Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Page 12
12
Skoðun
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001
DV
Hlakkar þú til að fá snjóinn?
Sigrún Edda Edvarösdóttir, móöir
og bim. (Auöur Mist):
Ég vil ekkert endilega fá hann strax,
það væri fínt að fá hann í byrjun
desember.
Jón Kjartan Ingólfsson búöarloka:
Helst ekki, mig langar í snjólítinn
vetur, svona Florida „style".
Jóhann Ingvason innkaupastjóri:
Já, ég hlakka til að taka fram
skíöi og skauta.
Ásgeir Óskarsson hljóöfæraleikari:
Þaö væri fínt að fá mikinn snjó yfir
jólin og svo búiö.
Ingvar Valgeirsson verslunardrengur:
Svo framarlega sem hann kemur
ekki fyrr en 23. desember og
hverfur 1. janúar.
Friörik Friðriksson myndatökumaöur:
Bæöi og.
Hryöjuverkin í Bandaríkjunum í síðasta mánuöi kostuöu um 6 þúsund manns lífiö.
Nokkur söguleg hryðjuverk
Móse lét drepa
3.000 manns
Móse gekk á
Sínaífjall til fund-
ar við Drottinn.
Honum dvaldist á
fjallinu. Þegar
hann kom til
baka hafði lýður-
inn snúið við hon-
um bakinu. Þeir
höfðu valið Aron
til forystu, steypt
úr gulli mynd af Bal og fórnaraltari
honum til dýrðar og efnt til fórnar
og gleðihátíðar. Móse reiddist ofsa-
lega, hann braut sáttmálstöflurnar,
sem hann hafði komið með af fjall-
inu og braut gullkálfinn. Móse safn-
aði síðan levítunum til sín, lét þá
girðast sverðum og lét þá drepa
þrjár þúsundir manna, þeir felldu
þar bræður sína, vini og frændur.
Rússar sökktu skemmtiferöa-
skipi og drápu 5.000
Rússar sökktu farþegaskipinu
Wilhelm Gustloff og drápu 5.000
Móse reiddist ofsdlega,
hann hraut sáttmálstöfl-
urnar, sem hann hafði kom-
ið með af fjallinu og braut
gullkálfinn.
Skemmtiferðaskipið Wilhelm Gustloff,
- hryðjuverk Rússa kostaöi allt að
5 þúsund manns lífið.
manns. í janúar 1945 var skemmti-
ferðaskipið á leið frá Gotenhafen til
Kílar og Flensborgar með 6.000
flóttamenn, sem átti að deila niður á
þessa staði. Tólf mílur þver af Stolp-
munde lá rússneskur kafbátur fyrir
skipinu og skaut það þremur tund-
urskeytum og sökkti því. Þarna létu
5.000 saklausir borgarar lífið,
þrefalt fleiri en fórust með Titanic.
Talið var að Rússar vissu að þarna
voru óbreyttir borgarar á ferð.
Hiroshima og Nagasaki -
225.000 drepnir og særðir
Hinn 6. ágúst 1945 vörpuðu
Bandaríkjamenn atómsprengju á
japönsku borgina Hiroshima. Af-
leiðingin var: 80.000 lágu í valnum,
2/3 bygginga borgarinnar eyðilögð-
ust, eða 60.000 hús. Þremur dögum
síðar vörpuðu Bandaríkjamenn enn
atómbombu á borgina Nagasaki,
drápu og særðu 75.000 manns og
lögðu þriðjung borgarinnar í rúst.
New York - 6.000 létust
Hinn 11. september 2001 létust um
6.000 manns þegar sveit mú-
hameðstrúarmanna rændi fjórum
farþegaþotum og flaug tveimur
þeirra á World Trade Center í New
York og einni á Pentagon í Was-
hington. Fjórða þotan brotlenti eftir
að farþegar lögðu til atlögu við ræn-
ingjana. Skotmark þeirra mun hafa
verið Hvíta húsið í Washington.
Auglýsingaherferð bæjarstjórans
Akureyringur
skrifar:
Bæjaryfirvöld hér á Akureyri hafa
sett í loftið sjónvarpsauglýsingar þar
sem tíundaðir eru helstu kostir þess
að búa hér í „höfuðborg hins bjarta
norðurs". Rétt er það sem fram kem-
ur í auglýsingunum; að staðurinn er
fallegur og búsetuskilyrði eru al-
mennt góð, ekki síst fyrir ungt bama-
fólk. En á ölium málum eru tvær hlið-
ar og enginn sest að á Akureyri vegna
þess eins að Pollurinn sé spegilsléttur
eða snjórinn í Hliðarfjalli nægur.
Svo einhvern fýsi að flytja í höfuð-
stað Noröurlands þarf atvinnulifið á
staðnum að vera í pottþéttu lagi og
staðreyndin er sú að kyrkingur er
kominn í vöxt og viðgang þess. Fáir
vaxtarbroddar sjást eða þrífast og
starfsemi þeirra fyrirtækja sem fyrir
En á öllum málum eru tvœr
hliðar og enginn sest að á Ak-
ureyri vegna þess eins að Poll-
urinn sé spegilsléttur eða
snjórinn í Élíðarfjalli nægur.
em hefur í mörgum tilvikum átt und-
ir högg að sækja. Fram hjá þessari
veigamiklu grundvallarstaðreynd
horfðu stjórnendur Akureyrarbæjar
þegar þeir ákváðu að blása til þessar-
ar auglýsingaherferðar.
Persónugervingur auglýsinga þess-
ara er svo Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri. Skili auglýsingarnar ein-
hverjum árangri mun pilturinn vænt-
anlega telja fólksfjölgun í bænum sitt
verk og sinni stefnu að þakka. Á þeim
tæpu fjórum árum sem hann hefur
stýrt bænum hefur fólki hér blessun-
arlega fjölgað. En ástæða þess er auð-
vitað fyrst og fremst efnahagslega
hagstæð ytri skilyrði, sem hafa gefið
bænum tækifæri til vaxtar og sóknar,
fremur en að stjórn hans hafi verið
svo einstaklega góð að íbúum fjölgi í
stórum stíl einmitt þess vegna.
Umhugsunarvert er jafnframt að
auglýsingar þessar skuli kostaðar af
opinberu fé, nú í upphafi kosninga-
vetrar. Skili auglýsingarnar engum
árangri mun bæjarstjórinn væntan-
lega biðja fólk að benda ekki á sig,
eins og lögregluvarðstjórinn í lagi
Bubba Morthens. Og fari nú svo að
Kristján Þór tapi stjómtaumunum á
Akureyri í vor verður hann daginn
eftir kosningar hlaupinn á brott, far-
inn að stýra einhverju allt öðra bæj-
arfélagi. Slíkt væri í anda þessa far-
andbæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins.
Garri
Hvað verður um
sannfæringu
þingmannsins?
Einar Oddur
Kristjánsson hefir
viðrað sannfær-
ingu sína sem
þingmaður f fisk-
veiðistjórnunar-
málinu. Hvað
verður um þessa
sannfæringu þing-
mannsins eftir að
búið er að ganga
gegn henni á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins? Get-
ur hann gert það sem hann sagði að
hann mundi flytja tillögu á Alþingi
sem gengi gegn
vilja svokallaðrar
sáttanefndar um
veiðar smábáta og
leita breiðrar sam-
stöðu á Alþingi til
samþykktar henni.
Hann hlýtur að
vita að svona
breiður vilji er tO í
þinginu. Verður
það flokksræðið
sem kúgar þingmanninn eða rífur
hann af sér hnappheldu flokksræðis-
ins og flytur tillöguna? íslenska þjóð-
in á Alþingi en ekki pólitísku flokk-
arnir, þess vegna er flokksræðið til-
ræði við lýðræðið í landinu. Ef þing-
menn væru ekki bundnir af flokks-
ræðinu væru líkur á að hin mikla
mismunun sem þingið gaukar að
landsmönnum væri ekki til og jafn-
réttið væri meira í daglegu lífi þegn-
anna.Ég bíð spenntur eftir því að
'frétta hvað þingmaðurinn gerir í
málinu
Anda að sér
lífinu
Guðrún Arnalds, hómópati og leiðbeinandi
í líföndun, vill sjá hressa lesendur DV:
Nú er komið haust og tími til að
anda djúpt, taka því sem að höndum
ber og leggja okkar af mörkum til
að lýsa upp skammdegið. Mitt inn-
legg er að bjóða þeim sem vilja að
lyfta andanum og eiga skemmtilega
helgi í góðum hópi fólks, dansa,
iðka jóga, taka til í sálarkimunum,
anda að sér lífinu og njóta þess að
vera til á námskeiði í lífóndun helg-
ina 20.-21.október. Þú getur tekið
með þér vin eða fjölskyldumeðlim
eða þara komið ein-n. Helgarnám-
skeið í lífóndun getur verið góð leið
til að hreinsa til í huganum, vinna
úr því liðna, hlaða sig af orku og
bjartsýni til að takast á við nútíð og
framtið með opnum huga. Þeir sem
hafa áhuga geta haft samband við
mig og fengið frekari upplýsingar -
annað hvort i tölvupósti eða í sím-
um: 896 2396 / 561 0151 eöa 551 8439.
Löggan hætt
aö skipta sér
af umferð
Brynjólfur
Brynjólfsson
skrífar:
98 prósent
Það er ekki að spyrja að því að sjálfstæöis-
menn kunna að meta foringjann sinn. Davíð
Oddsson var endurkjörinn formaður flokksins
með 98% greiddra atkvæða á landsfundinum á
sunnudag og hefur önnur eins atkvæðatala ekki
sést síðan Kim il Sung var kosinn til foringja á
þingum Kommúnistaflokks Albaníu hér á árum
áður. Munurinn er hins vegar sá að Davíð fær
ekki að handvelja fulltrúana á þingið eins og
Kim il fékk á sínum tíma. í íslensku samhengi
er óumdeilanleiki Davíðs jafnvel enn einstæðari,
því jafnvel Halldór Ásgrímsson, sem er með
óumdeildustu flokksleiðtogum, fær ekki svona
kosningu. Um aðra þarf ekki að ræða, það kemst
einfaldlega enginn með tæmar þar sem Davíð
hefur hælana í þessum efnum.
Flott handrit
Garri hefur alltaf dáðst að því hversu vel
skrifað handritið að landsfundum Sjálfstæðis-
manna er, og hversu vel það gengur alltaf upp
að lokum. Fundurinn byggir á öllum helstu
grundvallarlögmálum Aristotelesar um leiksýn-
ingu, þarna er einn tími, ein atburðarás og einn
vettvangur. Og atburðarásin er hlaðin drama
sem nær sínum hápunkti á siðasta degi fundar-
ins þar sem allir átakaþræðirnir sem spunnir
hafa verið dagana á undan vefast saman í einn
allsherjar kímax. Þá er formaðurinn kjörinn og
andstæðingar fallast í faðma af einskærri ham-
ingju yfir því að vera sjálfstæðismenn. Fyrrum
fjendur slá á bakið hver á öðrum og stappa stál-
inu hver í annan í óvæntri euforískri samkennd
og samstöðu með það samkomulag sem náðist á
fundinum. Þá virðist litlu máli skipta að sam-
komulögin eru í öllum aðalatriðum grundvölluð
á þeim ályktunardrögum sem fyrir fundinum
lágu og deilurnar því meira formsatriði en nokk-
uð annað.
Dýrin í skóginum
Garra minnir að það hafi verið Geir Haarde
sem sagði um einhvem landsfund annars stjóm-
málaflokks, líklega hefur það verið landsfundur
Samfylkingarinnar, að handritið hafi verið lipurt
og augljóslega skrifað á einhverri auglýsingastof-
unni. Eflaust var það rétt hjá Geir. Hins vegar er
handritið að landsfundi Sjálfstæðisflokksins
flóknara og dýpra en svo að einhver auglýsinga-
stofa ráði við að skrifa það. Garra þykir líklegra
að hér hafi komið að máli þekktari rithöfundur,
maður sem nú er látinn fyrir allnokkru og var
þekktur og dáður jafnt í sínu heimalandi sem
víða um heim. Garri er þarna að vísa til Thor-
björns Egners en landsfundarhandritið er gletti-
lega likt handritinu að Dýrunum í Hálsaskógi -
handbragðið leynir sér ekki. Eftir átök og erjur
fallast öll dýrin í skóginum á að éta ekki hvert
annað og vera vinir og grænmetisætur. Þau vilja
líka með yfirgnæfandi meirihluta (98%?) - meira
að segja Mikki refur líka - lúta stjórn
Bangsapabba. Spurningin er bara hvort það
myndi ekki setja punktinn yfir i-ið á landsfund-»
um framtíðarinnar ef sjálfstæðismenn færu alla
leiö og syngju grænmetissönginn
í lok fundarins!? Gðfl'B
Ökumaöur hringdi:
Hvergi í veröldinni sér maður eins
klunnalega ökumenn og á Islandi.
Sjálfur hef ég ekið erlendis um árabil
og er alveg undrandi á því hvað ís-
lendingum líðst að brjóta umferðar-
lögin í smáu sem stóru. Allir vita að
hraðakstur er stundaður ómælt á
þröngum götum og vegum, fjöldi
manns virðist aka undir áhrifum
áfengis. Minni mál en þó alvarleg eru
að menn leggja mjög oft á móti akst-
ursátt, leggja bíl öfugt í bílastæði,
sem er lögbrot, og langflestir sem
koma að umferðarljósum aka vel yfir
breiðu stöðvunarlinuna, og helst al-
veg yfir gangbrautina líka. Lögreglan
á íslandi er gjörsamlega óhæf í störf-
um sinum og fylgist nákvæmlega
ekkert með umferðinni lengur.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíóa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.