Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2001, Side 25
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2001
45
DV
-EIR á mánudegi
Milli landa
Hver skuggahlið á sér aðra og
bjartari. Nú liggur ljóst fyrir að
Flugleiðir íhugi í alvöru að hætta
að framreiða flugvélamat á Evr-
ópuleiðum og er það liður í spam-
aðarátaki félagsins. í staðinn
hyggst félagið bjóða farþegum sín-
um upp á samlokur. Þessu ber að
fagna.
Þó deila megi um gæði flug-
vélamatarins þá er þó verri sú
truflun sem farþegar verða fyrir
við framreiðslu hans. í Flugleiða-
vélum hefur ekki verið möguleiki
á að slaka á vegna stöðugs áreitis
flugliða sem byrja strax við flug-
tak að bjóða upp á drykki af stál-
slegnum rúllubar sem þröngvað
er á milli sætaraðanna. Þegar
búið er að brynna farþegunum
með áfengi af ýmsum sortum
kemur svo flugv'élamaturinn. Ein-
angraöur í álumbúðum eins og
kjamorkuúrgangur og hnífapörin,
salt, tannstöngull og servíetta í
lofttæmdu plasti sem vart er hægt
að opna. Allt er þetta vandkvæð-
um bundið enda þröngt farþega-
rýmið ekki hannað sem veitinga-
staður. Að þessu loknu koma flug-
liðar með þriðja stálvagninn og
reyna allt hvað af tekur að selja
farþegmn gimsteina, klukkur og
silkibindi. Ekkert lát er á þjón-
ustu þessari á meðan á flugferð
stendur þó svo flestir farþegar
hafi aldrei óskað eftir henni né
hafi á henni áhuga. í þessu liggur
stærsti vandi Flugleiða:
LuxusuiDuroir
Rahgar áherslur - slæm afkoma.
Flugleiöir hafa reynt að skapa
sér stöðu á markaðnum sem ein-
hvers konar mini-útgáfa af lúxus-
flugfélagi. Vélamar nýjar og vel
tækjum búnar. Sjónvarpsskjáir
skjótast niöur úr lofti og sýna nýj-
ar kvikmyndir á meðan á ferð
stendur svo ekki sé minnst á þá
ógnarþjónustu sem stöðugt er í
gangi og fyrr var nefnd. Allt kost-
ar þetta stórfé eins og fram kem-
ur í verði á flugfarseðlum og
rekstrarafkomu félagsins. Sólar-
landafarar sem flogið hafa suður
á bóginn með erlendum flugfélög-
um, portúgölskinn, ítölskum og
spænskum, hafa kynnst allt öðm
þjónustustigi í háloftumun. Þar er
látið nægja að bjóða farþegum
upp á samloku og svaladrykk á
meðan á flugi stendur. Og verðið
er eftir þvi svo og afkoma flugfé-
laganna sjálfra. Flugleiðir eiga að
hætta þessum lúxusleik og ein-
beita sér þess í stað að þvi að
koma farþegum sínum á milh
staða á sem ódýrastan hátt. Þróun
heimsmála á síðustu vikum virð-
ist vera að knýja félagið inn á þá
braut sem löngu átti að vera
stjómendum félagsins ljós. Látum
Thai - Air og Philipines - Airlines
um lúxusinn. Það er þeirra deild.
Lúxustilburðir Flugleiða eru til-
gerðarlegir og hækka flugfargjöld
að óþörfu. Verra væri þó ef þeir
riðu félaginu að fullu.
Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Skjár einn er ekki ókeypis. Hann
er ódýr. Leiðréttist þetta hér með.
Amman í Breiðholtinu - ákærð fyrir 56 milljóna króna svik:
Sannfærandi og
samviskulaus
✓
- segir Olafur Sigurvinsson sem var kvæntur henni í 25 ár
„Málæðið er svo mik-
ið og mælskan ógurleg.
Svo er hún sannfær-
andi og samviskulaus,"
segir Ólafur Sigurvins-
son, fyrrum eiginmaður
konu á sjötugsaldri,
sem nú er fyrir rétti
ákærð fyrir að hafa haft
56 milljónir af Qölda
eldri borgara af karl-
kyni. Ólafur var kvænt-
ur konunni í 25 ár og á
með henni átta böm.
Hjónabandið
sæmilegt
„Ég sá í blöðunum
að börnin okkar væru
mikið veik og tvö dáin.
Þetta hefur valdið mér
áhyggjum enda hafði
ég ekkert frétt af því að
börnin mín væru
dáin,“ segir Ólafur sem
er standandi hissa á
framferði fyrrum eigin-
konu sinnar -þó ekki
komi honum allt á
óvart sem berst úr
dómssalnum. „Hún talar svo mikið
að hún veit ekki hvenær hún lýg-
ur. Þannig var það einnig í hjóna-
bandi okkar. Hún átti það til að
fara út í búð og kaupa húsgögn án
þess að spyrja mig. Þegar ég svo
vildi fá að vita hvernig hún ætlaði
að greiða fyrir ósköpin lét hún mig
vita að ég væri húsbóndinn á
heimilinu og ætti að borga. Ég
hefði skilið við hana miklu fyrr ef
Laug tit um vetkindi og A W
andlát tveggja barna
\Í^J'
Eiginmaðurinn fyrrverandi
Haföi ekki haft neinar fréttir af meintu andláti barna sinna - er nú ánægöur meö nýja konu
og feginn aö vera laus viö þá gömtu.
Fréttir úr dómsalnum
Laug til um flest og segist ekki eiga
neina peninga núna.
ég hefði ekki verið að gæta barn-
anna,“ segir Ólafur sem lét þó
verða af því að skOja við eigin-
konu sína 1980 eftir aidarfjórðungs
hjónaband. Hann segir hjónaband-
ið hafa verið sæmUegt þó svo frúin
hafi verið afspyrnu skapstór.
Dó ekki á Kleppi
„Verst þótti mér þó aö heyra
framburð hennar þess efnis að ég
hefði verið alkóhólisti og endaö líf
mitt á Kleppi. Ég bý hér í Hátúni
10 B, með nýja konu og hef það
bara ágætt,“ segir Ólafur sem er
öryrki en starfaöi áður senL.bókari
fyrir kaupfélög víða um land. Áð-
spurður segist hann ekki hafa i
neinu notið allra þeirra milljóna
sem fyrrum eiginkona hans er sök-
uð um að hafa haft af einföldum og
einmana sálum. Hitt sé líklegra að
hún hafi haft einhverjar milljónir
af sér en við það nenni hann ekki
að elta ólar lengur. I dag sé hann
ánægður. Og ekki sist með það að
vera ekki lengur í slagtogi við fyrr-
um einkonu sina í þeim ósköpum
öllum sem nú yflr hana dynja.
~7
■ -
IMM
E
L
FYRIR VIKUNA
Okeypis
Gönguferð í
kringum
Reykjavíkur-
tjörn er ann-
aö og meira
en virðist.
Takið meö
ykkur
ósmurða
brauösneið fyrir endurnar og gangiö í
Ijósaskiptunum. Ókeypis.
Hellnæmt
Ekki leggja reiöhjólinu
þó hausti. Svalt
haustlofið er gott og
ganga má að logninu
sem vísu. Veriö bara
meö vettlinga - þá er allt í lagi. Heil-
næmt.
Ódýrt
Borgarbókasafnið
*fjj leynir á sér I Tryggva-
götunni. Menningar-
miðstöð á mörgum
hæðum þar sem
flest er til láns. Meira að segja Andrés
önd. Hálftímaráf á milli bókahillna getur
breytt vikunni og jafnvel lífinu. Ef þú
rambar á rétta bók. Ódýrt.
Hagkvæmt
Fátt er skemmtilegra
en að aka í stórum
sveig upp í loft í bíla-
stæðahúsi. Vart hægt
aö greina á milli hvort
maöur er t útlöndum
eöa í bíómynd. Losnar
viö stööumælasektir. Hagkvæmt.
Óvenjulegt
Einn hringur í gegnum
Ikea síðdegis á þriðju-
degi. Þá eru fínu, miö-
aldra frúrnar að spóka
sig t versluninni á meðan
eiginmennirnir eru að
vinna fyrir þeim ogjepp-
anum. Þær daðra.
Óvenjulegt.
Ok á Eimskip
- í lífshættu í Halifax
Car
Kínverji dúxar í MR
- undrast ofdrykkju skólafélaganna
Zi Tian kom til landsins fyrir 50
dögum sem skiptinemi og hóf þegar
nám í Menntaskólanum í Reykja-
vík. Hann var ekki búinn að vera
þar lengi þegar hann var farinn að
dúxa á öllum skyndiprófum í stærð-
fræði og reyndist vera ljósárum á
undan skólafélögum sínum í faginu.
Zi Tian
Gengur vel í skóianum - en undrast
Zi kýs að kalla sig Mark á íslandi:
„Ég kann ágætlega við mig á ís-
landi. Landslagið svo fallegt og ólíkt
því sem ég á að venjast heima,“ seg-
ir Zi Tian (Mark) sem er 16 ára og
býr að öllu jöfnu í stórborg nærri
Peking ásamt foreldrum sínum sem
báðir eru opinberir starfsmenn.
„Hins vegar kom mér
mest á óvart hvesu mik-
ið íslensk ungmenni
drekka. Það er ótrúlegt.“
Zi Tian (Mark) ætlar
að dvelja hér í eitt ár og
segist hlakka til vetrar-
ins. Námið i MR gengur
vel enda kennararnir
duglegir við aö útvega
honum námsefni á énsku
en íslenskuna ætlar
hann að læra áður en ís-
landsdvölinni lýkur.
„Það er ljóst að náms-
efnið í stærðfræði í Kina
er meira en jafnaldrar
hans hér hafa lært,“ seg-
ir Bjarni Gunnarsson,
konrektor í MR, en í
skólanum eru fleiri
skiptinemar sem flestir
eru komnir lengra í
stærðfræði en íslenskir
nemendur. Á móti kem-
ur að þeir eru oft skemur
á veg komnir í öðrum
margt. greinum.
Bifreið ók á Skógafoss,
eitt af skipum Eimskipafé-
lagsins, þar sem það lá
bundið við suðurbakka
Shelburne Wharf i Halifax
fyrir skemmstu. Slysið
varð um klukkan hálfsex
aðfaranótt þriðjudags og
er talið að bifreiðin hafi
verið á 100 kilómetra
hraða, samkvæmt fréttum
í kanadískum dagblöðum.
Ökumaður var fluttur lífs-
hættulega slasaður í
sjúkrahús í nágrenninu en
nota þurfti klippibúnað
slökkviliðs til að ná honum út
Rctta inyndin
into
Frétt úr
kanadísku blaöi
Á innfelldu mynd-
inni sést Skóga-
foss.
úr heim til íslands.
flakinu sem var illa farið. A
skipinu sá hins vegar lítið,
ef frá eru taldar rispur á
stjórnborða sem auðvelt er
að lagfæra. Að sögn lög-
reglumanna, sem fyrstir
komu á staðinn, var skyggni
lítið þegar slysið varð
..niðamyrkur og kaíþoka"
eins og þeir orðuðu það.
Vinna við affermingu og
lestun Skógafoss hófst
snemma þennan morgun
þrátt fyrir slys næturinnar en
skipið var á leið frá Halifax
til Argentínu og þaðan aftur
Feguröardrottningar á helmavist dv-mynd dvó
Þaö var fagurt um aö litast á Bifröst í Borgarfíröi þegar Viöskiptaháskólinn
var þar settur í þyrjun september. Á hlaöinu stóðu nýnemarnir Anna L.
Björnsdóttir og Elín Málmfríöur Magnúsdóttir sem ætla aö stunda nám viö
skótann i vetur. Anna er ungfrú Reykjavík 2000 og Elín ungfrú ísland sama
ár. Þær veröa á heimavistinni...