Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Síða 9
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
DV
9
Útlönd
Áróðursstríð hryðjuverkasamtaka bin Ladens heldur áfram:
Segja fólki að forðast
flug og háar byggingar
John Prescott, aðstoðarforsætisráð-
herra Bretlands, segir að síðustu hót-
anir frá al-Qaeda-hryðjuverkasamtök-
um Osama bin Ladens staðfesti svo
ekki verði um villst að þau hafi stað-
ið á bakvið hryðjuverkaárásirnar i
Bandaríkjunum hinn 11. september
sl. Prescott sagði þetta í fréttaviðtali
frá Moskvu í gær þar sem hann var
staddur í opinberri heimsókn til við-
ræðna við rússnesk yfirvöld um frek-
ari samvinnu þjóða heims í barátt-
unni gegn hryðjuverkum.
Prescott vitnaði þar í myndbands-
upptöku sem sýnd var á al-Jazeera-
sjónvarpsstöðinni i Qatar á laugar-
daginn, þar sem Sulaimen Abu
Ghaith, talsmaður al-Qaeda-hryðju-
verkasamtaka Osama bin Ladens,
hótaði hefndum og varaði múslíma í
Bretlandi og Bandaríkjunum við því
að koma nálægt flugvélum eða háum
byggingum á næstunni. „Þessi við-
vörun hryðjuverkasamtakanna er að
vísu hluti af áróðursstríði al-Qaeda,
en hana ber að taka alvarlega og
John Prescott, aðstoðarforsætisráö-
herra Bretlands, er sannfærður um sekt
bin Ladens í hryðjuverkaárásunum.
þetta eru skýr skilaboð frá bin Laden
um að hann hyggist halda hryðju-
verkunum áfram. Það er aðeins háif-
ur mánuður liðinn frá því hann neit-
aði því alfarið að hafa átt þátt í
árásunum í Bandaríkjunum, en nú
hótar hann öllu illu,“ sagði Prescott.
Á myndbandinu, sem líklega var
tekið upp á fimmtudaginn, segir Abu
Ghaith að baráttan muni halda
áfram þar til Bandaríkjamenn og
Bretar hafi kallað lið sitt á brott, ekki
aðeins í nágrenni Afganistan heldur
líka frá Arabíuskaga. „Ef mæður
þeirra sem þar eru vilja sjá syni sína
aftur þá ættu þær að kalla þá strax
heim, því vilji guðs sé að kynda ræki-
lega undir fótum þeirra.“
Abu Ghaith varaði Tony Blair sér-
staklega við og sagði að storminn
myndi ekki lægja, sérstaklega ekki
flugvélastorminn. „Ef Bretar hætta
ekki stuðningi við Bandaríkjamenn í
Afganistan og írak eða við gyðinga í
Palestínu, auk stuðnings við hindúa
gegn múslímum í Kasmír, þá eiga
þeir ekki von á góðu,“ sagði Abu
Ghaith.
Viðbrögð Bandaríkjamanna við
hótununum er að þær séu aðeins
framhald á áróðursstríði hin Ladens.
Loftárásunum á Afganistan mótmælt á Trafalgartorgi
Árásum Bandaríkjamanna á Afganistan var harðlega mótmælt víða um heim um helgina, ekki síst í löndum Evrópu. Fjölmennasta
mótmælagangan fór fram í London en þar tóku 20 þúsund manns þátt í göngu um miðborgina sem endaði með mótmælastöðu á
Trafalgartorgi. í Þýskalandi mótmæltu um 25 þúsund manns, flestir í Berlín, eða um 15 þúsund manns.
Aukinn ótti við miltisbrandssmit í Bandaríkjunum:
Alls átta ný tilfelli
greindust um helgina
Hræðslan við sýkla- og efnavopna-
árásir hryðjuverkamanna í Bandarikj-
unum hefur aukist til muna eftir að til-
kynnt var um ekki færri en átta ný
smit núna um helgina, en flmm þeirra
greindust í sömu byggingu og þau þrjú
fyrstu sem greindust fyrr í mánuðin-
um í húsakynnum AMI-útgáfufyrir-
tækisins í Boca Raton í Flórída.
Nýjustu tilfellin eru frá New York
en þar greindust þrír sem komu að
rannsókn bréfsendingar til NBC-sjón-
varpsstöðvarinnar þar sem aðstoðar-
kona fréttamannsins Tom Brokaw
varð fyrir smiti en þar er um að ræða
lögreglumann sem handlék umrædda
sendingu á fóstudaginn og tvo rann-
sóknarmenn sem síðan komu að rann-
sókn málsins á rannsóknarstofu. Bréf-
ið var póstlagt í Trenton í New York
en ekki er talið að þar sé um alvarlegt
tilfelli að ræða og ólíklegt að þre-
menningamir taki sýkina.
Þar með eru miltisbrandstilfellin í
Eftir átta ný miltisbrandssmit um helg-
ina líkja bandarísk heilbrigðisyfírvöld
þeim við hryðjuverk.
Bandaríkjunum orðin tólf en aðeins
eitt þeirra hefur reynst banvænt, þeg-
ar sá fyrsti sem greindist í Boca Raton
í Flórída lést fyrir rúmri viku.
Þá var um helgina tilkynnt um
grunsamlega póstsendingu í útibúi
Microsoft-tölvurisans í Reno í Nev-
adaríki, en þar mun smitið hafa borist
með bréfi sem póstlagt var í Malasíu
og reyndist innihalda miltisbrands-
bakteríur. Þar lék grunur á að sex
manns hefðu handleikið sendinguna,
en í gær hafði enginn þeirra greinst
smitaður og að sögn yfirvalda talið
ólíklegt að nokkur greindist.
Það jók enn á hræðsluna í gær þeg-
ar talsmenn bandarískra heilbrigðis-
yfirvalda líktu miltisbrandssmitunum
að undanfórnu við „hryðjuverk", sem
ekki væri lengur hægt að líta á sem
tilviljun en sögðu þó að engar vís-
bendingar heföu enn fundist sem
tengdu smitin beint við hryðjuverka-
árásirnar hinn 11. september.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöidum flokkum:
4. flokki 1992 - 32. útdráttur
4. flokki 1994 - 25. útdráttur
2. flokki 1995 - 23. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. desember 2001.
Öll númerin veróa birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja uppLýsingar frammi hjá íbúðaLánasjóði,
í bönkum, sparisjóóum og verðbréfafyrirtækjum.
Ibúðalánasjóður
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. október 2001 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 39. útdráttur
3. flokki 1991 - 36. útdráttur
1. flokki 1992 - 35. útdráttur
2. flokki 1992 - 34. útdráttur
1. flokki 1993 - 30. útdráttur
3. flokki 1993 - 28. útdráttur
1. flokki 1994 - 27. útdráttur
1. flokki 1995 - 24. útdráttur
1. flokki 1996 - 21. útdráttur
2. flokki 1996 - 21. útdráttur
3. flokki 1996 - 21. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í MorgunbLaðinu
sunnudaginn 14. október.
Innlausn húsbréfa ferfram hjá íbúðaLánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og Liggja þar einnig
frammi uppLýsingar um útdregin húsbréf.
s
Ibúðalánasjóður
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík I Sími 569 6900 J Fax 569 6800
Smáauglýsingar
atvinna DV
550 5000