Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Side 10
10
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
Skoðun I>V
Málefni KSÍ
Gagnrýndlr
Atli Eðvaldsson og Eggert Magnússon - störf þeirra eru gagnrýnd.
Áttu erfitt með að vakna
á morgnana?
Matthías Skúlason tölvufræöingur:
Nei, ég kem alltaf hress í vinnu
á réttum tima.
Arnfríður Hafþórsdóttir nemi:
Nei, en ég er nú samt alltaf
pínusyfjuð á morgnana.
Gunnar Jón Hilmarsson vaktmaöur:
Nei, ég á gott með að vakna, fer í
fyrra lagi að sofa.
Agnes Þorsteinsdóttir nemi:
Já, mjög erfitt og ég er mjög
morgunfúl.
Vilborg Bjarnadóttir nemi:
Nei, ég fer frekar snemma að
sofa á kvöldin.
Katrín Óskarsdóttir nemi:
Já frekar, ég er meö þrjár
vekjaraklukkur.
Rafn Haraidsson
skrifar:
Hvemig getur það verið að KSÍ virð-
ist ekki vilja umræðu um hvort þjálfari
landsliðs okkar sé hæfur til að vera
áfram eða ekki? í hvaða landi sem hef-
ur eingöngu atvinnumenn í sinu lands-
liði geta menn sætt sig við tvo tapleiki
í röð og það með markatölunni 9-0 úr
þeim viðureignum?
Við erum með lið sem hefur gert
jafntefli við nýkrýnda heimsmeistara á
Laugardalsvellinum og þeir sömu
heimsmeistarar náð að vinna okkur
með heppni á eigin heimavelli. En nú
er allt i einu orðið í lagi að tapa 6-0 og
3-0 án þess að það hafi áhrif á störf
þjálfara og eingöngu sagt að þetta séu
lið sem em betri en við. Skárra er það
nú. Hvað vakir eiginlega fyrir for-
manni KSÍ og hans mönnum?
Þegar verið er að ræða um gott gengi
okkar í þessari HM-undankeppni
gleymist að við áttum að eiga 12 stig ör-
ugg, þ.e. við erum í styrkleikaflokki
fyrir ofan tvö lið í okkar riðli og eigum
þar af leiðandi að vinna bæði heima og
úti og þar með fá 12 stig. Eitt stig kom
í viðbót; er það aiit þetta góða gengi?
Hvernig væri að menn færu að
vakna til lífsins hjá KSÍ og gera sér
grein fyrir að viö sem höfum áhuga á
knattspyrnu viljum meira, því við vit-
um að með þennan mannskap er hægt
að gera miklu meira en það sem gert
hefur verið.
Þó svo að þjálfarinn hafi gert KR að
meisturum 1999 verða menn að líta á
það að þar tók hann við búi sem búið
Erna Jóna Sigmundsdóttir,
markaösstjöri Pfízer, Pharmaco hf., skrifar:_
Nokkurt fjaðrafok hefur orðið
vegna athugasemda Péturs Pétursson-
ar, læknis á Akureyri, við rauðvíns-
flösku sem fylgdi kynningarbréfi frá
lyfjafyrirtækinu Pfizer. Pétur vill
tengja flöskuna við mútur.Til að
varpa ljósi á málið er rétt að skoða til-
drög þess. Lyíjakynnir var á Akureyri
fyrir skömmu til að hitta lækna og
fræða þá um nýtt lyf við mígreni.
Kynningunni fylgdi sérlyíjaskrártexti
um lyfið, gefinn út af Lyíjastofnun, og
að auki rauðvínsflaska og tappatogari.
Ástæða þess að rauðvinsflaska fylgdi
kynningunni eru tengsl rauðvíns við
sjúkdóminn en neysla rauðvins getur
kallað fram einkenni á mígreni.
Migrenisjúklingar verða, eins og
kunnugt er, að neita sér um ýmsar al-
mennar neysluvörur, ekki síst rauð-
vin. Því miður náði lyfjakynnirinn
ekki að hitta umræddan Pétur Péturs-
son en skildi gögnin eftir á skrifstofu
hans: faglegar upplýsingar um lyfið
frá Lyfjastofnun, rauðvinið og tappa-
togarann. Pétur skilaði flöskunni.
Nú er það svo að öll umræða um
„Formadur KSI og þjálfarinn
hœla hvor öðrum á hvert
reipi og með svo miklum lýs-
ingum að öllum sem égræði
við þykir nóg um.“
var að byggja upp áður en hann kom.
Hvemig var síðan eftir það hjá KR? Jú,
allt hefur verið í rúst síðan. Sama var
hjá landsliðinu, hann tók við liði sem
búið var að byggja upp í nokkur ár og
hvað er að gerast? Mér sýnist allt vera
að fara á sama veg.
Formaður KSÍ og þjálfarinn hæla
hvor öðram á hvert reipi og með svo
miklum lýsingum að öllum sem ég
Ljóst er að rauðvinsflaska að
miðlungsgœðum hlýtur bœði
að flokkast undir hóflegar veit-
ingar og minni háttar og
ódýran hlut.
vín er afar viðkvæm á íslandi og mat
á þessari neysluvöru er einstaklings-
bundið. Fólki, sem hefur t.d. dvalist
langdvölum erlendis, finnst borðvín
eðlilegur hluti góðrar máltíðar en aðr-
ir kunna aö líta það öðrum augum.
Lyfjafyrirtæki og læknar hafa sett
sér strangar siðareglur um samskipti
sín á milli, að eigin undirlagi og án
þrýstings frá opinberum aðilum. í 2.
grein þessa samnings segir: „Lyfja-
kynningar fari aö jafnaði fram á
vinnustað lækna og að ljóst sé að
kynningin skili nýrri vitneskju fyrir
læknana. Allar upplýsingar skulu
vera nákvæmar, sannar og hlutlægar
og í engu brjóta í bága við lög um al-
mennt siðferði. Veitingar skulu vera
hóflegar og í engu skyggja á þá kynn-
ingu sem fram fer.“
ræði við þykir nóg um. Getur verið að
þama séu menn að reyna að styðja
hvor annan, því ljóst er af umræðunni
á götunni að verulega er farið að hitna
undir þeim báðum.
Hér væri hægt að setja á blað ails
konar skrýtin dæmi eins og Guðna-
málið, umboðslaun og laun formanns,
gagnrýnis-fóbíu þjáifarans sem alltaf
fer að tala um atvinnumennina í lands-
liðinu eins og lítil börn, þ.e. það má
ekki láta þá heyra að fólk sé ekki
ánægt og þeim líði illa - þvílik della. Ég
bara vona að nú fari af stað almennileg
umræða um þessi mál og opinská en
ekki i þeim dúr sem verið hefur og
þögguð niður með væli um hve allir
eru vondir við suma.
í 8. grein segir: „Lyfjakynnar
mega ekki bjóða læknum fé eða
gjafir gegn viðtali og sömuleiðis
mega læknar ekki fara fram á slíkt.
Heimilt er þó að bjóða og þiggja
minni háttar ódýra hluti.“
Ljóst er aö rauðvínsflaska að
miðlungsgæðum hlýtur bæði að
flokkast undir hóflegar veitingar og
minni háttar og ódýran hlut. Má
þar einnig vitna til þess sem gengur
og gerist i almennum reglum fyrir-
tækja um siðferði samskipta.
Lyfjafyrirtæki verða að sjálf-
sögðu að kynna framfarir og vöru-
nýjungar eins og önnur fyrirtæki.
Það getur hins vegar orkað tvímæl-
is að skilja flöskuna eftir hjá um-
ræddum lækni, án þess að ná tali af
honum til að fræða hann í eigin
persónu um lyfið. Þar með var hon-
um ekki gefinn kostur á að afþakka
kynningargjöfina. Ástæða er því tii
að draga lærdóm af þessu atviki og
er Pétur Pétursson beðinn velvirð-
ingar. Enn fremur verður réttmæti
kynningargjafar sem þessarar tekið
til endurskoðunar innan fyrirtækis-
ins.
Sannleikurinn um vínið
Pétur og vínið
Enn er Pétur Pétursson að hrista upp í mál-
um, en að þessu sinni er það ekki meint stera-
notkun kraftlyftingamanna sem er í brennidepli
heldur mútur lyfjafyrirtækja til lækna. Pétur,
eins og fleiri heilsugæslulæknar, fékk senda
rauðvínsflösku með tappatogara frá lyfjafyrir-
tækinu Pharmaco ásamt gögnum um eitthvert
mígrenilyf. Ef Garri hefur skilið talsmenn lyfja-
fyrirtækjanna rétt þá er nú ekki litið á þetta
rauðvín sem mútur heldur „hóflega gjöf‘ sem
fylgi kynningarefni um þetta nýja lyf. Ekki mun
þetta vera einsdæmi og er raunar haft eftir
Stera-Pétri að þessi vínflaska sé dropinn sem
fylli mælinn því heiðarlegir menn séu orðnir
langþreyttir á þessum ófögnuði. Þar af leiðandi
endursendi hann flöskuna ásamt tappatogaran-
um svo ekki færi milli mála að hann hefði ekki
áhuga á slíkum „hóflegum gjöfum" sem hann
kaflar raunar sjálfur mútur.
Göfgun
Umræða af þessu tagi er raunar ekki alveg ný
og Garri tekur eftir því að gjafir og velgjörðir
sem veitast læknum af hendi lyfjafyrirtækja eru
oftar en ekki sagðar tengjast einhvers konar
fræðslu eða endurmenntun læknanna. í mennta-
skóla rámar Garra í að hafa lært í einhverri
freudískri sálfræði að svona nokkuð héti
„göfgun" - en „göfgun" kallaði Freud það
þegar frumstæðar hvatir líbidósins eru
upphafnar og látnar tákna eitthvað göfugt
s.s. að drápsfýsnin er göfguð í skákinni.
Hér mætti segja að gróðafýsnin væri
„göfguð“ með þvi að umbreyta henni í
fræðsluhlutverk. Það dylst nefnilega eng-
um sem á annað borð nennir að skoða
þetta að tilgangur lyfjafyrirtækja með því
að borga ólíklegustu hluti fyrir lækna er
að markaðssetja i gegnum þá þau lyf sem
fyrirtækin framleiða.
Drykkjuskapur
En þó á þessi rauðvínsfræðsla með mígrenilyf-
inu nokkra samúð Garra, því þó talsmenn fyrir-
tækisins hafi ekki kynnt málið þannig gefur
auga leið að tilgangurinn með rauðvínsgjöflnni
hefur verið að fá Pétur og aðra heilsugæslu-
lækna til að drekka vínið og verða timbraðir á
eftir. I slíku ástandi hefðu þeir þá getað kannað
áhrif og virkni þessa mígrenislyfs af eigin raun.
Þar væri þá komin bona fide fræðsla um áhrif
migrenilyfs sem læknar gætu tekið mark á. Gall-
inn er hins vegar sá að hætt er við að öll þau
lyfjafyrirtæki sem framleiða höfuðverkjartöflur
tækju upp á því að senda læknum vín, sem síðan
framkallaði timburmenn hjá viðkomandi lækni
sem gæti þá af eigin raun reynt áhrifamátt
verkjataflna viðkomandi firma. En í ljósi hins
mikla úrvals höfuðverkjartaflna eru líkur á að
slik fræðsla gæti endað í langvarandi drykkju-
skap í læknastétt sem jafnvel lamaði heilbrigðis-
kerfið. Því hljóta menn að að taka undir með
Stera-Pétri og leggjast gegn þessari göfguðu
fræðslu lyfjafyrirtækja og lækna, en mæla með
því að læknar lesi sér bara til í sinni grein á eig-
in kostnað. Eins og allar aðrar _
stéttir fagmanna gera. GSffl
Auöhringurinn hjá Strætó.
Auðhringurinn - ný
leið hjá Strætó
Heimir Fjeldsted, kaupmaftur á Bræðra
borgarstíg, sendi skemmtilega tillógu:
Ég vil að nýja strætisvagnaleiðin,
númer 16 og 17, verði látin heita Auð-
hringurinn. Ástæðan er sú að þessir
vagnar ganga frá Mjódd, í Kringluna,
Skeifuna, Smárann og Hamraborg,
milli auðugu kaupmannanna í borg-
inni. Auk þess kemur vagninn að
sjálfsögðu við í Verslunarskólanum
þar sem verðandi kaupmenn eru að
læra til verka.
Eins og Smáralind
Kona á sólbaðsstofunni á Dalvík
laumaði þessu að okkur:
Hérna hjá mér á sólbaðsstofunni á
Dalvík var ungur maður á miðviku-
daginn og þáði kleinur sem ég var að
steikja. í ljós kom að honum fannst
slíkt hátíðamatur á afmælisdaginn -
hann er nefnilega fæddur þann 10.10.
klukkan 10.10 rétt eins og Smáralind-
in - nema hvað Guðmundur Pálma-
son á Goðabraut 11 fæddist 1983 og
varð því átján ára. Mér fannst þetta
skemmtileg, lítil frétt í Dagblaðið.
Fólkið í Afganistan
- þetta fólk á ekki sök á
ódæöinu í Bandaríkjunum.
Ekki verið að
stöðva ofbeldið
Laufey_EJsaJSólyeigardóttir hrjngdi:
Af hverju getur ísland ekki haldið
hlutleysi sinu rétt eins og Svíþjóð,
Sviss og eflaust fleiri lönd? Mér finnst
það óviðunandi að íslenska ríkis-
stjórnin skuli styðja árásirnar á
Afganistan. í sprengjuregninu mun
þetta snauða fólk farast hundruðum
og þúsundum saman. Sprengjur munu
ekki stöðva ofbeldið og hryðjuverkin í
heiminum, það er hrein firra að halda
að svo verði. Nú er ég fjarri því að af-
saka ógeðslegar aðgerðir araba í Am-
eríku 11. september. En ég tel að ef
menn vilja stemma stigu við ofbeldi
og hryðjuverkum, þá verði að nálgast
lausnina á allt annan hátt. Stórveldin
hafa hvað eftir annað sýnt að þau
vaöa yfir minni þjóðirnar til að verja
hagsmuni sína. Þær verða að fara að
hugsa sitt ráð í utanríkismálum. Ætli
lausnina sé ekki að finna þarna?
Fátækur milljóneri
Undrandi kona hringdi:
Ég veit dæmi um mann sem er á fá-
tækramörkum samkvæmt skatt-
skýrslu. Hann býr í 30 milljóna króna
húsi, er á Benz-jeppa og keypti sér
skútu á dögunum sem kostar um það
bil það sama og húsið hans. Hann á
líka sumarbústað á Spáni. Ég undrast
það að menn skuli komast upp með
það að borga nánast enga skatta en
lifa eins og kóngar. Ekkert þýðir að
benda yfirvöldum á svona - það er
ekkert gert.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíóa DV,
Þverholti 11, 105 Reylgavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.