Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 29
ME3VIKUDAGUR 6. MARS 2002
33
DV
Tilvera
Myndgátan
Lárétt: 1 þungi,
4 rústir, 7 hvetur,
8 losa, 10 heiti,
12 eyktamark,
13 kvendýr, 14 stertur,
15 viska, 16 fomasaga,
18 ákafi, 21 kjarkur,
22 passi, 23 starf.
Lóðrétt: 1 klæði,
2 sterk, 3 siðprúði,
4 gómur, 5 hugarburð,
7 ræktarland, 9 þjálfun,
11 tíðindi, 16 brún,
17 hlé, 19 venju,
20 svelg.
Lausn neðst á síöunni.
Skák
Hvítur á leik!
Pono FIDE-heimsmeistari stendur
sig vel i Linares og hefur náö Kaspa
sem á reyndar eina skák til góða, en
einn skákmaður hvílir í hverri um-
ferð. Pono náði fram hefhdum á Ad-
ams en hann tapaði fyrri skákinni.
Tefld var Marshall-árásin í Spánska
leiknum, uppáhaldsaíbrigði Mikka
sem hann tapar örsjaldan í. En Pono
hefur greinilega ágætis eldhúsborð í
Linares og kokkaði þetta afbrigði þar.
Mickey verður aö skoða málin betur.
Og líklegt er að um hreina úrslitaskák
verði að ræða milli Kaspa og Pono i
næstsíðustu umferð. Þá verður gaman
að fylgjast með!
Staðan eftir 9 umferðir af 14: 1.
Garry Kasparov (2838) 4,5/7; 2. Ruslan
Ponomariov (2727) 4,5/8; 3. Viswanath-
an Anand (2757) 4/8; 4. Alexei Shirov
(2715) 4/8; 5. Francisco Vallejo Pons
(2629) 3,5/8; 6. Vassily Ivanchuk (2717)
3,5/8; 7. Michael Adams (2742) 3/7.
Hvítt: Ruslan Ponomariov (2727)
Svart: Michael Adams (2742)
Spánski leikurinn.
Linares ESP (9), 04.03. 2002
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3
0-0 8. c3 d5 9. exd5 Rxd5 10. Rxe5
Rxe5 11. Hxe5 c6 12. d4 Bd6 13. Hel
Dh4 14. g3 Dh3 15. He4 g5 16. De2
Rf6 17. Rd2 Bf5 18. f3 c5 19. Df2 c4
20. Bc2 h6 21. b3 cxb3 22. axb3 Hfc8
23. Bb2 Bb4 24. He5 Bxc2 25. cxb4
Bg6 26. Hc5 He8 27. Rfl Had8 28. d5
Rd7 29. Re3 h5 30. f4 h4 31. f5 hxg3
32. hxg3 Bh5 33. d6 He4 34. Hacl
Rxc5 35. bxc5 Kh7 36. Bf6 Hg8 37.
d7 Hh4 (Stöðumyndin) 38. Dg2 Bf3
39. Dxh3 Hxh3 40. Kf2 g4 41. Rfl
Hh5 42. d8D Hxd8 43. Bxd8 Hxf5 44.
Re3 Hh5 45. Bh4. 1-0.
Bridge
Alslemma f spaða er gullfallegur
lokasamningur þar sem góður
möguleiki virðist á því að ná 13
slögum með öfugum blindum
(trompa tígla á hönd austurs). Tvö
pör voru svo óheppin að komast að
þessu í sögnum á Cap Gemini-boðs-
Umsjón: ísak Örn Slgurðsson
mótinu í tvímenningi sem fram fór
í Hollandi i janúarmánuði síðast-
liðnum. Það voru Bandaríkjamenn-
irnir Garner-Weinstein og Pól-
verjarnir Jassem-Gawrys. í þessari
óhagstæðu tromplegu var samning-
urinn hins vegar ekki vænlegur:
* 108732
V 1086
* DS3
* G8
4 ÁG6
» D74
4 ÁG42
* Á72
* -
« 953
4 K10986
* D9654
Alslemma f spaða er fallegur samn-
ingur. Hún vinnst ef trompin liggja
ekki verr en 3-2 og andstæðingamir
eru ekki með einspil i hliðarlitunum.
Þegar tromplegan kom í ljós var sá
aukamöguleiki fyrir hendi að norður
héldi á 4 hjörtum. Jafnvel í þeirri
legu hefði alslemman getað staðið
meö öfugum
blindum, ef
sagnhafl tímaset-
ur trompapimar
með vandvirkni.
í Cap Gemini er
reiknað út með-
alskor í hverju
spili og í stað
þess að fá 13
imþa í plús fyrir
að komast í 7
spaða, urðu þessi pör að sætta sig við
að fá 13 impa í mínus.
iwtfmmrrm-w
'hQt 02 ‘Qts 61 ‘m il 91 ‘WQ-U II
‘Suyæ 6 ‘unj 9 ‘bjo g ‘iQæ;suuej \ ‘ijbapuejS 2 ‘uioj z ‘joj t jjajQoq
'ttfQt 82 ‘tjæá ZZ ‘IQæJB 12 ‘Rsæ 81 ‘BI§a 91 ‘IIA sx
Ja;s \\ ‘puiij gi ‘uou 21 ‘ujbu oi ‘Buiæ; 8 ‘JBAJO l ‘yoi \ ‘8jbj 1 jjaJBj
Jóhanna S.
Sigþórsdóttir
blaðamaður
Dagfari
Líf án áhættu
Það er stórhættulegt að vera
til. Hætturnar liggja alls staðar
í leyni. Þær poppa upp þegar
síst skyldi. Hver man til dæmis
ekki eftir lýsisfárinu sem greip
um sig á árunum? Þessi mjöður,
sem forfeður okkar höfðu geymt
í kvartelum og sopið hraustlega
á þegar mikið lá við, var nú allt
í einu sagður nánast banvænn.
Þetta sögðu rannsóknir úti f
heimi. Og þær segja alltaf satt.
Þeir sem áður höfðu tekið lýsi
daglega steinhættu því. Hinir
þökkuðu guði fyrir að hafa ekki
gleypt svo mikið sem lýsispillu.
Svo komu nýjar rannsóknir
með nýjum niðurstöðum. Lýsið
var aftur orðið meinhollt og
kostir þess miklu fleiri en áður
hafði verið talið. Nú taka allir,
sem vilja geta mætt til vinnu á
viðsjárverðum pestatfmum, lýsi.
Hinir passa sig að taka það ekki.
Annað dæmi og nýrra er Ber-
íó-matarolían. Hún hefur hingað
til verið talin ágæt til inntöku
með eða í mat. Allt í einu kom
viðvörun. Hún gat innihaldið
krabbameinsvaldandi efni. Neyt-
endur krossuðu sig og biðu ör-
laga sinna. Svo sýndu nýrri
rannsóknir að olían var í lagi.
Matarkúrar vekja ævinlega
deilur. Geymt verður í annálum
þegar einn af ráðamönnum þjóð-
arinnar lýsti yfir opinberlega að
hann væri á fitukúr til að
grenna sig. Framtíðin brosti við
fitubollunum sem nú máttu eta
eins mikið og eins óhollt og
þeim sýndist. Þá kom rothöggið.
Bandaríska Hjartavernd sendi
frá sér yfirlýsingu þar sem var-
að var sérstaklega við kúrum af
þessari tegund. Upp voru taldir
svo sem tfu banvænir sjúkdóm-
ar sem fitukúrarnir gætu orsak-
að. Þar fór það.
Hvað væri lífið annars án
áhættu?
Sandkorn
Umsjón: Birgir Guömundsson » Netfang: sandkorn@dv.is
Þaö vekur athygli að Reykja-
víkurlistamenn tala sumir hverjir
tæpitungulaust hver við annan.
Þannig sendi Sverrir Jakobsson,
einn aðstandenda
Múrsins, Stefáni
Jóni Hafstein
kveðjur á vefsíð-
unni murinn.is
vegna ummæla
Stefáns um að
borgin ætti að yf-
irtaka löggæsluna
í borginni en Stef-
án lét þessi orð falla eftir Samfylk-
ingarfund á Selfossi. Sverrir segir:
„Þessi framganga Stefáns Jóns vek-
ur nokkra athygli og gefur orðinu
kosningabandalag nýja merkingu. í
þessum skilningi er það ekki banda-
lag flokka sem hafa komið sér sam-
an um meginstefnu í þeim málum
sem verða efst á baugi á komandi
kjörtímabili. Það er ekki einu sinni
bandalag flokka sem bjóða fram
saman, en reka hver sína stefnu. Það
er jafnvel ofrausn að tala um banda-
lag flokka sem reka hver sína stefnu,
en til viðbótar komi borgarstjóri og
einhver aukamaður sem enginn veit
á hvers vegum er. Nei, kosninga-
bandalag í þessum skilningi er
bandalag einstaklinga þar sem hver
frambjóðandi rekur eigin kjörstjórn
og stefnuskrá. Og það er ekki erfitt
að koma auga á hvem langar til að
vera mest áberandi í þessari kom-
andi kosningabaráttu einstakling-
anna.“
í sandkorni fyrr í vikunni var
greint frá því að „spinndoktorinn“
Einar Bárðarson væri að kaupa aug-
lýsingastofuna Bankastræti við sam-
nefnda götu í
| Reykjavík. Það
mun raunar vera
I nokkuð ofsagt því
1 Einar er einungis
aö yfirtaka leigu-
samninginn sem
auglýsingastofan
hefur á húsinu og
hyggst hann setja
upp nýja auglýsingastofu á sama
stað. Hann hefur semsé ekki keypt
reksturinn, en sambönd fyrri eigenda
í bransanum munu væntanlega flytj-
ast með þeim á nýja vinnustaði...
Yfirlýsing Kristins H. Gunnars-
sonar, þingflokksformanns framsókn-
armanna, um að hann telji óeðlilegt
að ætlast til að stjómarmenn fram-
sóknarmanna í
| Landssímanum
hætti vegna meintra
spillingarmála mun
vera birtingarmynd
á talsverðum pirr-
ingi í þingflokkn-
um út af málinu.
Mun ýmsum þing-
mönnum þykja sérkennilegt að
stjórnarmennirnir Jónína Bjart-
marz og Magnús Stefánsson séu
hengd upp sem spilltir stjórnmála-
menn fyrir að vera fórnarlömb trún-
aðarbrests sjálfstæðismanna, sem
héldu stjórn Símans utan viö hinar
umdeildu ákvarðanir. Munu þær
raddir vera orðnar háværari sem
segja að framsóknarmönnum beri
engm skylda til að standa við bakið á
samstarfsflokknum í málinu, allra
síst ef „neikvæðum áhrifum málsins
verði klínt á „Framsókn“ eins og heit-
ur frammari orðaði það ...
Víða er nú úrskurðar Sivjar
Friðleifsdóttur um kærur vegna
Reyðarálsverksmiðjunnar beðið með
spenningi, ekki síst meðal náttúru-
verndarsinna aust-
ur á landi. Þar
gæla sumir við þá
tilhugsun að
ástæðan fyrir
drætti á úrskurði -
sem er mánuði á
eftir áætlun - stafi
af lagalegum ’
vandkvæðum og
er þá nefnt kæruatriði Hjörleifs
Guttormssonar um að ótvírætt
hefði átt að meta hvora verksmiðj-
una fyrir sig, ál- og rafskautaverk-
smiðjuna, þar sem báöar væru mats-
skyldar að lögum. Aðrir náttúru-
verndarmenn telja þó skýringarnar
einfaldari og pólitískari og gefa ekki
mikið fyrir vonir félaga sinna um að
ráðherrann muni úrskurða að um
lögleysu hafi verið að ræða ...
Myndasögur
peesi
Iherramaður
[heldur því fram
iað fiskurlnn
jhanö eé hund-
'ur, frú Petra.
Itq er hrasddur um að
Iþu verðir að sanna
'að hann eé Þolabíturl
IFærðu eyrað
aðeins nasr
honum.
Hann ir-
bolabítur, í
alvöru!
að hann eé bolabít-
ur? Af hveriu hlust-
ið þið ekki a geltið?
S-----"ST?
heyrl
ekkert.
hunda-
SYNINS
kRÁNlNÍ
lHUNPA-.
feVNING
hunda- I
SYNING
5KRANING
SYNING
IRÁNING