Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 Útlönd DV REUTER-MYND Annaö í oröi en á borði Bush Bandaríkjaforseti krefst þess aö önnur iönd ástundi frjálsa versl- un en sjálfum finnst honum í lagi aö setja á verndartolla. Tollar á innflutt stál gagnrýndir Bandarísk stjórnvöld hafa kallaö yfir sig reiði helstu stáiframleiðslu- rikja heimsins fyrir þá ákvörðun sína að setja háa tolla á innflutt stál. Framleiöendur hafa hótað hefndar- aðgerðum og málaferlum. Evrópusambandið var ekki seint á sér að fordæma ákvörðun Banda- ríkjamanna sem ætlað er að koma til vemdar bandarískum stáliðnaði. Hann á í vök að verjast. ESB sagðist ætla að fara með málið fyrir Heims- viðskiptastofnunina (WTO). Önnur stór framleiðslulönd, svo sem Japan, Brasilía, Rússland og Suður-Kórea, hétu því einnig að berjast gegn vemdartollunum sem prédikarar frjálsra viöskipta í Was- hington ætla að setja. Settur verður allt að 30 prósenta tollur á innílutt stál frá og með 20. mars og mun hann gilda í þrjú ár. Verölaunahöfund- ur fer í fangelsi Hæstiréttur Indlands fann verð- launahöfundinn Arundhati Roy sek- an i morgun um óvirðingu við rétt- inn og dæmdi í eins dags tukthús- vist. Höfundurinn hafði sér það til saka unnið að taka þátt í baráttu gegn umdeildri stíflugerð. „Við erum ekki í vafa um að hún gerði sig seka um glæpsamlega óvirðingu," sagði í úrskurði hæsta- réttarins. Dómaramir ákváðu hins vegar að sýna sakborningnum miskunn, meðal annars á þeirri forsendu að um konu væri að ræða. Roy kom með bakpoka í réttarsalinn, tilbúin í afþlánunina. Roy er frægust fyrir bók sína Guð hins smáa sem komið hefur meðal annars út á íslensku. Átökin gegn liðssveitum talibana og al-Qaeda gætu dregist á langinn: Mikið mannfall í liði tali- bana í Paktia-fjöllum Talsmenn bandaríska hersins í Afganistan vöruðu í gær við því að átökin viö liðssveitir taibana og al- Qeada-samtakanna í fjalllendi Paktia- héraðs í austurhluta landsins, sem staðiö hafa síðan á fostudag, gætu dregist á langinn. Að sögn Johns Rosa herforingja er mikil vinna fram und- an í barátunni gegn óvininum og langt í að henni Ijúki að hans mati. í morgun bárust fréttir af hörðum bardögum nálægt meintum bæki- stöðvum liðssveita talibana og hefur alþjóðaherinn, sem auk hersveita heimamanna er skipaður hermönnum frá Bandarikjunu, Ástraliu, Kanada, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi og Noregi, mætt harðri mótspymu tali- bana, sem haldið hafa uppi stöðugri vélbyssu- og sprengjuskothríð. í gær var kallað eftir aðstoð fimm nýrra árásarþyrlna frá bandaríska flotanum í stað þeirra sem skemmd- ust í átökum helgarinnar og hafa þær þegar hafið aðgerðir með eldflauga- Bandarískir sérsveitarmenn. árásum á hellasvæðið í fjöllunum. Að sögn Johns Rosa eru aðstæður mjög erfiðar í íjöllunum og tefja þær mjög fyrir sókninni, en foringjar al- þjóðasveitanna hafa í gær og í dag lagt meiri áherslu að að sækja fram með landherinn og því dregið nokkuð úr loftárásum. Samkvæmt óstaðfestum fréttum í gær höfðu meira en hundrað taliban- ar þegar fallið í bardögunum síðan á fóstudag, en í morgun bárust þær fréttir að meira en 500 talibanar væru fallnir. „Við erum búnir að drepa mun fleiri en við héldum í fyrstu," sagði Walter Piatt, foringi í banda- rísku sérsveitunum, og bætti við að hann teldi að talibanar hefðu misst meira en helming manna sinna á svæðinu. í gær bárust þær fréttir frá Afgan- istan að kanadisk blaöakona hefði særst alvarlega þegar handsprengju var kastað inn í bil hennar, en hún mun hafa fylgst með átökunum í Paktia-héraði frá borginni Gardez. Þá bárust þær fréttir í morgun að upp hefði komist um samsæri afganskra heittrúarmanna um að ræna erlend- um fréttamanni í Kabúl. Karl Bretaprins á Bananal-eyju Karl Bretaprins kom viö á Bananal-eyju á Amasonsvæöinu í Brasilíu í gær á ferö sinni um Suöur-Ameríku. Hér sjáum viö Karl í heimsókn hjá Karaja-indíánum sem búa á eyjunni og er höföingi þeirra aö heiöra prinsinn meö forláta hálsfesti. Eftir heimsóknina til Amason hélt Karl til Mexíkós. Auglýsendur, athugið: Miðvikudaginn 13. marsfylgir DV blaðauki um fermingar 2002. Munið að síðasti skiladagur auglýsinga erföstudagurinn 8. mars nk. Allar ndnari upplýsingar veita sölufulltrúar auglýsingadeildar í síma 550 5000. Sími 550 50001 Fax 550 57271 Netfang auglysingar@dv.is Stuttar fréttir Daschle upplýstur Embættismenn Hvíta hússins upp- lýstu Tom Daschle, leiðtoga demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, um myndun leyni- legrar vararíkis- stjómar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í september. Daschle var upplýstur til að koma í veg fyrir gagnrýni um að þessu hafi verið leynt fyrir demókrötum. Átta fórust í jarðskjálfta Átta manns týndu lífi og rúmlega hundrað slösuðust í jarðskjálfta sem varð á sunnanverðum Filippseyjum í morgun. Hús skemmdust og raf- magn fór af borgum. Fangar enn í svelti Harður kjarni fanganna frá Afganistan í flotastöð Bandaríkja- manna á Kúbu neitar enn að borða. Kínverjar ætla að eyða Kínversk stjórnvöld sögðu í morgun að þau ætluðu að verja miklu fé í velferðarkerfið og innviði ríkisins til að lægja reiðiöldur með- al bænda og verkamanna. Eldur í jarðgöngum Nítján starfsmenn lokuðust inni í brennandi jarðgöngum á hraðbraut sem er í smíðum nærri París. Þeim var bjargað heilum á húfi en einn slökkviliðsmaður slasaðist illa. Páfi slæmur í hné í- 1 vikulegri áheyrn I 'i j sinni í dag að ráði lækna. Páfi þjáist af S hefur hún valdið yt^l óþægindum. Páfi mun þó ávarpa pilagríma á Péturs- torginu úr glugga sínum. Bossi enn til vandræða Stjórnarandstæðingar á Ítalíu hafa krafist þess að Umberto Bossi, leiðtogi Norðurbandalagsins og um- bótaráðherra, verði látinn víkja vegna ásakana hans um að Evrópu- sambandið væri fasískt. Kratar vænta sektar Jafnaðarmanna- flokkur Gerhards Schröders Þýska- landskanslara á von á því að flokknum verði gert að greiða háar fjársektir vegna hneykslis- máls í flokksdeild- inni í Köln. Það mun snúast um ólöglega fjármögnun flokksstarfs- ins. Þá mega kratar eiga von á erf- iðum spumingum frá íhaldsmönn- um í stjómarandstöðu. Tala látinna yfir 600 Tala látinna í átökum múslima og hindúa i Gujarat-fylki á Indlandi er nú komin yfir sex hundruð, eftir að fleiri lík fundust í gær. Tiltölulega rólegt var í Gujarat í gær. Jagúar drepur mann Jagúar réðst á starfskonu Schön- brunn-dýragsirðsins í Vínarborg í gær og varð honum að bana. Konan ætlaði að gefa dýrinu að éta. Jagú- arinn lagði síðan til atlögu gegn for- stjóra dýragarðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.