Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2001, Síða 24
4 36
Tilvera
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2001
LÍX í' 0i Þorláksmessustemn-
DV
■ FJANPMAÐUR FOLKSINS I kvöid
sýnir Borgarleikhúsið leikritiö Fjand-
maöur fólksins eftir Henrik Ibsen.
Leikritiö hefur fengið góöar viðtökur
áhorfenda en sýnt er á stóra sviðinu
og hefst sýningin kl. 20.
Náungakærleikur í verki dv-myndir einar j.
Þessir krakkar gleymdu ekki þeim sem eiga um sárt að binda á jólunum
og létu nokkrar krónur í söfnunarbauk Hjálpræöishersins.
Bíó
■ HARRY POTTER I RAFEIND Kvik
myndahús Rafelndar, Egiisstöðum,
sýnir stórmyndina Harry Potter kl.
17 og 20.
■ MON ONCLE Þessi fyrsta litmynd
Tati hlaut óskarinn sem besta er-
lenda myndin 1959 og dómnefndar-
verðlaun í Cannes árið 1959. í
henni koma saman öll helstu höf-
undareinkenni Tati. Tati lagði lítið
upp úr hefðbundnum söguþræði eða
samtölum heldur vann hann fyrst og
fremst meö hið sjónræna. Myndin
Mon oncle verður sýnd í Háskóla-
bíói kl. 22.30 í kvöld.
Sýningar
■ HÚSGÓGN í NÝJUM BÚNINGI A
Kaffitári, kaffihúsi í versluninni
Sautján, stendur yfir sýning Kator á
fantasfuhúsgögnum og munum eftir
Katý Hafsteins. Verkin eru stólar,
klæddir skinnum og bólstraöir
speglar. Katý gefur gömlum
húsgögnum nytt Iff með því aö láta
hugmyndaflugiö ráöa ferðinni.
■ FÓLK OG FURÐUR Á CAFÉ
PRESTO Sara Vilbergsdóttir sýnir
um þessar mundir á Café Presto.
Þar eru um tuttugu málverk af fólki
og furðum, dýrum og dóti. Allt er
þetta statt f óræðu andrúmslofti.
Myndirnar eru allar unnar á þessu
ári, ýmist með akrýl eða olfulitum.
Café Presto er til húsa að
Hlíðarsmára 15 í Kópavogi.
■ NÝJAR MYNPIR OG
GAFNAUOS Pétur Gautur er meö
jólasýningu á nýjum mynd.um á
vinnustofu sinni, Gallerý Örnólfur,
sem er á horni Snorrabrautar og
Njálsgötu. Þar er jafnframt kynning á
hinum rómaða danska IQ lampa
eftir arkitektana Steffan og Kristínu
Brynju. Sá hefur hlotiö nafniö
Gáfnaljósiö.
■ ÍSLENSK MYNPUST Á 20. ÖLD
Sýningin Islensk myndllst á 20 öld
stendur yfir í Ustasafni íslands. Þar
eru verk í eigu safnsins eftir 38
íslenska listamenn. Sýningin veitir
gestum gott tækifæri til að fá yfirlit
yfir þaö helsta í íslenskri myndlist
um hundrað ára skeið.
Mikill mannfjöldi lagði leið sína í
miðbæinn að kvöldi Þorláksmessu í
ár eins og endranær. Nokkrir regn-
dropar féllu úr lofti en að öðru leyti
var veður ágætt miðað við árstíma.
Sumir hlupu stressaðir á milli
verslana í leit að síðustu jólagjöfun-
um á meðan aðrir röltu í hægðum
sínum um göturnar og höfðu ekki
áhyggjur af einu né neinu. Mikil
mannþröng varð ofarlega í Banka-
strætinu um tima þegar tenórarnir
þrir héldu þar tónleika fyrir gesti og
gangandi. Þá voru árlegir Þorláks-
messutónleikar Bubba Morthens á
skemmtistaðnum NASA ekki síður
vel sóttir en þeir eru fastur liður í
jólaundirbúningi margra. Fjöldi
annarra tónlistarmanna skemmti
vegfarendum með söng og hljóð-
færaslætti á götum úti og nokkrir
rauðklæddir jólasveinar, ættaðir úr
Esjunni, sýndu sig og sáu aðra.
Ljósmyndari DV brá sér í bæinn
með regnhlíf í annarri hendi og
myndavél í hinni og festi stemning-
una á filmu.
■ JOLABALL TIL STYRKTAR
MÆÐRASTYRKSNEFND Jólaball
Thule Musik, í samvinnu viö Mysu-
félag MR verður haldiö á Gauki á
Stóng í kvöld. Miðaverð er 1000
krónur og rennur allur ágóði til
Mæórastyrksnefndar. Einnig verða
jólaplötur Thule Musik seldar á
staönum og 1000 krónur af hverri
seldri plötu munu renna til Mæör-
anna. Fram koma:Funerals, Exos,
Trabant, Sofandi og Worm is Green.
Leikhús
Svona var
fjörðurinn
Ásgeir Long er með sýningu á
ljósmyndum í Hafnarborg,
menningar- og listamiðstöð
Hafnarfjarðar. Myndirnar eru
hátt á þriðja hundrað talsins,
allar svarthvítar og þær elstu frá
1943-5 Þær eru góð heimild um
horfinn tíma, sýna fólk í amstri
dagsins við að afla sér viðurværis
og reyndar lika skemmta sér.
Krár
Bubbi í jólaskapi
Góöur rómur var geröur aö árlegum Þorláksmessutónleikum Bubba
Morthens á skemmtistaönum NASA.
Friðarljós
Margir tóku þátt í friöargöngu niöur Laugaveginn sem
nokkrar friöarhreyfingar stóðu að.
Bíógagnrýni
jiiggf§§f§gfi
Laugarásbíó/Smárabíó/Stjörnubíó - Hringadróttinssaga-Föruneyti hringsins: ★ ★ ★ ★
Ævintýrin verða ekki betri
Hringadróttinssaga er eitt mesta
ævintýraskáldverk sem skrifað hef-
ur verið og Hringadróttinssaga -
Föruneyti hringsins (Lord of the
Rings - The Fellowship of the Ring)
er ein besta ævintýrakvikmynd sem
gerð hefur verið og ef þeir tveir hlut-
ar sem eftir er að sýna eru í sama
gæðaflokki og fyrsti hlutinn þá er
hér um að ræða eitt mesta og besta
kvikmyndaverk sögunnar. Leikstjóri
Hringadróttinssögu, Peter Jackson,
sagði í viðtali að þegar hann var
sextán ára hefði hann lesið Hringa-
dróttinssögu og hugsað með sér að
einhver hlyti að gera kvikmynd eftir
sögunni. Sú kvikmynd var ekki gerð
svo að hann ákvað sjálfur að reyna
við þetta mikla skáldverk sem marg-
ir kollegar hans hafa örugglega hugs-
að til en ekki lagt út í að gera.
Kannski var rétti tíminn ekki kom-
inn fyrr en nú. í Hringadróttinssögu
er sköpuð sérstök veröld, Miðgarður,
veröld sem ekki er hægt að búa til
módel af nema með þeirri töluvu-
tækni sem kvikmyndirnar búa yfir í
dag. Þessi tækni kemur að góðum
notum fyrir Peter Jackson og lið
hans og útkoman er kvikmynd sem
fer örugglega nálægt þeim hugsun-
um sem J.R. Tolkien skráði meðan
okkar eigin veröld var nánast reiðu-
búin að tortíma sér í síðari heims-
styrjöldinni.
Hringadróttinssaga á sér mikinn
og stóran aðdáendahóp sem gjör-
þekkir söguna og persónumar og
Peter Jackson hefur ekki svikið
þennan hóp. Segja má að myndin
fari eins nærri sögunni og mögulegt
er. Þetta er ein lengsta skáldsaga
sem samin var á síðustu öld og það
Gandálfur og Fróói
Lykilþersónur Hringadróttinssögu sem lan McKellan og Elijah Wood leika.
sem hefur verið sleppt skiptir í raun
ekki máli fyrir framvinduna í mynd-
inni. AUt smellur saman, persónur
eru trúverðugar, dvergar og jötnar
sannfærandi og tilkomumikið lands-
lag Nýja-Sjálands ásamt tölvugerðu
viðbótarlandslagi smellpassar inn í
ímyndina.
Myndin er mjög skilmerkileg í
framsetningu sinni á atburða-
rásinni. Við erum með byrjun og
endi, ef endi skyldi kalla, og ekkert
verið að fara fram og aftur i tíma
nema þegar rifjaðir eru upp atburðir
sem gerðust f fymdinni. Lykilper-
sónur eru ekki margar. Þar eru
helstar Gandálfur (Ian McKellan),
hinn vitri öldungur sem gerir sér
grein fyrir mikilvægi hringsins og
hringberinn Fróði (Eliajh Wood), af
flokki Hobbita, oft kallaður stuttling-
ur. Þeir hefja ferðina með hringinn
sem verður að farga eigi að ríkja
friður í Miðgarði. Gallinn er að það
er aðeins einn staður í Miðgarði þar
sem hægt er að farga honum og
þangað leggur foruneyti hringsins
leið sína með öllum þeim hættum
sem fylgir. Þetta er ekki auðvelt ferð.
Máttug öfl vilja ekki að hringnum sé
fargað og það er mörgum öðrum
freisting að halda í hringinn, meðal
annars hinum aldna frænda Fróða,
Bilbó (Ian Holm), sem hefur verið
gæslumaður hringsins í sextiu ár.
í fyrri hluta myndarinnar erum
við á stuttri ferð með Fróða og þrem-
ur vinum hans með hringinn sem
Fróði vill losna við sem fyrst. í
seinni hlutanum er það orðið ljóst að
Hilmar
Karlsson
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir.
það er aðeins Fróði sem getur fargað
hringnum og þá verður til fóruneyti
hringsins sem er níu manns. Það er
sami fjöldi og hinir ódauðlegu svörtu
riddarar en á verkefnaskrá þeirra er
aðeins eitt verkefni, ná hringnum af
Fróða. Föruneytið veður eld og
brennistein, berst við tröll og forynj-
ur á leið sinni með hringinn. Ferðin
er þó aðeins rétt hafin þegar fyrsti
hlutinn endar.
Það er sama hvar komið er niður
í þessa miklu ævintýramynd, allt er
eins og það á að vera. Sagan er gef-
andi ævintýri um baráttu ills gegn
hinu góða. Persónur eru hver
annarri áhugaverðari og það er
meira starf fyrir leikarana að ná tök-
um á sinum persónum heldur en að
sýna einhvern afburðaleik. Má þar
sem dæmi nefna Liv Tyler og Cate
Blanchett sem leika einu kvenper-
sónurnar sem skipta máii. Þær eiga
að vera dulúðugar og töfrandi og
þannig eru þær án þess að sýna af-
burðaleik. Hobbitamir eru í sögunni
smávaxnir og ekkert sérlega fríðir
og þannig eru þeir í myndinni. Og
álfar, dvergar og tröll eru eins og við
hugsum okkur slikar verur. Hringa-
dróttinssaga er fyrst og fremst ævin-
týri þar sem einum manni tókst að
búa tO veröld við hliðina á okkar
veröld. Peter Jackson fetar dyggilega
í fótspor Tolkiens og endurskapar
veröld hans af mikilli snilld.
Lelkstjóri: Peter Jackson. Handrtt: Frances Walsh,
Rlippa Boyens og Peter Jackson. Kvikmyndataka:
Andrew Lesnie. Tónlist: Howard Shore. Aóalleik-
arar Elijah Wood, lan McKellan, LivTyler, Viggo
Mortensem, lan Holm og Cate Blanchett.
ing í Reykjavík
- mikill mannfjöldi lagði leið sína í miðborgina