Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2002, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2002
I>V
Fréttir
Almennur fundur um málefni Brekkuskóla á Akureyri:
Viljum sjá endurbæturnar
á framkvæmdaáætlun
- segir Kristín Sigursveinsdóttir, formaður foreldrafélags skólans
„Við vitum ekki hvort við fáum á
þessum fundi einhver loforð um úr-
bætur en við munum fá einhverjar
skýringar á því hvernig málið
stendur og hvað menn hyggjast
gera. En við erum auðvitað að von-
ast til og viljum sjá endurbætumar
inni á framkvæmdaáætlun bæjar-
ins,“ segir Kristín Sigursveinsdótt-
ir, formaður Foreldrafélags Brekku-
skóla á Akureyri, en boðað hefur
verið til almenns fundar foreldra,
skólanefndar og bæjarstjórnar á Ak-
ureyri um málefni Brekkuskóla, og
þá sérstaklega um húsnæðismál
skólans. Fundurinn verður haldinn
nk. þriðjudagskvöld, kl. 20, í sal efra
skólahússins og eru foreldrar barna
í skólanum sérstaklega hvattir til að
sækja fundinn.
Foreldraráð og stjórn Foreldrafé-
lags Brekkuskóla sendu bréf til
skólanefndar Akureyrarbæjar
vegna húsnæðismála skólans seint
á síðasta ári en viðhaldi á skólahús-
næðinu er mjög ábótavant og fyrir-
sjáanlegt að fara þarf í hundraða
milljóna króna viðhaldsfram-
kvæmdir. 1 bréfi foreldrafélagsins
var reifað ástand húsnæðis skólans
og að foreldrar vildu fara að sjá ein-
hverjar úrbætur. Óskað var þátt-
töku skólanefndar í almennum
fundi með foreldrum barna í
Brekkuskóla þar sem nefndin
kynnti foreldrum áform sín og ann-
arra yfirvalda bæjarins um úrbætur
í húsnæðismálum skólans, hlustaði
á viðhorf foreldra og ræddi við þá
um mögulegar leiðir til að bæta að-
Skagafjarðarveitur verða stofnaðar:
Heita og kalda vatniö
í einu fyrirtæki
Veitustjórn og sveitarstjóm
Skagafjarðar hafa samþykkt að sam-
eina Hitaveitu Skagafjarðar og
Vatnsveitu Skagafjarðar í eitt öflugt
orkufyrirtæki miðað við síðustu
áramót. Stofnað verður nýtt fyrir-
tæki sem heiti Skagafjaröarveitur.
Eigið fé fyrirtækisins verði tun 40%
af heildareignum.
í greinargerð segir að helsta
markmiðið með hinu nýja fyrirtæki
sé að hagræða í rekstri, auka skil-
virkni og einfalda stjórnun. Áform
veitustjórnar eru að stofna síðar
sjálfstætt hlutafélag um veitufyrir-
tækið. Af stofhun þess verður þó
ekki fyrr en nauðsynlegar laga-
breytingar hafa verið gerðar á Al-
þingi sem heimila að vatnsveitur
verði reknar í slíku hlutafélagi, en
von er á slíkri lagabreytingu á Al-
þingi að vori.
Samhliða sameiningu veitnanna í
eitt fyrirtæki samþykkir veitustjórn
að lækka eigið fé veitnanna um 200
milljónir króna í samræmi við
framlagða útreikninga.
Gert er ráð fyrir að sjóðstreymi
skili um 49 milljónum króna til
greiðslu afborgana, greiðslu arðs
eða afgjalds og framkvæmda. Að því
er stefnt að lengja langtimaskuldir
fyrirtækisins til a.m.k. 15 til 20 ára
þannig að greiðslubyrði langtíma-
lána verði ekki hærri en 13-19 millj-
búnað í skólanum. Afrit bréfsins
var sent til allra bæjarfulltrúa.
Einnig mættu fulltrúar úr foreldra-
ráði og stjórn foreldrafélagsins í
viðtalstíma bæjarfulltrúa til að
hnykkja á því. Málið hefur fengið
umfjöllun í skólanefnd og bæjar-
stjóm og má segja að fundurinn nk.
þriðjudagskvöld komi í framhaldi af
þeiri umfjöllun.
Kristín segir það valda vonbrigð-
um að endurbætur á húsnæði
Brekkuskóla séu ekki á fram-
kvæmdaáætlun bæjarins. „Það hef-
ur ekki verið gerð nein heildaráætl-
un og það liggur í rauninni ekki fyr-
ir hvað á að gera. Það hafa verið
settar á fót nefndir og þær hafa skil-
að einhverju en síðan gerist ekkert
í framhaldinu. Það er ekki einu
sinni búið að ákveða hvort á að
leggja af eldra húsið og byggja við
það yngra eða hvort leggja eigi þau
bæði niður og byggja nýtt. Það vant-
ar ákvarðanir og við viljum fá þær,“
segir Kristín. -gk
Ólafsfjörður:
Fyrirtæki
stofnað um
hitaveituna
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar hefur
samþykkt að stofna fyrirtækið Hita-
veita Ólafsfjarðar ehf. en fyrirtækið
verður alfarið í eigu bæjarins.
Hitaveitan í Ólafsfirði hefur heyrt
beint undir bæjarsjóð og tekjur henn-
ar runnið beint í sjóðinn. Nú verður
sú breyting að Hitaveita Ólafsfjarðar
ehf. verður sjálfstætt fyrirtæki innan
bæjarins og hagnaður af rekstri þess
fer beint til greiðslu skulda.
Bæði Ásgeir Logi Ásgeirsson bæjar-
stjóri og Guðbjöm Amgrímsson, oddviti
minnihlutans í bæjarstjóm, sögðust
binda miklar vonir við nýja fyrirtækið.
Ásgeir Logi segir að tiikoma þess sé
skref í þá átt að ná utan um „skulda-
pakka“ bæjarins og Guðbjörn segir
stofnun Hitaveitunnar einu leiðina til
að greiða niður skuldir bæjarins. -gk
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Boraö eftir heitu
Hér er nýleg mynd frá starfsemi
hitaveitunnar - boraö eftir heitu
vatni viö Bræöraá i Hrolleifsdal.
ónir króna á ári og að möguleikar
fyrirtækisins til framkvæmda verði
a.m.k. 25-30 milljónir króna á ári að
jafnaði. Jafnframt er að því stefnt
að fyrirtækið geti greitt arð sem
nemur allt að 7% af eiginfjárreikn-
ingum fyrirtækisins. Ekki verði
greitt afgjald á árinu 2002. -ÞÁ
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík
Háskóli íslands, breyting á deiliskipulagi svæðis austan Oddagötu, merkt A-F á
deiliskipulagsuppdrætti.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, meö síðari
breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Háskóla íslands. Svæðið sem um ræðir er merkt A-F á deiliskipulagsuppdrætti og
afmarkast af Sturlugötu til norðurs, lóð íslenskrar Erfðagreiningar til austurs,
Eggertsgötu til suðurs og Oddagötu til vesturs.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að svæðið verði sérstök lóð þar sem heimilt verði að reisa
svokallað þekkingarþorp. Með því er átt við þyrpingu fyrirtækja og stofnana á sviði
rannsókna, vísinda og þekkingar sem hag hafa af staðsetningu á háskólasvæðinu og
leggja háskólastarfseminni lið með nálægð sinni ásamt verslunar- og
þjónustustarfsemi í smáum stíl til þjónustu við starfsemina á svæðinu.
Hæðir húsa á svæðinu verða, skv. tillögunni, að jafnaði 3-4 í stað 1-3 áður. Hluti
bygginga í miðju svæðisins geta þó orðið allt að 10 hæðir. Byggingarmagn svæðisins
í heild verður um 50.000m2 fyrir utan kjallara og bílageymslur í stað 30.000rrT áður.
Bílastæðakrafa skv. tillögunni er 1 bílastæði á hverja 50m2 bygginga og er það í
samræmi við gildandi skipulag. Aðkomur að lóðinni verða frá Sæmundargötu,
Sturlugötu og Eggertsgötu en gert er ráð fyrir að Njarðargatan fái aukið vægi sem
aðkoma að háskólasvæðinu með breytingum á tengingu hennar við Hringbraut.
Tillagan liggur frammi í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1.
hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 11. janúar til 8. febrúar 2002. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 22.
febrúar 2002. Eru hagsmunaaðilar hvattir til að kynna sér tillöguna.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 11. janúar 2002.
Borgarskipulag Reykjavíkur
i
Það fylgir þvi góð tilfinning að eiga von á góðum fréttum.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fáöu þér miöa í 800 6611 eöa á hhi.is