Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Blaðsíða 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001
33^________________________________ Útlönd
Miltisbrandsfárið breiðist út víða um Evrópu:
Sjö mánaða barn greindist
með miltisbrand í New York
Miltisbrandsfárið sem tröllriðið hef-
ur Bandaríkjunum að undanförnu er
nú farið að berast víða um heim og er
nýjasta tilfellið sem tilkynnt hefur ver-
ið um frá Svíþjóð. Þar munu fjórar
grunsamlegar bréfasendingar hafa
borist inn til jafnmargra fyrirtækja og
er eitt þeirra umboðsfyrirtæki banda-
ríska fataframleiðandans Levis Strauss
og var það póstlagt af óþekktum aðila i
smáríkinu Dubai á Arabíuskaga. Málið
er nú i rannsókn sænsku lögreglunnar
en ekki talið að hætta sé á smiti.
í gær var einnig tilkynnt um grun-
samleg bréf í sex öðrum borgum Evr-
ópu þar sem bréfasendingar höfðu til
dæmis borist til frönsku geimferðamið-
stöðvarinnar og háskólans í París og
höfðu 55 manns þar verið sendir til
frekari rannsóknar. í Berlín í Þýska-
landi hafði grunsamlegt bréf borist til
skrifstofu Gerhards Schröders, kansl-
ara Þýskalands, og var málið þar í
rannsókn ásamt tilfellum sem upp
komu í tveimur öðrum borgum lands-
ins. Einnig var tilkynnt um tilfelli á
Gíbraltar og i Zwaag í Hollandi og eru
þau einnig til rannsóknar. I Sviss kom
REUTER-MYND
Bill Clinton
Fyrrum Bandaríkjaforseti vill berjast
gegn fátækt og öörum ójöfnuöi.
Clinton vill binda
enda á ójöfnuð-
inn í heiminum
Bill Clinton, fyrrum Bandaríkja-
forseti, sagði í gær að Bandarikin
og bandamenn þeirra yrðu að vinna
stríðið gegn hryðjuverkamönnum
en þegar til lengri tíma væri litið
þyrftu Vesturlönd að binda enda á
þann ójöfnuð sem ríkir í heiminum.
Clinton flutti ræðu á mann-
réttindaráðstefnu í Prag, höfuðborg
Tékklands, þar sem hann ítrekaði
stuðning sinn við Bush forseta og
þær aðgerðir sem hann hefur gripið
til í kjölfar hryðjuverkaárásanna í
síðasta mánuði.
Clinton sagði að ójöfnuðurinn í
heiminum væri undirrót ofbeldis-
verka og berjast yrði gegn honum.
Miltisbrandsfáriö berst til Evrópu
Tveir starfsmenn heilbrigðisyfirvalda í Berlín i Þýskalandi fara aö öllu meö gát þegar
grunsamlegt bréf ætlaö Gerhard Schröder kanslara er flutt til rannsóknar.
einnig upp tilfelli í Basel þar sem ein-
um starfsmanni lyfiafyrirtækis hefur
verið gefið mótefni eftir grun um smit
með bréfasendingu. Þá hafa ísraelar
fengið sinn skammt af fárinu en þar
hafa skiljanlega miklar varúðar-
ráðstafanir verið gerðar og er m.a. eitt
tilfelli sem þar kom upp um borð í flug-
vél E1 A1 nú til rannsóknar.
í Bandaríkjunum bættust tveir í
hóp þeirra sem greinst hafa með milt-
isbrand i gær og var þar í öðru tilfell-
inu um að ræða sjö mánaða gamlan
dreng, son starfsmanns ABC-sjón-
varpsstöðvarinnar, sem komið hafði
með móður sinni í heimsókn á vinnu-
stað fóöursins þann 28. september sl.
Þangað hafði borist bréf með smitbakt-
eríunni og hafði smitið borist um sár
á húð en var ekki talið alvarlegt. Þá
greindist enn einn starfsmaður i fjöl-
miölabyggingunni í Boca Raton með
miltisbrand og er þar um að ræða
hinn 73 ára gamla Ernesto Blanco sem
þegar hafði greinst jákvæður en ekki
tekið veikina fyrr en i gær, hann var
starfsfélagi Bobs Stevens sem er sá
eini sem látist hefur.
REUTER-MYND
Pandabjörn á ferðalagi
Yingying heitir þessi sautján ára gamli pandabjörn sem kíkir út milli rimtanna á búri sínu viö komuna til Peking í morg-
un. Yingying kom til kínversku höfuöborgarinnar til aö taka þátt í fimleikahátíö sem hefst þar í vikunni.
REUTER-MYND
Bin Laden í felum
Óþolinmæöi gætir vestra yfír hve illa
gengur aö finna Osama bin Laden.
Þrýst á að senda
sérsveitir til að
góma bin Laden
Stjórn Bush Bandaríkjaforseta
hefur vaxandi áhyggjur af gangi
hernaðaraðgerðanna gegn Afganist-
an þar sem ekki hefur tekist að
svæla hryðjuverkamanninn Osama
bin Laden úr fylgsni sínu, að sögn
breska blaðsins The Guardian.
Þar sem ekki hafa komið fram
neinar nýjar upplýsingar um sama-
stað bin Ladens hafa starfsmenn
landvarnaráðuneytisins f vaxandi
mæli þrýst á hershöfðingja að senda
fleiri sérsveitir til Afganistans til að
svæla bin Laden út.
Helstu herforingjarnir i Pentagon
eru hins vegar tregir til að senda
bestu sveitir sínar á vettvang á með-
an ekki liggja betri upplýsingar fyr-
ir um bin Laden. Þá vilja þeir að
dregið verði enn frekar úr varnar-
mætti talibana áður en til leitar á
landi kemur. Sagt er að Donald
Rumsfeld landvamaráðherra sé að
verða æ pirraðri vegna varkárni
hershöfðingjanna.
Indverjar og Pak-
istanar börðust í
Kasmír í alla nótt
Indverskar og pakistanskar her-
sveitir háðu harða bardaga í alla
nótt yfir landamærin á Kasmírhér-
aði. Indverjar og Pakistanar deila
um yfírráð yfír héraðinu. Kasmír er
eina hérað Indlands þar sem
múslímar eru í meirihluta. Byss-
urnar þögnuðu í morgunsárið en
ennþá er mikil spenna á landamær-
unum að Pakistan.
Bardagarnir i Kasmír blossuðu
upp á sama tíma og Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
kom í heimsókn til Pakistans.
Powell fer þaðan til Indlands í dag.
í tilkynningu sem utanríkisráðu-
neyti Indlands sendi frá sér sagði að
Indverjar hefðu hafið skothríðina til
að koma í veg fyrir að íslamskir
harðlínumenn, sem berjast gegn
Indverjum, færu yfir landamærin.
Þá sökuðu indversk stjórnvöld
Pakistana um að gera of mikið úr
atburðunum til að reyna að trufla
heimsókn Powells.
Colin Powell í Islamabad í morgun:
Styrkari tengsl við Pakistan
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði ráðamönnum
í Pakistan í morgun að samskiptin
milli ríkjanna tveggja ættu eftir að
styrkjast vegna ástandsins í
Afganistan og baráttunnar við
hryðjuverkamenn.
„Ég fúllvissaði pakistönsk stjóm-
völd einnig um stuðning bæði
Bandaríkjanna og alþjóðasamfélags-
ins við þátttöku Pakistans í þessari
baráttu," sagði Powell á fundi með
fréttamönnum eftir viðræður við
Pervez Musharraf, leiðtoga herfor-
ingjastjórnarinnar i Pakistan.
Musharraf sagði eftir viðræðurn-
ar við Powell að Bandaríkjamenn og
Pakistanar væru sammála um að
fulltrúar stjórnarandstöðunnar og
talibana myndu eiga sæti í framtíð-
arstjórn Afganistans.
REUTER-MYND
Vígorö gegn BNA
Harölínumúslímar efndu til mót-
mælaaögeröa gegn Bandaríkjunum
víöa í Pakistan i gær í tilefni af
heimsókn Colins Powells utanríkis-
ráöherra til landsins.
„Zahir Shah, fyrrum konungur,
pólitískir leiðtogar, hófsamir tali-
banar, menn úr Norðurbandalag-
inu, öldungar úr ættbálkum lands-
ins og Afganar sem búa utan heima-
landsins geta allir gegnt hlutverki í
þessari stjóm,“ sagði Musharraf á
fréttamannafundinum með Powell.
Musharraf sagði einnig að stríðið
í Afganistan ætti að vera stutt og að
meirihluti Pakistana væri þeirrar
skoðunar. Hann sagði líka að meiri-
hluti pakistönsku þjóðarinnar væri
fylgjandi stuðningi stjórnvalda við
aðgerðir Bandaríkjamanna gegn
talibönum og hryðjuverkasamtök-
um Osama bin Ladens sem grunað-
ur er um að hafa staðið fyrir árás-
unum á New York og Washington i
síðasta mánuði þar sem á sjötta þús-
und manns týndi lífi.
• •
Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga (áfangakerfi).
Kennt er á leigu-, vöru- og hópbifreið, einnig eftirvagn.
Endurbætt kennsluaðstaða
og sérhæfðir kennarar.
Námsgögn verða eign nemenda.
Námslok nemenda tryggð.
Góðir kennslubflar. Greiðsluskilmálar við allra hæfi.
Hringið eða komið og fáið nánari upplýsingar.
E-mail okusk.mjodd@simnet.is
Sími 567-0300