Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2001, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2001
Fréttir
I>V
Trúnaðarlækni Flugmálastjórnar vikið tímabundið frá störfum:
Segir flugmenn biðja
um afslátt á öryggi
- brottvikning í samræmi við okkar ósk, segir formaður FÍA
Flugmálastjóri hefur vikið
Þengli Oddssyni, trúnaðar-
lækni Flugmálastjórnar,
tímabundið frá störfum á
meðan óháðir aðilar rann-
saka störf hans. Ámi G. Sig-
urðsson, einn reyndasti ílug-
stjóri Flugleiða, hefur ekki
fengið flugskirteini sitt end-
umýjaö þar sem trúnaðar-
læknirinn hefur ekki viljað
veita honum heilbrigðisvott-
orð en fyrir þremur árum sprakk
öræð í höfði hans og leiddi af sér
áhrif 'á taug sem liggur niður í
vinstri fót. „Þetta jafnaði sig á
tveimur dögum,“ segir Árni.
Hópur sérfræðilækna hefur hins
vegar veriö á þeirri skoðun að Árni
Arni G.
Sigurösson.
Trúnaður að bresta
Fyrsta frétt DV af málinu.
sé við góða heilsu og
megi fljúga og sam-
gönguráðuneytið hef-
ur tvívegis úrskurðað
Árna i vil í þriggja
ára stríði sínu við
Flugmálastjórn og
trúnaðarlækninn. í
DV á laugardag sagði
samgönguráðherra að
mál flugstjórans væri
leyst - og hann ætti
að fá flugmannsréttindi sín að nýju
alveg á næstunni.
„Það er afskaplega alvarlegt þegar
hagsmunaaðilar og stéttarfélög eins
og FÍA geta komið einstaka embætt-
ismönnum frá störfum í þágu sinna
félagsmanna. Slíkt er i raun ósk um
afslátt á flugöryggi," sagði Þengill
Oddsson i samtali við DV. Honum
barst bréf frá flugmálastjóra þess
efnis að honum væri vikið frá störf-
um sl. fostudag. „Ég tel mig hafa
staðið rétt að málum og farið eftir
þeim fjölþjóðlegu reglum sem mér
ber að starfa eftir. En vitaskuld
fagna ég úttekt á mínum störfum, þó
ég telji ekki vera tilefni til þess að
víkja mér frá á meðan. Hið rétta í
þessu máli kemur í ljós á endanum."
Þengill segir að í sínu starfi leggi
hann alla áherslu á að heilbrigðis-
vottorð íslenskra
flugmanna séu í sam-
ræmi við þá staðla
sem vel flest Evrópu-
ríki, þar á meðal Is-
land, hafi komið sér
saman um viðvíkj-
andi flugöryggi og
heilsufari flugmanna.
Franz Þengill telur að um-
Ploder. ræddur flugstjóri
uppfylli þá ekki.
Hann vill hins vegar ekki útskýra
það nánar, enda sé slíkt sér óheimilt
skv. trúnaðarskyldum lækna.
Sem fyrr segir telja sérfræðilækn-
ar sem skoðað hafa Árna að heilsu-
far hans sé í lagi og hann geti því
haldið áfram störfum sem flugstjóri
- en trúnaðarlæknirinn er á annarri
skoðun. Aðspurður um þetta segir
Þengill að það geti verið uppi mein-
ingarmunur milli lækna í einstaka
málum. Sannleikurinn sé aldrei ai-
gildur. Erlendir sérfræðilæknar hafi
og oftsinnis verið fengnir til að meta
heilsufar íslenskra flugmanna þegar
ágreiningsefni þar séu uppi.
Gengisfellum reglur
„Hins vegar vil ég undirstrika að
fluglæknisfræðin er sérstakt fag og
þar gilda sérstakar Evrópureglur
Þengill
Oddsson.
sem ég legg áherslu á að við
förum eftir. Sé það ekki gert
höfum við gengisfellt. ís-
lenskt flugöryggi. Mér er
enginn persónulegur hagur í
þvi að flugstjóranum sé vik-
ið frá störfum, það sem mér
finnst meginmáli skipta er
að reglur sem ísland er aðili
að séu virtar," sagði Þengill.
í samtali við DV í gær-
kvöldi sagði Franz Ploder,
formaður Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, að brottvikning trúnað-
arlæknisins frá störfum - enda þótt
tímabundið sé - væri í samræmi við
það sem félagið hefði óskað. „Við
teljum trúnaðarlækninn hafa farið
út fyrir verksvið sitt og ekki farið
eftir íslenskum lögum og reglum
sem gilda heldur skákað í skjóli Evr-
ópureglna," sagði Franz.
Aðspurður um þau ummæli
Þengils að alvarlegt væri að einstök
hagsmunafélag gætu ýtt einstaka
embættismönnum frá störfum svar-
aði Franz að FÍA heföi ekki umboð
til slíks. Hins vegar hefði félagið
bent stjómvöldum á að sitthvað
hefði verið athugavert við störf
trúnaðarlæknisins sem nú hefði
leitt til tímabundinnar brottvikn-
ingar hans. -sbs
Don C. Wiley:
Fannst látinn
Don C. Wiley.
Lík prófessors
Dons C. Wileys,
eiginmanns
Katrínar Val-
geirsdóttur, sem
hvarf um miðjan
nóvember i
Memphis í
Bandaríkjunum,
fannst á fimmtu-
dag í ánni Miss-
issippi. Siðast var vitað um ferðir
Wileys á bílaleigubíl sem fannst á
DeSoto-brúnni í Memphis,
skammt frá mörkum Tennessee
og Arkansas. Hann hafði verið í
kvöldverði með vinum og öðrum
vísindamönnum eftir ráðstefnu á
Peabody-hótelinu þann 18. nóv-
ember síðastliðinn en hótelið er
skammt frá brúnni. Það voru
verkamenn viö raforkuver í Lou-
isiana sem fundu líkiö í tæplega
500 kílómetra fjarlægð frá þeim
stað þar sem Wiley sást síðast.
Ekki er enn vitað hvað olli dauða
hans en málið er í rannsókn hjá
lögreglu.
Wiley hafði um árabil starfað
sem prófessor og sérfræðingur í
veirurannsóknum við Harvardhá-
skóla og höfðu fjölmiðlar vestra
fjallað töluvert um hvarf hans.
-MA
Rjúpnaskytta
lést á Mýrum
DV-MYND TEITUR
Loksins jólasnjór
Hann var heldur síðbúinn, jólasnjórinn víða um land að þessu sinni ,öfugt við það sem fólk hefur mátt búa við sunnar
í álfunni. Þaö var ekki fyrr en að morgni jóladags að jörð hvitnaði hér eftir nokkuð langan hlýindakafla. Lítur út fyrir
sviþað veðurlag fram yfir áramót.
Tveggja ára dreng vikið úr leikskóla
Rjúpnaskyttan, sem fannst lát-
in á Mýrum á laugardag, hét
Theódór Jónasson, til heimilis í
Reykjavík. Theódór var fæddur
14. desember 1971 og lætur eftir
sig unnustu og eitt barn. Theódór
hafði farið frá Mýrum til rjúpna
meö þremur félögum sínum en
þegar hann skilaði sér ekki til
byggða var kallað eftir aðstoð
björgunarsveitar. Um 100 björg-
unarsveitarmenn tóku þátt i leit-
inni og sex leitarhundar. Leitar-
skilyrði voru erfið vegna þoku en
Theódór fannst látinn í Gríms-
staðamúla og virðist hafa fallið í
klettum.
Tveggja ára gömlum
dreng var í októbermán-
uði síðastliðnum vikið úr
einkareknum leikskóla í
Reykjavík. Samkvæmt
heimildum DV fékk móðir
drengsins uppsagnarbréf
frá leikskólanum þann 5.
október en þá var drengur-
inn búinn að vera þar i
fimm vikur.
í bréfinu stendur að
starfsmenn leikskólans séu til-
neyddir að segja upp dvalarsamn-
ingi drengsins þar sem hann hafi
ekki aðlagast starfinu þar. Hann
gráti stöðugt, þarfnist stöðugrar
athygli og hafi þvi ekki að-
lagast starfi leikskólans.
Enn fremur kemur fram að
hegðun hans hafi neikvæð
áhrif á starfið og þvi ekki
sanngjarnt gagnvart öðr-
um börnum á leikskólan-
um að hegðun hans haldi
áfram aö hamla starfinu og
hafa þannig slæm áhrif á
veru barnanna í leikskól-
anum.
Samkvæmt upplýsingum DV er
drengurinn nú kominn á leik-
skóla í Hafnarfirði og gengur að
sögn vel að aðlaga hann skóla-
starfinu þar.
Bergur Felixson, framkvæmda-
stjóri Leikskóla Reykjavíkur, segist
ekki vita um dæmi þess að slikum
uppsögnum hafi verið beitt í leik-
skólum á vegum stofnunarinnar.
„Við segjum ekki börnum upp plássi
því starf okkar er að leysa þau
vandamál sem upp koma,“ segir
Bergur. Einu tilfellin sem uppsögn
er talin réttlætanleg er þegar um
ógreidda skuld er að ræða og þá er
það eingöngu eftir margítrekaðar
rukkanir sem ekki hafa skilað nein-
um árangri. Bergur segir að hann
viti þó ekki til þess að það hafl
nokkurn tíma orðið að beita þessu
úrræði varðandi skuldamál. -MA
Bergur
Felixson.
Tefja ekki framkvæmdir
Friðrik Sophus-
son, forstjóri Lands-
virkjunar, telur
ekki að hugsanleg
málaferli í kjölfar
úrskurðar umhverf-
isráðherra vegna
framkvæmda við
Kárahnjúkavirkjun
muni tefja framkvæmdir. Farið
verður yfir úrskurðinn á næstu dög-
um og vikum með tilliti til þess
hvaða breytingar hægt sé að gera á
grundvelli hans. Vísir greindi frá.
Drekka meira
Mun meira áfengi hefur selst í ár
en í fyrra, samkvæmt tölum frá
Áfengis- og tóbaksverslun rikisins.
Mest aukning er í sölu á léttum vín-
um en hins vegar hefur tókbakssala
dregist saman.
1.800 í augnaögerðir
Um 1.800 íslendingar hafa greitt
hátt í hálfan milljarð króna á einu
og hálfu ári fyrir augnaðgerðir sem
gera mönnum kleift að losna við
gleraugu. Aðgerðir eru framkvæmd-
ar með leysitækni og eru þær að
yerða algengustu aðgerðir sem sjúk-
lingar gangast undir. Sjónvarpið
greindi frá.
Góö kirkjusókn
Kirkjur landsins voru vel sóttar,
bæði á aðfangadag og á jóladag. í
Reykjavík varð fólk jafnvel frá að
hverfa á aðfangadagskvöld og fjöldi
kirkjugesta fékk ekki sæti og varð
því að hlýða á messu standandi.
40% frá verslun og þjónustu
Fyrirtæki í verslun og þjónustu
greiða um 40% allra opinberra
gjalda lögaðila ársins. Þetta kemur
fram í útreikningum ríkisskatt-
stjóra fyrir Samtök iðnaðarins. Fyr-
irtæki í iðnaði greiða um 24% opin-
berfa gjalda, útgerðarfyrirtæki
4,5%, fiskvinnslan 4% og aðilar í
landbúnaði tæpt eitt prósent. Vísir
greindi frá.
Hafna framlagi Club Vegas
Félag einstæðra
foreldra hefur sent
frá sér yfirlýsingu
þar sem fram kem-
ur að á stjómar-
fundi félagsins 21.
desember síðastlið-
inn hafi verið tekin
ákvörðun um að
hafna framlagi Club Vegas. Það er
gert á sömu forsendum og hjá
Mæðrastyrksnefnd.
Útgerðir heiöraðar
Verkalýðsfélag Húsavíkur hefur
ákveðið að heiðra tvær útgerðir á
Húsavík fyrir langa og færsæla út-
gerð og fyrir framlag þeirra til at-
vinnuuppbyggingar á Húsvík. Þá
vill félagið með viðurkenningunum
jafnframt þakka útgerðunum fyrir
góð samskipti sem byggst hafa á
gagnkvæmu trausti og virðingu í
áratugi. Útgerðirnar, sem um ræðir,
eru Geiri Péturs ehf. og Útgerðarfé-
lagið Langanes hf.
Frumsýnt á Flateyri
Ný íslensk kvik-
mynd, sem hlotið
hefur nafnið í
faðmi hafsins, var
frumsýnd á Flat-
eyri í gærkvöld.
Myndin er gerð eft-
ir verðlaunahand-
riti Kvikmynda-
sjóðs og fjallar um nýgift hjón í sjáv-
arplássi. Leikstjórar myndarinnar
eru Jóakim Hlynur Reynisson og
Lýður Árnason og meðal aðalleik-
ara eru Hinrik Ólafsson, Margrét
Vilhjálmsdóttir, Sóley Elíasdóttir og
Sigrún Gerða Gísladóttir.
-MA