Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Qupperneq 22
42
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára__________________________
Elín Guömundsdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
Gunnar Stefánsson,
Svalbakka, Hofsósi.
75 ára__________________________
Veturliöi Gunnarsson,
Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík.
Guöný Jósefsdóttir,
Mánagötu 3, Keflavík.
Arnheiöur Halldórsdóttir,
Strandgötu 97, Eskifirði.
70 ára _________________________
Aöalheiöur Ólafsdóttir,
Logafold 61, Reykjavík.
60 ára__________________________
Gunnar Þ. Lárusson,
Hæðargarði 3a, Reykjavík.
Jósef H. Helgason,
Gyðufelli 6, Reykjavík.
Margrét Jónsdóttir,
Esjugrund 43, Kjalarnesi.
Edda Emilsdóttir,
Vatnsholti 9a, Keflavík.
Kristjana Sigurjónsdóttir,
Vesturgötu 13, Ólafsfirði.
Örn Baldvins Hauksson,
Litlagerði 5, Hvolsvelli.
50 ára__________________________
Héðinn Arason,
Otrateigi 34, Reykjavík.
Auöur Ingvadóttir,
Melgeröi 17, Reykjavík.
Markús Markovic,
Suðurhólum 28, Reykjavík.
Ingólfur Már Magnússon,
Vesturbergi 148, Reykjavík.
Árni Bergmann Sveinsson,
Baughúsum 23, Reykjavik.
Unnur Birna Magnúsdóttir,
Hringbraut 17, Hafnarfjörður.
Birgir Smári Karlsson,
Staðarhrauni 19, Grindavík.
Ellert Ingvarsson,
Jörundarholti 101, Akranesi.
Theódóra Gústafsdóttir,
Kirkjubraut 32, Akranesi.
Siguröur Jónsson,
Hraunsási, Reykholt.
Anna Guðrún Vigfúsdóttir,
Smárabraut 3, Blönduósi.
Valdimar Björnsson,
Fellstúni 19, Sauðárkróki.
Ólafur Árnason,
Reyrhaga 6, Selfossi.
40 ára__________________________
Kristján Kristjánsson,
Bröndukvísl 17, Reykjavík.
Margrét Bragadóttir,
Tjarnarbóli 8, Seltjarnarnesi.
Jóhannes Kristjánsson,
Brekkusmára 7, Kópavogi.
Edda Soffía Karlsdóttir,
Hátúni 13, Keflavík.
Guörún Hreinsdóttir,
Bakkavegi 37, Hnífsdal.
Jónasína Halldórsdóttir,
Heiðarbrún 57, Hverageröi.
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.
Sverrir Einarsson Bryndls
útfararatjón Valbiarnarddttir
útfararetjóri
Útfararstofa íslands
Suöurhlíö35* Sími 581 3300
allan sólarhringinn. www.Utforin.iS
Smáauglýsingar
DV
visir.is
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
DV
Fólk í fréttum
Karl Steinar Guðnason
forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar rlkisins, hefur
veriö i DV-fréttum að undanförnu
vegna ráðningar prests íslendinga i
Kaupmannahöfn.
Starfsferill
Karl Steinar fæddist í Keflavík 27.5.
1939. Hann lauk kennaraprófi frá KÍ
1960.
Karl Steinar var kennari við
Bamaskóla Keflavikur 1960-76 og
jafnframt starfsmaður á skrifstofum
verkalýðsfélaganna i Keflavík en í
fullu starfi þar 1977-78. Hann var
þingmaður Reykjaneskjördæmis
1978-93 og hefur verið forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins frá 1993.
Karl Steinar var forseti efri deildar
1987-88 og 1991 og fyrsti varaforseti
Sameinaðs þings 1979 og 1980-83.
Hann sat i flokksstjóm Alþýðuflokks-
ins 1960-93, var ritari Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og ná-
grennis 1966-70 og formaður þess
1970-91, var námstjóri Félagsmála-
skóla alþýðu um skeið, formaður FUJ
í Keflavík 1958-66, í stjórn SUJ
1958-70, framkvæmdastjóri Æsku-
lýðsráðs Keflavíkur 1962-70, í stjóm
Æskulýðssamþands norrænna jafnað-
armanna 1964-70, í bæjarstjóm Kefla-
víkur 1970-82, sat aUsherjarþing Sþ
1977 og 1982, sat í stjórn Verkamanna-
sambands íslands 1971-87 og var
varaformaður þess 1975-87 og 1989-91,
í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkis-
ins 1978-82 og var formaður hennar
um skeið, sat í stjórn Vinnueftirlits
ríkisins 1980-92 og í Kjararannsókn-
arnefnd 1988-92.
Fjölskylda
Karl Steinar kvæntist 17.6. 1962
Helgu Þórdísi Þormóðsdóttur, f. 5.9.
1942, félagsráðgjafa. Hún er dóttir
Þormóðs Guðlaugssonar og Guð-
bjargar Þórhallsdóttur.
Börn Þórdísar og Karls Steinars
eru Kalla Björg, f. 27.2. 1962, for-
stöðumaður hjá Samvinnuferð-
um/Landssýn, gift Jóni Sigurðs-
syni, starfsmanni Nýherja, og eru
börn þeirra Sigurður Steinar, f. 2.6.
1993, og Þóra Kristín, f. 4.11. 1995;
Edda Rós, f. 29.12. 1965, hagfræðing-
ur við Búnaðarbankann, gift Kjart-
ani Daníelssyni, starfsmanni Fylkis,
og eru böm þeirra Þórdís Helga, f.
20.3. 1992, og Daníel Steinar, f. 21.3.
1998; Guðný Hrund, f. 22.5.1971, við-
skiptafræðingur hjá Streng ehf. og
er dóttir hennar Kristrún Ásta Arn-
finnsdóttir, f. 4.4. 1993; Margeir
Steinar, f. 19.6. 1976, bankamaður
við Sparisjóðinn í Keflavík.
Systkini Karls Steinars: Gunnar
Kristján, f. 27.6. 1936, verkamaður
við Olíustöðina í Helguvík; Jóhanna
Jóna, f. 14.11.1937, húsmóðir í Hafn-
arfírði; Selma Gunnhildur, f. 31.8.
1944, d. 26.3. 1994, húsmóðir í Kefla-
vík; Ólafía Bergþóra, f. 13.2. 1946, d.
25.6. 1997, húsmóöir og verkakona í
Keflavík.
Foreldrar Karls Steinars voru
Guðni Jónsson, f. 3.1. 1906, d. 18.10.
1957, vélstjóri í Keflavík, og k.h.,
Karólína Kristjánsdóttir, f. 14.7.
1911, d. 27.1.1981, verkakona.
Ætt
Faðir Guðna var Jón, b. í Stein-
um undir Eyjafjöllum, bróðir Sigur-
veigar, ömmu Guðmundar verk-
fræðings og Jóhannesar Einars-
sonar, forstjóra Cargolux. Jón var
sonur Einars, b. í Steinum, Jónsson-
ar, og Sigurveigar Einarsdóttur, b. í
Kerlingardal í Mýrdal, bróður Þor-
steins, langafa Steinunnar, lang-
ömmu Jóhönnu Sigurðardóttur
alþm. Einar var sonur Þorsteins, b.
í Kerlingardal, Steingrímssonar,
bróður Jóns eldprests. Móðir Jóns
var Þórunn, systir Guðrúnar,
ömmu Guðjóns Samúelssonar,
fyrrv. húsameistara ríkisins. Bróðir
Þórunnar var Ólafur, langafi Ge-
orgs Ólafssonar, forstöðumanns
Sam-keppnisstofnunar. Þórunn var
dóttir Sveins, b. í Skógum, ísleifs-
sonar, b. i Skógum, Jónssonar, lrm.
í Selkoti, ísleifssonar.
Móðir Guðna var Jóhanna Magn-
úsdóttir, systir Sigriðar, móður
Magnúsar Á. Árnasonar listmálara
og Ástu málara.
Karólína var dóttir Kristjáns, sjó-
manns í Keflavík (Stjána bláa)
Sveinssonar, b. í Akrahreppi í
Skagafirði, Pálssonar. Móðir Krist-
jáns var Helga Jóhannesdóttir, dag-
launara í Hafnarfirði, Hannessonar.
Móðir Karólínu var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Akri í Njarðvík, Jónsson-
ar. Móðir Jóns á Ákri var Guðrún
Halldórsdóttir, bróður Þórhalla,
langafa Gríms, föður Ólafs Ragnars
forseta. Móðir Guðrúnar var Guð-
ríður Guðmundsdóttir, systir Lofts,
langafa Bjarna Jónssonar vígslu-
biskups. Bróðir Guðriðar var Þor-
steinn, langafi Solveigar, móður
Einars Olgeirssonar alþm. Móðir
Guðrúnar var Ingigerður Jónsdótt-
ir, b. í Berjanesi í Landeyjum, Jóns-
sonar, og Ingigerðar Jónsdóttur, b. í
3erjanesi, Þorsteinssonar, b. á Kýl-
hrauni á Skeiðum, Eiríkssonar, ætt-
föður Bolholtsættar Jónssonar.
Fimmtugur
Pálmar Þorgeirsson
framkvæmdastjóri á Flúðum
Pálmar Þorgeirsson, f. 15. okt.
1951 í Reykjavík, eigandi flutninga-
fyrirtækisins Flúðaleiðar ehf., Vest-
urbrún 15, Flúðum, Hrunamanna-
hreppi, er fimmtugur t dag.
Starfsferill
Pálmar fæddist í Reykjavík.
Hann hefur starfrækt flutningafyr-
irtækið Flúðaleiðir frá 1980. Áður
sinnti hann ýmsum störfum til sjós
og lands en vann þó aðallega við
vinnuvélar og sinnti verktakastörf-
um af ýmsu tagi, hér og þar um
landið.
Pálmar hefur verið virkur félagi í
Vélsleðasveitinni Fannari og Björg-
unarsveitinni Eyvindi frá upphafi
enda mikill áhugamaður um vél-
sleðamenningu.
Fjölskylda
Pálmar kvæntist 9.11. 1974,
Ragnhildi Þórarinsdóttur, f. 21.3.
1953, garðyrkjubónda. Hún er dóttir
Þórarins Þorfinnssonar, f. 20.8.1911,
d. 28.11. 1984, bónda á Spóastöðum í
Biskupstungum, og k.h. 1939, Ingi-
bjargar Vilhelmínu Guðmundsson,
f. 12.6. 1916 í Innri-Hjarðardal í Ön-
undarfirði. Pálmar og Ragnhildur
hafa búið á Flúðum alla sína bú-
skapartíð.
Börn Pálmars og Ragnhildar eru
Lára Bryndís Pálmarsdóttir, f. 7.1.
1977, í sambúð með Kristjáni S.
Bjamasyni; Rúnar Pálmarsson, f.
24.2. 1981; Svavar Geir Pálmarsson,
f. 18.7. 1990.
Systkini Pálmars: Hrafnhildur, f.
18.12. 1952, bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur í Reykjavlk; Bryn-
hildur, f. 1.5.1955, myndlistarmaður
í Reykjavík; Sveinn Sigurður, f. 18.2.
1958, myndlistarmaður í Reykjavík;
Aðaísteinn, f. 4.2. 1961, bóndi á
Hrafnkelsstöðum.
Foreldrar Pálmars: Þorgeir
Sveinsson, f. 16.6.1927, d. 25.11.1997,
bóndi á Hrafnkelsstöðum III í
Hrunamannahreppi, og k.h., Svava
Pálsdóttir, f. 20.4. 1928, húsfreyja og
bókavörður á Hrafnkelsstöðum III.
Ætt
Þorgeir var sonur Sveins, b. á
Hrafnkelsstöðum, Sveinssonar, b. á
Rauðafelli undir Eyjaíjöllum, An-
roddssonar. Móðir Sveins á Hrafn-
kelsstöðum var Dóróthea Högna-
dóttir.
Móðir Þorgeirs var Sigríður Har-
aldsdóttir, b. og söðlasmiðs á Hrafn-
kelsstöðum, Sigurðssonar, b. á
Kópsvatni, Magnússonar. Móðir
Haralds var Kristrún Jónsdóttir.
Móðir Sigríðar var Guðrún Helga-
dóttir, b. í Birtingarholti, Magnús-
sonar, hreppstjóra og alþm. í Syðra-
Langholti Andréssonar. Móðir
Helga var Katrín Eiríksdóttir, ætt-
föður Reykjaættar, Vigfússonar.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Guð-
mundsdóttir, b. í Birtingarholti,
Magnússonar, og Arndísar Einars-
dóttur.
Svava er dóttir Páls, b. i Dalbæ í
Hrunamannahreppi, Guömundsson-
ar, b. í Dalbæ Guðmundssonar, b. í
Traðarholti í Stokkseyrarhverfi,
Guðmundssonar. Móðir Guðmund-
ar í Dalbæ var Guðrún Guðmunds-
dóttir. Móðir Páls var Guðfinna Kol-
beinsdóttir, b. í Stóru-Mástungu, Ei-
ríkssonar, b. á Hömrum í Gnúp-
verjahreppi, Kolbeinssonar, b. á
Hlemmiskeiði, Eirikssonar, ættföð-
ur Reykjaættar, Vigfússonar. Móðir
Eiríks á Hömrum var Solveig Vig-
fúsdöttir, b. á Fjalli Ófeigssonar.
Móðir Guðfinnu var Jóhanna Berg-
steinsdóttir.
Móðir Svövu var Margrét Guö-
mundsdóttir, b. og söðlasmiðs í
Hólakoti ísakssonar, og Guðrúnar
Brynjólfsdóttur frá Sóleyjarbakka.
í tilefni af afmæli sínu mun Pálm-
ar taka á móti gestum sínum að
Gistiheimilinu Geysi, Biskupstung-
um, laugardaginn 20.10. kl. 21.00.
Allir vinir og velunnarar hans eru
velkomnir til að samfagna hinu sí-
unga afmælisbarni á þessum tíma-
mótum.
Merkir Islendingar
Jóhannes Sveinsson Kjarval fæddist að Efri-Ey i Meðallandi
í Vestur-Skaftafellssýslu 15. október 1885, sonur Sveins Ingi-
mundarsonar, bónda þar og k.h., Karitasar Þorsteinsdóttur
húsfreyju. Hann ólst upp frá fjögurra ára aldri hjá hálfbróð-
ur móður sinnar, Jóhannesi Jónssyni í Geitavík I Borgar-
firði eystra.
Kjarval stundaði sjómennsku til 1911 en hélt þá utan,
fyrst til Lundúna en síðan til Kaupmannahafnar þar sem
hann lauk prófi í málaralist frá Konunglega listaháskólan-
um 1918. Þá dvaldi hann á Ítalíu 1920 og í París 1928 en var
lengst af búsettur í Reykjavík frá 1922.
Auk þess að vera meðal frumherja íslenskrar myndlist-
ar var Kjarval án efa virtasti listmálari og einn ástsælasti
listamaður þjóðarinnar á 20. öld.
Verk Kjarvals þera með sér hvoru tveggja, expressionísk og
impressionísk stílbrigði. En þau eru auk þess rammíslensk, oft
hlaðin táknum er vísa til íslenskra þjóðsagna, ævintýra og skáld-
Jóhannes Sveinsson Kjarval
skapar, auk þess sem megin viðfangsefni hans sem listmálara
var íslenskt landslag, einkum á Þingvöllum. Þar stóð hann í
hrauninu dögum saman og.festi landið á striga. Allar skil-
greiningar um list Kjarvals með hliðsjón af straumum og
stefnum ber svo að taka með þeim fyrirvara að hann var
afar persónulegur og frumlegur listamaður.
Kjarval var auk þess mikill teiknari, samanþer teikn-
ingar hans af íslensku alþýðufólki. Hann myndskreytti
ýmis rit og skrifaði sjálfur ýmis rit, s.s. Grjót 1930; Meira
grjót, 1937; Leikur, 1938; Ljóðagrjót, og Hvalsagan frá
átján hundruð níutíu og sjö, 1956.
Margt hefur verið skrifað um Kjarval og list hans, s.s.
ævisaga hans eftir Indriða G. Þorsteinsson, samtalsbók eft-
ir Matthías Johannessen, Kjarval, eftir Thor Vilhjálmsson
og Kjarval - málari lands og vætta, eftir Aðalstein Ingólfsson.
Árið sem Kjarval lést, 1972, voru Kjarvalsstaðir í Reykjavík
opnaðir en þar eru verk hans höfö til sýnis, skráð og rannsökuð.