Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Side 23
27
-
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002
DV
Tilvera
Jeanne Moreau 74 ára
Ein frægasta og virtasta
leikkona Frakka, Jeanne
Moreau, á afmæli í dag. Hún
haföi verið ein besta sviðs-
leikkona Frakka í nokkur ár
þegar hún vakti athygli
heimsins fyrir hlutverk í tveimur kvik-
myndum Louis Mailes, Ancenseaur pour
l’échafaud (1958) og Les Amants (1959). Frá
þeim tíma varð hún kvikmyndastjarna á
alþjóðamælikvarða sem lék undir stjórn
alira helstu leikstjóra Evrópu. Á yngri
árum var hún orðuð við nokkra heims-
þekkta listamenn og á að baki tvö hjóna-
bönd og á einn son sem sem er listmálari.
Moreau er eina konan sem hefur tvisvar
verið forseti dómnefndar í Cannes.
i ymuioiim i^
&
Gildir fyrir fimmtudaginn 24. janúar
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
. Einhverjir erfiðleikar
virðast fram undan í
peningamálum. Það er
þó ekki svo alvarlegt
acTekki megi komast yfir það
með samstilltu átaki.
Rskarnir (19. febr.-20. marsl:
Þú hefur í nógu að
Isnúast og sumt af því
er alveg nýtt fyrir þig.
Þér finnst sem
hamirigjuhjólið sé farið að
snúast þér í vil.
Hrúturinn (21. mars-19. apríll:
Í. Láttu ekki slá þig út
I af laginu ef þú ert viss
um að þú sért á réttri
leið. Það koma oft
verjir sem þykjast vita
allt betur en aðrir.
Nautið f?Q. anril-20. mait:
I Sjálfstraust þitt er
með mesta móti og
þú ert einkar vel upp
V ^lagður til að taka að
þe^rfið verkefiii.
Happatölur þínar eru 7,19 og 21.
Tvíburarnir (21. maí-21. iún»:
Temdu þér meiri hátt-
' visi og þér mim fam-
ast betur. Sumir em
mjög viökvæmir fyrir
framkomu þinni og þú átt einmitt
í viðskiptmn við slíka aðila nú.
Krabblnn (22. iúní-22. iúiíl:
Gættu vel að því hvað
I þú segir, það gæti
1 verið notað gegn þér
síðar. Þú skemmtir
þér konunglega í góðra vina
hópi i kvöld.
llónið (23. iúlí- 22. ágústl:
Ef þú hyggst skrifa
nafn þitt undir eitthvað
skaltu kynna þér það
vel áður. Smáa letrið
hefur reynst mörgum skeinuhætt.
Happatölm- þínar eru 4, 8 og 13.
Mevian (23. áaúst-22. sept.h
Reyndu að komast eins
auðveldlega og þú getur
gegnum samskipti við
^ r erfiða aðila. Það getur
verið skynsamlegt að samsinna þvi
sem maður er þó ekki sammála.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
J Þú þarft að sýna
ákveðni til þess að tek-
V f ið sé mark á þér í sam-
/p bandi við vinnuna. Þú
skemmtir þér með vinum í kvöld.
Happatölur þinar eru 13, 25 og 33.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.>:
Ejölskyldulífið og
\ heimilið eiga hug
L VJiþinn allan um þessar
mundir. Einhverjar
breytingar eru á döfinni
á því sviði.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2l. des.):
.Svo virðist sem þú
rflytjir búferlmn á
næstunni og mikið
stúss verður í
kringum það. Ástin blómstrar
sem aldrei fyrr.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Þú ættir að leita ráða
hjá einhverjum sem er
betur að sér en þú í því
máh sem þú ert að fást
við. Það gerir þér mun auðveldara
fyrir og þú sérð hlutina í réttu ljósi.
Heimsmeistaraeinvígið 1 skak:
Ponomariov með
pálmann í höndunum
Ponomariov er kominn með
tveggja vinninga forskot, 3,5-1,5, í
einvíginu í Moskvu eftir sigurinn í
5. skákinni í gær. Ótrúleg tauga-
veiklun einkenndi Ivantsjúk og það
er hann sem er að tapa þessu 8
skáka heimsmeistaraeinvígi FIDE -
ekki er Ponomariov að „vinna“ það.
En útlit er fyrir að yngsti heims-
meistari sögunnar sé að birtast á
spjöldum hennar. Ponomariov er
aðeins 18 ára. Gagnrýni hefur þó
komið fram hjá mörgum, m.a.
Kasparov, að umhugsunartíminn sé
alltof lítill og það komi niður á gæð-
um taflmennskunnar - 90 mínútur á
hvorn keppanda og svo bætast við
30 sekúndur viö hvern leik. Skákin
er í lokin tefld í miklu tímahraki og
skákmenn um heim allan hrista
höfuðið yfir þessari uppákomu.
Hvítt: Ruslan Ponomariov (2727)
Svart: Vassili ívantsjúk (2717)
Spánski leikurinn.
Heimsmeistarakeppni FIDE,
Moskvu (5), 21.01. 2002
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7.
Bb3 0-0 8. h3 Bb7 9. d3 d6 10. a3
Rb8 11. Rbd2 Rbd7 12. Rfl He8
13. Rg3 c6 14. Rh2 d5 15. Df3 g6
16. Ba2 BfB 17. Bg5 h6 18. Bd2
Bg7 19. Rg4 Rxg4 20. hxg4 Rc5 21.
Hadl Hc8 22. Rfl Re6 23. Dg3 Kh7
24. Rh2 f6 25. Rf3 c5 26. Dh2 Rd4
27. Rxd4 cxd4 28. c3 dxc3 29. bxc3
dxe4 30. dxe4 De7 31. a4 bxa4 32.
Dh3 Hed8 33. DÍ3 Hc7 34. Bcl
Hcd7 35. Bbl De6 36. Hxd7 Hxd7
37. Bc2 Bc6 38. Hdl Da2 39. Hxd7
Bxd7 40. Ddl Bb5 41. Be3 Dc4 42.
Kh2 Bc6 43. Dal Bf3 44. Bbl.
Ruslan Ponomariov
Veröur hann næsti heimsmeistari?
ívantsjúk hefur byggt hér upp
vinningsstöðu og eftir 44. - Bxe4 45.
Bxe4 Dxe4 46. Kg3 Dd7 er vinnings-
staða án neinna vandamála. Aldrei í
sögunni hefur nokkur farið jafnilla
með jafngóða stöðu í heimsmeist-
araeinvigi. Næsta stöðumynd er
hryggilegt dæmi um taugaveiklun
ívantsjúks. 44. - a3? 45. t3 Db3 46.
Da2 Ba4 47. Kg3 Kg7 48. Dd2 g5
49. Ba2 Db7 50. Dd3 Be8 51. Dd5
Dxd5?? Betra er 51. - Df7 og svart-
ur ætti ekki að tapa og hefur ein-
hverja vinningsmöguleika. 52. exd5
a5 53. c4 Bb4 54. c5 Kf8 55. Kf2
Bb5 56. c6 Ke7 57. Ba7 Kd8 58.
Bb6+ Kc8 59. Ke3 a4 60. Ke4 Be2
61. Kf5 e4 62. Ke6 exf3.
Nú verður svartur mát í
nokkrum leikjum. 63. d6 Bxd6 64.
Kxd6. l-O.
Liza í Albert Hall
Söng- og leikkonan Liza Minnelli
mun koma fram á fimm tónleikum í
Royal Albert Hall í London í byrjun
apríl nk. og leggur nú alla áherslu á
að koma sér í form eftir uppskurð á
baki og mjöðmum, sem hún gekkt
undir í haust. Krankleiki hennar
hafði hindrað hana mjög við alla
hreyfingu og þurfti hún að aflýsa
einum fjórtán tónleikum í fyrra, en
á meðan safnaði hún nokkrum
aukakílóum sem hún mun langt
komin með að ná af sér aftur.
Tilvonandi eiginmaður Lizu,
umboðsmaðurinn David Gest, hefur
aðstoðað sína heittelskuöu með
tónleikahald að undanfórnu til
upphitunar fyrir upptroðsluna í
London, en eftir tónleikana þar
mun Liza koma fram víðar um
Evrópu í fyrsta skipti í fimm ár-
Britney finnst
Beckham sætur
REUTERJVIYND
Britney Spears
Poppstjarnan unga leikur í auglýs-
ingamynd meö David Beckham.
Poppsöngkonan Britney Spears
verður þeirrar ánægju aðnjótandi í
næstu viku að leika á móti fótbolta-
kappanum David Beckham í auglýs-
ingamynd fyrir Pepsi gosdrykkinn.
„Hann er rosalega sætur. Ég vona
að hann kenni mér einhverjar fót-
boltabrellur fyrir upptökurnar,"
segir Britney.
Auglýsingin verður tekin upp í
Frakklandi þar sem Britney hefur
verið síðustu daga. Beckham fer
ekki fyrr en eftir helgi.
Victoria kryddpía Adams, eigin-
kona Beckhams, verður ekki með
bónda sínum í Frakklandi. Eitt er
þó víst að hún mun ekkert. sérlega
hrifin af þessum yfirlýsingum
bandarísku söngstjörnunnar, þekkt-
ustu jómfrúar í heimi hér um þess-
ar mundir.
REUTER+tYND
Arnold og ólympíueldurinn
Hasarkarlinn Arnold Schwarzenegger varö þess heiöurs aönjótandi í Los
Angeles í vikunni aö fá aö kveikja eld í tilefni vetrarólympíuleikanna sem
veröa haldnir í Salt Lake City í næsta mánuöi.
Enga sýningu, takk!
Hollenski ríkisarfinn, prins Willem-
Alexander og tilvonandi eiginkona
hans Maxima Zorreguieta komu fram
í sjónvarpþætti í Hollandi um síðustu
helgi þar sem þau lýstu framtíðar-
draumum sínum aðeins hálfum mán-
uði áður en þau ganga í það heilaga 2.
febrúar nk. Þau töluðu frjálslega um
samband sitt í blíðu og stríðu og ekki
síst um væntingar sínar til brúð-
kaupsins. „Við viljum auðvitað að
hún verði sem persónulegust, en ger-
um okkur þó fulla grein fyrir áhuga
fjölmiðla. Þetta er giítingin okkar og
við viljum ekki að hún verði gerð á
einhverri sýningu. Við höfum því
ákveðið að leyfa ekki upptökur við at-
höfnina í kirkjunni," sagði prinsinn.
Að sögn Maximu er hún mjög spennt.
„Ég er svolítið kviðin vegna athygl-
innar sem ég veit að við fáum og þess
vegna stakk ég upp á því við Alex-
ander að við létum bara pússa okkur
saman með leynd i Las Vegas,“ sagði
Maxima með giftingarglampann í
augunum.
Vera Listhús býður
upp á námskeið
í silkiprenti.
Námskeiðin hefjast 31.
janúar, kl. 17-21 (5 skipti,
20 kennslust.) í Goðatúni 1,
Garðabæ.
Ath.:
Námskeið í „Portrait",
„Still Life", blóma- og
dýramyndum byrja í maí.
Skráning t stma
565 9559 eða 8974541
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5NJOKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða