Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Blaðsíða 24
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 Tilvera I>V 1 í f i ö JK. Bach í Breið- holtskirkju Orgeltónleikar veröa í Breiðholtskirkju í kvöld og hefjast kl. 20.30. Þar mun Jörg E. Sondermann leika ein átta verk eftir Johann Sebastian Bach. Aðgangseyrir rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar. Tónleikarnir eru þeir 17. í tónleikaröðinni Bach í Breiðholtskirkju sem efnt var til í tilefni af 250. ártíð Bachs. En þetta mun í fyrsta sinn sem öll verk Bachs eru flutt hér á landi af einum organista. Krár ■ STEFNUMOT A GAUKNUM Hljómsveitin Singapore Sling spilar á Stefnumótakvöldi á Gauki á Stöng ásamt hljómsveitinni Náttfara. Fundir og fyrirlestrar I AÐALFUNDUR FRAMSOKNAR Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur aöalfund sinn kl. 20.00 í kvöld að Hverfisgötu 33, 3. hæð. Á dagskránni er m.a. tillaga um aö leggia félagiö niöur og stofna tvö í kjofarið, vegna væntanlegra breytinga á kjördæmamörkum. Sem flestir eru hvattir til aö mæta og taka þátt í líflegu starfi framsóknarmanna í Reykjavík. ■ VINSTRI GRÆNIR FIINDA í REYKJAVIK Aðalfundur Vinstrl hreyfingarinnar - græns framboös í Reykjavík veröur haldinn í Norræna húsinu í kvöld og hefst kl. 20. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kjör landsfundarfulltrúa og umræöa um borgarmál. Fundarstjori veröur Birna Þóröardóttir. Félagar eru hvattir til aö mæta og muna eftir aö greiða félagsgjöldin. ■ FRÆÐSLUFUNDUR SKOGRÆKTAR Skógræktarfélöein á höfuðborgarsvæðinu halda opinn fræöslufund í stóra sal Ferðafélags íslands í Mörkinni 6. Fundurinn er í umsjón Skógræktarfélags Garöabæjar. Þar munu Guömundur Magnússon, kennari og handverksmaður, og Ólafur Oddsson, kynningar- og fræöslufulltrúi Skógræktar ríkisins, kynna fjölþættar nytjar skógarins. Sýna þeir hvernig gómul en sígild íækni er notuö til aö breyta grisjunarefni og garöaúrgangi í nytsama hluti og mismunandi eiginleika viöar eftir trjátegundum. Þeir munu sérstaklega kynna skólaverkefnið Skógurinn og nýting hans sem unnið er aö í 10 skólum í Reykjavík um þessar mundir. I uþþhafi fundar leika Gréta og Gummi nokkur lög eftir Bach og Bartok á viöarstrokhljóöfæri. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrými leyfir. Boöiö veröur upp á kaffi. Sýningar I HILDUR I GALLERI HLEMMI Hildur Bjarnadóttir opnaöi nýlega sýningu í gallerí hlemmur.is aö Þverholti 5. Þar eru verk sem flest eru unnin á þessu ári og fjalla þau um mörkin milli nytjalistar og myndlistar. Meö Hildi á sýningunni er Mark R. Smith, myndlistarmaður frá Portland. ■ SÝNA SAMAN Á GALLERÍ SKIIGGA Þau Blrglr Andrésson, Guömundur Oddur Magnússon, Lilja Björk Egilsdóttir og AKUSA (Asmundur Ásmundsson og Justin Blaustein) sýna verk sín í Galleri Skugga aö Hverfisgötu 39, Reykjavík. Sýningin ber yfirskriftina „Hver meö sínu nefi“ og er bæöi í aðalsal, Klefa og Loftvarnarbyrgi gallerísins. DV-MYND HARI Leysa hlutina meö sínum hætti Ágústa Skúladóttir og Vala Þórsdóttir eru bakarar í nýja leikritinu en lenda í ýmsu ööru en bakstri. Veröldin er vasaklútur frumsýnt í Kaffileikhúsinu: Bakararnir eru hvunndagshetjur „Þetta er saga af fólki í litlu þorpi og bakaríið er hjarta bæjarins," segir Vala Þórsdóttir, annar tveggja leikara í verk- inu Veröldin er vasaklútur sem frum- sýnt verður annað kvöld í Kaffdeikhús- inu i Hlaðvarpanum. í hinu hlutverkinu er Ágústa Skúladóttir. „Við Ágústa leik- um bakara sem ílækjast inn í heim and- spymuhreyflngar - en erum í raun að túlka fólkið sjálft - almenning - því bak- aramir em hvunndagshetjur,“ heldur Vala áfram lýsingu leikritsins. Skilaboð til umheimsins Það er leikfélagið The Take Away Theatre sem samdi verkið og stendur að sýningunni í samvinnu við Kaffi- leikhúsið. í því félagi era, auk Völu og Ágústu, þau Katrín Þorvaldsdóttir, búninga- og leikmyndahönnuður, og Maður Itfandi Neil Haigh, sem er leikstjóri sýningar- innar. Félagið hefur sett upp tiu verk á undanfómum árum og hróður þess nær langt út fyrir landsteinana. Skemmst er þess að minnast að geð- veiki gamanleikurinn, Háaloft, hlaut fyrstu verðlaun á kvennaleikhússhá- tíðinni í Finnlandi í vor. í Háalofti var Vala bæði höfundur og einleikari en hún tekur skýrt fram að nýja verkið, Veröldin er vasaklútur, sé eftir allan hópinn. „Þetta leikrit, eins og mörg önnur sem við höfum búið til, er unn- ið af okkur frá grunni. Við erum ekki með neitt í höndunum þegar við byrj- um - fáum bara einhverja hugmynd og leyfum henni aö þróast með því að spjalla saman, prófa ýmsar senur úti á gólfi og setja upp leikmynd. Allt helst þetta i hendur og verður i lokin að sýn- ingu sem vonandi hefur einhver skila- boð til umheimsins," segir Vala. Konur sem bretta upp ermar Veröldin er vasaklútur gerist i striði og það verður að teljast gráglettni örlag- anna að verkið skuli einmitt vera sett á svið þegar ástandið í heiminum er eins og það er nú. Þaö er tilviljun, að sögn Völu. „Við vomm byijuð að semja og æfa áður en voðaverkin voru framin í Bandaríkjunum og bombumar að springa í Afganistan. Auðvitað slógu þessir atburðir okkur svolítið út af lag- inu því fyrir þann tíma var allt í lagi að gera smágrín að striði," segir hún. En ekki dugði að láta deigan síga og áfram var haldið með uppfærsluna. Af- raksturinn er súrsætur gamanleikur, eins og Vala orðar það. „Útgangspunkt- Best af öllu urinn hjá okkur var alltaf sá að yfirleitt er stríð einhvers staðar í veröldinni. Þess vegna miðum við ekki við ákveðið stríð eða sérstakan stað. Þetta getur gerst hvar sem er. Stríðsástand er alltaf lifsreynsla fyrir þær manneskjur sem í því lenda. Bakaramir eru þannig mann- eskjur. Þetta eru konur sem segja já þeg- ar þær em beðnar um liðsinni, bretta upp ermarnar og takast á við viðfangs- efnin. Auðvitað sprettur upp kómedía í kringum það hvemig þær leysa hlutina því þær gera það með sínum hætti og eru ekki sérþjálfaðar í björgun eða neinu svoleiðis. Þær em bakarar fyrst og fremst en gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hjálpa fólkinu í kringum sig.“ -Gun. Kolbrun Bergþórsdóttir skrifar. Það er með listina eins og fólkið í kringum mann. Manni þykir svo vænt um suma að maður vill alltaf hafa þá hjá sér en aðrir hafa einungis stutta viðdvöl. Manni finnst ekkert verra að hafa kynnst þeim, en saknar þeirra ekki þegar þeir era famir. Maður er ekkert sérstaklega að velta því fyrir sér hver sé bestur i list- sköpun. En svo koma dagar þegar maður veit það. Ég var um daginn að lesa bók um Rembrandt. Þar var meira um myndir en texta, alveg eins og á að vera. Ég horfði á myndimar, þetta stórkostlega samspil ljóss og skugga, og alla þessa lifandi andlitsdrætti, og vissi að eng- inn gæti gert betur. Nokkrum vikum fyrr hafði ég horft á kvikmyndaútgáfu af Othello með Lawrence Fishbume og Kenneth Branagh og einnig Ríkharð 3. þar sem Ian McKellan lék hann sem fasistaleið- toga. Texti Shakespeares í frábærum flutningi. Ég gerði mér grein fyrir því aö enginn gæti gert betur en Shake- speare. Ég spilaði sama geisladiskinn í viku. Óperaaríur eftir Mozart. Mér fannst ekkert geta jafnast á við þá tóna. Þegar ég skipti loks um geisla- disk var það til að setja á disk með Ceciliu Bartoli þar sem hún syngur Mozart-aríur. Svo kveikti ég á útvarp- inu einn sunnudaginn og þar var ver- ið að leika sinfóníu eftir Mozart. Enn ein opinberan og ekki hægt að slökkva. Það er enginn eins og Mozart. Ég hef gaman af afdráttarlausum spumingum, eins og þeirri hvaða bók maður myndi hafa með sér á eyðieyju. Enginn hefur spurt mig þessa, en ég spyr mig þá bara sjálf. Svarið er: Biblí- an. Hún er löng og full af viðburðarik- um sögum og litríkum karakterum. Svo er þar líka stílsnilld og boðskapur. Ég hef lesið Biblíuna þrisvar og ætla mér að lesa hana þrisvar enn áður en ég dey. Svo fannst mér um daginn að ég þyrfti að vera víðsýn og fór að lesa Kóraninn. Ég er á blaðsíðu 123 í ís- lensku þýðingunni hans Helga Hálf- danarsonar og á tæpar 300 blaðsíður eftir. Mér drepleiðist náttúrlega en mun hafa mig í gegnum þetta. Maður er orðinn ansi sjóaður í því að þræla sér í gegnum leiðindin. Það era engar skemmtilegar sögur i þessari bók enn sem komið er, bara leiðbeiningar um það hvemig maður eigi að haga lífmu. Hugnast mér ekki. Með þessari skoðun minni er ég ekki að blanda mér í trú- arbragðadeilur. Ég er bara að segja að mér fmnst Biblían skemmtilegri en „Ég var um daginn að lesa bók urn Rembrandt. Þar var meira um myndir en texta, alveg eins og á að vera. Ég horfði á myndim- ar, þetta stórkostlega sam- spil Ijóss og skugga, og alla þessa lifandi andlits- drætti, og vissi að enginn gæti gert betur. “ Kóraninn. Og mér sýnist Kóraninn ekki ætla að skána á síðasta sprettin- um. Ég er búin að kíkja aftast. Þar er enginn óvæntur endir. En þetta er það sem mér fmnst best: Rembrandt, Mozart, Shakespeare og Biblían. En það merkir vitanlega ekki að ánægju sé einungis þar að finna, en þama er hún samt mest.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.