Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Side 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 DV Kúbu-fangarnir fá mannúðlega meðferð - segir Donald Rumsfeld, varnarmálaráöherra Bandaríkjanna Á vakt viö fangabúriö á Kúbu Bandarískur gæsluliði á verði við fangabúrið í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu þar sem 158 talíbanar og al-Qaeda-liðar eru í gæslu og bíða örlaga sinna. REUTER-MYND Á verði Öryggisvörður við aðalstöðvar Enron í miðborg Houston í gær. Eyðing skjala hjá Enron rannsökuð Útsendarar bandarísku alríkislög- reglunnar FBI og dómsmálaráðu- neytisins íjölmenntu í höfuðstöðvar gjaldþrota orkusölufyrirtækisins Enron í Houston í gær til að safna gögnum um eyðingu skjala. Á sama tíma var nefnd Banda- ríkjaþings að búa sig undir að kanna sannleiksgildi staðhæflnga um ólöglegt athæfi af hálfu endur- skoðunarfyrirtækisins Arthur And- ersen sem var endurskoðandi En- ron þar til í síðustu viku. Forráðamenn Enron fóru sjálfir fram á að fullyrðingar um eyðingu skjala yrðu rannsakaðar. Fyrrum starfsmaður Enron sagði í vikunni að eyðing skjala hefði hafist í októ- ber og henni verið haldið áfram til 14. janúar að minnsta kosti. Bush forseti varði í gær gerðir stjórnar sinnar í tengslum við hrun Enron og lofaði aðgerðum til að vernda betur hagsmuni fjárfesta eins og tengdamóður sinnar sem tapaði þúsundum dollara á hluta- bréfaeign sinni í Enron. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, mótmælti í gær orðrómi um illa meðferð á Afganistan- fóngunum sem í haldi eru í Guant- anamo-herstöðinni á Kúbu og fullyrti að þeir fengju mannúðlega meðferð í samræmi við alþjóðleg lög og reglur. Þetta kom fram á blaðamannafundi í gær eftir að fulltrúar Evrópusam- bandslandanna og talsmenn mann- réttindahópa höfðu gagnrýnt neitun bandarískra stjórnvalda um að skil- greina fangana sem stríðsfanga og þar með veikja réttarstöðu þeirra. Fulltrúar Evrópusambandsland- anna töldu einnig að þessi afstaða Bandaríkjamanna gæti veikt sam- stöðu alþjóðasamfélagsins til barátt- unnar gegn hryðjuverkaöílunum í heiminum, en alls 158 handteknir talí- banar og al-Qaeda-liðar eru nú geymd- ir í útibúrum og bíða örlaga sinna í herstöðinni á Kúbu. „Ég hef ekki fundið eina einustu vísbendingu um að fangamir hljóti ekki mannúðlega og sanngjarna með- ferð,“ sagði Rumsfeld og bætti við að allt tal um annað undanfama þrjá daga ætti ekki við rök að styðjast. Myndbandsupptaka, sem nýlega var sýnd á sjónvarpsstöðum um víða veröld og sýndi fangana hlekkjaða í búrum með bundið fyrir vitin, varð til þess að margir fylltust efasemdum um réttmæta meðferð fanganna og varð gagnrýnin hvað hörðust frá þýska og breska þinginu. „Það er furðulegt hvernig stjórnmálamenn í um 5000 mílna íjarlægð frá Kúbu geta gangrýnt okkur án þess að hafa séð aðstæður með eigin augum. Fólk verð- ur að gera sér grein fyrir að þarna er um að ræða hættulega fanga og eng- inn þeirra hefur verið beittur harð- ræð á nokkurn hátt. Einn þeirra hef- ur haft í hótunum um að drepa Bandaríkjamenn og annar beit banda- rískan gæslumann," sagði Rumsfeld. Fulltrúar Rauða krossins hafa þeg- ar skoðað aðstæður á Kúbu og ræddu þeir auk þess við tuttugu fanganna án afskipta gæslumanna. Að sögn Urs Boeglis, talsmanns hópsins, fengu þeir frjálsan aðgang að því sem þeir vildu sjá af aðstöðunni í fangabúðunum. „Við bentum á það sem betur mætti fara,“ sagði Boegli en neitaði aö greina frá því hvað um var að ræða. 20 geisladiskar með Regínu og tveir bíómiðar ó Regínu sem sýnd er í Hóskólabíói. Aron Austmann, nr. 16377 Oaníel Á. Gautason, nr. 9361 Kolbrún E. Haraldsdóttir, nr. 03247 Ósk Jóhannesdóttir, nr. 16406 Höröur Helfiason. nr. 15019 Svava L. Kristjánsdóttir, nr. 18487 Lilia D. Heiðarsdóttir, nr. 12972 Kristrún Pétursdóttir. nr. 18694 Guðión A. Einarsson, nr. 15959 Gísli R. Einarsson, nr. 12892 Anna M. porsteinsdóttir, nr. 14348 (sabeda Ó. Gunnarsdóttir, nr. 06144 (ris Anna Níelsdóttir, nr. 18070 Hrafnhildur E. Guömundsdótfir, nr. 8695 Einar Siöurösson, nr. 6727 Gíeia Snorradóttir, nr. 15488 Sandra Ó. Uikforsdótfir, nr. 15390 Uera Júlíusdóttir, nr. 18027 íris B. Granf, nr. 15970 * (ða H. Hauksdóttir, nr. 18480 Krakkaklúbbur DU óskar vinnineshöfum til hamineju. Uinninearnir verða sendir í pósfi næstu daea. Þökkum Þáttfökuna. Kveðía, Tífíri o& Halldóra REUTER-MYND Loftvarnabyssu komiö fyrir Pakistanskir hermenn taka loftvarnabyssu niður úr járnbrautarlest sem flutti hana til Sukkur sem er um 500 kílómetra austur af borginni Karachi. Vaxandi spenna er í samskiptum Pakistans og Indlands í kjölfar skotárásar á bandaríska menningarmiðstöð i Kaikútta á Indlandi í gær. Samskipti Indlands og Pakistans: Árás eykur spennu Árás sem gerð var á bandarísku menningarmiðstöðina í Kalkútta á Indlandi hefur aukið spennuna milli Indverja og Pakistana. Löndin tvö hafa sent um eina milljón hermanna að landamærun- um í kjölfar mannskæðrar sjálfs- morðsárásar á indverska þinghúsið í Nýju-Delhi í síðasta mánuði. Ind- verjar kenna aðskilnaðarsinnum frá Kasmír, sem hafa aðsetur í Pakistan, um tilræðið. Þá segja ind- versk yfirvöld að helsta leyniþjón- usta Pakistans gæti tengst tilræðinu í Kalkútta í gær þar sem að minnsta kosti fjórir lögregluþjónar létu lífið. Pakistönsk stjórnvöld segja aö enginn fótur sé fyrir slíkum stað- hæflngum. Innanríkisráðherra Indlands gagnrýndi Pakistana enn i gær og sagði að ekki væru nein teikn á lofti um grundvallarbreytingu á stuðn- ingi þeirra við starfsemi skæruliða í Kasmír, þótt þeir hefðu lagt til at- lögu við íslamska öfgamenn. Stuttar fréttir Páfi dásamar Netið Jóhannes Páll páfi sagði í gær að Netið væri dásamlegt tæki. Engu að síður þyrfti að setja um það ein- hverjar reglur til að koma í veg fyrir að það yfirfylltist af ósóma. Páfi sagði að nota ætti Netið til að útbreiða orð guðs og til að stuöla að friði. Stríðsherrar berjast Hersveitir hliðhollar afganska striðsherranum Rashid Dostum hafa lagt undir sig svæði í norðan- verðu Afganistan eftir átök við keppinauta sina. Mómælir illri meðferð Háttsettur ráðgjafi áströlsku rík- isstjórnarinnar í málefnum innflytj- enda hefur sagt af sér vegna harð- neskjulegrar stefnu stjórnvalda í garð flóttamanna. " ■ i ' j, 'MM Sakfelldur fyrir tilræði Dómstóll á írlandi sakfelldi í gær Colm Murphy fyrir aðild að sprengjutilræði í Omagh á Norður- írlandi árið 1998 þar sem 29 létust. Refsing verður ákveðin á fóstudag. Lindh á heimleið Bandaríski talibaninn John Walker Lindh er á leið til Bandaríkjanna þar sem réttað verður í máli hans. hann hefur verið í yfirheyrslum í 45 daga um veru sina í Afganistan. Solana varar BNA við Javier Solana, ut- anríkismálastjóri Evrópusambands- ins, hvatti í gær bandarísk stjórn- völd til að forðast að reka einhliða stefhu í alþjóðamál- um og sagði að ESB yrði að ráðast að rótum átaka í fá- tækt, jafnt sem aíleiðingum þeirra. Þráttað innan WTO Mike Moore, framkvæmdastjóri Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO), sagði í gær að þras um lyk- ilstöður gæti komið í veg fyrir að nýrri lotu viðræðna um frjálsa verslun lyki á réttum tima. Skrípaleikur í dómsal Umdeildur franskur lögmaður, Jacques Vergés, sem hefur ver- ið Slobodan Milosevic, fyrrum Júgóslavíu, til halds og trausts, sagði í gær að réttarhöldin yfir Milosevic fyrir stríðsglæpadómstóli SÞ í næsta mánuði yrði „réttarkómedía“ sem hann myndi fletta ofan af. Búa sig undir komu dáta Kráaeigendur i Zamboanga á Fil- ippseyjum og barstúlkur hlakka mjög til komu bandarískra her- manna þangað í næsta mánuði. Dát- arnir eiga að aðstoða í baráttunni við skæruliða múslíma. Bush stappar stálinu George W. Bush Bandaríkjafor- seti stappaði stálinu í andstæðinga fóstureyðinga sem minntust þess í Washington í gær að 29 ár eru liðin frá því Hæstiréttur heimilaði fóstur- eyðingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.