Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Qupperneq 23
43
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001_________________________
DV Tilvera
:2B|
Sarah Ferguson 42 ára
Fyrrv. hertoga-
ynjan af Jórvík,
Sarah Ferguson, er
afmælisbarn dags-
ins. Sarah komst í
heimsfréttirnar þeg-
ar hún og Andrés
prins, yngri bróðir
Karls Bretaprins, gengu i hjónaband
árið 1986. Hjónabandi þeirra lauk með
skilnaði tíu árum síðar. Hefur mikið
gengið á í einkalífi hennar síðan og er
hún vinsælt efni í slúðurblöðum.
Sarah og Andrés, sem búa þrátt fyrir
skilnaðinn undir sama þaki, eiga tvær
dætur, prinsessurnar Beatrice, 12 ára,
og Eugenie, 10 ára.
nruiumm ui,
o^!
færi uppi h
ir að nýta þ
Nautið (20. ai
ér
kreíst mikil
áhyggjum.
Tvíburarnir tz.
V 1
.1
Gildir fyrir þriöjudaginn 16. október
Vatnsberinn (20, ian.-i8. febr.):
I Miklar breytingar
' verða á lífi þínu á
næstunni og búferla-
flutningar eru líklegir.
Þu"færð óvenjulegar fréttir í
kvöld.
Rskarnirns. fehr.-?0. marsi:
Þú ert að skipuleggja
Ifrí og ferðalag ásamt
fjölskyldu þinni. Það
þarf að mörgu að
hyggjá áður en lagt er af stað.
Kvöldið verður rómantískt.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
. Líklegt er að samband
' milli ástvina styrkist
verulega á næstunni.
Þú færð óvænt tæki-
færi upp í hendumar sem þú ætt-
ir að nýta þér.
Nautið (20. aoril-20. maii:
Gamalt mál, sem þú
, varst nærri búin að
gleyma, kemur upp á
yfirborðið á ný og
krefst mikils tíma og veldur þér
áhyggjum.
Tviburarnir (21. maí-21. iúní):
Farðu varlega í öllum
“■viðskiptum þar sem
einhver gæti verið að
reyna að hlunnfara
þig. Léitaðu ráðlegginga ef þú
þarft.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi:
Nú er mikilvægt að
| halda vel á spöðunum
' þvi að nóg verður við
að fást á næstunni.
Vimr standa vel saman um þessar
mundir.
Uónlð (23. iúlí- 22. áeúst):
Eitthvað liggur í loft-
inu sem þú áttar þig
ekki fyllilega á. Best
er að bíða og sjá til.
Kvöldið verður fremur rólegt.
Happatölur þínar em 9, 18 og 22.
Mevian (23. áaúst-22. sept.):
Þú verður fyrir óvæntu
■yyv^ happi í fjármálum á
^^V^l»n;estunni. Hafðu augun
^ f opin fyrir nýjum tæki-
færam en þar er ekki átt við
tækifæri varöandi peninga.
Vogin (23. sept-23. okt.l:
Þú virðist vera i til-
finningalegu ójafiivægi
og sjálfstraust þitt er
með minnsta móti.
Þetta ástand varir þó ekki lengi.
Happatölur þínar eru 4, 8 og 26.
Sporðdreki (24, okt.-2l. nóv.l:
^^ Hætta er á mistökum
og ónákvæmni í vinnu-
jjbrögöum ef þú gætir
j ekki sérstaklega að
þér. Kunningjahópurinn fer
stækkandi.
Bogmaðurinn (22. náv.-21. des.l:
.^—Það er mikið um að
rvera í félagslífinu hjá
þér um þessar mundir
og þér finnst reyndar
nóg um. Einhver öfimdar þig.
Happatölur þínar em 1, 13 og 29.
Steingeltln (22. des.-19, ian.);
^ Láttu sem ekkert sé þó
að þú verðir var við
v baktjaldamakk. Lík-
legt er að það eigi allt
aðrar orsakir en þú heldur.
Happatölur þínar era 5, 8 og 16.
VVfilll UO. bt
ý
Þetta ástai
Enn er
beðið eftir Godot
Meistaraverk írska leik-
skáldsins Samuels Becketts
var frumsýnt á nýju leiksviði
Borgarleikhússins á sunnu-
daginn. Leikritið er eitt af
buröarverkum tilvistarspeki-
legrar absúrdleikritunar sem
átti sitt blómaskeið á sjötta
áratugnum. Fjallar það um
bið tveggja manna, Vladimirs
og Estragons, eftir einhverj-
um dularfullum Godot sem
lætur reyndar aldrei sjá sig.
Með hlutverk herramann-
anna fara leikararnir Bene-
dikt Erlingsson og Hilmir
Snær Guðnason en með önn-
ur hlutverk fara þeir Björn
Ingi Hilmarsson og Halldór
Gylfason. Ljósmyndari DV
leit við í hléi í Borgarleikhús-
inu þegar gestir biðu eftir að
leikritið héldi áfram.
DV-MYNDIR EINAR J
Beöið og beöið
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, gaf sér tíma til að spjalla viö hjónin
Guöjón Pedersen, leikhússtjóra Borgarleikhússins, og Katrínu Hall, stjórnanda
íslenska dansflokksins, á meöan hann beiö eftir aö sýningin hæfist á ný.
Góðir gestir
Melkorka Tekla Ólafsdóttir leikhúsfræöingur ásamt manni sínum, Kristjáni Þóröi Hrafnssyni skáldi, Stefán Baldursson
þjóðleikhússtjóri og eiginkona hans, Þórunn Siguröardóttir menningarfrömuöur.
Landsfundarhóf
s j álf stæðismanna
Sjálfstæðismenn héldu landsfund
sinn í Laugardalshöll um helgina
þar sem skipst var á skoðunum og
stefnan mörkuð í helstu málaflokk-
um. Á annað þúsund manns tók
þátt í fundinum sem gerir hann að
einni stærstu stjórnmálasamkomu
hér á landi. Á laugardagskvöldið
létu menn þó allt stjórnmálaþras
lönd og leið en brugðu þess í stað
undir sig betri fætinum á skemmti-
staðnum Broadway. Þar var boðið
upp á þríréttaðan kvöldverð og
skemmtiatriði af ýmsu tagi. Davíð
Oddsson, forsætisráðherra og for-
maður flokksins, hélt hnyttna og
skemmtilega hátíðarræöu, Ómar
Ragnarsson flutti einnig gamanmál
og Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari þandi raddböndin viö und-
irleik Jónasar Ingimundarsonar. Að
lokum hélt hljómsveitin Milljóna-
mæringarnir, með félagana Bjarna
Arason og Ragga Bjarna, uppi stuð-
inu langt fram á nótt.
DV-MYNDIR EINAR J
Nokkrir valinkunnir sjálfstæðismenn
Drífa Hjartardóttir, alþingismaöur og veislustjóri, Geir H. Haarde fjármála-
ráöherra, Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor, Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri flokksins, og Davíö Oddsson forsætisráöherra.
Ásgerður og Guölaugur
Ásgeröur Jóna Flosadóttir frá Mæörastyrksnefnd
og Guölaugur Þór Þóröarson borgarfulltrúi höföu
um margt aö spjalla í landsfundarhófinu.
Fjölskyldumyndin
Matthias Á. Mathiesen, fyrrverandi alþingismaöur og ráö-
herra, og Sigrún Þ. Mathiesen, kona hans, ásamt syninum,
Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráöherra.
r;
Yoko Ono
Femínismi og afkoma mannkynsins
eru yrkisefni Yoko Ono á nýjum
geisladiski.
Yoko Ono gefur
út nýjan disk
Yoko Ono, ekkja bítilsins Johns
Lennon, kynnti á þriðjudaginn, á
fæðingardegi Lennons, nýjan geisla-
disk sem ber nafnið „Blueprint For
A Sunrise“. „Þegar útgáfufyrirtækið
bauð mér að gefa diskinn út á afmæl-
isdegi Johns þann 9. október var ég -
fljót að samþykkja það,“ sagði Yoko,
en hún á sjálf heiðurinn af tónlist-
inni á disknum, en sonur hennar, Se-
an Lennon, leggur henni lið og spil-
ar undir á kassa- og rafmagnsgítar,
auk þess að leika á hljómborð. Text-
arnir eru að mestu helgaðir femín-
isma og afkomu mannkynsins, með
tilvitnunum til atburða frá seinni
heimsstyrjöldinni. „Fólk heldur ör-
ugglega að ég sé eitthvað klikkuð að
vera að tala um St. Pétursborg og
Japan á stríðsárunum, en ástæðan
fyrir þvi er að ég var bara þannig ■
innstillt þegar ég skrifaði textana.
Þetta hefur ekkert með hryðjuverkin
í New York að gera, enda var ég þá
búin með textavinnuna," sagði Yoko,
sem býr í hinni frægu Dakotabygg-
ingu í New York og var þvi ekki
langt frá þegar hörmungarnar í Man-
hattan dundu yfir.
Stofnuó 1918
Rakarastofan
Klapparstíg
Sími 551 3010