Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002
31
DV
Tilvera
Golfararnir
Þau bjuggu sig undir að spila golf á velli vonda karlsins: Vífill Karlsson, Gunn-
ar Örn Reynisson, Þórarinn Birgisson, Friðrik Jónsson, Sævar Þór Gylfason,
Gunnar Auðunn Jóhannsson, Guðný Helgadóttir, Halldór Birgisson og Harpa
Högnadóttir.
um úti við þjóðveg er unnið að
gerð golfvallar. Þrúðmar í Hoffelli
keyrir snjó á svæðið og Böddi á
Brunnavöllum, Axel Bragi, Lassi
Imsland og Hörður í Dilksnesi eru
að útbúa fjögur grín. Þetta á að
vera golfvöllur vonda karlsins og
kominn er hópur fólks frá Höfn til
að leika golfleikara í Bondmynd.
Þau mættu hálfátta en vita ekki
hvort þeirra atriði verður tekið
upp þennan daginn eða þann
næsta. Þau bara biða róleg. Búin
að sjá golfsettin á einum flutn-
ingavagninum og þau eru ekkert
slor. Jón Ingi, lögga á Höfn, er á
svæðinu. Sallarólegur. Einn af
þeim sem er til taks ef á þarf að
halda. Stundum þarf að loka veg-
inum ef leikurinn færist þangað.
Jón hefur áður verið á tökustað
kvikmynda og veit að mikill tími
fer í bið. Hann var líka á vakt þeg-
ar fyrri Bondtakan fór fram við
lónið 1986. „Þetta er allt stærra að
umfangi núna, finnst mér, fleira
fólk og fyrirferðarmeiri búnaður,"
segir hann.
Andasteik í ofninum
í veitingatjaldinu er Hrefna frá
Svínafelli að undirbúa hádegis-
verðinn og úr eldhúsvagninum
berst ilmur af mat. Kokkurinn er
breskur og Hrefna segir andasteik
í ofninum. Nokkrir bílstjórar hafa
tekið í spil meðan þeir bíða. Aðrir
halda til í farkostunum úti á
plani. Þeirra á meðal er Jónas
Þorgeirsson sem rekur fyrirtækið
Arctic-Ice er sérhæfir sig í flutn-
ingum með kvikmynda- og auglýs-
ingagerðarfólk. Hann kveðst hafa
útvegað 24 trausta jeppa til að
flytja Bondliðið milli hótela og
tökustaða og er ákaflega ánægður
með verkefnið. „Bond er sýndur
úti um allan heim og það er mikil
landkynning fyrir okkur að fá að
taka þátt í þessu ævintýri," segir
hann.
Með brotinn væng
Nú er búið að raða sprengjun-
um í ísinn og allt orðið klárt.
Spútnikinn þýtur af stað og tekur
góðan hring. Hann lætur vel að
stjóm og takan lukkast. AJlir eru
ánægðir. Þetta var bara partur af
flóttasenunni. Hluti hennar verð-
ur tekinn uppi á jökli. Þar á Bond
að koma með brotinn væng á far-
kostinum út úr skóginum!
-Gun.
Bond-bíllinn
Vel búinn trixum eins og venjulega.
Gróðursetning fram undan
Hópur fólks var að hagræða trjánum sem eftir er að ganga frá á svæðinu.
Nema hvað? - spurningakeppni grunnskólanna:
Hagaskóli sigurvegari
Eftir mikla
töm í spum-
ingakeppninni
Nema hvað?
undanfarnar
vikur þar sem
allir grunn-
skólar á höfuð-
borgarsvæð-
inu sendu lið í
keppnina var
komið að úr-
slitakvöldinu i
gær þegar
Hagaskólinn
mætti Selja-
skóla í Út-
varpshúsinu í
Efstaleiti. Má
segja að þama
hafi einnig verið
Fylgst með
Logi Bergmann
Eiðsson, spyrillinn í
Gettu betur, fékk
sér sæti í stiganum
og fylgdist með.
um uppgjör að
ræða milli vesturbæjar og austur-
bæjar. Mikil stemning ríkti meðan
á keppninni stóð og voru stuðnings-
menn óhræddir við að láta í sér
heyra. Það fór svo að lokum að
Hagaskólinn stóð uppi sem sigur-
vegari. Það var íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur sem hafði
veg og vanda af keppni þessari sem
nú var haldin i fyrsta sinn.
Dómarar og spyrillinn
Það voru liðsmenn MR-sveitarinnar í Gettu betur frá í fyrra sem sáu um dóm-
arastörfin. Með þeim er spyrillinn, Stefán Pálsson.
~WT
Ahorfendur
Stuðningsmenn liðanna létu heyra í sér. Hér eru það stuðningsmenn Haga-
skólans sem hvetja sína menn.
DV-MYNDIR HARI
Sigurvegarar
Lið Hagaskólans sem sigraði í Nema hvað? Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaöur ÍTR, afhenti Höllu, Kjartani og Jó-
hanni verðlaunagripinn.
Dansverkið Bylting hinna miðaldra frumsýnt:
Að hafa gaman af að eldast
„Um leið og við reynum að
dýpka skilning okkar á æviskeiði
miðaldra fólks gerum við nett grín
að högum okkar,“ segir Ólöf Ing-
ólfsdóttir dansari. Hún og Ismo-
Pekka Heikinheimo ætla að frum-
sýna eigið dansverk sem ber heit-
ið Bylting hinna miðaldra á nýja
sviði Borgarleikhússins í kvöld kl.
20 og eftir þrjár sýningar hér á
landi halda þau til Finnlands og
frumsýna þar 21. mars. Hún lýsir
aðdragandanum að verkinu: „Fyr-
ir nokkru áttaði ég mig á þvi að ég
taldist vera orðin miðaldra því
samkvæmt orðabókinni er fólk
miðaldra á bilinu þrjátíu og flmm
til sextíu og fimm. Mér fannst ég
algerlega óundirbúin að takast á
við þessar breytingar í lífí minu
þannig að ég tók fyrir að kanna
þetta nánar og fékk félaga minn
frá Finnlandi með mér í það. Þá
sömdum við þetta dansverk.“ Ólöf
segir ferlið kring um samningu
verksins búið að vera fróðlegt og
skemmtilegt. „Þegar maður er
yngri er maður sjálfur uppfullur
af fordómum gagnvart þessu tima-
bili ævinnar. Svo kemur í ljós að
það er ekkert leiðinlegt. í mörgum
tilfellum mjög spennandi. Stjórn-
endur eru til dæmis flestir á þessu
skeiði. Við ætlum að dansa um
þetta allt saman, horfast 1 augu
við eigin fordóma og hafa gaman
af því að eldast."
-Gun.
DV-MYND HILMAR ÞÖR
Byltlngin
Ólöf Ingólfsdóttir og Ismo-Pekka dansa við tónlist Halls Ingólfssonar.
m