Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
DV
Fréttir
Rúmlega 700 sjúkraliðar í verkfalli - á 2. hundrað hafa sagt upp:
Fimm deildir á
Landspítala lokaðar
- alvarlegt astand segir hjúkrunarforstjori - frekari samdrattur 1 loftinu
Fimm deildir verða lokaðar á Land-
spítala vegna þriggja sólarhringa
verkfalls sjúkraliða sem kom til fram-
kvæmda á miðnætti í nótt. Að sögn
Önnu Stefánsdóttur, hjúkrunarfor-
stjóra Landspítala, er um að ræða
þrjár deildir á skurðsviði, eina á lyfja-
sviði og eina á bamasviði. Unnið er
samkvæmt undanþágulistum sem
báðir aðilar hafa samþykkt.
Alls fara 744 sjúkraliðar á ríkis-
stofnunum í verkfall nú. Þá hafa tæp-
lega 100 hætt störfum á Landspítalan-
um og um næstu mánaðamót hætta
um 30 til viðbótar sem búnir eru að
segja upp.
Um er að ræða annað verkfallið af
þremur sem boðuð hafa verið náist
ekki samningar. Ef ekki hafa tekist
samningar um mánaðamót kemur til
þriðja verkfaUsins, auk þess sem upp-
sagnir sjúkraliðanna þrjátíu taka
gildi. Anna sagði að þá kæmi til enn
Samdráttur
Landspítalinn hefur orðið að draga
úr þjónustu vegna uppsagna sjúkra-
liða. Ef kjaradeitan leysist ekki fyrir
mánaðamót kemur til enn frekari
samdráttar.
frekari samdráttar. „Það er alvarlegt
ástand víða en ekki neyðarástand,"
sagði hún.
Þá hyggja sjúkraliðar á frekari að-
gerðir. Sendir hafa verið út atkvæða-
seðlar tU allra sjúkraliða. Ef þeir sam-
þykkja aðgerðir verður farið út í þrjú
þriggja daga allsherjarverkföll, hið
síðasta undir miðjan desember.
Mikið ber 1 miUi samningsaðila
hvað varðar launaliðinn. Sjúkraliðar
eru með kröfu upp á 150 þúsund
króna byrjunarlaun í lok samnings-
tímans en samninganefnd ríkisins
býður 107 þúsund. Næsti samninga-
fundur hefur verið boðaður 18. þessa
mánaðar.
„Álagið er mest á þeim deildum
sem eru með undanþágu," sagði
Anna, „sérstaklega á lyflækningasvið-
unum, þar sem mikið kemur í gegn-
um slysa- og bráðamóttökurnar. Þá
hafa uppsagnir sjúkraliða þær afleið-
ingar að við getum ekki opnað aftur
allar þær deildir sem lokuðust þegar
þeir hættu. Við höfum ekki getað opn-
að eina heila deild. Annarri breyttum
við í dagdeild og opnuðum tvær hálf-
ar deildir. Það hefur alvarlegar afleið-
ingar því þessir sjúkraliðar sem
hættu eru búnir að starfa lengi hjá
okkur. Við erum að tapa þama mikilli
þekkingu. Það tekur langan tíma að
byggja þetta upp aftur.“
„Það hefur ekkert dregið saman
með samninganefndunum," sagði
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélags íslands. „Útlitið er
ekki bjart en kannski má segja að
verst sé hversu margir eru að yfirgefa
stéttina. Ekki er nýliðunin til að bæta
það uppi. Hins vegar er almenningur
farinn að sýna stuðning sinn í verki
með því að láta fé af hendi rakna í
verkfaOssjóð sjúkraliða."
-JSS
5L i ife JLj- - '1
Mikil aðsókn
Um 250 þúsund manns komu í Smáralind fyrstu fimm dagana sem opið var. Eins og sjá má á
DV-MYND ÞÖK.
myndinni sem tekin var úr lofti í gær voru bílastæði þéttskipuö.
Kvartmilljón kom í Smáralind
Alls lögðu um 250 þúsund manns
leið sína í verslunarmiðstöðina
Smáralind í Kópavogi fyrstu fimm
dagana eftir opnunina. Ljóst er að
margir hafa farið oftar en einu sinni
á þessu tímabili því fjöldinn fer langt
með að samsvara því að hver einasti
íslendingur hafi litið þar inn á þessu
tímabili.
Fjöldinn sem kom á formlegan
opnunardag Smáralindar fram til
kvöldsins í gær var miklu meiri en
forráðamenn verslunarmiðstöðvar-
innar höfðu reiknað með. „Við gerð-
um ráð fyrir að hingað myndu koma
um 150 þúsund manns þessa daga
þannig að við hljótum að vera mjög
ánægðir. Efiaust hafa margir komið
til að skoða en kaupmenn segja mér
þó margir að verslun hjá þeim hafi
verið mjög lífleg," sagði Þorvaldur
Þorláksson, markaðsstjóri Smára-
lindar, í gær.
Jón Sigurjónsson gullsmiður,
sem rekur verslunina Jón og Ósk-
ar á Laugaveginum, sagði í gær að
þar hefðu menn ekki merkt aö
búið væri að opna nýja verslunar-
miðstöö. „Það hefur í sjálfu sér
mjög lítið gerst og ekki hefur verið
hægt að merkja að fólki hafi fækk-
að á Laugaveginum. Þá er til þess
að líta að það er dauft yfir við-
skiptalífinu þessa dagana en ef
opnun Smáralindar mun hafa áhrif
á verslun hjá okkur gerist þaö ekki
bara eins og hendi sé veifað," sagði
Jón.
Starfsmaður í öryggisgæslu í
Kringlunni sagði að þar hefði verið
mjög líflegt siðustu daga. „Þótt und-
arlegt kunni að þykja höfum við ekki
merkt að fólki hafi fækkað hér þótt
Smáralind hafi verið opnuð. Laugar-
dagurinn var t.d. mjög góður hér og í
dag er talsverð umferð,“ sagði starfs-
maðurinn við DV í gær.
-gk
Stjórnarandstaðan eftir landsfund Sjálfstæðisflokks:
Þögn um óþægilegar staðreyndir
„Þetta var hefðbundin hyllingar-
samkoma til heiðurs foringjanum,"
sagði Steingrimur J. Sigfússon, for-
maður VG, aðspurður um landsfund-
inn og þau skilaboð sem þaðan komu.
Hann sagði að sér þættu tillögur þær
um skattalækkanir sem samþykktar
voru vera djarfmannlegar og kvaðst
sakna þess að sjálfstæðismenn skyldu
ekki ræða blikur sem eru á lofti í
efnahagsmálum þjóðarinnar.
„Menn ræddu ekki óþægilegu stað-
reyndimar og formaðurinn gaf raun-
ar strax í setningarræðu sinni tóninn
um að það ætti ekki aö gera. En ekki
skortir tilefnin. Daginn fyrir lands-
fund sagði forstjóri Þjóðhagsstofnun-
ar á fjármálaráðstefnu sveitarfélag-
Steingrímur J. Sverrlr
Sigfússon. Hermannsson.
anna að nú væri að hausta að í efna-
hagslífinu og daginn þar áður var birt
nýtt lánshæfismat fyrir Island sem
sýnir að viðsjár eru á lofti," sagði
Steingrímur.
„Veit ekki hvort vopnin duga“
„Eins og innihald þessarar halelú-
ja-samkomu er þá fmnst mér andstað-
an í sjávarútvegsmálum vera drjúg-
mikil," sagði Sverrir. Hann sagði að
athygli sína vekti hve margir hefðu
varið fjarstaddir þegar greidd voru at-
kvæði um samþykkt flokksins í sjáv-
arútvegsmálum. „Auðvitað eru menn
á glóðum og stinga sér út þegar kem-
ur að því að ganga til atkvæða því all-
ar frelsisraddir era nú barðar niður í
þessum auðvaldsflokki sem áður var
frjálslyndur og víösýnn," sagði Sverr-
ir. Hann sagði auðsætt að baráttan
gegn kvótakerfmu myndi halda
áfram, enda væru forsendur fyrir því
brostnar. Önnur helsta forsendan
hefði á sínum tíma verið hagræðing
en þó hefðu útgerðarmenn á síðustu
árum „... ausið yfir sig 200 milljónum
í auknum skuldum. Hin forsendan
var svo vernd fiskistofnanna en samt
hafa þeir aldrei staðið verr en eftir
þau átján ár sem þeirra gripdeilda-
kerfi hefur verið við lýði.“
í lokaræöu sinni sagöi Davíð Odds-
son að Sjálfstæðisflokkurinn væri vel
vopnum búinn í þeirri sókn sem fram
undan væri í tvennum kosningum.
„Davíð heldur einn á öllum vopnum
og ég veit því ekki hvort vopn flokks-
ins munu duga í þeirri sókn okkar
andstæðinga hans sem fram undan er
til þess að ná fram réttlæti í landinu,"
sagði Sverrir Hermannsson. -sbs
mmam&.
Tveir með fimm réttar
Tveir voru meö
fimm tölur réttar í
lottóinu á laugar-
dagskvöld og fékk
hvor um sig
8.732.800 krónur.
Átta hlutu bónus-
vinninginn og
komu 81.600 krónur í hlut.
Vilja í Prestssetrasjóð
Alls hafa borist nær 80 umsóknir
um starf framkvæmdastjóra Prests-
setrasjóðs sem auglýst hefur verið en
ekki er búið aö ráða í. Hingað til hef-
ur starfið skipst milli formanns
stjórnar og eftirlitsmanns pretssetra.
Forstjóri tímabundið
Óskar Jósefsson, sviðsstjóri
rekstrarráðgjafar Pricewaterhouse-
Coopers, hefur verið ráðinn for-
stjóri Landssíma íslands tímabund-
ið eftir að Þórarinn V. Þórarinsson
vék úr þeim stól til að tryggja hlut-
leysi í vali á kjölfestufjárfesti.
Kaupþing að tapa
Afkoma Kaupþings hf. var nei-
kvæð á þriðja ársfjórðungi þessa
árs. Endanlegt uppgjör fyrirtækis-
ins mun ekki liggja fyrir fyrr en 9.
nóvember nk.
Gegn óstimpluðu kjöti
Embætti yfir-
dýralæknis hefur
skoriö upp herör
gegn óstimpluðu
kjöti og brýnir fyrir
kjötvinnslum,
mötuneytum og
verslunum að taka
ekki á móti því.
Fastir jeppar
Ökuferð tveggja jeppabifreiða,
sem ætlunin var að aka vestur yfir
Þorskafjarðarheiði á laugardags-
kvöld, varð styttri en til stóð.
Talsverður snjór reyndist vera á
heiðinni og urðu ökumenn að kalla
eftir aðstoð björgunarsveitarinnar á
Hólmavík. Björgun gekk vel.
Vel sloppið úr árekstri
Mjög harður árekstur varð á
Hafnarfjarðarvegi við Engidal á
laugardag. Jeppabifreið var ekið af
geysilegum krafti aftan á fólksbif-
reiö. Að sögn lögreglu var farþegi í
framsæti fólksbifreiðarinnar fluttur
á slysadeild en hann mun ekki hafa
verið alvarlega slasaður. Bifreiðin
var hins vegar þannig útleikin að
hefði einhver setið í aftursæti henn-
ar væri sá ekki til frásagnar.
Þjófar í bílageymslum
Tólf innbrot voru tilkynnt til lög-
reglunnar í Reykjavík um helgina en
það mun vera nálægt því að vera
„eðlilegur skammtur" um eina helgi í
höfuðborginni.
í Grafarvogshverfi var farið inn í
ibúð og stolið fartölvu. Hin innbrotin
11 voru í bifreiðar víðs vegar um bæ-
inn, mörg hver í bílageymslum. Hlut-
ir sem stolið er úr bifreiðum eru í
langflestum tilfellum útvörp, geisla-
spilarar og geisladiskar.
Árnesprestakall lagt niöur
Meðal tillagna sem ligga fyrir
kirkjuþingi er að Árnesprestakall
og Hólmavíkurprestakall í Stranda-
sýslu sameinist og prestssetur verði
á Hólmavík. Þetta kemur fram á
vefnum kirkjan.is
-gk/ -Gun.