Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 Fréttir DV DV kannar afstöðu kjósenda til brottreksturs heimildarmanns DV frá Landssímanum: Yfirgnæfandi meirihluti telur uppsögnina ranga Var rétt að reka Landssímamanninn? - skoöanakönnun DV 4. mars 2002 Yfirgnæfandi meiriMuti kjós- enda, eöa 8 af hverjum 10, telja að það hafi verið rangt af stjórnendum Landssímans að reka heimildar- mann DV í Landssímamálinu. Heimildarmaðurinn, Halldór Örn Egilson, kom upplýsingum úr bók- haldi Landssímans til DV þar sem fram komu upplýsingar um millj- ónaviðskipti Góðráða ehf., fyrirtæk- is Friðriks Pálssonar stjómarfor- manns, við Landssímann. Fram að þeim tíma höfðu þessi viðskipti ekki verið kunn innan stjómar Landssímans. Könnun DV var gerð á mánudags- kvöld. Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar sem og kynja. Spurt var: Var það rétt eða rangt hjá stjómendum Landssímans að reka heimildarmann DV í Landssíma- málinu? Af öllu úrtakinu sögðu 68,5 pró- sent það rangt hjá stjórnendum Landssímans að reka heimildar- mann DV, 19,2 prósent sögðu það rétta ákvörðun, 8,2 prósent voru óá- kveðin og 4,1 prósent neituöu að svara. Samkvæmt þessu tóku 87,6% af- stöðu til spumingarinnar. Sé ein- ungis litið til þess hóps sögðu 78,1 prósent brottreksturinn vera rang- an en 21,9 prósent voru á öndverðri skoðun. Fleiri karlar en konur tóku af- stöðu til spumingarinnar eða 92 prósent á móti 83,3 prósentum kvenna. 75,5 prósent karlanna sögðu rangt af stjómendum Landssímans að reka heimildarmann DV en 80,8 prósent kvenna. -hlh Halldór Örn Egilson, starfsmaður Landssímans, sagði frá Góðráðum: Uppnám vegna uppljóstrana - heimildarmaður DV var rekinn en eignaðist hug þjóðarinnar REYKJAVÍK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 19.01 18.43 Sólarupprás á morgun 08.15 08.04 Síðdegisflóö 24.40 16.31 Árdegisflóð á morgun 00.40 05.13 Mildast syðst Austan- og norðaustanátt 15-20 m/s með suðurströndinni og á Vestfjörðum en hægari annars staðar. Él norðan- og austanlands og dálítil snjókoma syöst en annars skýjað. Frost 0 til 12 stig, mildast með suðurströndinni. Bjart vestanlands Austlæg átt 5-10 m/s og él um landið austanvert en bjart veöur vestanlands. Frost 0 til 12 stig, mildast með suðurströndinni. Friðrik Pálsson. w Sturla Böðvarsson. Mál uppljóstr- arans, sem upp- lýsti DV um það að stjórnarfor- maður Símans hefði innheimt milljónalaun ár- lega sem verktaki og utan við hefð- bundin stjómar- laun, vakti þjóðar- athygli. Halldór Öm Eg- ilson starfaði sem millistjórnandi hjá Landssíman- um og kaus að upplýsa DV og þar með íslenska þjóð um það að Friðrik Pálsson stjómar- formaður hefði um árabil farið á bak við stjóm sína með því að innheimta verktaka- laun hjá Landssímanum í nafni Góð- ráða ehf., einkafyrirtækis síns. Um nokkurra vikna skeið var Hall- dór Öm ásamt nokkrum öðrum heim- ildarmönnum í sambandi við blaða- mann DV vegna málefna innandyra hjá Símanum. Hann upplýsti DV með- al annars um að orðrómur væri um það innan Símans að Friðrik Pálsson væri á háum launum hjá fyrirtækinu án þess að þau kæmu fram í launa- bókhaldi. Menn hentu meðal annars að því gaman að réttast væri að sam- eina Landssímann og fyrirtæki stjórnarformannsins. DV kannaði hjá tveimur stjómarmönnum Landssím- ans hvort það væri með þeirra sam- þykki að stjómarformaðurinn væri jafnframt með einkarekstur sem hefði afkomu af viðskiptum við Landssím- ann. Stjómarmennimir komu af fjöll- um og þeir höfðu aldrei heyrt minnst á þann rekstur. Aftur á móti höfðu þeir vitneskju um að Friðrik Pálsson væri stjórnarformaður Hótel Rangár en þangað var miklum viðskiptum Símans beint. Blaðamaður DV og Halldór Öm vom í þessu ljósi sam- mála um að reyna að finna gögn sem sýndu fram á það hver sannleikurinn væri í máli stjórnarformannsins. Við rafræna leit í bókhaldi Símans fund- ust gögn sem sýndu að fyrirtækið Góðráð hafði fengið greidda reikn- inga að upphæð rúmlega 7,6 milljónir á síðasta ári. Þær upplýsingar vora prentaðar út úr bókhaldinu. Halidór Örn klippti ofan af pappíranum þær upplýsingar sem sýndu frá hvaða tölvu kallað var eftir upplýsingunum. Laugardaginn 16. febrúar hittust Halldór og blaðamaður DV í Kola- portinu þar sem heimildarmaðurinn afhenti DV umrædda útskrift. Stjórn óviðkomandi Sunnudagskvöldið 17. febrúar var fréttin fullunnin að öðru leyti en því að eðlilegt var að leita viðbragða Friðriks Pálssonar stjórnarformanns. I símtali við Friðrik var það borið undir hann hvað lægi að baki þessum reikningum. Hann brást illa við og lýsti þvi að þetta væri ekki fréttaefni. Þama væri um að ræða sanngjöm laun vegna ráðgjafar hans við einka- væðingu Sím- ans. Þá væri inni í umræddri upp- hæð kostnaður vegna ferðalaga hans á vegum Sím- ans. Friðrik hringdi nokkrum sinnum þetta kvöld og krafðist þess að fréttin yrði ekki birt í DV. Hann lagði áherslu á að hann væri strangheiðarleg- | ur og hefði ekkert að fela en umræðan, sem sprytti af fréttinni, yrði honum erfið. Skömmu áður en DV fór i prentun kom Friðrik á ritstjóm DV með yfirlýs- ingu frá endurskoðanda sínum um að ráðgjafarlaun hans hefðu verið rúmar 5 milljónir króna en það sem út af stæði væri kostnaður og virðisaukaskattur. Jafn- framt lýsti Friðrik því að þessi laun væru stjóminni óviðkomandi. Mánudaginn 18. febrúar birtist fréttin og vakti hún gífurlega athygli. Það fylgdi sögunni að samgönguráð- herra hefði samið um verktakalaunin við Friðrik og ríkisendurskoðandi hefði samþykkt fyrirkomulagið. Á mánudeginum kom stjóm Lands- símans saman til að fjalla um ráðgjaf- arlaun formannsins. Fundurinn stóð lengi og á endanum var samþykkt aö formaðurinn hefði fengið sanngjöm laun. Einn stjómarmaður sat hjá við þá afgreiðslu sem þótti um margt ein- kennileg þar sem formaðurinn vék ekki af fundi þótt verið væri að ræða hans mál. Flosi Eiríksson, annar tveggja stjómarmanna Sam- fylkingar, oel>s0P»»-a6 sókn beindist að því hver hefði leitað í bókhaldskerfinu auk þess sem fólk var spurt. Á miðvikudeginum var búið að fmna út frá hvaða tölvu um- ræddar upplýsingar höfðu verið kall- aðar fram. Halldór Öm var þá kallað- ur fyrir yflrmann sinn, auk þess sem starfsmaður bókhalds- deildar var kallaður fyrir. Halldór Öm játaði strax að bera fulla ábyrgð á því að upplýsingamar vora sóttar og að hafa afhent blaða- manni DV þær. Jafnframt lýsti hann því yfir að hann einn bæri ábyrgð þar sem bókhaldsmaður- inn hefði ekki vitað af því að hann ætlaði að færa DV þær. Halldór Örn var rek- inn og fékk aðeins þriggja mánaða uppsagnar- frest en - ois hann loiau,;;.r bókhalds- lýsti Þvl q sKipt verö maðurinn iðraðist h^SSS^^sssss þess neitaði að skrifa undir álykt- un fundarins en Sigrún Benedikts- dóttir, hinn fulltrúi Samfylkingar, samþykkti. Daginn eftir sagði Flosi af sér í stjórn og á miðvikudeginum fylgdi Sigrún í kjölfarið. Heimildarmanna leitaö Strax á mánudeginum var sett í gang mikil rannsókn innan Símans til að finna út hver hefði lekið. Rann- Ævintýralen fjérfeating ötU að trywíja hfimnbyltinRu í fjurskiptum: Sími i klóm skýjaglópá, - fttPbelt Hfði í ár «« Itólfur niiUjurður fmtk. 1500 krðmtr A hvorn íxlumlinH j Landssíminn DV hefur birt fjölda frétta af málefnum Símans þar sem heimildarmenn hafa komiö viö sögu vegna uppljóstrana. fékk áminn- ingu. Annar heim- ildarmaður DV lét strax vita hvem- ig komið væri. Friðrik Pálsson stað- festi þegar í samtali við DV að menn- frnir hefðu náðst en lýsti síðar við fjöl- miðla að hann hefði engan þátt átt í brottrekstrinum. Hann varaði DV við að birta frétt af brottrekstrinum þar sem slíkt myndi skaða Halldór. Öll stjórnin fer Laugardaginn 23. febrúar sagði DV frá brottrekstrinum án þess þó að nafngreina Halldór Öm. Fréttin var í fullu samráði við hann. Halldór átti siðan frumkvæði að því sjálfur að koma fram undir nafni í mánudags- blaði DV þar sem hann lýsti því að hann iðraðist þess í engu að hafa upp- lýst um trúnaðarbrot stjómarfor- mannsins. Svo er að sjá sem íslenska þjóðin sé sammála honum því að 80 prósent aðspurðra í könnun DV telja rangt af stjómendum Landssímans að reka hann. Afleiðingar af uppljóstrunum Hall- dórs eru þær að ákveðið hefur verið að skipta um alla stjóm Landssímans. Enn hefur þó enginn lýst ábyrgð á hendur sér á samningnum við Góðráð. Eftir stendur að uppljóstrarinn, sem var rek- inn, eignaðist hug þjóðar sinnar. mnm Föstudagur Laugardagur Sunnudagur ©■ Q Hiti 1° Hiti 2° Hiti 2° «110° ti: 12° til 12° Vindur: Vindur: Vindur: 5-13 m/s 5-13 m/‘ 5-13 m/s * * * Noröaustan Noröaustlæg átt Noröaustlæg átt 5-13 m/s og 5-13 m/s og 5-13 m/s og víöa dátrtil dálítil él en bjart dálítil él en bjart snjókoma eöa veöur sunnan tfl. voöur sunnan tll. él. Frost 1 tll Frost 2 tll 12 Frost 2 til 12 10 stig. stig. stig. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldl 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassvlðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárvlöri >= 32,7 AKUREYRI alskýjaö -5 BERGSSTAÐIR skýjaö -5 BOLUNGARVÍK snjókoma -4 EGILSSTAÐIR úrkoma í gr. -3 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö -3 KEFLAVÍK alskýjaö -3 RAUFARHÖFN skýjaö -6 REYKJAVÍK alskýjaö -3 STÓRHÖFÐI úrkoma I gr. -1 BERGEN snjókoma -1 HELSINKI slydda 1 KAUPMANNAHÖFN snjókoma -3 ÓSLÓ rigning 1 STOKKHÓLMUR rigning 3 ÞÓRSHÖFN snjókoma 0 ÞRÁNDHEIMUR snjóél 0 ALGARVE heiöskírt 9 AMSTERDAM skýjað 7 BARCELONA léttskýjaö 7 BERLÍN þokumóöa 6 CHICAGO alskýjaö -3 DUBLIN rigning 9 HALIFAX léttskýjaö -7 FRANKFURT hálfskýjað -1 HAMBORG alskýjað 6 JAN MAYEN snjókoma -5 LONDON rigning 7 LÚXEMBORG þokumóöa -1 MALLORCA þokumóöa 9 MONTREAL léttskýjað -5 NARSSARSSUAQ skýjaö -2 NEW YORK hálfskýjaö 2 ORLANDO skýjaö 11 PARÍS þokumóöa 4 VÍN skýjaö 1 WASHINGTON heiöskfrt -1 WINNIPEG léttskýjaö -22 ilNGUM FHA VfinúRSTOru ISIANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.