Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 Fréttir I>V Stofnanasamningur lögreglumanna og sýslumanna í strandi: Lögreglumenn telja sig svikna og ræða aðgerðir -14 prósenta launahækkun dregst á langinn Þolinmæöin aö bresta dvmvnd þök Ganga átti frá samningum viö lögreglumenn um 14 prósenta launahækkun fyrir hálfum mánuöi og sýnist lögreglumönnum aö launaleiöréttingin dragist ófyrirsjáanlega á langinn. Gríðarleg óánægja ríkir meðal lögreglumanna vegna þess að enn hefur ekki verið gengiö frá stofn- anasamningi milli Landssambands lögreglumanna og sýslumannsemb- ættanna. Stefnt var að því að ganga frá samningnum fyrir 1. október sl. Viðræður samninga- nefnda hafa legið niðri og þykir lögreglumönnum næsta víst að 14 prósenta launahækkun, sem átti að koma til framkvæmda 1. nóvem- ber, dragist ófyrirsjáanlega á lang- inn. Þetta, ásamt því gífurlega álagi sem lögreglumenn búa við, einkum í Reykjavik, hefur orðið til þess að þeir ræða sín á milli að grípa til aðgerða. Ekki er ljóst hvaöa ákvörðun verður tekin í þeim efnum. í kjarasamningi sem Landssam- band lögreglumanna og ríkið gerðu með sér í sumar var kveðið á um að gerður skyldi stofnana- samningur milli landssambands- ins og sýslumanna. Hann átti að vera afturvirkur til tveggja mán- aða, vera tilbúinn 1. október og koma til greiðslu 1. nóvember. Nú hafa fundir legið niðri í hálfan mánuð og viðræðurnar eru í strandi. Lítið sem ekkert hefur verið rætt um beina dreifingu 14 prósenta launahækkunarinnar, enda önnur atriði sem strandar á. í aðalkjarasamningi hafa verið ákvæði um starfsheiti innan lög- reglunnar. Við síðustu samninga voru þau ákvæði tekin út. Samn- inganefnd Landssambands lög- reglumanna vill setja ákvæöin inn í nýja stofnanasamninginn en það vilja sýslumenn ekki. Starfandi er nefnd á vegum dómsmálaráðuneyt- is sem hefur það hlutverk að yfir- fara starfsheitin. Á grundvelli nið- urstöðu nefndarinnar hyggst dómsmálaráðherra setja reglugerð. Rök samninganefndar sýslumanna fyrir því að setja ekki starfsheitaá- kvæðin inn í stofnanasamninginn eru þau að þá séu þeir að fara inn á starfssvið nefndarinnar. Þá stranda viðræður lögreglu- manna og sýslumanna einnig á því hvernig raða eigi í A-, B- og C-kass- ana, þ.e. í hvaða launaflokka ein- stakir lögreglumenn eigi að fara. Þeir lögreglumenn í Reykjavík sem DV ræddi við í gær sögðu að mannskapurinn væri orðinn „af- skaplega þreyttur" vegna fámennis í stéttinni og viðvarandi álags. Hópur lögreglumanna hefði horfíð frá störfum og haldið til náms í Há- skóla íslands í haust. Á móti kæmi að nær 40 nemendur myndu út- skrifast úr Lögregluskóla ríkisins fyrir áramót. Væru menn að von- ast til að fá hluta af þeim til starfa. Til þess að það gengi eftir yrðu kjaramálin, þar með talinn nýr stofnanasamningur, að vera í góðu lagi. -JSS R-listaviðræður: Þurfum ferska vinda „Ég tel að það þurfi ferska vinda í borgarpólitíkinni og ég get staðfest að mikið hefur verið rætt við mig um að sækjast eftir sæti fyr- ir Framsókn á listan- um,“ sagði Anna Kristinsdóttir sem nú er að ljúka kjörtíma- bili sinu sem formað- ur Framsóknarfélags Reykjavíkur. Framsóknarmenn hafa átt tvo borg- arfulltrúa í borgarstjómarflokki Reykjavíkurlistans, þau Sigrúnu Magn- úsdóttur og Alfreð Þorsteinsson. Ekki er annað vitað en þau sækist bæði eft- ir áframhaldandi setu á listanum og líkur eru taldar á að Óskar Bergsson varaborgarfulltrúi muni gera það líka. Anna Kristinsdóttir á sæti í við- ræðunefnd flokkanna um sameiginlegt framboð R-lista og segir hún að viðræð- unum miði vel. Málefnavinnan sé nú að verulegu leyti aö baki og þegar séu menn famir að ræða um uppstiilingu á listann. -BG Alþingiskynning dv-mynd gva Alþingi íslendinga er áhugaverö stofnun og íslensk skólaæska hefur í gegnum árin komiö og kynnt sér starfsemi lög- gjafarsamkomunnar. í gær fóru nemendur úr Austurbæjarskóla í heimsókn á Alþingi til aö kynna sér hvernig lög landsins eru sett. Öyggismálanefnd Ríkisútvarpsins skoðar torkennilegt bréf: Engin skelfing á fréttastofu - segir fréttastjóri - íslandspóstur fær ráðgjöf frá heilbrigðisyfirvöldum St. Fransiskussystur: Vilja gefa 15% hlut í spítalanum St. Fransiskussystur hafa skrifað öllum sveitarfélögum á Snæfellsnesi bréf þar sem þær bjóðast til að gefa sveitarfélögunum 15% hlut í St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi. Vel hefur verið tekið í þetta boð systr- anna. Bæjarráð Stykkishólms hefur sam- þykkt að þiggja gjöfina fyrir sitt leyti en til nokkurra umræðna kom um gjöfma á fundi bæjarstjómar Snæfeils- bæjar. Þar kom meðal annars fram hjá Ásbimi Óttarssyni, forseta bæjar- stjórnar, að hann teldi þann böggul fylgja skammrifi að þessari gjöf fylgdi einnig 15% hlutdeild í kostnaði og framkvæmdum. Afstaða verður ekki tekin til gjafar- innar af bæjarstjóm Snæfellsbæjar fyrr en eftir aðalfund héraðsráðs Snæ- fellinga, sem er í byrjun nóvember, en þá mun liggja fyrir kostnaðaráætlun sjúkrahússins til næstu ára. -DVÓ „Hingað í Útvarpshúsið kom bréf í hraðsendingu frá Bretlandi sem var opnað af símastúlkunum í af- greiðslunni og tekin af því merking- in. Það var því ómerkt þegar það kom hingað inn á fréttastofuna. Okkur tókst um síðir að finna út hvaðan bréfið kom. I framhaldinu fórum við hins vegar að velta fyrir okkur svona sendingum í ljósi þeirra atburða sem orðið hafa í Bandaríkjunum, þar sem miltis- brandi hefur verið dreift í pósti til útvarps- og sjónvarpsstöðva," sagði Kári Jónasson, fréttastjóri Útvarps, í samtali við DV. öryggismálanefnd Ríkisútvarps- ins sendi í gær út tilkynningu í tölvupósti þar sem starfsmenn fá þríþætt skilaboð. í fyrsta lagi ef þeir fái torkennilegan póst sem þeir vilja Ríkisútvarpiö Talsveröur viöbúnaöur var í gær vegna bréfs sem barst þangaö. ekki opna, þá skuli þeir ekki eiga neitt við hann. í annan stað eru starfsmenn hvattir til að lykta ekki af póstinum eða bera hann upp að andliti. Og í þriðja lagi hafa sam- band við húsverði, sem munu sækja póstinn og koma fyrir í öruggri geymslu þar til frekari meðferð hans sé ákveðin. Að sögn Kára Jónassonar er fjarri lagi að skelfing hafi gripið um sig á fréttastofunni vegna hins ómerkta bréfs á Bretlandi. Menn hafi aftur á móti tekið þann pól í hæðina aö all- ur væri varinn góður og því hafi ör- yggismálanefnd stofnunarinnar komið saman. Áskell Jónsson, framkvæmda- stjóri markaðsmála hjá íslands- pósti, sagði að þar á bæ væri „hefð- bundinn viðbúnaður" því ávallt væri fylgst með því sem bærist til landsins. „Við höfum leitað til heil- brigðisyfirvalda um ráðleggingar varðandi það hvernig við eigum að bera okkur aö vegna þessa ástands sem upp er komið og munum í framhaldi af því funda með starfs- fólki okkar,“ sagði Áskell. sbs/gk. Smábátasjónarmið virt? Halldór Ásgríms- son utanríkisráð- herra segist eiga von á þvi að komið verði til móts við sjónar- mið smábátaeigenda í rikisstjómarfrum- varpi sem nú er til kynningar í þing- flokkum stjómarflokkanna. Þetta kom fram í máli hans á opnum fundi Félags smábátaeigenda á Austurlandi á Egfls- stöðum í gær. Mikið álag Læknar hafa skorað á stjómvöld að ganga til samninga við sjúkraliða. Krabbameinslækningasviðið hefur fengið undanþágur en þrátt fyrir það er ekki full starfsemi á legudeild krabba- meinssviðs. Sigurður Bjömsson, yfir- læknir á krabbameinsdeild Landspital- ans í Fossvogi, segir að reynt sé að komast hjá innlögnum. - Fréttablaðið greindi frá. íslam ekki sökudólgurinn „Það er ekki íslam sem er sökudólgur- inn heldur óliðandi ofstæki," sagði bisk- up íslands, hr. Karl Sigurbjömsson, við setningu kirkjuþings i gær. Þetta sagði hann þegar hann gerði hermdarverkin á Bandaríkin 11. september að umfjöllunarefni. Deilt um Nato-fund Hiti var í umræðum á Alþingi í gær um utanríkisráðherrafund Altantshafs- bandaiagsins sem til stendur að halda hérlendis á næsta ári. Búist er við að fundahaldið kosti ríkissjóð rúmlega 300 milljónir króna en undirbúningur hans 30 milijónir til viðbótar. Varar við óstimpluðu kjöti Halldór Runólfs- son yfirdýralæknir hefur óskað eftir því við Hollustuvemd ríkisins að því sé beint til heilbrigðis- eftirlits sveitarfélaga að óstimplað og ólög- legt kjöt sé ekki tekið inn í kjötvinnslur, mötuneyti, stóreld- hús og verslanir. - Mbl. greindi frá. Tugmilljóna tekjuauki Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópa- vogsbæjar, segir tekjur bæjarins vegna Smáralindar aukast töluvert. Stærsti hlutinn em fasteignaskattar en það er eini skatturinn sem rennur til sveitar- félagsins, annað rennur til ríkisins. Þjóðgarður við Heklu Lögð hefur verið fram á Alþingi þingsályktunartillaga um að stofnaður verði þjóðgarður um Heklu og ná- grenni. Meginmarkmið hans yrði aö varðveita og kynna jarðsögu Heklu. Þingmenn úr Sjálfstæðisflokki, Fram- sóknarflokki og Samfylkingu standa að tiilögunni. Ber ekki saman Frásögn 4 kafara sem unnu að björg- un eftir flugslysið í Skerjafirði 1 fyrra ber um sumt alls ekki saman við skýrslu Rannsóknamefndar flugslysa. Þar sagði að hægri vængur vélarinnar hefði staðið uppúr eftir slysið en kafar- amir staðhæfa að það hafi verið vinstri vængurinn. Skrifleg frásögn kafaranna hefur verið send lögreglu og samgöngu- ráðherra. Fækkun í prentiðnaði Samkvæmt upplýsingum frá Sam- tökum iðnaðarins er uggur vegna yfir- vofandi samdráttar í prentiðnaði. Könnun samtakanna leiddi í ljós að til áramóta gæti starfsfólki í greininni fækkað um hátt í 50. Um 90 færri starfa nú í prentverki en á sama tíma í fyrra. -HKr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.