Garðabæ. Oddný Óiafía Siguröardóttir, Eyrarholti 2, Hafnarfirði. Sjöfn Guölaug Vilhjálmsdóttir, Ásgarði, Reykholti. Sigurmundur V. Ragnarsson, Strandgötu 79b, Eskifirði. Persónuleg, alhliöa útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Elnareson Bryndis útfararstióri Valbjarnardóttir útfararstjóri Útfararstofa íslands Suöurhlíft35« Sími 581 3300 allan sólarhringínn. www.utforin.iS Folk i frcttum Árni Baldvin Tryggvason leikari og sjómaöur Árni Baldvin Tryggvason, leikari og sjómaður, Bólstaðarhlíö 60, Reykjavík, leikur um þessar mundir hlutverk séra Jóns Prímusar í uppfærslu Borgarleikhússins á leikritinu Kristnihald undir Jökli eftir nóbelskáldið Halldór Kiljan Laxness í leikgerð Sveins Einarssonar. Starfsferill Árni fæddist í Syðri-Vík í Árskógsstrandarhreppi. Hann iauk námi frá Alþýðuskólanum að Laugum 1943, stundaði nám við Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og lauk þaðan prófi 1948. Árni var starfsmaður Kaupfélags Borgarfjaröar eystra 1943-46, var verslunarmaður við Kjötþúð Tómasar í Reykjavlk 1946-47, við Bókaverslun ísafoldar 1947-54 og starfaöi hjá Skjalasafni Reykjavíkur 1954-61. Árni hefur um árabil verið í hópi fremstu gamanleikara hér á landi. Hann var fastráðinn leikari hjá LR 1947-61, við Þjóðleikhúsið 1961-91 og hefur síöan leikið víða, s.s. í Þjóðleikhúsinu, Loftkastal- anum og Borgarleikhúsinu. Árni er enn starfandi sem leikari en hann lék nýverið í leikritinu Fjögur hjörtu 1 Loftkastalanum og leikur nú í verkinu Maður i mislitum sokkum á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Meðal þekktustu hlutverka Árna má nefna Lilla klifurmús í Dýrunum I Hálsaskógi; Estragon í Beðið eftir Godot og Wilhelm Voight í Höfðuðsmann- inum frá Köpernick. Árni gerði út trillu frá Reykjavík um skeið ásamt nokkrum vinnu- félögum sinum. Hann hefur stundað sjóróðra og verið trillukarl í Hrísey á hverju sumri frá því á sjötta áratugnum en þau hjónin dvelja jafnan sumarlangt að Hamri í Hrísey sem er ættaróðal þeirra. Út kom árið 1991 minningabók Árna, Lífróður, skráö af Ingólfi Margeirssyni. Fjölskylda Árni kvæntist 26.12.1948 Kristínu Nikulásdóttur, f. 1.12. 1928, húsmóður. Hún er dóttir Nikulásar Árna Halldórssonar, trésmiðs i Reykjavík, og k.h., Jóninu Guðbjargar Helgadóttur húsmóður. Börn Árna og Kristínar eru Svanlaug Halldóra, f. 25.3. 1949, læknaritari, búsett í Reykjavík en maður hennar er Ólafur Gunnarsson framkvæmdastjóri og eiga þau þrjú börn, Kristínu Helgu, Guðrúnu Halldóru, og Árna Baldvin; Jónína Margrét, f. 16.7. 1951, verslunarmaður, búsett í Reykjavík en maður hennar er Árni Steinsson, starfsmaður hjá Steindórsprent-Gutenberg og eru börn þeirra Grétar Rafn, Viðar Steinn og Birgir Örn; Öm, f. 19.6. 1959, leikari í Reykjavík, en eiginkona hans er Jóhanna Kristín Óskarsdóttir og eru börn þeirra Óskar Örn, Erna Ósk og Sólrún María. Systkini Árna; Marta, f. 22.8.1907, d. 13.5. 1981, húsmóðir í Reykjavík; Jóhann Gísli, f. 25.1. 1909, d. 31.5. 1971, sjómaður í Hrísey; Sigrún Rakel, f. 1.10. 1914, d. 8.4. 1991, húsmóðir i Reykjavík; Jónas Kristinn, f. 28.8. 1911, d. 10.6 1994, sjómaður, húsvörður og leikari á Siglufirði; Sigmann, f. 19.9. 1917, sjómaður, nú búsettur í Hveragerði. Hálfsystir Árna, samfeðra, var Anna Baldvina, f. 31.10.1900, d. 18.6. 1968. Foreldrar Árna voru Tryggvi Ágúst Jóhannsson, f. á Galmarsstöðum 31.8. 1879, d. 25.5. 1971, sjómaður og fiskmatsmaður í Hrísey, og k.h., Margrét Gísladóttir, f. 27.7. 1886, d. 24.5. 1982, húsmóðir. Merkir Islendingar Þórarinn Olgeirsson útgerðarmaður fæddist 1. október 1883. Foreldrar hans voru þau Olgeir Þorsteinsson og kona hans Steinunn Einarsdóttir að Valdastöðum. Með fyrri eiginkonu sinni, Nancy Little, dóttur Joe Little skipstjóra, átti Þórarinn þrjú börn og eitt með seinni eiginkonu sinni, Guðrúnu Zoéga. Þórarinn hóf ungur sjómennsku þegar hann var ráðinn háseti á Agnesi frá Reykjavík árið 1899. Hann vann á ýmsum bátum eftir það. Árið 1909 útskrifaðist Þórarinn úr stýrimanna- skólanum og var orðinn skipstjóri á Eldeyjar-Hjalta. Fleiri skipum stýrði Þórarinn, þ. á m. þrjú ár King Sol, einum Þórarinn Olgeirsson stærsta togara Breta fyrir seinni heimsstyrjöldina, þangað til togarinn var nýttur til hernaðarþarfa. Þórarinn var umboðsmaður Islendinga í ísviðskiptum í Bretlandi um langt skeið, auk þess var hann vararæðismaður íslands í Bretlandi árið 1948 og ræðismaður árið 1954. Þórarinn var sæmdur riddarkrossi árið 1948 og stórriddarakrossi árið 1953. Auk þess kom Þórarinn að gerð nýsköpunartogaranna. Þórarinn var alla tíð mikill aflamaður og dugnaðarmaður við öll sín störf fram á elliár. Þórarinn lést árið 5.8 1969, þá 81 árs að aldri. Allt til alls ►1550 5000 Stoltir fjallgöngu- menn á ferð DV, NESKAUPSTAÐ: Á hverju hausti fer fram haust- ganga Nesskóla í Neskaupstað en þar er hefð fyrir því að verja einum degi í góða fjallgöngu. Að þessu sinni fóru allir nemendur skólans sama dag þar sem einsetning var sett á hér í haust. Nemendum var skipt í þrjá aldurshópa, ekið upp í Oddsdal og þaðan gengið yfir í Hell- isfjörð. Krakkarnir héldu sig ofar- lega og höföu frábært útsýni í allar áttir. Krakkarnir komu heim eftir fina fjallgöngu í 4 tima í þessu líka fína austfirska veðri. ÁUir voru þreyttir að leiðarlokum en stoltir yfir að sigra fjöllin. -PJ DV-MYNDIR PETRA JÓNSDÓniR Sársvöng Nokkrum sinnum þurfti aö stoppa og narta í nesti enda alkunna aö fólk veröur sársvangt í ijallaferöum. Bærinn aö baki Karl Friörik Jörgensen og bærinn hans, Neskaupstaöur, í baksýn. uegnum gauo Björgvin Hrannar Björgvinsson er aö kíkja í gegnum gatiö viö svokallaðan Lolla en dálítiö príl þarf til aö skoöa þessi göt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.