Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Síða 25
29
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001
DV Tilvera '
Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum:
Ástfangnir
bankaræningjar
Tvær kvikmyndir fengu mesta
aösókn um helgina, Training Day,
sem rétt heldur efsta sætinu, og
Bandits. Báðar þessar myndir eru
sakamálamyndir þó ólíkar séu. í
Training Day leikur Denzel Was-
hington löggu sem er meiri glæpa-
maður en þeir sem hann er að eltast
við. Er þegar farið að tala um Was-
hington sem heitan óskarsverð-
launahafa fyrir leik sinn í mynd-
inni. í Bandits, sem Barry Levinson
leikstýrir, leika Bruce Willis og
Billy Bob Thorton tvo bankaræn-
ingja sem verða ástfangnir af stúlku
sem þeir halda sem gísl. Það er ástr-
alska leikkonan Cate Blanchett sem
leikur stúlkuna. í þriðja sæti er
einnig ný mynd, Corky Romaro,
farsakennd gamanmynd sem fjallar
um mislukkaðan son mafíuforingja
sem gerist útsendari FBI. Chris
Kattan heitir leikarinn sem leikur
mafíusoninn. Þriðja nýja myndin,
Bandits
Bruce Willis og Billy Bob Thornton
leika tvo bankaræningja.
Iron Monkey, gömul Hong Kong
mynd, gerði það einnig gott en hún
var sýnd í helmingi færri sölum en
Bandits og Corky Romero. Sú nýja
kvikmynd sem hafði þó mest á bak
við sig miðað við fjölda sýningar-
sala var nýjasta kvikmynd Davids
Lynch, The Mullholland Drive, en
nánast uppselt var á hana alla helg-
ina. -HK
HELGIN 12.-14. október
SÆTI FYRRI VIKA tuill ALLAR UPPHÆÐIR i ÞÚSUNDUM BANDARlKJADOLLARA. INNKOMA INNKOMA FJÖLDI HELGIN: ALLS: BÍÓSALA
O 1 Training Day 13.386 43.439 2712
O - Bandits 13.050 13.050 3207
O - Corky Romano 9.023 9.023 2062
O 2 Serendipity 8.766 26.396 2603
Q 3 Don’t Say a Word 6.713 41.716 2728
Q - Iron Monkey 6.014 6.014 1225
Q 4 Zoolander 5.030 35.757 2422
Q 5 Joy Ride 4.905 14.730 2522
Q 6 Max Keeble’s Big Move 4.039 10.933 2045
© 7 Hearts In Atlantis 2.711 20.666 2010
© 8 Hardball 2.348 33.758 2012
© 9 The Others 1.750 93.165 1554
© 10 Rush Hour 2 968 223.003 1012
© Mulholland Drive 587 664 66
© 13 Megiddo: The Omega Code 2 572 4.648 295
© 19 Legally Blonde 432 94.496 836
© 11 The Gfass House 423 17.387 685
© 15 The Princess Diaries 358 105.905 581
© 16 Jeepers Creepers 335 37.232 655
© 14 American Pie 2 328 143.774 490
Vinsælustu myndböndin:
Þegar jólunum var
stolið
VtKAN 8,-
Þó enn séu rúmir tveir mánuðir
til jóla er farið að minna á þau og
meðal þess er myndin How the
Grinch Stole the Christmas með
Jim Carrey i aðalhlutverki. Hún fer
beint í annað sæti myndbandalist-
ans og ræður ekki við Miss Con-
geniality sem er þriðju vikuna í röð
í efsta sætinu. Myndin er gerð eftir
klassískri barnasögu, How the
Grinch Stole Christmas eftir dr.
Seuss, og hefur hún komið út á ís-
lensku undir nafninu
Þegar Trölli stal jól-
unum. Þessi vinsæla
saga hefur heillað
böm alla tíð síðan og
þykir sjálfsögð lesn-
ing í jólaamstrinu. Dr
Seuss, sem heitir
fullu nafni Theodor S.
Geisel, hafði hvað eft-
ir annað neitað
Hollywood um að fá
að kvikmynda ein-
hverja af bókum hans
og það var ekki fyrr
en nú að ekkja hans,
Audrey Geisel, lét
undan.
í fjórða sæti er svo
önnur kvikmynd sem
er eins og The Grinch
fyrir yngsu kynslóð-
ina, Spy Kids, vel
heppnuð spennu-
mynd sem er nokkurs
konar krakkaútgáfa
af James Bond-for-
múlunni. -HK
How the Grinch Stole the
Christmas
Jim Carrey er í hlutverki karlsins
sem vill stela jólunum.
o
Q
Q
O
Q
Q
Q
Q
Q
©
©
©
©
©
©
©
©
©
FYHHI VIKIIR
VIKA TrriLL (DREIFINGARAÐILI) Á USTA
1 Miss Congeniality isam myndböndi 3
The Grinch isam myndbönd) 1
2 Men of Honor iskífan) 4
Spy Kids (SAM MYNDBÖND) ±
Enemy at the Gates isam myndbönd) 5
Save the Last Dance (sam myndbönd) 4
Chocolat (skífan) 5
The GÍft (HÁSKÓLABÍÓ) 8
14 Bait (sam myndbönd) 2
8 Proof of Life <sam myndböndi 8
9 What Women Want <sam myndböndi 8
7 Almost Famous iskífan) 6
10 Hannibal (sam myndbönd) 6
12 The Boondock Saints ibergvík) 9
13 The Watcher (myndfqrm) 6
11 Tomcats (myndformi 7
16 Bounce (skífanj 7
18 Murder of Crows (bergvík) 8
Glnger Snaps (myndform) 1
17 QUÍIÍS (SKÍFAN) 3
Síöir sumarkjólar
Meöal þess sem sjá mátti á tísku-
sýningu Marc Jacobs voru síöir
sumarkjólar.
Tískuvikunni
lokið í París:
Svart
hvitt
stutt
Litadýrðin allsráðandi
Litadýröin var allsráöandi í hönnun hins breska
Johns Galliano.
Fatahönnuðir heimsins halda áfram að kynna vor- og
sumartískuna fyrir kvenfólkið og um síðustu helgi
lauk enn einni tískuvikunni þetta haustið. í
síðustu viku var það París og mátti þar sjá
fatalínur frá tískuhúsum á borð við Chan-
el, Dior, Yves Saint Laurent og Louis
Vuitton. Fyrirsæturnar á sýningarpöllun-
um klæddust margs konar flíkum, jafnt
stuttum sem síðum. Hjá sumum hönnuð-
um var litadýrðin allsráðandi meðan aðrir
virtust hrifnastir af svarta og hvíta litnum.
Eins og ávallt mátti sjá ýmsa strauma og
stefnur og svo virðist sem hönnuðirnir
leiti víða fanga. -MA
Svart og stutt
Svart stuttbuxna-
dress frá Frakkan-
um Pascal Hum-
bert.
Hvítt frá Gaultier
Hvíti liturinn var nokkuö áberanJi
hjá Jean-Paul Gaultier sem vakti
athygli eins og svo oft áöur.