Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2001, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2001
Fréttir
DV
Lögreglan á Akureyri vill fá sérsveitarlöggur:
Fíkniefnaflóðiö
veldur auknu ofbeldi
Sérsveitarmenn á Akureyri?
Lögreglan á Akureyri vill tryggja stööu nokkurra sérbúinna lögreglumanna í
bænum til aö bregöast við auknu ofbeldi.
Skíðalyftan afhent
Lyftuafhending
Þaö var Ralph Nach Bauer frá lyftuframleiöandanum Doppelmayer sem
afhenti Ásgeiri Magnússyni, formanni framkvæmdaráös Akureyrarbæjar,
nýju stólalyftuna.
Viðræður standa nú yflr milli rík-
islögreglustjóra og lögregluembætt-
isins á Akureyri um hvort hægt sé
að útvega sérsveitarbúnað og
tryggja framtíð sérhæfðs mannafla
á Akureyri ef vá ber að höndum.
Lögreglan á Akureyri telur sig ekki
nægilega vel í stakk búna til að
takast á við menn sem teljast alvar-
leg og skyndileg ógnun við umhverf-
ið. Sérhæfðir menn eru þegar fyrir
hendi innan lögregluliðsins á Akur-
eyri en þeir verða að láta sér nægja
almennan búnað og er ekki búið að
tryggja stöður þeirra til langframa.
Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu-
þjónn á Akureyri, segir að málið
snúist um peninga eins og flestar
aðrar slíkar ákvarðanir og sérsveit-
in heyri undir ríkislögreglustjóra.
Hann líti svo á að sérbúnir lögreglu-
Mannanafnanefnd:
Tamara í lagi
en ekki Timila
- Brigitta hlýtur náð
Mannanafnanefnd kom saman í
vikunni og tók ýmsar ákvarðanir
sem endranær. M.a. leyfði nefndin
að eiginnafnið Brigitta væri í lagi
sem kvennafn en Öm á sama kyni
gengur ekki að mati nefndarinnar.
Um Brigittunafnið var kveðinn
upp svohljóðandi úrskurður: „Eig-
innafnið Brigitta telst vera ritmynd
af eiginnafninu Birgitta og skal fært
á mannanafnaskrá."
Örn fékk sem fyrr segir ekki náð
sem kvennafn og segir í umsögn:
„Eiginnafnið Örn telst vera karl-
mannsnafn og er það á manna-
nafnaskrá sem slíkt.“
Hvað önnur nöfn varðar má
nefna að Valíant í karlkyni fær náö
og verður fært á mannanafnaskrá.
Óvíst skal hins vegar látið hvort
Prins verður samþykkt síðar.
Þá má nefna að karlmannsnafnið
Ismael er tekið til greina og skal
fært á mannanafnaskrá. Einnig
kvennafnið Alída, Tamara og Sigur-
geira en kenninafninu Birgis er
hafnað sem og Tryggvason. Milli-
nafnið Berry fær ekki heldur náð og
sömu sögu er að segja um Timilu.
-BÞ
Gúndaganga
í þriðja sinn
Minningartónleikar um Guð-
mund ísar Ágústsson, sem lést í
bílslysi þann 27. desember árið 1998,
verða haldnir í þriðja sinn í dag.
Eins og síðastliðið ár verða tónleik-
amir haldnir í Neskirkju klukkan
17 og að þeim loknum verður geng-
ið að leiöi hins látna en boðið er
upp á rútuferðir til baka að Nes-
kirkju. í fréttatilkynningu frá
aðstendum tónleikanna segir að
tónleikamir og gangan sem kölluð
hefur verið „Gúndaganga" séu
haldnir í þeim tilgangi að minna á
þau fjölmörgu fómarlömb umferð-
arslysa sem ýmist týna lífi eða
slasast alvarlega í bílslysum, slys-
um sem mögulegt er að fyrirbyggja
meö bættri umferðarmenningu og
vakandi meðvitund ökumanna um
þá gífurlegu ábyrgð sem fylgir
stjómun ökutækja.
Efnisskrá tónleikanna er skipuð
þjóðþekktum listamönnum og nem-
endum úr Hagaskóla þar sem hinn
látni stundaði nám áður en hann
lést. Meðal þeirra sem koma fram
eru Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Inga Bachmann, leikfélagið Ofleik-
ur og Elísabet Jökulsdóttir, svo ein-
hverjir séu nefndir.
-MA
Nýja skíðalyftan í Hlíðarfjalli er
nú tilbúin til notkunar og afhentu
framleiöendur bæjaryfirvöldum á
Akureyri lyftuna formlega í í síð-
ustu viku. Að sögn Guðmundar
Karls Jónssonar, forstöðumanns í
Fjallinu, er stefnt að þvi að opna
lyftuna fyrir almenningi þann 12.
janúar ef snjór og veður leyflr. Þeg-
ar er búið að prufukeyra lyftuna
og gera á henni þær prófanir sem
nauðsynlegar eru og segir Guð-
mundur að hún uppfyfli alla nýj-
ustu öryggisstaðla. Aðspurður seg-
ir hann aö sérstakur dísilmótor
fari í gang ef rafmagnslaust verði
þannig að ekki er hætta á að menn
sitji fastir i lyftunni þó rafmagn
fari af.
Stólalyftan í Hlíðarfjalli er sér-
staklega glæsilegt mannvirki og sú
eina sinnar tegundar hér á landi.
Hver stóll, eða „sófi“, tekur fjórar
persónur og getur lyftan flutt 2000
manns á klukkutíma. Það er mikil
breyting frá því sem var en gamla
lyftan gat flutt 450 manns á
Úukkustund. Gamla lyftan var
orðið mjög gömul og ljóst að fara
þurfti út í kostnaðarsamar viðgerð-
ir á henni. Kostnaðaráætlun hljóð-
Mikið hefur verið framkvæmt á
undanfornum árum á Akranesi og
er þess farið að gæta í fjárhag bæj-
arsjóðs. Fjárhagsáætlun Akranes-
kaupstaðar fyrir áriö 2002 var
samþykkt á síðasta fundi bæjar-
stjórnar með 6 atkvæða meirihluta
bæjarstjórnar Framsóknarflokks
og Akraneslistans en sjálfstæðis-
menn sátu hjá og lögðu fram harð-
orða bókun.
„Samkvæmt rekstraryfirliti í
frumvarpi að fjárhagsáætlun
Akraneskaupstaðar fyrir árið 2002
eru niöurstöður í rekstri bæjar-
sjóðs halli sem nemur kr.
13.992.000. Þ»útt fyrir viðvaranir
sjálfstæðismanna á sínum tíma,
um hve dýr þessi hraða einsetning
grunnskólanna yröi bæjarsjóði,
hefur meirihlutinn ekki gripið til
viðunandi ráðstafana til að skila
bæjarsjóði tekjuafgangi. Við telj-
um þaö mikið ábyrgðarleysi, og
óásættanlega niðurstöðu, að þurfa
aði upp á 160 milljónir króna og er
ljóst að sú áætlun mun að mestu
halda en gengisþróun og smávægi-
menn á Akureyri muni aldrei koma
í stað sérsveitarinnar hjá ríkislög-
reglustjóra. „Þeir myndu aldrei fara
að kljást við einhverja byssubófa
nema í algjörri nauðvörn en hins
vegar gætu slíkir menn tryggt
ástand á meðan beðið væri aðstoðar
sérsveitarinnar," segir Daníel.
Fremur er fátítt utan höfuðborg-
arsvæðisins að einstaklingar ógni
umhverfi sínu með skotvopnum en
yfirlögregluþjónninn segir lögreglu-
menn í meiri hættu en nokkru sinni
samfara neysluaukningu fikniefna.
„Menn eru orðnir varari um sig
gagnvart fíkniefnaneytendum. Þeir
eru margir hverjir vopnaðir og oft á
tíðum með ofsóknaræði. Þekking
sérsveitarmanna nýtist mjög vel í
slíkum rnálurn," segir Daníel.
-BÞ
legar tafir munu þó færa heildar-
kostnaðinn upp í u.þ.b. 164 mifljón-
ir, að sögn Guðmundar Karls. -BG
Umsjón: Birgir Guömundsson
netfang: birgir@dv.is
Óróleiki hjá R-lista
í heita pottinum ræða menn nú
mikið um framtíð R-listasamstarfsins
og þá ekki síst þá staðreynd að enn
hefur ekki tekist að ganga endanlega
frá uppstillingu á listann. Er nú svo
komið að bölsýnis-
menn í R-listaröð-
um eru farnir að
tala um möguleik-
ann á því að menn
nái einfaldlega
ekki saman en aðr-
ir telja það fráleitt.
í pottinum er full-
yrt að auk þess að
Samfylkingin sé enn ósátt við ýmis-
legt í þvi samkomulagi sem gert hef-
ur verið þá sé sjálfur borgarstjórinn
heldur ekki hress með hvemig málið
hefur verið handerað. Fullyrt er að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem
kemur inn á listann sem utanflokka,
eða utan flokkakvótans, telji að
flokkarnir eigi ekki að ráða öllu um
uppstillinguna og að pláss þurfi að
vera fyrir utanflokkafólk, t.d. ein-
hvem sem komi inn á listann með
henni, „í hennar flokki" eins og það
var orðað í pottinum. Þessir utan-
ílokkamenn kæmu þá inn í sætin í
kringum borgarstjórann, það níunda
og jafnvel það 7. líka. Þetta gengur
hins vegar illa í marga flokkshesta
aðildarflokka R-listans...
Deilt um leiðtogaprófkjör
En það er viðar en hjá Reykjavík-
urlistanum sem plottað er í hverju
homi. Fullyrt er að nú sé kominn
upp ágreiningur í
stjórn fulltrúaráðs-
ins í Reykjavík þar
sem ekki næst
samstaða um leið-
togaprófkjörið en
r.okkuð ljóst er að
meirihluti er fyrir
því í stjórninni.
Fullyrt er hins veg-
ar að einn eöa tveir
stjórnarmenn hafi sett sig á móti
þessari aðferð og Margeir Péturs-
son, formaður fulltrúaráðsins, hafl
viljað reyna til þrautar að ná sam-
hljóða ákvörðun í stjórninni áður en
svo afdrifarík ákvörðun er tekin...
Skýringin á drætti
Sagt er að í þessum ágreiningi
liggi skýringin á því að enn sé ekki
búið að ganga frá málinu en
ákvörðun um próf-
kjör og hvers kon-
ar prófkjör átti í
raun að liggja fyrir
fyrir jólin sam-
kvæmt áætlunum.
Fullyrt er að það sé
fyrst og fremst
stuðningsmaður
(menn) Ingu Jónu
Þórðardóttur sem er ragur við leið-
togaprófkjörið, sem kemur raunar
nokkuð á óvart því Inga Jóna hefur
sjálf oftsinnis lýst sig tilbúna í próf-
kjör, hvort heldur sem er leiötoga-
prófkjör eða gamaldags prófkjör...
Margar umsóknir
Athygli hefur vakið á Akureyri
hve margir hafa sótt um nokkur
störf sem þar hafa losnað að undan-
fómu. Margir tugir
manna sóttu um
starf útsölustjóra
Áfengisverslunar-
innar á Akureyri
og sömuleiðis um
nýja stöðu upplýs-
ingafulltrúa bæjar-
ins og þá hefur ver-
ið auglýst staða
menningarfulltrúa en Ingólfur Ár-
mannsson lætur af störfum um ára-
mótin. Meðal þeirra sem heyrast
nefndir sem líklegir í heita pottinum
í þessi störf eru Gunnar Jónsson,
framkvæmdastjóri KA, sem útsölu-
stjóri hjá ÁTVR, Bjöm S. Lámsson,
Anna Hildur Hildibrandsdóttir, Gest-
ur Einar Jónasson og Eiríkur Bj.
Björgvinsson, íþróttafulltrúi Akur-
eyrar, eru talin líkleg í upplýsinga-
fiflltrúann og Þórgnýr Dýrfjörð, for-
stöðumaður Búsetu- og öldrunar-
deildar bæjarins, hefur verið nefndur
sem næsti menningarfulltrúi...
Halli á bæjarsjóði
- skuldir aldrei meiri
- einsetning skóla hefur reynst bæjarsjóöi Akraness dýr
aö grípa til lántöku til að halda úti
rekstri bæjarsjóðs," segja sjálf-
stæðismenn og benda á að við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar fyrir yf-
irstandandi ár var gert ráö fyrir
nærri 192 milljóna króna tekjuaf-
gangi. Það sé dapurleg staðreynd
að þegar tekjur bæjarsjóðs eru
meiri en nokkru sinni hafi álögur
á bæjarbúa aldrei verið jafnháar.
Auk þess er bent á að skuldastaö-
an sé verri en áður.
Meirihluti bæjarstjórnar lét
bóka undrun sina á bókun bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
„Fulltrúi sjálfstæðismanna í bæj-
arráði hefur frá upphafi tekið þátt
í gerö áætlunarinnar og ekki gert
neinn fyrirvara um niðurstöður
hennar og hefur stutt hana í öllum
atriðum. Á síðasta ári samþykktu
bæjarfufltrúar fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs og bera því fullkomna
ábyrgð á henni. Þess vegna kemur
þaö mjög á óvart að bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisfiokksins hlaupi nú út
undan sér og skýli sér bak við bók-
un sem er full af rangfærslum.
Meirihlutinn lýsir yfir mikilli van-
þóknun á slíkum vinnubrögöum
óg telur afstöðu bæjarfufltrúa
sjálfstæðismanna lýsa ömurlegri
málefnafátækt þeirra," segir í bók-
uninni.
Samkvæmt heimildum DV
stafar 204 milljóna mismunur frá
fyrri áætlun upp á 191 milljón
króna í tekjuafgang sem varð 13
milljón króna halli ekki síst af því
að lagðir voru meiri peningar í
einsetningu grunnskólanna sem
átti að vera lokið árið 2003 en verð-
ur lokið haustið 2002. Enn fremur
að farið verður í ýmsar viðhalds-
framkvæmdir sem eru dýrar, með-
al annars við íþróttahúsið við
Vesturgötu, og 30 milljónir eru
lagðar í holræsamálin.
-DVÓ