Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Blaðsíða 24
44 _______________________________MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2001 Tilvera dv 1 / 1 l< V 1 N N II Sýningu Siggu á Grund að ljúka í dag lýkur sýningu á útskurðarverkum Siggu á Grund í Sjóminjasafni íslands, Vestur- götu 8 í Hafnarfirði. Sigga, sem er sjálfmenntuð í listinni, sker út í tré, horn og hvaltönn og er meðal færustu listamanna landsins á því sviði. Krár ÓVÆNT Á GAUKNUM Gaukur á Stöng býöur upp á eitthvað óvænt. Nánari upp- lýsingar á www.gaukurinn.is. Sýningar LISTAMAÐURINN Á HORNINU Af hjúpað hefur veriö verk við Kermóa í Elliöaárdal (Breiðholtsmegin). Um er að ræða vettvangsverk í seriunni Listamaöurinn á horninu eftir lista- manninn Ingarafn Steinarsson. HRÖNN EGGERTS I SAFNAHÚS- INU A HUSAVIK Hrönn Eggerts- dóttir, myndlistarmaður frá Akra- nesi, opnar málverkasýningu í Safnahúsinu á Húsavík í dag kl. 16. Þar sýnir hún 63 olíumálverk og um 50 akrilmálverk, unnin á vatnslita- pappír. Sýningin heitir Á ferö og myndefniö er ferö um landiö okkar, LINDA ODDS Á CAFÉ PRESTO Linda Oddsdóttir hefur opnað sína fystu einkasýningu á Café Presto, Hlíöasmára 15. A sýningunni eru eingöngu olíumálverk sem unnin eru á þessu ári og er myndefnið aöallega sótt í náttúru landsins. MAGNÚSTÓMASSON í LISTASAFNI ISLANDS Llstasafn Islands sýnir nú um stundir verk f eigu safnsins eftir Magnús Tómasson (f. 1943) Sumt í list Magnúsar er pólitískt og annaö trúarlegt. Hún byggir yfirleitt á frásögn og er rík af kímni. KRISTJÁN GUÐMUNDSSON Á KJARVALSSTOÐUM Krlstlán Guömundsson hefur opnað sýningu í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum. Sýningin er opin 10-17 alla daga nema miðvikudaga. MYNDASÝNING í TOYOTA Á ferö um landiö meö Toyota er yfirskrift sýningar Fókuss, Ijósmyndaklúbbs áhugamanna. Sýningin er í salarkynnum Toyota við Nýbýlaveg í Kópavogi. Ljósmyndir á sýningunni voru teknar á ferð klúbbsins um Þjórsárdal, Veiöivötn, Dómadal. Landmannalaugar, Fjallabaksleið og víðar. Sýningin er opin á opnunartíma söludeildar Toyota. SIGURBJÖRN JÓNSSON í HAFNARBORG Slgurblörn Jónsson hefur opnað sýningu á málverkum í Hafnarborg. í fréttatilkynningu um sýninguna segir aö í málverkum Sigurbjörns sé jafnvægi lita og stemmninga og áhorfandinn gleymi sér í óræðu landslaginu. Sýningin er opin alia daga nema þriðjudaga frá kl. 11-17 og stendur til 15. okt. STEINUNN SÝNIR í GULLSMÁRA Keflvíska listakonan Stelnunn Slguröardóttlr sýnir litskrúðug myndverk sín í fordyri Gullsmára 9 í Kópavogi. SÝNING TENGD EINARI LAXNESS I Þjóöskjalasafni Islands er sýning sem haldin er í tilefni af útgáfu sjötugs afmælis Elnars Laxness. Sýnd eru skjöl sem snerta nokkrar af ritgerðum hans, meðal annars um sjálfstæðisbaráttu íslendinga og Skaftárelda. Sjá nánar: Lífiö eftlr vinnu á Vísi.is Bikarúrslitaleikur KSÍ: Stríðsmálning, fán- ar og lúðrablástur - stuðningsmenn beggja liða bjuggu sig undir átökin Liðlö hvatt til dáöa Fylkismenn stilltu sér upp viö Rofabæ og hvöttu knattspyrnuhetj- urnar sínar til dáöa þegar þær óku fram hjá á leið i Laugardalinn. Bíógagnrýní Bláir og gulir Noröanmenn voru ekki síöur litaglaöir en Árbæingar. Davíö Þór Helgason brosir hér breitt gegnum faröann ásamt vopnabróöur sínum Jónatan Magnússyni. Skúrkar í vondum málum Herlúörar þeyttir KA-menn héldu fylktu liði niöur i Laugardal undir trommuslætti og S lúðrablæstri. Stjörnubíó/Laugarásbíó - What the Worst Thing that Could Happen + Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Knattspyrnuliðin Fylkir úr Ár- bænum og KA frá Akureyri háðu harða keppni um Coca-Cola-bikar- inn eftirsótta á laugardaginn. Hvor- ugt liðið hafði áður komist í úrslit í bikarkeppninni og ríkti því mikil eftirvænting og baráttuhugur í her- búðum beggja. Árbæingar söfnuð- ust saman í félagsmiðstöðinni Ár- seli fyrir leikinn, þeyttu lúðra, börðu bumbur og mökuðu stríðs- málningu í andlit hver annars. Hverfiskráin handan götunnar var einnig þéttsetin baráttuglöðum Fylkismönnum í appelsínugulum treyjum sem þömbuðu öl og hituðu sig upp fyrir átökin í stúkunni. Það var ekki síður góð stemning í Ölveri í Glæsibæ þar sem stuðn- ingsmenn KA komu saman til að stilla saman strengi sína og efla lið- sandann. Þar voru blár og gulur lit- ir dagsins og prýddu jafnt fána og treyjur sem andlit og hár norðan- manna. Ungviðið sporðrenndi pits- um á meðan hinir eldri teyguðu mjöð og slógu á létta strengi. Eftir að hafa setið um stund á Ölveri héldu menn svo fylktu liði niður í Laugardal undir dynjandi trommuslætti og stríðshrópum. Bar- áttuandinn dugði þeim þó ekki til sigurs að þessu sinni því að Fylkir hreppti bikarinn góða eftir fram- lengdan leik og vítaspyrnukeppni. Það fór ekki á milli mála meö hverjum þessir krakkar héldu. Húfa hitar upp Dægurtagapönksveitin Húfa tók nokkrar vel þekktar perlur á sinn einstaka hátt til aö hita KA-menn upp fyrir átökin. Appelsínugulir Árbæingar Af fagnaðarlátunum aö dæma mætti halda aö þessir áköfu Fylkismenn væru þegar búnir aö vinna leikinn. Stríösmálning Fylkismaöurinn Villi lét mála liti liösins í andlit sitt eins og Ijöl- margir aörir Árbæingar. Martin Lawrence hefur átt vel- gengni að fagna í siðustu kvik- myndum sínum (Big Momma’s House, Blue Streak og Life), eftir skrykkjóttan feril frá því Bad Boys sló í gegn. Hann treystir ekki algjörlega á trantinn á sér eins og nokkrir kollegar hans í deild svartra gamanleikara gera heldur á það til að bregða sér í ýmis gervi með ágætum árangri. Það hefur því örugglega þótt góð fjárfesting að leiða saman Martin Lawrence og Danny DeVito, sem gerir ekki mörg mistök. En svo bregðast krosstré sem önnur tré. What The Worst That Could Happen er misheppnuð gaman- mynd með slökum bröndurum og hafa bæði DeVito og Lawrence gert mun betri hluti. Ekki verður af þeim skafið aö þeir rembast viö aö vera fyndnir og tekst þaö í einstaka atriðum en í heild er myndin flöt og enginn kraftur í atburðarásinni. Það má segja að þegar þjófur- inn Kevin Caffrey (Martin Lawrence) ákveöur aö brjótast inn hjá fjármálaskúrkinum Max Fairbanks (Danny DeVito) hitti skrattinn ömmu sína. Ekki nóg með að Max er heima þegar hann á ekki að vera heima heldur tekst honum að góma Fairbanks viö iðju sína. Og til að bæta gráu ofan á svart segir Max lögregl- unni að hann eigi falllegan hring sem Kevin ber en hringur þessi er gjöf frá stúlkunni sem Kevin elskar. Þarna fór Max yfir strikið að mati Kevins, enginn skal kom- ast upp með að ræna hringnum hans og má segja að myndin snú- ist um áform Kevins að ná hringnum af puttanum á Max, til- raunir sem allar mistakast enda spurning hvor þeirra er meiri skúrkur. Ég er ekki frá því að með styrk- ari leikstjórn hefði verið hægt að gera úr þessu ágæta gamanmynd en Sam Weisman (George of the Jungle, The Out-of-Towners) er greinilega ekki maðurinn til að gera slíka mynd. Handritið er nefnilega lúmskt fyndið og ein- staka samtöl hnyttin, sérstaklega þegar þeir eigast við Lawrence og DeVito. Hvað öðrum leikurum líður þá er enginn góður sprettur hjá þeim og verstur er William Fitchner í hlutverki hommans, ótrúlega leiðinleg persóna sem yf- irborðskenndur leikur Fitchners gerir óþolandi að horfa á. Það má segja um What the Worst that Could Happen að húmor sé fyrir hendi í sögunni en að aldrei náist að lyfta honum upp úr þeirri lægð sem máttlaus leikstjórn set- ur myndina í. Leikstjóri: Sam Weisman. Handrit: Matthew Chapman, eftir skáldsögu Donalds S. Westlakes. Kvikmyndataka: Anastas Michos. Aöalleikarar: Martin Lawrence, Danny DeVito, John Leg- uzamo, Glenne Headly, Richard Schiff og William Fichtner.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.