Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Side 21
41 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 DV Tilvera Myndgátan Myndgátan hér til hliöar lýsir oröasambandi. Lausn á gátu nr. 3242: Sér ekki högg á vatni Krossgáta Lárétt: 1 ofstækisfull, 4 hrella, 7 teningaspil, 8 skarð, 10 æst, 12 sekt, 13 léleg, 14 draugur, 15 tima- bil, 16 snjór, 18 kafmæði, 21 ótamin, 22 gapti, 23 auðvelt. Lóðrétt: 1 fjölda, 2 hlass, 3 grútarlampinn, 4 spýtu- bakka, 5 heydreifar, 6 huldumann, 9 æviskeið- ið, 11 bárum, 16 trekk, 17 aldur, 19 steig, 20 eðli. Lausn neðst á síðunni. Skák Hvítur á leik! Það standa yfir 2 stórmót þessa dag- ana, annað í Linares og hitt í Cannes. í Linares höfðu allar skákimar endað með jafnteíli eftir 3 umferðir, nema skákir Fide-heimsmeistarans Ponom- ariovs, hann vann ívantsjúk í 1. skák- inni og tapaði síðan fyrir Adams og fékk að hvíla sig i 3. umferð. Kasparov hefur einnig teflt 2 skákir en ekki tek- ist að vinna góðar stöður. Þar hefur því ekki teflst almennileg skák enn þá og við bregðum okkur til Cannes aftur og fylgjumst með í B-mótinu! Bareev vinnur hér sigur á Leko sem er óvænt því þeir eru vanir að gera mikið af jafnteflum. En Ungverjinn var eitt- hvað annars hugar í þessari skák og Rússinn gekk á lagið. Hvítt: Evgení Bareev (2707) Svart: Peter Leko (2713) Enski leikurinn Cannes (1), 22.02. 2002 1. c4 c5 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. e3 Rc6 5. Re2 e6 6. d4 cxd4 7. exd4 Rge7 8. d5 Re5 9. dxe6 dxe6 10. Dxd8+ Kxd8 11. 0-0 Bd7 12. Hdl Kc7 13. Rbc3 a6 14. Bf4 Bc6 15. Rd4 Had8 16. Rxc6 R7xc6 17. Hel Kb6 18. Ra4+ Ka7 19. Bg5 Hd6 20. Hedl Rd4 Stöðumyndin! 21. Be7 Rxc4 22. Bxd6 Rxd6 23. Kfl e5 24. Hacl Hd8 25. Hc5 Kb8 26. Hd5 Kc7 27. Rc5 He8 28. Hcl Bh6 29. Rxa6+ 1-0 Bridge Umsjón: ísak Öm Sigurösson Spil dagsins er frá fjórðu um- ferð í aöalsveitakeppni Bridgefé- lags Reykjavikur úr leik sveita Simonar Símonarsonar og Páls Valdimarssonar. í spili 5 var mis- jafnt hvaða samning AV spiluðu, allt frá einum spaða og upp i fjög- ur hjörtu. í opna salnum kom austur í sveit Páls inn á einum spaða eftir tígulopnun norðurs og þar lauk sögnum. Sagnhafi fékk þar 7 slagi, en hafði áhyggjur af því að fjögur hjörtu gætu staðið. Á hinu borðinu þreifuðu AV sig upp í 4 hjörtu, en þrautin var þyngri að standa þann samning. Noröur gjafari og NS á hættu: 4 G1076 <4 K6 4 ÁK764 * 95 4 - «4 ÁD9532 4 D952 * 742 4 K52 «4 1084 4 103 4 DG853 NORÐUR AUSTUR SUÐUR VESTUR Páll V. Friöjón Eríkur Guöjón Pass 14 pass 1 grand Pass 3 4 pass 4 44 P/h Páll spilaði út ásnum í tlgli og fékk kaÚ frá félaga sínum í litnum. Páll hefði þurft að skipta yfir i lauf, til að hnekkja fjórum hjörtum, en erfitt að sjá þá stöðu við borðið. Hann lagði niður kónginn í tígli og spilaði meiri tígli en Friðjón Þór- hallsson trompaði með hjartagosa. Er- íkur Jónsson ákvað að henda spaða. Friðjón lagði nú niður ásinn í spaða og henti tígli í blindum. Síðan var spaöi trompaður, hjartaásinn lagður niðúr og litlu hjarta spilað. PáU fékk á kónginn en sagn- hafi átti afganginn af slögunum. Tapslagurinn í laufi fór niður í drottninguna i spaöa. Páll Valdimarsson. Lausn á krossgátu 'Ue oz ‘ajs 61 ‘tAae il ‘8ns 9i ‘umpip n ‘utna 6 ‘JI? 9 ‘HBJ S ‘Itepeiiejg \ ‘uijgi(sio>i e ‘iifæ z ‘3æs i :}}ajgo'i ‘}}?l £8 ‘uta8 zz ÚIUA IZ ‘buisb 81 ‘jæus 9i ‘pig si ‘ipue n ‘iiqis 81 ‘MQS z\ ‘jqhr oi 8 ‘BJ}0>[ i ‘epq t» ‘>[æ}s i :j}gj?T Haukur L. Hauksson blaðamaður Einbeitt löghlýdni Undirritaður varð þeirrar gæfu aðnjótandi að dvelja í London um helgina. Ekki verður fjölyrt frek- ar um ferðina ytra heldur skal stokkið beint heim á Frón, nánar tiltekið í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Fríhöfnin var að baki með tilheyrandi hama- gangi og hinn lögboðni skammtur af áfengi á sínum stað í pokun- um. í handtöskunni var síðan fiaska af vodka umfram þær heimildir sem einstaklingar hafa til innflutnings á slíkum varn- ingi. Meðan færibandið malaði og töskurnar birtust ein af annarri velti ég því fyrir mér hvort ég ætti að taka sjensinn og stika að græna hliðinu. Um leið velti ég því fyrir mér hvort ekki leyndist dropi í fleiri handtöskum og hvort einhverjir hinna farþeg- anna væru í svipuðum vangavelt- um. Það hefur jú nánast verið talið til íþróttar hér á Fróni að koma aukapyttlu i gegn um toll- inn. En svo birtist taskan og ég vissi ekki fyrr en ég var kominn að rauða hliðinu. Tilkynnti ég há- tíðlega að hér væri maður á ferð sem sýna vildi einbeitta löghlýðni og gjalda keisaranum það sem hans væri. Mér var ljúflega tekið og leiddur inn á skrifstofu þar sem flaskan var sett á borð. Eftir að hafa skoðað upplýsingar um magn og áfengisprósentu var prentuð út kvittun. Upphæðin: 2.151 króna með vaski. Takk fyr- ir. Sams konar flaska kostar um 2.500 krónur hjá Höskuldi. Gjaldagleðin er svo sannarlega við völd hjá ríkinu. Þó orðið „gunga“ hafi og muni oftlega heyrast í rabbi um þessa uppá- komu hugga ég mig við þá stað- reynd að uppnám í græna hliðinu vegna einbeitts brotavilja hefði orðið mun dýrara og flaskan að auki horfið. Sandkorn Umsjón: Höröur Kristjánsson • Netfang: sandkorn<s>dv.is Sífellt berast fréttir af vend- ingum hjá Svæðisútvarpi Norður- lands á Akureyri en sem kunnugt er stefnir í að Rás 2 komi að ein- hverju leyti þangað norður á næstunni. Verið er að undirbúa flutning RÚVAK utan úr Þorpi og inn í miðbæ Ak- ureyrar í hús- næði þar sem DV og Morgunblaðið eru fyrir. Sigurð- ur Þór Salvars- son mun þó að öllum líkindum verða fjarri góðu gamni á næst- unni því hann er sagður á leið í langt frí til Ítalíu þar sem hann mun dveljast ásamt Guðrúnu Öldu Harðardóttur, kennara við leikskóladeildina í Háskólanum á Akureyri, fram á haust. Ekki er vitað hvað í þessu felst um fram- tíðaráform Sigurðar hjá Rúvak en þeir Karl Eskil Pálsson fréttastjóri og Björn Sigmundsson tæknistjóri munu í sameiningu leysa Sigurð Þór af... NÚ StyttÍSt í að sjálfstæðis- menn muni stilla endanlega upp á listann hjá sér í Reykjavík og eru tvær nokkuð óvæntar breytingar sagðar vera í spilunum núna. Önnur er sú að Jóna Gróa Sig- urðardóttir, sem hefur verið far- sæll en ekki mjög áberandi borgar- fulltrúi fyrir flokkinn um langt árabil, muni hverfa af listanum, í það minnsta úr borgar- stjómarsæti á listanum. Hermir sagan að það sé Jónu Gróu að meinalausu. Hin óvænta uppá- koman mun vera sú að Eyþór Arnalds er ekki á listanum sem mun ráðast af því að kosið hafi verið innan kjömefndarinnar og Eyþór einfaldlega lent þar undir... Upp á síðkastið þykir Ágúst Einarsson hafa farið mikinn á vef- síðu sinni og verið venju fremur skáldlegur i pistl- um sínum. í nýjasta pistli sín- um skrifar hann um símamál og spillingu og hefst pistillinn á þess- um orðum: „Eitt- hvað er rotið innan Danaveld- is, segir Shakespeare í leikriti sínu rétt áður en hinn ungi prins Hamlet fær að vita um glæpi Kládíusar föðurbróður síns. ís- lenskur almenningur er Hamlet og Sjálfstæðisflokkurinn er Kládí- us. Forustumenn í Sjálfstæðis- flokknum fara með opinbert fé eins og ræningjar." Sumir segja að hugsanlega sé Ágúst þama kominn með drög að persónulýs- ingu í nýtt leikrit - og muni leggja skáldskapinn fyrir sig næst, en fyrir er hann sem kunnugt er í viðskiptum, háskólaprófessor og stjórnmálamaður!... Grein eftir Dag B. Eggertsson í DV i gær vakti talsverða athygli meðal stuðningsmanna Reykja- víkurlistans. Dagur skrifar það með skeleggum hætti um þá virð- ingarverðu ákvörðun sérfræðings- ins á Símanum, sem lét sig hafa það að segja blaðamanni DV frá viðskiptasamn- ingum Símans og Góðráða ehf., einkafyrirtækis Friðriks Pálsson- ar stjórnarfor- manns. Dagur kallaði grein sína „Borgara- legt hugrekki“ og veltu ýmsir því fyrir sér hvort þessi grein væri forsmekkurinn að því „borgaralega hugrekki" hjá Degi að gefa kost á sér í 7. sætið á Reykjavíkurlistanum en Dagur hefur einmitt verið orðaður við það sæti... Myndasögur 3 Ö Er ekki frábært hvað úýrin eru for- sjái að safna nasringu fýrir langa og kalda vetrarmánuði. 1 I Ö ií ^ Afsakíð merkir Andrée. Láttu mii fá hannlj alltaf Ajax! Látum okkur ejá ... hann er merkt- rtýr? varetu ao nota Ajaxbolta? y.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.