Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Side 24
44
Tilvera
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
I>V
lí f iö
EFTIR V I N N U
Vera með
sýnikennslu
Listakonan Vera Sörensen
verður með sýnikennslu í
Gallerí Reykjavik, á
Skólavörðustíg 16, í dag kl.
15-18. Þar hanga einnig uppi
málverk eftir hana. Yrkisefnið
er landslag, sjávar- og kyrralíf.
Galleriiö er opið mánudaga til
föstudaga frá kl. 13 til 18 og
laugardaga kl. 11-16. Sýningu
Veru lýkur 27. október.
Krár
GEIR OLAFS A GAUKNUM Sveiflu
kóngur Islands, Geir Olafsson, mæt-
ir ásamt bigbandi sínu á Gauk á
Stöng.
Síöustu forvöð
SIGURBJORN JONSSON I HAFN-
ARBORG I dag lýkur sýningu á mál-
verkum Sigurbjörns Jónssonar í
Hafnarborg í Hafnarfiröi.
Myndlist
HILDUR BJARNADÓTTIR í GALL-
ERI@HLEMMUR.IS A laugardag
opnaði Hildur Bjarnadóttir sýningu í
galierí@hlemmur.is, Þverholti 5,
Reykjavík. Á sýningunni eru verk
sem flest eru unnin á þessu ári og
fjalla eins og fyrri sýningar
listamannsins um mörkin milli
nytjalistar og myndlistar. Með henni
á sýningunni er Mark R. Smlth,
myndlistarmaöur frá Portland, þau
hlutu bæði verðlaun fyrir verk sín á
The Oregon Biennial I The Portland
Art Museum fyrr á þessu ári.
MARGRÉT MARGEIRSDÓTTIR Í
STOÐLAKOTI Margrét
Margeirsdóttir opnaði sýningu á
Ijósmyndum í Stöðlakoti viö
Bókhlööustíg 6 sl. laugardag.
Margrét er áhugaljósmyndari og
hefur stundað Ijósmyndun til fjólda
ára. Helstu viðfangsefni hennar eru
ýmis fyrirbæri í náttúru landsins. Á
þessari sýningu eru flestar
myndirnar af klettum, hrauni og
steinum í ýmsum formum og litum.
Myndirnar eru teknar í Skagafirði, í
Breiðafjaröareyjum og víöar á sl.
þremur árum. Sýningin er opin
daglega kl. 15-18 og lýkur
sunnudaginn 28. október.
ELÍSABET ÁSBERG I GALLERÍ
LIST Elísabet Asberg opnaöi sína
sjöttu einkasýningu á laugardaginn
var í sýningarsal Gallerí List,
Skipholti 50d. Þar sýnir hún
lágmyndir unnar úr silfri, nýsilfri, tré
og sandblásnu gleri. Sýningin er
öllum opin og stendur til 27.
október. Opnunartími er virka daga
frá 11-18 og laugardaga 11-18.
UÓSUFANDI HJÁ HANPVERKI
OG HONNUN Sýningin Ljóslifandi í
sýningarsal Handverks og hönnunar
er í Aðalstræti 12. Markmiðiö með
sýningunni er aö skapa
skemmtilega hauststemningu meö
því að sýna annars vegar
margvíslega lampa, kertastjaka og
kerti og hins vegar púöa og
ábreiöur. Opiö er alla daga nema
mánudaga frá kl. 12-17. Aögangur
er ókeypis.
VIGNIR JÓHANNSSON í SLUNKA-
RIKII Slunkaríki á Isafiröí er sýning
á verkum Vignis Jóhannssonar.
Vignir nam myndlist viö Myndlista-
og handíöaskóla íslands og í Rhode
Island School of Design í Banda-
ríkjunum. Á sýningunni sýnir hann
samsett glerverk og sex lágmyndir
úr kopar. Slunkaríki er opiö fim.-sun.
frá 16-18 og sýningu Vignis lýkur
28. október.
Fjórir lista-
menn
í Gerðarsafni
Á laugardaginn var opnuð 1 Gerð-
arsafni i Kópavogi sýning á verkum
fjögurra listamanna sem eiga það
sameiginlegt að vera af sömu kyn-
slóð og miklir vinir. Þetta eru þau
Steingrímur Eyfjörð, Erla Þórarins-
dóttir og hjónin Jón Óskar og Hulda
Hákon. Þó að listamennirnir séu
ólíkir innbyrðis og beiti mismun-
andi aðferðum i sköpun sinni eiga
verkin á sýningunni þó það sameig-
inlegt að fást við líkamlega og fé-
lagslega tilveru mannsins. Fjöl-
menni var við opnunina enda hafa
listamennirnir allir getið sér gott
orð fyrir list sína á undanförnum
árum og er hver sýning með þeim
mikið tilhlökkunarefni.
I hrókasamræðum
Guöbjörg Kristjánsdóttir, forstöðu-
maöur Geröarsafns, spjallar viö
Helga Þorgils Friöjónsson mynd-
listarmann.
Sagnfræði og myndlist
Anna Jóa, myndlistarkona og gallerísrekandi, kom í Geröarsafn ásamt
hjónunum og sagnfræöingunum Eggerti Þór Bernharössyni og Þórunni
Valdimarsdóttur.
Bæjarstjórinn ásamt sessunauti sínum dv-myndir einar j
Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garöabæ, lét sig aö sjálfsögöu ekki
vanta á tónleikana og dreif litla frænku sína, Brögu Stefanní, meö sér.
__yínardrengjakórinn í Garðabæ:
Fagrar raddir
fylla loftið
Hinn eini sanni Vínardrengja-
kór var staddur hér á landi um
helgina og hélt tvenna tónleika í
sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Tónleikarnir voru liður í aldar-
fjórðungsafmælishátíð Garðabæjar
en hún hefur staðið meira eða
minna allt árið og er ekki lokið
enn. Kórinn er einn elsti og virt-
asti drengjakór í heimi og hafa
margir meistarar tónlistarheims-
ins léð honum unga og óharðnaða
rödd sína. Nægir í þvi sambandi
að nefna sjálfan Wolfgang Ama-
deus Mozart, undrabarnið sem
varð eitt af mestu tónskáldum sög-
unnar. Ekki er gott að segja hvort
lítill Mozart hefur leynst í hópnum
sem þandi raddböndin fyrir Garð-
bæinga og nærsveitarmenn um
helgina en að minnsta kosti voru
áheyrendur ekki sviknir af söngn-
um og fögnuðu ungu herramönn-
unum vel og lengi í lokin.
DV-MYNDIR EINAR J
Listamennirnir og hagfræðingurinn
Listamennirnir gáfu sér tíma til myndatöku og fengu Má Guömundsson,
hagfræöing hjá Seölabankanum, til aö vera meö. Frá vinstri: Hulda Há-
kon, Erla Þórarinsdóttir, Steingrímur Eyfjörö, Már og Jón Óskar.
Biskupinn og frú
Biskupinn yfir íslandi, hr. Karl Sigurbjörnsson, og kona hans, frú Kristín
Guöjónsdóttir, voru meðal þeirra sem lögöu leiö sína í Garöa-
bæ til aö hlýða á Vínardrengjakórinn.
Bíógagnrýni
Smárabió/Stjörnubíó - Moulin Rouge: ★ ★ ★
Yfirdrifinn glæsileiki
Sif
Gunnarsdóttir
skrlfar gagnrýni
um kvikmyndlr.
Aöalstjarnan á Rauðu myllunni
Söng- og dansatriöin eru stórfengleg og hrífandi.
ímyndið ykkur Montmartre-
hverfið í París árið 1899 - ekki póst-
kortafínt og sætt heldur dökkt,
„dekadent" og hættulegt ungum
saklausum sveitadrengjum. ímynd-
ið ykkur frægasta klúbb allra tíma,
Rauðu mylluna, skrýddan rauðum
tjöldum, plussi og kögri. Imyndið
ykkur síðan hópa af karlmönnum í
kjól og hvítu með stífpússaða pípu-
hatta, dansandi af ofsafenginni
ástríðu við ofmálaðar konur í of
flegnum kjólum þar sem pilsfaldur-
inn lyftist ótt og títt og sýnir bert
hold milli silkinærbuxna og sokka-
bands. ímyndið ykkur síðast en
ekki síst Nicole Kidman sitja í rólu
yfir þessu öllu saman. Dökkrautt
hárið bylgjast yflr snjóhvítt hörund-
ið og glitrandi gráan búninginn,
syngjandi gamla lagið hennar Mon-
roe, Diamonds Are a Girl ‘s Best
Friend, sem síðar blandast lagi ann-
arrar dívu: Material Girl. Ef þessi
ævintýralega hugmynd heillar ykk-
ur, óvirðing fyrir sögulegum stað-
reyndum fer ekki fyrir brjóstið á
ykkur og þið hafiö að engu einkunn-
arorð minimalistanna: minna er
meira - þá eruð þið kjömir áhorf-
endur fyrir Moulin Rouge, nýjustu
mynd ástraiska leikstjórans Baz
Luhrmanns.
Luhrmann er leikstjóri með stíl,
svo mikinn reyndar að sumum
fmnst stíllinn jafnvel þvælast fyrir
honum. Fyrsta myndin sem hann
gerði var hin frábæra Strictly Ball-
room (1992), mynd um danskeppni
sem liktist lítiö fyrirrennurum sín-
um eins og Dirty Dancing. Því næst
gerði hann Shakespeare fyrir ung-
linga með hinni rokkuðu Romeo +
Juliet. En nú er hann sjálfur hand-
ritshöfundur aftur og dansinn hefur
tekiö völdin á ný, bara villtari, flott-
ari, litskrúðugri og erótiskari en
áður.
Moulin Rouge státar ekki af
flóknum söguþræði. Ewan
McGregor leikur Christian, ungan
rithöfund sem kemur til Parísar til
að upplifa hið undursamlega bó-
hemlíf og skrifa um sannleikann,
fegurðina og frelsið en fyrst og
fremst ástina. Hann hittir málarann
Toulouse Lautrec sem fær hann tO
að skrifa handrit að stórkostlegri
sýningu sem á að setja upp á Rauðu
myllunni. Christian kynnist aðal-
stjörnu hússins, Satine (Kidman),
verður skelfilega ástfanginn af
henni og hræðilega afbrýðisamur
þegar hann áttar sig á því að Satine
þarf að selja sig vellauðugum aðals-
manni (Richard Roxburgh) sem fjár-
magnar sýninguna. Meira þarf ekki
að segja um söguna enda er hún
ekki aðalatriðið hér. Aðalatriðið er
yfírdrifinn glæsileikinn, ótrúlegar
klippingar sem þeyta manni inn í
lostafullan heim listamanna og
gleðikvenna sem skála í skærgræn-
um absinth. Söng- og dansatriðin
eru svo stórfengleg og hrífandi að
þau beinlínis útskýra hvers vegna
þetta form var eitt vinsælasta kvik-
myndaformið fyrir 60 árum. Lög
eins og Your Song (Elton John) -
sem byrjar sem ljóðalestur, Like a
Virgin (Madonna) - sungið af Jim
Broadbent og er eitt sér miðans
virði og Roxanne (Sting) í tangóút-
gáfu fá nýtt líf í meðforum
Luhrmanns, og textarnir áður
óþekkta dýpt enda fleyta þeir sög-
unni áfram.
McGregor er fínn í hlutverki
Christians, sakleysið uppmálað og
ástfanginn upp fyrir haus og Kidm-
an er langleggjuð og fbgur femme
fatale og sýnir hér fína kómíska
tæmingu sem hún hefur sjaldan
fengið að nota áður. Þau syngja
bæði sjálf og gera það aldeilis ágæt-
lega en hljómsveitin á það til að
kæfa þau, sérstaklega Kidman.
Ef það leynist í ykkur rómantíker
og þið sjáið ekkert athugavert við
fólk dansandi á skýjum í glimmer-
rigningu, syngjandi sambland af
a.m.k. 10 þekktum ástarsöngvum,
þá verðið þiö að sjá Moulin Rouge
og endilega í bíói til að njóta yfir-
gengileikans til fullnustu.
Leikstjóri: Baz Luhrmann. Framlelðend-
ur: Fred Baron, Martin Brown, Baz
Luhrman. Handrit: Baz Luhrmann & Craig
Pearce. Kvikmyndataka: Donald
McAlpine. Tónlist: Craig Armstrong, Mari-
us De Vries, Steve Hitchcock. Aöalleikar-
ar: Nicole Kidman, Ewan McGregor, John
Leguizamo, Jim Broadbent, Richard Rox-
burgh.