Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Blaðsíða 15
14
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
31
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Framkvæmdastjéri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvik, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverð 200 kr. m. vsk., Helgarblaö 300 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viömælendum fýrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Sannleíkurinn er fállinn
Þaö fyrsta sem fellur í hverju stríði er sannleikurinn. Þess-
ari visku hefur einatt veriö haldiö á lofti þegar þjóöum og hóp-
um fólks lýstur saman. Og þessi sannindi eiga vissulega við á
þessum haustdögum þegar Bandaríkjamenn og Bretar fara
með ófriði á hendur stjórnvöldum í Afganistan. Á fyrsta degi
eftir að vesturveldin lögðu til atlögu gegn þversköllum tali-
bana féU sannleikurinn í valinn og áróðurinn fór að vella út
úr deUendum eins og gröftur úr gömlu sári. Og áróðurinn hef-
ur magnast.
Við þessu mátti búast. Svona hefur þetta líklega verið frá
því menn byrjuðu fyrst að berja hverjir á öðrum. Stríð eru
jafnt í orði og verki. Og stríð eru ekki síst fólgin í því að sann-
færa almenning og fyUa hann vissu þess að annar aðUi stríðs
sé góður og hinn vondur. Öðruvísi gengur þetta ekki upp, enda
vart eða ekki hægt að hugsa sér að báðir séu vondir, hvað þá
að báðir séu góðir. Sannfæringin skiptir því sköpum. Og tU að
sannfæra leyfa menn sér öU meðul. Þær systur lygin og leynd-
in duga þar gjarna best.
Á seinni árum hefur aðgangur ráðamanna að fjölmiðlum
skipt meginmáli í þessu sannfæringarstríði. Það er heldur
ekki að undra að það fyrsta sem stríðsmenn hertaka í vígaferð-
um sínum eru útvarpsstöðvar og ritstjórnir. Sagan er uppfuU
af slíkum áhlaupum. Nú hafa orðið kaflaskU í þessari sömu
sögu og verða þau að teljast með hreinum ólíkindum. Fimm
helstu sjónvarpsfréttastofumar í Bandaríkjunum geröu um
miðja síðustu viku með sér samkomulag um að hertaka sig
sjálfar og Ijúga að áhorfendum.
Þetta er eitthvert mesta áfaU sem frjáls fjölmiðlun hefur orð-
ið fyrir á síðari tímum. Var áratugalöng barátta fyrir ritfrels-
inu og tjáningarfrelsinu ekki erfiðari en svo að þessum ein-
hverjum mikUvægustu stoðum í lýðræðisríkjum mátti á góð-
um miðvikudegi kasta fyrir róða? Og það fyrir einfalda bón frá
stjórnvöldum. Sjónvarpsstöðvarnar fimm hafa samþykkt að
ritskoða yfirlýsingar sem kunna að berast frá Osama bin
Laden á myndbandi í framtíðinni. Þær hafa samþykkt að taka
þátt í stríðinu.
Þessum sjónvarpsstöðvum verður ekki treyst í framtíðinni.
Og þær hafa gert öðrum sjónvarpsstöðvum og reyndar aUri
vestrænni ijölmiðlun slíkan óleik að erfitt verður í næstu
framtíð að sannfæra efahyggjumenn um að heiðvirðir blaða-
og fréttamenn séu málsvarar sannleikans og láti ekki stjómast
af öðm en eigin sannfæringu og trú á óhlutdræga upplýsinga-
gjöf. Ákvörðun sjónvarpsstöðvanna fimm er barnaleg og rekin
áfram af blindri þjóðemiskennd. Og hún mun engan veginn
skUa árangri.
Osama bin Laden og aðrir mestu Ulvirkjar þessa heims hafa
öU tól í hendi sér tU að koma áróðri sínum og ofsatrúarbuUi á
framfæri. TU þess arna þurfa hann og hans líkar ekki hárlakk-
aðar og sminkaðar sjónvarpsstöðvar sem em alvarlega farnar
á taugum. Nægir þar að nefna óravíddir Netsins og sífeUt
tæknivæddari farsíma. Þá em ónefndar vandaðar heimsfrétta-
stofúr á borð við BBC og Sky sem selja ekki ritfrelsi sitt á
hverjum miðvikudegi í býttum fyrir brosandi heim.
Ritskoðun á stríðstímum var gerleg í eina tíð. Lengstum á
síðustu öld beittu ráðamenn fréttastofum fyrir sig eins og
hverjum öðrum byssumönnum. Nú em aðrir tímar og aðrar
og meiri kröfur gerðar tU fjölmiðla en á fyrri öldum. Sannleik-
urinn gerir menn frjálsa. Og þjóðir ríkar. Þjóðrækni og jafnvel
þjóðremba er ósköp eðlUeg á tímum þegar vargar gera út af
við öryggistilfmningu heilu samfélagsgerðanna. HoUusta við
þjóð sína felst hins vegar ekki í því að brjóta niður meginstoð-
ir frjálsra þjóða.
Sigmundur Ernir
I>V
Ármann á Alþingi?
Ármann Jakobsson ritaði
kjallaragrein í DV sl. fnnmtu-
dag, „Listin og markaðurinn“,
sem var einhvers konar hæðn-
isgrein um markaðshyggju.
Ármann virðist vera mjög
hlynntur ríkisforsjá, alltént í
menningarstarfsemi, og lítur
á brölt einkaaðila á þeim
markaði með hæðnisglott á
vör. Beinir hann spjótum sín-
um að tveimur ungum félög-
um; Skjáeinum og Leikfélagi
fslands. Það er mjög stór-
mannlegt hjá Ármanni að
sparka í þá sem eiga í erfiðri
samkeppni við opinberar
stofnanir og sér I lagi þegar hann stigur
i klossa ríkisforsjárinnar.
Leikfélag íslands hóf starfsemi fyrir
sjö árum. Félagið naut frá fyrstu tíð
mikilla vinsælda og áhorfendur kusu
skemmtilegt leikhús. En viti menn, fyrst
Leikfélag íslands náði að laða tO sín
mikinn fiölda leikhúsgesta gat það ekki
verið mjög alvarlegt leikhús og allra síst
menningarlegt. Það var þá sem örfáir
menningarvitar smíðuðu skammaryrðið
„markaösleikhús" og klíndu því á Leik-
félag íslands. Hver er munurinn á
Sæmundur
Noröfjörð
stjórnarmaöur i
Leikféiagi íslands.
„markaösleikhúsinu Leikfé-
lagi íslands" a.v. og Borgar-
leikhúsinu eða Þjóðleikhúsinu
h.v.? Ég fæ ekki betur séð en
að þau tvö síðarnefndu hafi
hellt sér út í söngleikina og
farsana eins og þeim væri
borgað fyrir það enda er þeim
helst borgað fyrir það.
Þegar opinberu leikhúsin
fundu fyrir samkeppninni frá
Leikfélagi íslands voru opin-
berir styrkir hækkaðir til
þeirra og á sama tíma hófu
þau undirboð á leikhúsmiðan-
um. Þegar svo var komið
ákváðu sjálfstæðu leikhúsin
að spyma við fótum. í áliti Samkeppnis-
stofnunar, 2. grein frá 5. mars sl., er
þetta ójafnræði staðfest og þeim tilmæl-
um beint til yfirvalda að æskilegt sé að
gæta að jafnræðissjónarmiðum við eíl-
ingu leiklistar og talið að „misræmi í
opinberum stuðningi stríði gegn mark-
miðum samkeppnislaga".
Ármanni finnst svona skýring hjákát-
leg, sbr. „Leikhússtjórinn minntist á að
hin opinberu leikhús „héldu niðri miða-
verði“ á íslandi. En eigum við að trúa
þvi að fólk flykkist í leikhús ef miðam-
Sjálfstætt leikhús
Stjórnendur Leikfélags íslands segja samkeppni
sjálfstæöra leikhúsa hafa oröið til þess að styrkir til
opinberu leikhúsanna hafi verið hækkaðir.
ir kostuðu 6-8 þúsund krónur? Nei, lágt
miðaverð dugar ekki sem skýring."
Mun Ármann þá ekki vera samkvæmur
sjálfum sér og kanna hvað hann er að
borga í raun fyrir miðann í hverju leik-
húsi fyrir sig. Ef Ármann langar á leik-
sýningu í opinbem leikhúsi og hann
veit að miðinn kostar í raun 8000 kr. en
áhorfandinn þarf bara að borga 2000 kr.
Mun Ármann þá a) fara á sýninguna,
borga 2000 kr. fyrir miðann og finnast
sjáifsagt að Gunna í
Grafarvogi hjálpi
honum með þær 6000
kr. sem upp á vantaði
b) snikja boðsmiða
einhvers staðar,
labba fram í hléinu
og ræða um hvað
þessi „markaðsleik-
hús“ séu nú vonlaus
c) fara ekki á sýning-
una af því að það
stríðir gegn hans
kostnaðarvitund og
samvisku að greiöa
svo hátt verð fyrir
leikhúsmiðann?
Ármann ritar
hróðugur: „Leikfélag-
ið er í kröggum og kann þegar á hólm-
inn kemur ekki betra markaðsráð en að
biðja hið opinbera um stuðning." Stað-
reyndin er sú að árlega er u.þ.b. einum
milljarði varið í leikhúsmenningu af op-
inbera fé. Leikfélag Islands er nógu stolt
til þess að grenja ekki í ríki og borg og
heimta hluta af þessum peningum. Leik-
félag íslands er líka nógu skynsamt til
að benda ríki og borg á að nýting þess
opinbera fjár (u.þ.b. 2% af heildarút-
Drög að einveldi
„Taka þeir sem völdin hafa, og halda
þeir sem geta,“ segir gamalt máltæki
og rifjast upp þegar horft er til þróun-
ar í stjómkerfinu undanfarin ár.
Stjórnarflokkamir tveir hafa verið
einkar samhentir um aö treysta og
efla völd foringja sinna, meðal annars
með þvi að skipta út ráðhermm með
jöfnu millibili, þannig að nú vermir
enginn upphaflegra ráðherra íhalds-
stjómarinnar stóla sína - nema að
sjálfsögðu foringjarnir tveir, sem
stjóma brúðuleikhúsum flokka sinna
af agasamri einbeitni, verja af kappi
flokksbræður sem misstíga sig á við-
sjálum vegi dygðarinnar og bregðast
illa við ef einhver strengjabrúðan dirf-
ist að tæpa á sjálfstæðu viðhorfi. Með
þessu móti myndast smátt og smátt
ákjósanlegur jarðvegur fyrir það al-
ræði flokksforingja sem að er stefnt.
Árásir á sjálfstæðar stofnanir
Kannski er einna eftirtektarverðast
hversu grimulaus sóknin til vaxandi
alræðis stjórnarherranna hefur verið
undanfarin misseri. Fyrstu tilburðir
blöstu við landsmönnum fyrir rúmum
tveimur árum þegar lögð var niöur
upphafleg vísindasiðanefnd, skipuð
þverfaglegum fulltrúum, afþvi hún
gagnrýndi alla meðferð Gagnagrunns-
frumvarpsins ásamt lögunum sem
samþykkt voru og gerðu ísland að við-
undri í hinum alþjóðlega vísinda-
heimi. Sett var á laggirnar önnur
nefnd skipuð fulltrúum þriggja ráðu-
neyta, og öllum landslýð var dagljóst
hvað undir bjó. Síð-
an kom dómur
Hæstaréttar í ör-
yrkjamálinu. Þá
rauk Davíð Oddsson
til og sakaði réttinn
um að fara útfyrir
verksvið sitt, ýjaði
jafnvel að stjórnar-
skrárbroti. Næst
kom röðin að Þjóð-
hagsstofnun. Spá
hennar var forsætis-
ráðherra ekki að
skapi og hann var
ekki seinn á sér að
lýsa yfir þarfleysi
Þjóðhagsstofnunar,
r. , , ... . . . . . , i 3 enda framhjá henni
Þvi fer viosfjarri ao þingheimur i heild gengið við undir-
eða meirihluti hans hafi vit á öllum sköp- búning fjárlaga ný-
uðum hlutum. Þessvegna eru sjálfstœðar lfrg.a: Polltlkuar. og
stofnamr samfelagsins hfsnauðsynlegar.
Sigurður A.
Magnússon
rithöfundur
væru fullfærir um
að sjá um þjóðhagsspá, að
því er rogginn fjármála-
ráðherra staðhæfði!
Mesta ólgu á stjómar-
heimilinu vakti umsögn
Skipulagsstjóra ríkisins
um Kárahnjúkavirkjun.
Enn taldi Davíð að emb-
ættið færi útfyrir lögbund-
ið starfssvið sitt og Halldór
Ásgrímsson kvað uppúr
með að lítið mark væri á
því takandi; þjóðkjörnir
fulltrúar á Alþingi hefðu
hvorteðer síðasta orðið!
Nýjasta afrek ríkisstjórn-
arinnar er að leggja niður Náttúru-
vemdarráð meðþví það hefur verið
óþægur ljár í þúfu Sivjar Friðleifsdótt-
ur umhverfisráðherra, sem er dygg
málpípa flokksforingjans og hefur
ekki sýnt neina burði til að axla
ábyrgð embættisins. Loks ber það til
tíðinda að troða á alþingismönnum
inní Rannsóknarráð íslands. Ráðið er
vísindastofnun mönnuð sérfræðing-
um. Hvaða erindi eiga bændur, lög-
fræðingar, forstjórar og aðrir þrásetu-
menn á Alþingi í Rannsóknarráð? Jú,
þeim ber að stuðla að velvild þing-
heims í garð ráðsins, að sögn þeirra
sem með völdin fara. Er glóruleysið í
málflutningi valdhafa virkilega komið
á þetta stig?
Veit þingheimur ekki meira um
mikilsvert hlutverk Rannsóknarráðs
en svo, að þangað verði að senda
flugumenn til að grennslast fyrir um,
hvað þar sé á seyði? Ríkisútvarpið og
Háskóli íslands eru tvö önnur dæmi
um vaxandi tOhneigingu ráðamanna
til beinna afskipta af stofnunum, sem
að öllu eðlilegu ættu að vera undan-
þegnar beinni íhlutun ríkis-
valdsins, þó þær séu í eigu al-
mennings.
Máttarstoðir lýðræðis
Ekki sér fyrir endann á ei-
lífðarþrasinu um sægreifana
og gjafakvótann. Auðlinda-
nefnd komst ekki að niður-
stöðu og lagði fram tvær tillög-
ur. Svonefnd sáttanefnd klofn-
aði i femt, en meirihluti henn-
ar, skipaður fjórrnn sauðþæg-
um erindrekum stjórnvalda,
kaus að leggja fram fráleitar
tillögur sem kannski verða til
þess að einhuga sókn íhaldsaflanna til
raunveralegs einveldis tefjist um
sinn. Ilún verður samt ekki stöðvuð
nema með róttækri hugarfarsbreyt-
ingu valdhafa, og þau sinnaskipti eiga
sér ekki stað nema kjósendur hafi í
sér döngun til að taka í taumana.
Þær stofnanir sem gerðar hafa verið
að umtalsefni hér að ofan eru iög-
bundnar máttarstoðir lýðræðis í land-
inu. Þegar hróflað er við þeim með ger-
ræðislegum geðþóttaákvörðunum
stjómvalda, er verið að höggva að rót-
um þess þjóðskipulags sem við höfum
komið á með ærinni fyrirhöfn og
mörgum bakslögum. Því fer viðsfjarri
að þingheimur í heild eða meirihluti
hans hafi vit á öllum sköpuðum hlut-
um. Þessvegna eru sjálfstæðar stofnan-
ir samfélagsins lifsnauðsynlegar. Þær
aðgerðir valdhafa sem raktar voru hér
á undan verða ekki túlkaðar nema á
einn veg. Þær eru fyrstu drög að þeirri
blygðunarlausu áætlun að koma hér á
einveldi ihaldsaflanna. Þær fyrirætlan-
ir geta kjósendur einir ónýtt.
Sigurður A. Magnússon
Spurt og svarað
Eru lyfjafyrirtcekin að múta lcéknum með gjöfum til þeirra?
Ingi Guðjónsson,
jramkvœmdastjóri Lyfju:
Afstœtt að auglýsa
með rauðvíni
„Það er stórt orð að tala um
mútur. Ég hefði sjálfur talið
það nauðsynlegt að lyfjafyrir-
tækjunum yrði betur gert kleift
að auglýsa og kynna vörur sínar með faglegum
hætti þótt afstætt sé hvort það eigi endilega að
gerast með rauðvínsflöskum. í dag má ekki aug-
lýsa lyfseðilsskyld lyf nema í fagtímaritum
lækna og auglýsingar á lausasölulyfjum sem
seld eru án lyfseðils eru ýmsum takmörkunum
háðar. Hér er sem sagt endurskoðunar þörf á
þeim ströngu reglum sem gildandi eru en nauð-
synlegt er að fyrirtæki sem flnna upp og þróa lyf
hafi svigrúm til að veita upplýsingar til heil-
brigðisstétta og almennings."
Ólafur Ólafsson,
fyrrverandi landlæknir:
Óeðlilegt
í alla staði
„Mér þykir þetta mál vera
óeðlilegt í alla staði og í raun
getur þetta ekki gengið að ein-
stök lyfjafyrirtæki séu að gauka
rauðvinsflöskum að læknum.
Menn geta lesið út úr því sem þeir vilja hver
sé tilgangurinn með svona gjöfum. Og vera má
að þessi harða markaðssókn eigi enn eftir að
aukast í náinni framtíð.
Sjálfur minnist ég frá læknistíð minni að
hafa fengið eitt sinn sent úr að gjöf frá lyfjafyr-
irtæki sem ég sendi ritarann minn með til baka
og boð í einhverjar utanlandsferðir fékk ég
einnig sem ég þáði þó ekki.“
Lýður Ámason,
lœknir á Flateyri:
Hófleg drykkja
styrkir hjartað
„Ekki mér vitanlega. Ég hef
aldrei fengið neitt rauðvín frá
lyfjafyrirtækjunum eins og mér
er sagt að kollegar mínir á Ak-
ureyri hafa fengið - og skilað.
Hins vegar hef ég oft farið á lyíjakynningar
hjá þessum fyrirtækjum og þar fær fólk mat og
drykk, sumir myndu kannski kalla það mútur
en aðrir gestrisni.
Það fer alveg eftir innstillingu hvers og eins
hvemig litið er á hlutina. En í sannleika sagt; ég
myndi helst vilja fá senda tunnu af rauðvíni frá
öllum lyfjáfyrirtækjunum - enda er hófleg
drykkja hjartastyrkjandi og lengir að minnsta
kosti starfsaldurinn."
gjöldum til leikhúsmála), sem lagt yrði í
starfsemi Leikfélagsins, yrði hlutfalls-
lega mjög vel varið til eflingar menning-
arstarfsemi þar sem kraftar þeirrar
starfsemi yrðu eftir sem áður knúðir af
getu og dugnaði einkaframtaksins.
Ármann og hans nótar ættu að hafa
til hliðsjónar að LÍ hefur verið annar til
þriðji stærsti atvinnuveitandi i leikhús-
heiminum. LÍ hefur á undanfómum
áum verið eitt þriggja aðsóknarmestu
leikhúsa landsins með á bilinu 30-70
þúsund áhorfendur. LÍ greiðir árlega
tugi milljóna í skatta til rikisins og hafa
einstaka opinberir styrkir, sem félaginu
hafa fallið í skaut, aldrei numið meira
en nemur broti af heildarsköttum félags-
ins.
Hvað gengur Ármanni til með svona
óskynsamlegri gagnrýni? Þetta er
greindur drengur og þekki ég hann að-
eins af góðu einu. Einhver vildi meina
að hann væri að hugsa sér frama í póli-
tík og því væri hann að skrifa svona
pistla. Ékki veit það nú á gott ef menn
ætla sér að verða ósanngjamir og
óskynsamin út af einhverjum pólitísk-
um metnaði. Þá vona ég að Ármann
snúi sér að öðru og villist aldrei inn á
Alþingi.
Einstæöir fundir
„Fyrir okkur sem
höfum setið marga
landsfundi er alltaf
______jafnánægjulegt að fá
f jS3E? tækifæri til að gera það
enn einu sinni. Fund-
imir eru einstæðir
bæði vegna þess fjölmennis sem sæk-
ir þá og vegna þess hve viðtækt svið
þeir spanna en snúast þó gjaman um
fáein viðfangsefni hverju sinni...
Þeir, sem standa utan Sjálfstæðis-
flokksins eða hafa aldrei setið lands-
fundi, geta ekki gert sér i hugarlund,
hve öflugar samkomur fundirnir era
og hve þeir, sem hafa setið marga
þeirra, eru því vanir að leiða til lykta
með atkvæðagreiðslu mörg viðkvæm
málefni eða velja á milli einstaklinga
í tvísýnum atkvæðagreiðslum."
Björn Bjarnason á heimasíöu sinni.
Standi reikningsskil
„Hyggist ráðamenn
halda áfram að mis-
skipta þjóðartekjum
okkar á þann veg að
fotlun haldi áfram að
verða ávísun á fátækt
og einangrun, ber þeim
að færa einhver rök fyrir þeirri
breytni sinni. Rétt eins og þeir færa
efnislög fyrir máli sínu. Rétt eins og
þeir ætlast til af okkur, ber þeim að
færa efnisleg rök fyrir máli sínu og
standa reikningsskil gjörða sinna.
Það er að minnsta kosti lágmarks-
krafa að þeir upplýsi hvers vegna
þeir kjósa að ákvarða öryrkjum jafn-
lágar bætur og raun ber vitni. Þá
verður ekki lengur hjá því komist að
þeir geri opinberlega grein fyrir því
hvort og þá hvernig þeir hafa hugsað
sér að örorkubæturnar dugi til helstu
nauðþurfta."
Garöar Sverrisson ! fréttabréfi
Öryrkjabandalagsins.
Sr. Baldur Kristjánsson
sóknarprestur:
Mútur með jólaöli
saklausar
„Mér finnst ótrúlegt að lyfja-
fyrirtæki séu svona barnalega
ósvífin.
En þetta minnir mig þó á að í
fyrra var ég staddur hjá lækni sem var, þegar
mig bar að, að taka upp lyf sem hann fékk send
frá lyíjaheildsala og i pakkanum leyndist með
öðru ein flaska af appelsíni og önnur af maltöli.
Þegar þessu tvennu er blandað saman kemur
út jólaölið - og að reyna að múta læknum með
því finnst mér miklu heilbrigðara en að múta
þeim með miði sem gerir blessaða læknana
óstarfhæfa með öllu eftir ekki svo ýkja mörg
glös.“
Pétur Pétursson, heilsugæslulæknir á Akureyri, telur að lyfjafyrirtækl reyni aö múta læknum en hann og starfsfélagar hans skiluðu aftur rauövínsflösku sem lyfjafyrirtæki gaf þeim.
Skoðun
Leyft að kenna
á íslensku
Islenskum kennurum er ekki bann-
að að kenna á móðurmálinu í upplýs-
ingatæknideOd Háskólans á Akur-
eyri. Þessi tíðindi hefur Fréttablaðið
eftir forstöðumanni kennslusviðs
skólans. Kennarar í tölvunarfræði eru
allir enskir og ekki mæltir á tungu
Davíðs frá Fagraskógi og Sigurðar
skólameistara. En það gerir ekkert til
því að enskan hefur yfirburðakosti í
flestum eða öllum greinum sem tengj-
ast alþjóðavæðingunni. Enda fer mik-
ill hluti kennslu í viðskiptaháskólum
landsins fram á kauphallarensku, sem
einnig er mál fjarskiptatækninnar
sem flytur stöðug boð um viðskiptalíf-
ið heima og heiman.
Sjálfsagt er ekkert eðlilegra en að
tekið sé upp tuffgumál þess siðar sem
hefur yfirhöndina í menningarheimi
hvers tíma. Þegar kristindómurinn
var lögleiddur fyrir margt löngu varð
kirkjumálið brátt sjálfsögð íslenska
og hefur haldist fram á okkar daga.
Kirkja, prestur, prédikun er ekki lak-
ari íslenska en goði, blót, hörgur.
Steindauð latina var alþjóðamál
lærðra manna og trúarinnar þar til
farið var að þýða Biblíuna á lifandi
þjóðtungur, þar á meðal íslensku,
góðu heUli.
Á meðan ekki er bannað að kenna
á íslensku í hérlendum skólum gerir
ekkert tU þótt kennsla í greinum sem
tengjast alþjóðaviðskiptum fari fram
á útlenskunni. Enda er mála sannast
að þeir sem ekki hafa aðgang að
heimsmáli verða eins og hálfgerðir
heimalningar í fjölþjóðinni.
Tungan og fiskislóðin
Hins vegar er óhætt að íhuga hvort
Oddur Olafsson
skrifar:
íslenska og eina þjóðin
sem enn talar tiltölulega
óbrenglaö norrænt
tungumál séu ekki orðn-
ar úrelt þing. MikUl
áróður er rekinn fyrir al-
þjóðavæðingunni á öU-
um sviðum og öU þjóð-
erniskennd er fordæmd
sem fasistísk lífsskoðun
með tilheyrandi fordóm-
um og Ulmennsku. Hins
vegar er barist hinni
góðu baráttu gegn þágu-
fallssýkinni, sem saurg- _
ar hið tæra málfar Snorra og Jónasar,
þvi tungan á að vera hrein og ósnort-
in eins og vatnsfóll hálendisins, sem
eru öUum veraldarauði dýrmætari.
Samtímis því að íslensku er úthýst
við kennslu veigamikilla nútíma-
fræða, eins og gerist í nokkrum há-
skólum landsins, er komið á fót sér-
stökum íslenskuskólum tU að kenna
framandi fólki sem hingað flyst
ómengaða íslensku. Það bendir til að
til séu þeir sem álíta að íslenska eigi
nokkurn þegnrétt í landinu þótt veð-
urbarinn og langsoltinn kynstofn eigi
þar takmarkaðan tilverarétt, fremur
en þjóðtungan i vísindagreinum
tækni og viðskipta.
Fyrir öld ortu skáldin um land,
þjóð og tungu og flestir voru sammála
um að reka danska óþjóðhoUustu af
höndum sér. Nú á dögum er þaö helst
tungan og fiskislóðin sem verja þarf
fyrir erlendri ásælni. Nýorðasmíð og
strangt eftirlit málfarseigenda um að
rétt sé farið með faUbeygingar eru
talandi dæmi um þá ofuráherslu sem
lögð er á að viðhalda hreinleika máls-
ins, sem þó hlýtur að láta undan
síga vegna ágangs alþjóðavæð-
ingarinnar heima og heiman.
Þverstæöur?
Fiskislóðin er eins alíslensk
og vísan um hann afa sem fór á
honum Rauð og súrsaðir
hrútspungar. Það helgast af því
að afkomendur þjóðlegra útvegs-
bænda eiga hana. I auðlindina
skulu engir fá að dýfa veiðar-
færum nema sannir Islendingar
_ og ættjarðarvinir eins og Pétur
Þríhross og Þorsteinn matgogg-
ur, sem frægastur er fyrir græðgina.
Þótt aUt sé falt, land, fasteignir, fyrir-
tæki og allar sameiginlegar eigur
þjóðarinnar, nema Ríkisútvarpið sem
starfsfólkið á, kemur ekki til mála að
hleypa erlendu fólki á flskimiðin eða
selja nokkrum útlendingi hluti í út-
gerð. Þar gUdir gamla þjóðremban og
eignarréttur íslenskumælandi manna
er þar ótvíræður. Það er eini frum-
burðarrétturinn til landsins gæða
sem enn er í gildi.
Kröfur magnast um að leggja krón-
una niður og taka upp evru og þá fer
að styttast í að þjóðernið verði endan-
lega lagt fyrir róða. Hvort einhver eft-
irsjá er að því skiptir ekki máli.
Kannski felst vonarglæta fyrir þjóð-
rembinga í því að ekki er enn búið að
banna að kenna á íslensku í mennta-
setrinu fyrir norðan. En hvort eftirsjá
er að siðasta norræna tungumálinu er
matsatriði, rétt eins og hvort nokkur
ástæða er til að viðhalda fyrirlitlegri
þjóðerniskennd.
Eða era þarna þverstæður sem póli-
tískur rétttrúnaöur bannar að ræða?
Fiskislóðin er eins alíslensk og vísan um hann afa sem fór á honum Rauð og súrsaðir
hrútspungar. Það helgast af því að afkomendur þjóðlegra útvegsbænda eiga hana.