Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 36
Landssímamaðurinn:
Stuðningur
landsmanna
■' gleður mig
Stuðningur landsmanna gleður
mig,“ segir Halldór Örn Egilson,
fyrrverandi starfsmaður Landssím-
ans, sem upplýsti DV á sínum tíma
um Góðráð Friðriks Pálssonar sem
þáði milljónir frá Landssímanum
fyrir ráðgjafarstörf. Halldór var rek-
inn frá Símanum vegna upp-
ljóstrana. í skoðanakönnun DV, sem
gerð var í vikunni, kemur fram að 8
af hverjum 10 landsmönnum telja
að rangt hafi verið af stjórnendum
Símans að reka hann.
Uppljóstranir Halldórs í DV
drógu þann dilk á eftir sér að tveir
stjórnarmenn sögðu af sér og nú
« hefur forsætisráðherra lýst því yfir
að skipta eigi út allri stjóm Lands-
símans.
„Ég taldi mig vera að vinna þjóð-
þrifaverk. Þjóðin fékk þær upplýs-
ingar sem hún átti rétt á,“ segir
Halldór sem manna í milli kallast
Litli Landssímamaðurinn. .
Nánar á bls. 6 -rt
Skák í Ráðhúsinu:
Jóhann kominn
1 f í undanúrsiit
í átta liða úrslitum i hinu sterka
Minningarskákmóti sem fram fer í
Ráhúsinu áttu íslendingar tvo full-
trúa, Jóhann Hjartarson, sem sigraði
andstæðing sinn, Nick De Firmian, og
Hannes Hlífar Stefánsson, sem tapaði
íyrir Jan Votova. í hinum skákunum
tveimur sigraði Ivan Sokolov Jan
Timman og Thomas Oral sigraði Vla-
dimir Malakhov. í undanúrslitum í
dag teflir Jóhann við Jan Votova og
Ivan Sokolov við Tomas Oral. Skák-
irnar hefjast kl. 17.00. -HK
Lagaprófessor:
, Afplánunarmál
óviöunandi
Eiríkur Tómasson lagaprófessor
segir að óviðunandi sé í réttarríki
eins og Islandi að fangar komist ekki
í afpiánun fyrr en i haust. Hann bend-
ir einnig á að mannréttindabrot við-
gangist í fangelsum landsins þar sem
gæsluvarðhaldsfangar eru vistaðir
með afplánunarfóngum, þaö er sak-
laust og ódæmt fólk með dæmdum
sakamönnum.
í fréttaljósi DV í dag er það einnig
rætt að allir sakamenn eigi rétt á
skjótri og sanngjamri málsmeðferð.
Engin lög, önnur en fyrningalög, virð-
ast gilda um að menn fái í ljósi þess
að ljúka sínum málum sem fýrst með
n + afplánun. í fréttaljósinu er einnig rætt
við Sólveigu Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra. Sjá Fréttaljós bls. 11 -Ótt
REGJERINGEN
LEVE!
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað i DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
i hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum ailan
sólarhringinn.
550 5555
FRJ ALST, OHAÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002
SÁÁ sagði upp samningi við Fangelsismálastofnun:
Engir fangar í
meðferð hjá SAA
áform um eigin deild á Litla-Hrauni liggja niðri
Fangar komast ekki lengur í
áfengis- eða vímuefnameðferð hjá
SÁÁ á siðari stigum afplánunar
eins og verið hefur um margra ára
bil. Ástæðan er sú að SÁÁ sagði upp
samningi við Fangelsismálastofnun
frá og með áramótum. Ofan á þetta
vandamál hefur sú staða komið upp,
samfara hallarekstri fangelsanna,
að hætt er við að setja upp meðferð-
ardeild á Litla-Hrauni vegna fjár-
skorts. Samkvæmt þessu er ljóst að
eitt brýnasta verkefni Fangelsis-
málastofnunar, að reyna að leysa
neysluvanda fanga, er mjög tak-
markað. Á hinn bóginn hefur opn-
ast fyrir aðstöðu hjá Hlaðgerðarkoti
fyrir fanga á síðari stigum afplán-
unar.
Þorsteinn A.
Jónsson forstjóri
segir að stofnun-
in sé síður en svo
í stríði við SÁÁ
heldur hafi með-
ferðarstofnunin
óskað eftir að
fangelsisyfirvöld
ykju verulega við
þær greiðslur
sem reiddar
höfðu verið af hendi fyrir þjónust-
una.
„Viö treystum okkur ekki til
þess,“ sagði Þorsteinn aðspurður
um kröfu SÁÁ um meiri greiðslur.
Fangelsisyfirvöld og dómsmálaráð-
herra hafa lagt áherslu á að koma á
Þorstelnn A.
Jónsson.
sérstakri meðferðardeild fyrir fanga
þar sem hægt er að sækja um að
komast inn hvenær sem er til af-
plánunar. Þorsteinn telur að þannig
verði meðferðarúrræðin miklu skil-
virkari af mörgum ástæðum. Tals-
verðum fjármunum var varið í að
koma deildinni á laggirnar á síðasta
ári en nú er fyrir séð að það mun
ekki gerast, ekki síst þar sem ekki
verður hægt að sinna „frumþörfun-
um“ - að koma fóngum yfir höfuð í
afplánun fyrr en í haust samfara
lokun Hegningarhússins og deildar
þrjú á Litla-Hrauni í sumar.
„Þetta verkefni verður því að
vera eitt af því sem verður á hinum
stóra klaka um sinn,“ sagði Þor-
steinn A. Jónsson. -Ótt
Skiptar skoðanir um fiskveiðifrumvarpið:
Einar Oddur gegn frumvarpinu
- segir að það hljóti að vera hvimleitt fyrir Árna Mathiesen
Stjómarandstæðingar hafa
síðustu tvo daga gert harða
hríð að frumvarpi Áma
Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra um breytta fiskveiði-
stjómun. Fyrsta umræða um
frumvarpið hefur farið fram
og segist Jóhann Ársælsson
ekki sjá neinn tilgang með því
að Alþingi samþykki frum-
varpið, svo vont sé það.
Vinstri grænir telja að
áfram verði gengið á stöðu
Einar Oddur
Krlstjánsson.
um áherslum um breytta
stjórnun fiskveiða. Sameigin-
leg niðurstaða flokkanna er
þó að varla sé hægt að tala
um veiðileyfagjald þótt álög-
ur á sjávarútvegsfyrirtæki
muni aukast í hagstæðu ár-
ferði.
Ámi Mathiesen var líkt og
stundum áður sakaður um
að ganga erinda útgerðarinn-
ar og vilja tryggja óbreytt
og at-
vinnulíf dreifðra byggða og smáfyrir-
tækja en
þá og Samfylkingu greinir á i sum-
völd innan kerfisins. Ámi svaraði því
til að hann gengi erinda allrar þjóðar-
innar en ekki einstakra aðila.
Einar K. Guðfinnsson sagði að
hann gæti aldrei stutt frumvarpið þar
sem hann væri gegn auðlindagjaldi.
Það gæti verið hvimleitt fyrir Árna að
flokksbróðir hans styddi ekki frum-
varpið en það yrði bara að hafa það.
Einar Oddur sagði að hann teldi Áma
betri ráðherra en „bókhaldarana tvo“
sem sátu á undan Áma i ráðherra-
stóli.
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins hafa lagt til að sjómannaafsláttur
verði lagður niður og kom umræða
um afslátt upp í þinginu í gær. Árni
sagði að hann teldi afsláttinn ekki
nauðsynlega forsendu þess að menn
veldu sjósókn. -BÞ
Varla saknæmt
að sitja í
nefndinni
Stefán
Baldursson.
DVJvlYND HILMAR PÓR
„Norsku ráöherrarnir!
Það hefur vakiö athygli að fjóröungur ráöherra ríkisstjórnarinnar er norskur í aöra ættina. Þetta eru þau Geir H.
Haarde, Siv Friöleifsdóttir og Tómas Ingi Olrich. Fjóröi ráöherrann, Valgeröur Sverrisdóttir, eroggift Norðmanni. Fyrir
vikiö eru menn þegar farnir aö kalla stjórnina „Norsku stjórnina“ og hafa fjölmiölar í Noregi sýnt málinu mikinn áhuga
eftir frétt DV á laugardag um máliö. Norskir fjölmiölar hafa veriö á höttunum eftir „norsku ráöherrunum“ og í samtali
viö DV staöfesti Siv Friöleifsdóttir þennan áhuga og kvaöst einmitt hafa veriö aö koma úr viötali viö Aftenposten.
Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri sat í byggingarnefnd Þjóðleik-
hússins með
Árna Johnsen.
„Ég veit ekki til
þess,“ sagði Stef-
án í gærkvöld
þegar DV innti
hann eftir því
hvort hann væri i
hópi þeirra tólf
sem lögreglan
grunar um aðild
að málinu. „Mér
þætti það mjög einkennilegt, enda
getur það varla talist saknæmt að
sitja i byggingarnefndinni."
Mál Árna teygir anga sina víða og
snertir meðal annars viðskipti við
verktakafyrirtækið ístak. Eins og
DV hefur greint frá sendi fyrirtæk-
ið smið heim til Áma, þar sem hann
fékkst við endurbætur á heimili
þingmannsins. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir hefur DV ekki tekist að ná
tali af Páli Sigurjónssyni, forstjóra
ístaks, hvorki í gær né í morgun. Þá
hefur DV fjallað ítarlega um þátt
Árna Johnsens í uppbyggingu
mannvirkja í Brattahlíð á Græn-
landi. Rannsókn Ríkislögreglustjóra
hefur meðal annars beinst að þeim
þætti. Ekki náðist í Svein Fjeldsted,
umsjónarmann framkvæmdanna á
Grænlandi. -ÓTG
Árni Johnsen:
Tjáir sig ekki
„Ég er ekki til viðtals um þetta,“
sagði Ámi Johnsen við DV i gær-
kvöld en hann er
staddur í Færeyj-
um. Hann sagðist
ekki vita hvenær
sá tími kæmi að
hann tjáði sig um
málið en það yrði
í fyrsta lagi eftir
að ríkissaksókn-
ari lýkur við af-
greiðslu þess.
Arni Johnsen.
Árni hefur þegið biðlaun sem al-
þingismaður í þá sex mánuði sem
liðnir eru frá því hann sagði af sér
þingmennsku en samkvæmt upplýs-
ingum Alþingis datt hann út af
launaskrá um nýliðin mánaðamót.
Árni sagði af sér þingmennsku i
byrjun ágústmánaðar á síðasta ári,
um tveimur vikum eftir að hann til-
kynnti formanni Sjálfstæðisflokks-
ins að hann hefði tekið ákvörðun
sma um afsögn.
Ámi situr hins vegar ennþá sem
nefndarmaður í Flugráði, sem fer
með stjórn allra flugmála í landinu
og auk þess situr þingmaðurinn
fyrrverandi ennþá í stjórn raf-
magnsveitna ríkisins, RARIK.
-ÓTG
‘ oiiiíf mgíliíuélín
(yrir faqmenn
oq fyrlrtaehl,
heimili og
sKOlo, fyrir röd
og reglu, mig
nýbglauegi 14 ♦ sfml S54 4443 • if.is/ráfport
^Gitarinn^
k Stórhöfða 27, k
X s. 552 2125.
JL Rafmagns gítar, x
¥ magnarT m/effekt >f
K il og snúra 33.900kr'K