Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 Fréttir DV Mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar: Reykjavíkurborg hefur dregiö lappirnar - segir adstoðarmaöur samgönguráðherra Aðstoðarmað- ur samgönguráð- herra segir Reykjavíkurborg draga lappirnar í skipulagsmálum. Það hafi m.a. áhrif á aö ekki er farið í mikilvæg- ar lagfæringar á hættulegum slysastöðum í borginni. Forgangsröðun i vegagerð hér á landi hefur mjög verið í umræðunni að undanförnu. í síðustu viku gagn- rýndi Bjöm Mikaelsson, yfirlög- regluþjónn á Sauðárkróki, þetta harðlega og sagði að sér blöskraði gerð dýrra jaröganga til Siglufjarð- ar á meðan enn væru hættulegir flöskuhálsar og einbreiðar brýr á Vantar fjármagn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri vísar því á bug að Reykjavíkur- borg dragi lappimar varðandi mislæg gatnamót á mótum Kringlumýrar- brautar og Miklu- brautar. „Það er alveg ljóst að framlög til vegamála hvort heldur er í Reykja- vík eða á höfuð- borgarsvæðinu hafa verið allt of lág. Það eru mörg brýn verkefhi á þessu svæði sem bíða og hafa beðið vegna þess að ekki hafa ver- ið til fjármunir til framkvæmda. Hvað varðar gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, þá hafa menn verið að skoða með hvaða hætti væri hægt að leysa þau mál án þess að þar yrðu sett niður viðamikil gatnamót eins og eru á Reykjanesbraut-Breiðholtsbraut. Þau einfaldlega komast ekki fyrir. Út af fyr- ir sig hefur ekki verið fundin endanleg lausn á því enn. Þetta er þó komið inn i aðalskipulag. Gatnamótin eru i hönnun og menn eru að skoða það nú hvort hægt sé að hafa Miklubrautina í „plani" og grafa Kringlumýrarbrautina undir hana,“ segir borgarstjóri. -HKr. Hitt húsið: Flytur i gömlu lögreglustöðina Hitt húsið mun ílytjast í gömlu lög- reglustöðina við Pósthússtræti 3 til 5 þann 1. mars næstkomandi. Tillaga þess efnis kom frá stjóm íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og fór hún þess á leit að framkvæmdastjóra ÍTR og borgarlögmanni yrði falið að ganga til samninga við íslandspóst um leigu á Pósthússtræti 3 og hluta af Pósthússtræti 5 og var það samþykkt á borgarráðsfundi í gær. Um er að ræða tæplega fnnmtán hundruð fer- metra húsnæði og yrði það afhent 1. febrúar næstkomandi. Hitt húsið var formlega opnað árið 1991 og hefur undanfarin ár verið með starfsemi sína í Geysishúsinu við Aðalstræti. Með flutningunum núna gefst Hinu húsinu möguleiki til að festa sig í sessi i miðborg Reykja- víkur auk þess sem færi gefst á því að auka tækifæri ungs fólks á jákvæðu starfi í miðbænum. Þá felur það einnig í sér tækifæri til stefnumótun- ar til lengri tíma því leigusamningur- inn nær til tíu ára. Þannig er hægt að byggja upp starfsemina með mark- vissum hætti til framtíðar. -MA Inglbjörg Sólrún Gísladóttir. þjóðvegi eitt. Þá hefur einnig komiö fram að hættulegustu gatnamót landsins, á Kringlumýrarbraut og Miklubraut, bíða enn úrlausnar eft- ir margra ára umræðu. DV hafði samband við samgöngu- ráðuneytið vegna málsins, en þar varð Jakob Falur Garðarsson, að- stoöarmaður ráðherra, fyrir svörum þar sem ráðherra er í fríi erlendis. „Þau verkefni sem nú er verið að gagnrýna að séu ekki komin af stað eru einfaldlega ekki í forgangi hjá Reykjavíkurborg í dag. Yfirvöld í höfuðborginni hafa hreinlega ekki leyft þeim verkefnum að vera með á forgangsröðunarlista. Af þeim ástæðum er í raun og veru lítið hægt að gera,“ segir Jakob Falur Garðarsson. Það sé fyrst núna sem umrædd gatnamót eru komin í aðal- skipulag sem þó hefur ekki enn ver- ið samþykkt. „Það liggur nokkuð ljóst fyrir í umræðu um mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar, að sú framkvæmd gæti ver- ið komin mun lengra en raunin er í dag. Ástæðan er afstaða skipulags- yfirvalda i borginni og sú staðreynd að Reykjavíkurborg hefur ekki skipulagt mislæg gatnamót á þess- um stað. Við framkvæmum að sjálf- sögðu ekkert nema í fullri sam- vinnu við skipulagsyfirvöld í við- komandi sveitarfélagi. Meira að segja hefur verið látið í veðri vaka af hálfu Reykjavíkur- borgar, að það væri svo mikil sjón- ræn mengun að mislægum gatna- mótum á þessum stað. Þess vegna væri verið að leita annarra leiöa. Reykjavíkurborg hefur því að mínu mati dregið lappirnar í þessu máli. Samgönguyfirvöld í landinu væru að sjálfsögðu búin að taka stærri skref hvað varðar þessa fram- kvæmd ef borgin hefði fengist fyrr að því verkefni. Þá er rétt að minna á þá stað- reynd að oft á tíðum hefur því verið haldiö fram af yfirmönnum borgar- innar, að samgönguráðherra Sjálf- stæðisílokksins í gegnum tíðina hafi haft horn í síðu framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Ég vil leyfa mér að vísa því sérstaklega á bug. Á undanfórnum árum hafa fjárveit- ingar til framkvæmda almennt ver- ið að stóraukast. Þaö hefur ekki síst átt við höfuðborgarsvæðiö. Einnig vil ég leyfa mér að nefna, vegna um- ræðunnar um einbreiðar brýr, að það er áætlun í gangi um tvöföldun brúa vítt og breitt um landið. Þar ræður ekki síst umferðarþungi og aðstæður á vegum. Þá er ástæða til að nefna að fjölmörg slys á þjóðveg- unum bera vitni um hversu nauð- synlegt það er, almennt, að byggja upp vegakerfi landsins þar sem víða eru slysagildrur ekki siður en í um- ferðarþunganum hér á höfuðborgar- svæðinu," segir Jakob Falur Garð- arsson. -HKr. DV-MYND BRINK Áframeldi þorsks fékk Nýsköpunarverölaunin Tveir nemendur viö sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri fengu í gær Nýsköpunarverölaun forseta ísiands fyrir verk- efni sem þeir kalla Áframeldi þorsks. Nemendurnir sem um ræöir heita Björn. Gíslason og Bergur Guömundsson og er verkefni þeirra fyrst og fremst ætiað sem grunnupplýsingaöflun fyrir áframeldi á þorski og veiöar á fiski til eldis. Niö- urstaöa þess gefur til kynna aö þorskeldi geti skilaö umtalsveröum hagnaöi og ástæöa sé því til bjartsýni. Þaö var forseti íslands sem afhenti verölaunin á Bessastööum í gær. Tillögur um loðnukvótann tilbúnar: 1,2 milljónir tonna - spurning um tíðarfar hvort þetta næst, segir útgerðarmaður „Þetta eru finar fréttir þótt ýmsar vísbendingar hafi verið uppi um það að undanförnu að það gæti orð- ið bjart yfir þessari vertíð,“ segir Sverrir Leósson, útgerðarmaður á Akureyri, um tillögur Hafrann- sóknastofnunar að loðnukvóta sem birtar voru í gær. Hafrannsókna- stofnun leggur til að heildarkvótinn á vertíðinni verði 1,2 milljónir tonna og mun sjávarútvegsráðherra að öllum líkindum staðfesta þá tillögu. Á sumar- og haustvertíð veiddust tæplega 150 þúsund tonn og ríflega 60 þúsund tonn hafa veiðst á vetrarvertíðinni. Það magn sem er eftir er því tæplega milljón tonn samkvæmt tillögum Hafró og má reikna með að tíminn til að veiða það magn sé um tveir mán- uðir eða ríflega það. Er ljóst að tíðarfar þarf að vera mjög hagstætt eigi það að takast og langvarandi bræla má ekki setja verulegt strik í reikning- inn. „Já, þetta veltur allt á tíðarfar- inu, flotinn er orðinn geysilega öfl- ugur og afkastamikill og ef tíðarfar- ið verður gott náum við að veiða þetta," segir Sverrir. Verðið fyrir loðnuna er mun betra en fyrir ári. Þá var verðið til útgerðanna um 4.500 krónur fyrir tonnið en verðið í dag er um 9.500 krónur. Það verð fer þó lækkandi til loka vertíðarinnar eins og venjan er. Hásetahluturinn er að sama skapi mun hærri nú en í fyrra. „Þetta er allt miklu betra núna og allt sem segir manni að vertíðin núna verði mun betri en sú síð- asta,“ segir Sverrir. -gk Sverrir Leósson Verðhjöðnun: Suzuki-bílar lækka í veröi Suzuki-bílar lækkuðu verð bíla sinna í gær um 1-2% og urðu þar með fyrst bílaumboða til að sigla i kjölfar verslana sem tilkynnt hafa um lækkanir á vöruverði síðustu daga. Úlfar Hinriksson, framkvæmda- stjóri Suzuki-bíla, segir að þetta þýði um 20-50 þúsund króna lækk- un á bíl eftir gerðum. „Þetta er ákveðið tillegg til þess sem gert hef- ur verið hjá byggingarvöru- og mat- vöruverslunum. Við erum að leggja okkar lóð á vogarskálina. Hins veg- ar hefur verð á bílum hjá okkur engan veginn fylgt gengisþróuninni. Við höfum ekki hækkað bílana í takt við þá gengisfellingu sem varð á siðasta ári. Sem dæmi þá hefur að- alsölubíll okkar, Grand Vitara, sem kom fyrst á markað um mitt ár 1998, aðeins hækkað innan við 12%. Krónan hefur hins vegar lækkað ná- lægt 25%.“ Úlfar segir að mismuninn hafi umboðið og framleiðandinn þurft að taka á sig. Hann segist ekki sjá neinar stórbreytingar í spilunum í sölu nýrra bíla eftir mikinn sam- drátt á síðasta ári. „Þessi niður- sveifla hefur hins vegar verið allt of mikil og það hlýtur að koma að því að salan aukist aftur. Salan í fyrra var langt undir því sem þarf að vera til að endurnýja bílaflotann." -HKr. r .ÆL '*W "4 Vílja þjóðaratkvæöi Vinstri grænir kynntu í gær tillögu sína um þjóöaratkvæöagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun. Vinstri grænir: Þjóðin ráði virkjun eystra Vinstri grænir hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um Kárahnjúkavirkjun og framtíð há- lendisins norðan Vatnajökuls. Kolbrún Halldórsdóttir, 1. flutn- ingsmaður, segir að lagt sé til að kjósendur fái að velja á milli tveggja kosta. Annars vegar nú- verandi áforma um Kárahnjúka- virkjun og hins vegar hvort fresta beri ákvörðun um framtíðarnýt- ingu svæðisins uns afstaða verður tekin til stofnunar þjóðgarðs með einu stærsta ósnortna víðerni Evrópu. Þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram jafnhliða sveitarstjórn- arkosningunum 25. maí nk. „Við teljum að menn hafi rasað mjög um ráð fram varðandi Kára- hnjúkavirkjun," segir Kolbrún. Hún telur að þjóðaratkvæði um slíkt stórmál eigi vel við og al- mennt sé umræðan um lýðræðið of lítil hér á landi. Þó hafi t.d. um- ræðan um flugvallarmálið í Reykjavík verið dæmi um virkt lýðræði borgaranna. -BÞ Hrifsaði peninga úr búðarkassa Ungur maður rændi peningum úr söluturni í austurhluta Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Maðurinn snaraðist inn í sölu- turninn og vippaði sér yfir af- greiðsluborðið. Hann hrifsaði síðan til sín peninga úr búðarkassanum og hljóp á brott að því loknu. Af- greiðslustúlka var ein í versluninni og kom engum vörnum við. Um ungan mann er að ræða og gerði hann enga tilraun til að dyljast, t.d. með því að hylja andlit sitt. Manns- ins er leitað. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.