Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2001, Blaðsíða 22
34 FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2001 Islendingaþættir________________________________________________________________________________________________________py Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson ' BESBffli 95 ára___________________________ ■, Kristján Kristjánsson, Dalbæ, Dalvík. 85 ára___________________________ Eyjólfur Ólafsson, Torfnesi, Hlíf 1, ísafirði. Signý Þorvaldsdóttir, Suðurgötu 15, Keflavík. 80 ára___________________________ Einar Daníelsson, Nestúni 6, Hvammstanga. 75 ára____________________ Gróa Björnsdóttir, Grundarstíg 1, Flateyri. Guörun Gísladóttir, Norðurbrún 1, Reykjavík. Robert Thomas Anderson, Hjarðarhaga 54, Reykjavík. 70 ára____________________ Kristinn Heigason, Heiönabergi 11, Reykjavik. 60 ára_________________________ Ólafur Einarsson, Austurkoti, Árnessýslu. Sigurlaug Helgadóttir, Heiðmörk 5, Stöðvarfirði. 50 ára_________________________ Ágúst Guöjónsson, Búlandi 16, Djúpavogi. Inga Jóhannsdóttir, Bergstaöastræti 24, Reykjavík. Kristín Gunnarsdóttir, Vættaborgum 1, Reykjavík. Pálína Baldvinsdóttir, Safamýri 49, Reykjavík. Steingrímur Þorsteinsson, Tjaldanesi, Mosfellsbæ. 40 ára___________________________ Ásgeir Kristján Mikkaelsson, Kleifarseli 14, Reykjavík. Björk Árnadóttir, Holtsgötu 19, Njarðvík. Dariusz Bosak, Háengi 2, Selfossi. Jóhannes Ólafsson, Hæöagarði 18, Höfn í Hornafirði. Jón Óli Einarsson, Tungufelli, Árnessýslu. Sigrún Elfa Ingvarsdóttir, Aflagranda 18, Reykjavík. cc ■QX) ■ mmm </) 'OJ) 03 '03 E </> © 550 5000 @ vísir.is 550 5727 Þverholt ±±, 105 Reykjavík Fólk í fréttum Fimmtug Georg Ólafsson forstjóri Samkeppnisstofnunar Georg Ólafsson, forstjóri Sam- keppnisstofnunar, hefur mikið ver- iö í fréttum að undanfórnu vegna rannsóknar Samkeppnisstofnunar á meintu samráði olíufélaganna. Starfsferill Georg fæddist í Reykjavík 13.7. 1945. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1965, viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1970 og stundaði nám í fjármála- fræði við Handelshojskolen í Kaup- mannahöfn 1971-73. Georg var viðskiptafræðingur hjá bankaeftirliti Seðlabanka íslands 1970-71 og 1973-74, viðskiptafræð- ingur hjá Tilsynet med Banker og Sparekasser í Danmörku 1972 og hjá hagfræðideild Den Danske Bank í Kaupmannahöfn 1972-73, verðlags- stjóri hjá Verðlagsstofnun 1975-93 og hefur verið forstjóri Samkeppnis- stofnunar frá 1993. Georg sat í stjórn Stúdentafélags HÍ 1967-68, var varaformaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, 1967-69, formaður gjaldskrárnefnd- ar 1977-78 og frá 1980, i stjórn Is- lenska flugsögufélagsins frá 1984, formaður verðlagninganefndar landbúnaðarvara á vegum landbún- aðarráðuneytisins frá 1985, skipað- ur formaður stjórnar Flutningsjöfn- unarsjóðs olíu og bensíns á vegum viðskiptaráðuneytisins, í ílugeftir- litsnefnd á vegum samgönguráðu- neytisins frá 1990 og er formaður samkeppnisnefndar EFTA-ríkja í Brússel frá ársbyrjun 1996. FJölskylda Georg kvæntist 28.10. 1967 Soffíu Stefánsdóttur, f. 23.4. 1945, kennara. Hún er dóttir Stefáns Pálssonar, f. 13.6. 1915, d. 25.7. 1969, tannlæknis í Reykjavík, og k.h., Guðnýjar Kristrúnar Níelsdóttur, f. 19.9. 1916, klæðskera. Synir Georgs og Soffíu eru Ólafur Georgsson, f. 5.7. 1967, flugmaður hjá Ffugféfagi ísfands, búsettur í Reykjavík, dóttir hans er Guðrún Soffia: Páff Georgsson, f. 27.12. 1974, sölustjóri í Reykjavík, kona hans er Guðný Steinsdóttir, BA í sálfræði, í framhaldsnámi í markaðsfræðum. Foreldrar Georgs: Ólafur Georgs- son, f. 10.2. 1918, d. 19.8. 1961, for- stjóri Vátryggingafélagsins hf. í Reykjavík, og Alda Bryndís Hans- dóttir Hansen, f. 19.7. 1922, húsmóð- ir. Ætt Ólafur var sonur Georgs, hag- fræðings og bankastjóra Lands- banka íslands í Reykjavík, Ólafs- sonar, gullsmiðs í Reykjavík, bróð- ur Guörúnar, ömmu Sveins, for- stjóra Völundar, Júlíuönnu listmál- ara og Sigurveigar, móður Baldurs Johnsens, fyrrv. forstöðumanns Hollustuverndar ríkisins. Guðrún var dóttir Sveins, b. i Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum, ísleifssonar, b. í Skógum, Jónssonar, lrm. í Skógum, ísleifssonar. Móðir ísleifs var Vig- dís Magnúsdóttir, systir Þuríðar, langömmu Jensínu, móður Ásgeirs Ásgeirssonar forseta. Móðir Sveins var Þórunn Sveinsdóttir, b. í Ólafs- húsi undir Eyjafjöllum, Þorleifsson- ar. Móðir Georgs bankastjóra var Ásta, systir Jensínu, langömmu Guðmundar J. Guðmundssonar, alþm. og formanns Dagsbrúnar. Ásta var dóttir Jóns, pr. í Dýrafjarð- arþingum, bróður Þorkels, pr. á Staðastað, langafa Jóns Sólness, föð- ur Júlíusar Sólness verkfræðings. Jón var sonur Eyjólfs, pr. í Miðdala- þingum, Gislasonar, og Guðrúnar Jónsdóttur, pr. og skálds á Bægisá, Þorlákssonar. Móðir Guðrúnar var Margrét Bogadóttir, systir Benedikts, langafa Sigríðar, langömmu Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra. Móðir Ólafs var Augusta Frederikke Ólafsson Weiss, dóttir Martins Sörensens Weiss, málara- meistara í Kaupmannahöfn. Alda Bryndís er dóttir Hans Han- sens, járnsmíðameistara í Reykjavík, ættaðs frá Borgundarhólmi, og Softlu, systur Kristbjargar, móður Erfends bæjarfógeta og Marteins verkfræð- ings Björnssona. Systir SofEiu var Þóra, amma Ingjalds Hannibalssonar forstjóra. Sofíla var dóttir Péturs, b. i Miðdal í Kjós, Árnasonar, b. í Haga- koti, Árnasonar, bróður Guðmund- ar, langafa Guðmundar, föður Einars Más rithöfundar. Móðir Soffíu var Margrét Benjamínsdóttir, b. í Flóka- koti í Kjós, Jónssonar, og Kristínar Þorkefsdóttir, b. í Prestshúsum í Húnavatnssýsfu, Þorfákssonar. Hulda Guðbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur á Selfossi Hulda Guðbjörnsdóttir hjúkrun- arfræðingur, Sófvöffum 1, Seffossi, er fimmtug í dag. Starfsferill Hufda fæddist í Vestmannaeyjum en ólst upp í Kópavogi. Hún fauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskól- anum í Kópavogi, hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla íslands 1974, stúdentsprófi frá FS 1985 og B.Sc,- prófi í almennum hjúkrunarfræð- um frá Hjúkrunarskólanum í Lundi 1989. Hulda var hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum 1974-75, hjúkrun- arforstjóri á Húsavík 1975, hjúkrun- arfræðingur á Sjúkrahúsi Selfoss 1976, á Heilsugæslustöð Selfoss 1977-78, Heilsuverndarstöð Reykja- vikur 1978, hjá SÁÁ 1979, Heilsu- gæslustöð Selfoss 1979-83 og við Sjúkrahús Suðurlands frá 1983 og kenndi við Fjölbrautaskóla Suður- lands nokkrar annir. Hún hefur ver- ið búsett á Selfossi frá 1976. Hulda var í stjórn Suðurlands- deildar Hjúkrunarfélags íslands 1986 og formaður 1987-88, i stjórn Hjúkrunarfélags íslands 1987-88, formaður umhverfisnefndar Selfoss 1982-86, í byggingar- og skipulags- nefnd Selfoss 1986-90, í stjórn Sjálf- stæðiskvenfélags ' Árnessýslu 1979-83, í stjóm Landssambands sjálfstæðiskvenna 1984-88 og fram- kvæmdastjórn 1986-88, átti sæti í flokksráði Sjálfstæðisflokksins, í fræðslunefnd Hjúkrunarfélags ís- fands í fræðslunefnd Sjúkrahúss Suðurfands. Fjölskylda Hufda giftist 27.6. 1976 Brynleifi H. Steingrimssyni, f. 14.9. 1929, lækni við Sjúkrahús Suðurlands. Foreldrar hans: Steingrímur Dav- íðsson, skólastjóri á Blönduósi, og k.h., Helga Jónsdóttir húsmóðir. Sonur Huldu og Brynleifs er Steingrímur, f. 30.3. 1977, nemi í húsasmíði. Sonur Huldu frá því áður er Hrafn Tryggvason, f. 8.3.1970, versl- unarmaður á Akureyri, og er dóttir hans Hrafnhildur Lára, f. 9.1. 1997. Börn Brynleifs af fyrra hjóna- bandi: Guðrún, f. 22.6. 1954, lögfræð- ingur, gift Gunnlaugi A. Jónssyni guðfræðiprófessor; Helga, f. 4.3. 1956, kennari, gift Jóni G. Hauks- syni, ritstjöra; Friðrik, f. 15.5. 1958, d. 21.12.1990, en hans kona var Ólöf Halldórsdóttir kaupmaður; Brynja Blanda, f. 11.8. 1971, BA 1 þýsku og rekstrarhagfræði. Systkini Huldu: Björn, f. 10.6. 1955, læknir í Reykjavík; Hrafnhild- ur Soffia, f. 5.5. 1962, læknir í Sví- þjóð. Hálfsystkini Huldu, samfeðra: Jó- hanna, f. 13.7.1946, gjaldkeri hjá ísól hf.; Sveinbjörn Guðnýjarson guð- fræðingur. Foreldrar Huldu: Guðbjörn Guð- jónsson, f. 21.6. 1925, fyrrv. stór- kaupmaður, og Hrafnhildur Helga- dóttir, f. 3.4.1932, meinatæknir. Ætt Guðbjörn er sonur Guðjóns Júlí- usar, málarameistara á Akranesi, Jónssonar, formanns á Akranesi, Jónssonar. Móðir Guðjóns var Hall- dóra Guðlaugsdóttir. Móðir Guðbjörns var Anna Björnsdóttir, skipstjóra og síðar seglasaumara á Ákranesi, Sveins- sonar, og Guðrúnar Klemensdóttur frá Saltvík á Kjalarnesi. Hrafnhildur er dóttir Helga Guð- mars, vélstjóra í Vestmannaeyjum, bróður Magnúsar, afa Magnúsar Gauta kaupfélagsstjóra. Systir Helga var Rósa, móðir Magnúsar Péturssonar pianóleikara. Helgi var sonur Þorsteins, b. á Upsum í Svarf- aðardal, Jónssonar, sjómannafræð- ara og hákarlaskipstjóra á Mínervu, Magnússonar. Móðir Þorsteins var Rósa Sigríður, systir Snjólaugar, móður Jóhanns Sigurjónssonar skálds. Rósa var dóttir Þorvalds, b. á Krossum, Gunnlaugssonar, ætt- föður Krossaættar, Þorvaldssonar. Móðir Helga var Anna Björk Bene- diktsdóttir, b. í Miðsamtúni, Jóns- sonar. Móðir Önnu var Hólmfríður Þorkelsdóttir. Móðir Hrafnhildar var Hulda Guðmunsdóttir, vélstjóra í Vest- mannaeyjum, Ólafssonar, og Sofílu Þorkelsdóttur. smáauglýsingarnar ná athygii 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.