Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Qupperneq 19
18 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 MIÐVKUDAGUR 6. MARS 2002 23 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Fréttastjóri: Birgir Guómundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiósla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Vemd heimildarmanna Blaðamaður virðir nauðsynlegan trúnað við heimildar- menn sína. Þetta eru gömul sannindi og ný, grundvallarat- riði í blaðamennsku og undirstrikuð í siðareglum blaða- manna. Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlutverki í samfélag- inu. Þeirra er að upplýsa, vera vettvangur skoðanaskipta og veita aðhald. Heimildir og heimildarmenn eru meðal þess þýðingarmesta í starfi fjölmiðla svo þeir geti rækt hlutverk sitt. Því skiptir gagnkvæmt traust og um leið trúnaður blaða- og heimildarmanns öllu. Blaðamanni sem heitir heimildarmanni nafnleynd ber að standa við það heit. Þessi grundvallaratriði hafa einkum verið rædd innan stéttar blaða- og fréttamanna en eru nú á hvers manns vör- um eftir að yfirstjórn Landssímans greip til þess óyndisúr- ræðis að segja upp starfsmanni sem komið hafði upplýsing- um til DV um greiðslur fyrirtækisins til einkafyrirtækis stjórnarformanns þess án vitundar annarra stjórnar- manna. Heimildarmaður blaðsins mat það svo að stjórnar- formaðurinn hefði brugðist trúnaði eigenda og stjórnar Landssímans. Hann fann sig knúinn til þess að gegna borg- aralegri skyldu sinni og koma þessu á framfæri. Eftir mat á mögulegum boðleiðum taldi heimildarmaður- inn skilvirkast að koma upplýsingum varðandi viðskipti einkafyrirtækis stjórnarformannsins við Landssímann til DV. Blaðamaðurinn sem við gögnunum tók vann málið af vandvirkni og blaðið birti um það frétt, sem hluta af frétta- syrpu um máefni Landssímans, sem að vonum vakti at- hygli. Blaðamaðurinn hélt trúnað við heimildarmann sinn í einu og öllu. Rannsókn innan veggja Landssímans, þar sem m.a. var leitað upplýsingaleka með tæknilegum aðferðum, leiddi hins vegar til þess að heimildarmaðurinn ákvað að koma fram undir nafni. í upphafi máls fann hann sig knúinn til þess, að vel athuguðu máli, að koma á framfæri háttsemi sem hann taldi ólíðandi í fyrirtæki sem er í eigu almenn- ings. Ákvörðunin var djörf en honum ofbauð. Um leið gerði hann sér grein fyrir mögulegum afleiðingum gerða sinna. Hann mat það svo að minni hagsmunir yrðu að víkja fyrir meiri. Fyrir það galt hann með starfi sínu. Fréttastjóri Morgunblaðsins hefur haldið því fram að vinnubrögð blaðamanns DV hafi valdið því að upp komst um heimildarmanninn. Það er alrangt og furðulegur mál- flutningur. Þeim áburði verður ekki betur svarað en af heimildarmanninum sjálfum sem sendi Morgunblaðinu yf- irlýsingu sem það birti í gær. Þar segist hann hafa átt upp- lýsingagjöfina við samvisku sína og iðrast einskis. Hann vísar skoðun fréttastjóra Morgunblaðsins á bug enda hafi blaðamaðurinn og DV haldið fullan trúnað og njóti fulls og óskorað trausts hans. Blaðamönnum ber að vernda heimildarmenn sína og hæstaréttardómur, raunar í máli fyrrnefnds fréttastjóra Morgunblaðsins, hefur verið túlkaður á þann veg að vegna almannahagsmuna geti blaðamenn í reynd verndað þá. Heimildarmennirnir njóta hins vegar ekki sérstakrar verndar. Þar er breytinga þörf. Dæmið um Landssímann sýnir nauðsyn löggjafar sem verndar heimildarmenn. Slík löggjöf þekkist í nágrannalöndum okkar. Blaðamannafélag- ið hefur ákveðið að láta vinna úttekt á slíkri lagavernd og niðurstöðum verður komið til stjórnvalda sem og tillögum til úrbóta. Varaformaður Blaðamannafélagsins hefur réttilega bent á að slík lagasetning snúist um að í opnu lýðræðislegu sam- félagi eigi hver sem er að mega upplýsa fjölmiðla um hvað- eina sem mikilvægt er að almenningur fái vitneskju um, án þess að hinn sami sé leitaður uppi og beittur viðurlögum. Jónas Haraldsson DV Skoðun Kynlífs(af)bylting Eitt af baráttumálum femínista gegnum árin hefur snúist um að jafna kynferðis- lega slagsíðu sjónvarpsefnis og kvikmynda. Mikið hefur áunnist í að sýna kynin og samskipti þeirra í sem sann- gjörnustu ljósi. Vinsæl sjón- varpsþáttaröð er hins vegar á góðri leið með að gera þessa baráttu að engu. Þessir þætt- ir eru Beðmál í borginni. Kjallari Konurnar karlrembur? Persónur þáttanna, þrátt —— fyrir að virðast afar nýtískulegar, falla í sterkar og gamlar erkitýpu- myndir. Nýmælið er hins vegar kyn- ferði þeirra. Aðalpersónurnar fjórar, einhleypingar á miðjum fertugsaldri, eru nefnilega kvenkyns. Hegðun þeirra myndi þó sóma sér vel á hinni örgustu karlrembu. Helstu einkenni þeirra eru að vera hræddar við al- varlega tilfinningalega skuldbind- ingu, hugsa óhugnanlega mikið um kynlíf (að hugsa með typpinu væri það kaUað hjá karlmönnum) og að nota karlmenn sem hluti. Ef karlmaður hegðaði sér eins og Andrés Ingi Jónsson háskólanemi þær stöllur yrði hann um- svifalaust úthrópaður hin versta karlremba og gott ef hann þætti ekki vera með gráa fiðringinn á háu stigi. Karlpersónur þátt- anna eru aftur á móti aumkunarverður hópur. Þeir eru svo soltnir i ást kvenna að þeir leyfa þeim endalaust að vaða yfir sig. Sjálfsvirðing þeirra er í lágmarki - konurnar geta notað þá eins og tuskur og '■ síðan kastað þeim frá sér. Þeir fáu karlmenn sem lausir eru undan ánauð kvennanna eru sýndir annaðhvort sem hlægilegir (til dæm- is með gráa fiðringinn eða kynferðis- lega brenglun) eða samkynhneigðir, nema bæði sé. Ef hlutverk kynjanna væru á hinn veginn væri tæpast eins hljótt um þessa þáttaröð. Hver einasti rétt þenkjandi femínisti myndi stíga á stokk og dæma þættina hina verstu móðgun við konur. Þá þætti verið að sýna samskipti kynjanna sem hið hefðbundna samband húsbónda og þræls, sem væri sjónarmið aftan úr myrkustu miðöldum. En af hverju heyrist ekkert í þessum forkólfum jafn- réttis núna, þegar sam- skiptin eru engu síður forneskjuleg, aðeins með breyttum formerkjum? Þykir þetta kannski eðli- leg þróun í ljósi jafnrétt- isbaráttunnar? Karlarnir kúgaðir? Baráttan fyrir jöfnum rétti kynjanna hefur einna helst beinst að því að minnka völd karla og auka völd kvenna. Þessi jöfnun hefur teygt anga sína víða, og er nú svo komið að búið er að rýja karlmenn karlmennsku sinni. Samhliða hafa kvenmenn karlvætt sig, væntanlega til að eiga auðveldar uppdráttar í hinum „karllæga" veruleika. „Persónur þáttanna, þrátt fyrir að virðast afar nýtískulegar, falla í sterkar og gamlar erkitýpu- myndir. Nýmælið er hins vegar kynferði þeirra. Aðalpersónumar fjórar, einhleypingar á miðjum fertugsaldri, eru nefnilega kvenkyns.“ Sem ungur karlmaður í þessu umhverfi hef ég ekki farið varhluta af þessari þróun. Herramennska, á borð við að opna konum dyr, telst ekki lengur kurteisi heldur eitt af helstu kúgun- artækjum kyns míns. Það sem karl- mönnum kann að vera tamt að gera fær á sig forboðinn stimpil, þannig að upp vex kynslóð karla sem ekki kann almennilega að hegða sér innan um kon- ur. Síðan koma Carrie og vinkonur og reiða okkur rothöggið. Auðvitað er hægt að benda á að þættirnir séu bara ætlaðir sem skemmti- efni - ekki heilög ritning. Ég tek heils hugar undir það. Sjálfur hef ég óskap- lega gaman af að horfa á þá. Málið er bara að skemmtiefni getur aldrei verið stikkfrí. Þetta atriði hafa femínistar ítrekað bent á í gegnum tíðina. Um leið og samfélagið fer að mótast eftir þessari af- þreyingu - og það mun án efa gerast fyrr en síðar - þá verður heldur betur illt í efni. Sá boðskapur sem gæti ómeðvitað komið til framkvæmda væri að alda- langa kúgun kvenna megi nota sem réttlætingu fyrir kúgun karla. Hefur þá barátta femínista fyrir jöfnum rétti kynjanna verið til einskis? Andrés Ingi Jónsson Spilling út og suður Fjölmiðlamenn spyrja marga um hneyksli, sukk og óráðsíu síðustu daga og mánaða. Og það kemur fyrir að þeir spyrja ýmsa oddvita Sjálf- stæðisflokksins (með ofurkurt- eislegri varfæmi þó) að því, hvort það komi sér ekki illa fyrir þá, að þeir menn sem helst lenda í fjöl- miðlakvömun fyrir spillingu og ann- að vafasamt eru sjálfir atkvæða- menn í Sjálfstæðisflokknum og skip- aðir til starfa af ráðamönnum hans. Mál flokks eða ríkis? Svörin eru eins og búast má við: Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki eignarétt á spillingu. Einnig er vísað til þess að hvert mál verði skoðað og sekir muni sæta ábyrgð (og bíða all- ir spenntir eftir því hvemig verður við slik fyrirheit staðið). En svo er annað í þessum viðbrögðum. Tals- menn flokksins stóra reyna að banda málum burt frá sér í þessa átt hér: Fyrst er sagt: þetta er ekki mál flokksins, þetta er mál sem varðar einstaklinga. Síðan er farið að draga úr „ábyrgð einstaklingsins" með því að fjasa sem mest um annað. Nánar tiltekið um það, að spilling og annað sukk þrífist einmitt vegna þess að um sé að ræða ríkisstofnanir og fyr- irtæki. Sjálfstæðismenn láta sem allt sem opinbera geiranum tilheyrir sé dæmt til spillingar (jafnvel þótt sjálf- ur Sjálfstæðisflokkurinn fari með öll helstu völd) - og allt mundi færast í skikkanlegt horf ef einkarekstur væri alfarið tekinn við. Allir vita að þetta er, með leyfi að segja, tóm tjara. Vafasöm sjálftaka fjár er auðvitað al- geng í einkafyrirtækjum, sömuleiðis það að rugla grimmt saman einkaneyslu og rekstri, ráða fjölskyldu- meðlimi í vel launaða bit- linga sem enginn veit í hverju felast o.s.frv. Munur- inn er sá, að ef um opinbera geirann er að ræða, eru þó einhverjar líkur til þess að eftirlit beri árangur. Þá eru að minnsta kosti líkur á að spurt verði um vafasama reikninga og færslur. En þegar reksturinn er kóminn í heilagan einkarekstur þá er allt í einu skrúfað fyrir upplýsing- ar endanlega. Þá er fjölmiðlafólki sem öðrum sagt að skipta sér ekki af því sem þeim ekki kemur við. Og því miður hefur tekist að telja almenningi trú um að þetta sé svona: Okkur kemur misferli við í opinbera geiranum af því aö um „skattpen- inga okkar“ er að ræða, en það sem gerist t.d. hjá Olís eða Baugi er þeirra einkamál. Þetta er auðvitað vitleysa. Misferli og vafasamt bók- hald kemur öllum við. Það er tengt viðleitni velríkra manna til að koma sér hjá sköttum og skyldum - við- leitni sem hlýtur að leggja meiri byrðar en ella á venjulegt fólk. Og svindl alls konar gerir margt í senn: hækkar verð á vöru og þjónustu og gerir miklar skráveifur þeim verð- bréfamörkuðum sem almennings hefur verið freistað til að taka þátt i og treysta á. Síminn og Enron Og stjórnir t.d. Símans íslenska, þær eru ekkert lakari en stjómir stórra hlutafélaga í einkageira vegna þess að þær eigi sér pólitiskan uppruna. Eins og dæmi sanna eiga þeir sem standa í forstjóraleiknum jafn auðvelt með að fela upplýsingar fyrir þeim öllum eða grafa þær í óskiljanlegum bókhalds- flækjum. Gleymum ekki heldur stóru og spánnýju dæmi: orkurisanum bandaríska, Enron. Þetta var geipilega virðulegt og ríkt fyrirtæki. En holgrafið af spillingu og svindli sem miðaði að því að gefa falskar upplýsingar og hafa feikna- upphæðir af viðskiptavinum og starfsmönnum. Þegar upp er staðið segist „ábyrg stjóm“ þessa félags ekki hafa vitað um neitt misjafnt og forstjóramir ekki heldur. Það sem meira er: flestir neita þeir að svara spurningum opinberrar rannsóknar- nefndar um glæpsamlegt gjaldþrot sem þeir stórgræddu á persónulega. Og komast sjálfsagt upp með það að drekkja ábyrgð sinni í endalausum lagakrókum og undanbrögðum. En- ron kemur okkur við líka - af því að markaðstrúarmenn vitna mjög til stóra bróður okkur til fyrirmyndar, til Bandaríkjanna þar sem hefðir eiga að vera svo öflugar fyrir við- skiptalífi og rekstri sem fari að sett- um reglum. Nei, það væri bamaskapur að láta sjálfstæðismenn komast upp með að fela sig á bak við ríkisgrýluna í hneykslismálum dagsins. Ámi Bergmann „Vafasöm sjálftaka fjár er auðvitað algeng í einkafyrir- tœkjum, sömuleiðis það að rugla grimmt saman einka- neyslu og rekstri, ráða fjölskyldumeðlimi í vel launaða bitlinga sem enginn veit í hverju felast o.s.frv. Munurinn er sá að ef um opinbera geirann er að rœða eru þó ein- hverjar líkur til þess að eftirlit beri árangur. “ Ummæli__________ Er í okkar höndum „Sá sem gerir eintóm mistök á ekki að fá starfslokasamning upp á 37 milljónir heldur vera rekinn með skömm. Á ekki að sitja sem fastast. Á að sæta lögreglurannsókn fyrir yfirsjón í starfi. Á að sæta rannsókn skattayfir- valda. Á ekki að geta skýlt sér bak við hlutafélagalög þegar um ríkisfyrirtæki er að ræða. Á að sæta frelsissviptingu ef brotið er það alvarlegt. Á ekki að geta rifið kjaft og neitað öllum sökum. Á ekki að reyna að koma höggi á blaðamenn fyrir að sinna störfum sín- um. Sá sem gerir eintóm mistök ætti einfaldlega að skammast sín og draga sig kurteislega í hlé. Sá sem gerir ein- tóm mistök og er ekkert nema hrok- inn yfir því þarf á flengingu að halda. Vöndurinn er í okkar höndum." Bjarni Brynjólfsson í Séö og heyrt. Prófíll Björns „Sjálfstæðisflokksins bíður ærið verk að brjótast út úr hinum harða fylgiskjama sinum og vinna þessar þúsundir kjósenda á sitt band. Margir myndu telja að það sé nánast ekki hægt á svo skömmum tíma, jafnvel þótt mikil kosningavél verði sett í gang. Til þess þurfl að koma upp stór mál sem Sjáifstæðisflokkurinn geti notfært sér eða þá að R-listinn fremji einhver ógurleg axarsköft. Bjöm Bjarnason hefur nokkuð eindreginn prófll sem stjómmálamaður; það er erfitt að fara að milda hann eða breyta honum eitthvað að ráði. Kosn- ingaráðgjafar Sjálfstæðisflokksins velta þessu sjálfsagt fyrir sér, en ég er ekki viss um að það sé góð hugmynd. Björn nýtur virðingar fyrir atorku og gáfur fremur en vinsælda. Egill Helgason á Strik.is Spurtog svaraö Er eðlilegt að rekstur Fangelsismálastofnunar sé eins háður sértekjum og Margrét Frímannsdóttir, alþingismadur Samfylkingar: Mannrétt- indabrot „Það er tímabært að endurskoða reksturinn frá grunni. Ekki síst í ljósi þess að fangar vinna störf, svo sem við gerð númeraplatna, án þess að greidd séu trygginga- gjöld. Tekjur eru meiri en eðlilegt getur talist því það ætti að greiða opinber gjöld af vinnu fanga eins og annarra. Þá gætu þeir safnað upp réttindum til atvinnuleysisbóta eða í lífeyri. Þetta er ekki gert og því er að hluta um svarta at- vinnustarfsemi. Að mínu mati fellur það undir mannrétt- indabrot ef möguleikar Fangelsismálastofnunar til að reka fangelsi með eðlilegum hætti eru skertir vegna þess að dregið er úr atvinnustarfsemi og við því þarf að bregð- ast strax. Það er ákveðið mannréttindabrot ef maður sem hlotið hefur dóm þarf að bíða eftir að komast í afplánun.“ Birgir Ármannsson, Verslunarrádi íslands: Getur orkað tvímœlis „Þaö er ein af grundvallarskyld- um ríkisins að sjá til þess að þeir sem dæmdir hafa verið til fangelsis- vistar afpláni dóma sína. Ef fongum flölgar vegna fleiri fangelsisdóma og/eða þyngri refsinga verður auðvitað að gera ráð fyrir auknum fjárveitingum til þessa mála- flokks. Sértekjur einstakra ríkisstofnana kunna að eiga rétt á sér í ákveðnum tilvikum, sérstaklega þegar um þjónustustofnanir er að ræða, en geta í öðrum til- vikum orkað tvfmælis, t.d. þegar sérteknanna er aflað með atvinnustarfsemi sem betur væri komin í hönd- um einkaaðila. Þannig getur verið að ýmsar sértekjur Fangelsismálastofnunar stafi af rekstri sem betur ætti heima úti á hinum frjálsa markaði." Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstœðisflokks: Ekki eðlilegt „Fyrirkomulag fangelsismála bygg- ir á fyrirmyndum sem sóttar eru út fyrir landsteinana. Á mörgum stöðum erlendis er gert ráð fyrir sértekjum innan fangelsanna. Það er hins vegar eitt að hafa sértekjur og annað að vera háð- ur þeim. Það er mín skoðun að það sé ekkert óeðlilegt að Fangelsismálastofnun fái fjármagn með framleiðslu bíl- númeraskilta. Aftur á móti getur það ekki talist eðlilegt að rekstur sé háður þessum sértekjum. Ég tel að það þurfi að skoða þessi mál í mun stærra samhengi og almennt þarf að skoða refsipólitíkina sem slíka. Menn eru dæmdir til fang- elsisvistar og eðliiegt framhald dóms er afplánun. íslenska réttarkerfið verður að vera í stakk búið að taka á móti þeim brotamönnum sem dæmdir eru til refsivistar." Lúðvik Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar: Hlutverk ríkis að reka fangelsi „Ég hef alltaf talið rekstur fang- elsa vera eitt af hlutverkum rfkis- ins. Rekstur fangelsa á að taka mið af þörf hverju sinni en ekki hvemig til tekst með innflutning bíla eða hvernig til tekst að vinna að beitningum. í mínum huga er það fráleitt að rekstur og aðbúnaður fanga sé grundvaliaður á af- komu fyrmefndra atvinnugreina. Það em horfur á að biðlistar myndist ef sumarlokanir koma til í fangelsum eins og tíðkast hefur á sjúkrahúsunum. Við höfum refsivörslukerfi og það hlýtur aOtaf að vera hlutverk ríkisins að sjá til þess að kerfið sé virkt og þeir brotamenn sem dæmdir em í fangelsi afþláni dóma sína sem fyrst.“ gj Fangelsismálastofnun hefur orðiö fyrir tekjumissi vegna smíði á bílnúmeraplötum og færri verkefna við beltningar. Þetta er hluti skýringarinnar á því að stofnunin á í erfiðleikum og hefur hætt að kalla inn fanga til afplánunar. Umferð í London séð með augum íslensks Ijósmyndara. DV-MYND HARI Óbilandi trún- aðartraust nia gengur Sjálfstæðis- flokknum í Reykjavík að ná vopnum sínum. í skoðana- könnun DV sem gerð var eftir að Jjóst varð hverjir skipa sæti á listanum hrap- ar fylgi flokksins og nær hann aðeins sex borgarfull- trúum inn en R-listinn níu. Samt er sigurlistinn ekki fullkskipaður enn. Eitthvað mikið og óvænt má gerast í pólitíkinni ef koma á í veg fyrir að vinstri menn stjórni höfuðborginni þriðja kjör- tímabilið í röð. Freistandi væri að skýra bága út- komu Sjálfstæðisflokksins með því að kjósendur hafi fengið sig fuOsadda af símaklúðri og fleiru þar sem sérstak- ir trúnaðarvinir flokksforystunnar hafa átt í vondum málum og hneyksl- anlegum og þingmaður misst sæti sitt fyrir frjálslega meðferð á opinberu fé. En sú skýring stenst tæpast, því sam- kvæmt öðrum könnunum stendur flokkurinn vel á landsvísu og bætir við sig þingmönnum. Af þessu má ljóst vera að hneyksl- ismál sem virðast einskorðast við flokksgæðinga hafa ekki áhrif á kjós- endur. Flokksforystan stendur jafn- keik eftir sem áður og þótt stungið sé upp á að ráðherra segi af sér tekur enginn það alvarlega, síst hann sjálf- ur. Þetta sýnir að umburðarlyndi kjósenda er mikið og að þeir gera ekki háar siðferðiskröfur til þeirra manna sem trúað er fyrir að fara með málefni og fjármuni ríkisstofnana. Traustið á æðstu stjórn landsins bflar ekki þótt skósveinar ráðherra séu staðnir að ýmsu misjöfnu og mis- noti aðstöðu sína gróflega tfl að auðg- ast, ýmist með löglegum hætti eða á skjön viö heiðarlega framkomu. Aðrar skýringar Leita verður annarra skýringa á fylgistapi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en að kjósendur séu að hegna honum fyrir yfirsjónir nokk- urra áberandi flokksmanna, sem eiga það sameiginlegt að vera útveg- uð aðstaða tfl sjáiftöku fjár í ríkis- stofnunum. Nokkur endurnýjun er á listum beggja framboðanna í Reykjavík en sýnu meiri á D-listanum þar sem skipt var um í forystusætinu. Bjöm Bjamason hefur verið dugmikill ráð- herra í sjö ár og hefur mikla póli- tíska reynslu. Samt dregur hann ekki fylgi til flokks síns í borginni. Er ekki annað sýnna en að Ingi- björg Sólrún sé svo sterkur frambjóðandi að ekki tjói að etja við hana kappi. Aðr- ar breytingar á listunum kunna að hafa einhver áhrif á kjósendur, en varla svo miklu nemi. Kosning- amar í Reykjavík verða einvígi milli borgarstjóra- efnanna og kemur kjósend- um lítið við hvað aðrir frambjóðend- ur hafa fram að færa. Átta ára ferill R-listans er hnökra- lítfll og ekki hefur tekist að vekja upp nein mál sem verulegur ágrein- ingur er um eða borgarbúar almennt láta sig miklu varða. Það sem af er kosningabaráttunni hefur ekki verið tekist á við neitt sem verulegu máli skiptir og eru frambjóðendur enn að busla í grunnu lauginni og er jafnvel vafasamt að þeir komist út í þá djúpu þegar nær dregur kosningum. Dularfull spurning Fyrir síðustu borgarstjórnarkosn- ingar var þyrlað upp miklu mold- viðri vegna fyrirtækis sem tveir frambjóðenda R-listans áttu og hafði miður gott orð á sér. Ekki dró það úr kosningasigrinum. Er greinilegt að kjósendur líta framhjá siðferði og vafasömum íjáraflauppátækjum flokka, stjórnmálamanna og flokks- gæðinga. Gott gengi Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum þar sem spurt er um alþingiskosningar sýnir glöggt að siðferðisbrestur flokksmanna í trúnaðarstöðum, sem flokksskírteini veitir aðgang að, hefur engin afger- andi áhrif á kjörfylgi flokksins. Útkomunni í Reykjavík er hægt aö velta fyrir sér á ýmsa vegu og byrja á að spyrja hver sé munurinn á stefnumiðum listanna. Óhætt er að fullyrða að meginþorri Reykvíkinga á kosningaaldri mun standa á gati frammi fyrir svo dularfullri spurn- ingu. Oft er minnt á að skoðanakönnun er ekki kosning. En ærið oft fara þær nærri kosningatölum þegar upp er staðið. Enn á mikið vatn eftir að renna í djúpu laugina áður en geng- ið verður tfl atkvæða um sveitar- stjórnir. Á þeim tíma tekst kannski að vekja upp mál sem hægt verður að deila hressilega um, en þar sem góðir skandalar hafa ekki áhrif á kjósendur er manni spurn; tfl hvaða ráða er þá hægt að grípa til að hleypa fjöri í kosningabaráttuna í borginni? Af þessu má Ijóst vera að hneykslismál sem virðast ein- skorðast við flokksgœðinga hafa ekki áhrif á kjósendur. Flokksforystan stendur jafnkeik eftir sem áður og þótt stungið sé upp á að ráðherra segi af sér tekur enginn það alvarlega, síst hann sjálfur. Þetta sýnir að umburðarlyndi kjósenda er mikið og að þeir gera ekki háar siðferðiskröf- ur til þeirra manna sem trúað er fyrir að fara með mál- efni og fjármuni ríkisstofnana. c *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.