Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Síða 9
9
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2001_______________________________________________________________________________________
:ov Útlönd
Dómsmálaráöherra Bandaríkjanna hvetur til árvekni:
Umtalsverð hætta á
frekari hryðjuverkum
Frekari hryðjuverkaárásir á
Bandaríkin eru líklegar og hættan á
þeim gæti aukist þegar Bandaríkja-
menn grípa til aðgerða til að hefna
árásanna á New York og Was-
hington þann 11. september sem
urðu tæplega sex þúsund manns að
bana.
„Við teljum að enn sé umtalsverð
hætta á hryðjuverkum í Bandaríkj-
unum. Sú hætta kann að aukast
þegar við sem þjóð svörum því sem
hefur dunið á okkur,“ sagði John
Ashcroft dómsmálaráðherra í við-
tali við CNN í gær.
í viðtali við CBS sjónvarpsstöðina
sagði Ashcroft að menn tengdir
þeim sem beindu farþegaþotunum
að World Trade Center og land-
varnaráðuneytinu í síðasta mánuði
væru hugsanlega enn í Bandaríkj-
unum til að standa fyrir frekari
hryðjuverkum.
Sádi-arabíski hryðjuverkamaður-
inn Osama bin Laden er grunaður
um að hafa staðið fyrir árásunum í
síðasta mánuði.
Mikill ótti hefur gripið um sig í
Bandarikjunum um að sýkla- og
efnavopn kynnu að verða notuð ef
hryðjuverkamenn láta aftur til skar-
ar skríða.
„Það er greinileg hætta til staðar.
Við ættum ekki að láta hana koma í
veg fyrir að við lifum líflnu en við
ættum að vera á varðbergi hennar
vegna,“ sagði Ashcroft í viðtalinu
við CNN sjónvarpsstöðina.
Þá hefur Ashcroft dómsmálaráð-
herra hvatt bændur og flutningabíl-
stjóra til að vera á varðbergi gagn-
vart hugsanlegum árásum áburðar-
flugvéla með hættuleg efni innan
borðs.
Þingið hefur heitið stuðningi sín-
um en er tregt til að samþykkja lög
sem skerða borgaraleg réttindi
Bandaríkjamanna.
REUTER-MYND
Talibanar búast til varnar
Talibanar í Afganistan, sem skjóta skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn, hafa
komið loftvarnabyssum fyrir víða vegna hugsanlegra árása Bandaríkjamanna.
REUTER-MYND
Swissair bjargað
Nú viröist sem hægt verði að koma í
veg fyrir gjaldþrot Swissair.
Bankar koma til
bjargar Swissair
Tveir stærstu bankar Sviss til-
kynntu í gær að þeir væru reiðu-
búnir að leggja fram fé til að bjarga
svissneska flugfélaginu Swissair frá
gjaldþroti.
Fréttastofa Reuters hefur eftir
heimildarmanni sínum að bankarn-
ir muni leggja fram rúma sextíu
milljarða króna og að féð eigi ein-
göngu að fara í flugreksturinn en
ekki til að greiða niður gríðarlegar
skuldir félagsins.
Talsmaður Swissair vildi ekkert
tjá sig um málið í gær.
REUTER-MYND
Mótmælastaða við fund Verkamannaflokksins
Mótmælandi heidur á skilti gegn hernaðaraðgerðum fyrir utan ráðstefnuhöllina í Brighton þar sem ársfundur breska
Verkamannaflokksins stenduryfir. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og leiötogl Verkamannaflokksins, sagðist í
■gær hafa séð óyggjandi sannanir fyrir því að Osama bin Laden bæri ábyrgð á hryöjuverkunum í síöasta mánuði.
ísraelar drápu þrjá Palestínumenn í gær:
Arafat fær tvo sólarhringa
til að standa við vopnahlé
ísraelskir hermenn skutu þrjá
Palestínumenn til bana í gær og
ráðamenn i ísrael gáfu Yasser Ara-
fat, forseta Palestinumanna, tveggja
sólarhringa frest til að standa við
vopnahléssamkomulagið sem gert
var 26. september. Vopnahléið hefur
til þessa ekki komiö í veg fyrir of-
beldi og mannfall.
Arafat sakaði israelska herinn
um aukna hörku. Sautján Palestínu-
menn hafa fallið frá því Arafat og
Shimon Peres, utanrikisráðherra
ísraels, komust að samkomulagi um
vopnahlé síðastliðinn miðvikudag.
Bandarisk stjórnvöld binda mikl-
ar vonir við að vopnahlé deilenda
fyrir botni Miðjarðarhafsins auð-
veldi þeim að ná samstöðu í barátt-
unni gegn hryðjuverkamönnum
sem fram undan er.
REUTER-MYND
Fallinn unglingur borinn til grafar
Grímuklæddir féiagar í Hamas-sam-
tökunum bera lík 14 ára gamats
palestínsks ungmennis sem féll fyrir
kúlum ísraelska hersins í gær.
Palestínska lögreglan reyndi sitt
til að halda vopnahléð þegar hún
varpaöi táragasi aö hópi ungmenna
sem var á leið að grýta ísraelska
hermenn í Karni á Gaza, að því er
sjónarvottar greindu frá.
Tugir palestínskra öryggisvarða
voru sendir á helstu átakastaði til
að afstýra grjótkasti á ísraelska her-
inn.
Helstu ráðherrar í stjórn Ariels
Sharons í ísrael ákváðu á fundi i
gær að standa við vopnahléssam-
komulagið og aflétta vegatálmunum
og lokunum á nokkrum stöðum á
Vesturbakkanum og Gaza sem hafa
valdið miklum óþægindum og tjóni.
Aðflutningsleiðir til Jerikó á Vest-
urbakkanum voru meðal annars
opnaðar og landamærastöðin í
Rafah var einnig opnuð.
TRIM /\F0RM
BögSndar
ALOE VERA
Forever Living Product eru stærstu
framleiðendur Aloa Vera í heiminum í dag.
í kjól Fyrir jól!
Jólakortin eru komin.
Mánaðarkort á aðeins 6.900
www.trimForm.is
Sími
553 3818
Faglært starFsFólk.
Langur opnunartími
Siáumst hress
Fyrir eFtir 6 vikur-60 tíma
Hjá okkur nærðu órangri
TRIM/\F0RM
BergþTdar
Grensásvegi 50, sími 553 3818.