Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2002, Síða 10
Ef það er eitthvert réttlæti til ...
Breskar soul og r&b-söng-
konur hafa alltaf átt frekar
erfitt uppdráttar og hafa fall-
ið i skuggann af bandariskum
stöllum sínum. Nýtega kom út
þriðja plata Beverly Knight,
sem gefur vonir um árangur á
alþjóðlegum vettvangi, „ef
það er eitthvert réttlæti til“,
eins og einn breskur gagnrýn-
andi orðaði það ... Platan heit-
ir Who I Am en fyrstu tvær
smáskifurnar, Get Up! og
Shoulda, Woulda, Coulda, hafa
fengið töluverða spilun, m.a.
hérlendis. Beverly er 27 ára og frá Wolverhampton. Hún
vakti fyrst athygli með laginu Flava Of The Old School en
festi sig f sessi þegar önnur platan hennar, Prodigal Sista,
kom út fyrirfjórum árum. Fram undan hjá henniertónleika-
ferðalag með Jamiroquai.
NÝ PLATA OG NÝR PLÖTUSAMNINGUR HJÁ DAVID
Bowie
David Bowie hefur skrifad und-
ir samning við Columbia og er
fyrsti afrakstur hans, platan He-
athen, væntanleg 10. júní. Bowie
ákvað ídesember st. að endurnýja
ekki samning sinn við Virgin og
stofnaði í framhaldinu sitt eigið
plötufyrirtæki, ISO. Nú hefur
Bowie hins vegar gert samning
um að allar plötur ISO verði gefn-
ar út f samstarfi við Columbia,
sem er f eigu Sony og sem m.a.
gef ur út Bruce Springsteen, Dest-
iny’s Child og Quarashi... Þegar Bowie sagði skilið við Virg-
in lýsti hann þvíyfir að stóru plötufyrirtækin væru ekki fyr-
ir hann, þau væru of svifasein og hann hefði oft þurft að
sætta sig við ákvarðanir sem voru honum ekki að skapi.
Eitthvað hefur greinilega breyst st'ðan þá. Dave Grohl og
Pete Townshend spila á nýju plötunni en Bowie hefur feng-
ið bæði Air og Moby til að remixa lög af plötunni.
200% FÆREYSKT PÖNK
Athafnaskáldið Kiddi
í Hljómalind hættir
seint að koma okkur á
óvart. Hann er ekki fyrr
búinn að kveðja
kanadísku stjórnleys-
ingjana í Godspeed You
Black Emperorl, eftir vel
heppnaða tónleika, þeg-
ar hann tekur 180 gráða beygju og byrjar að flytja inn fær
eyska tónlistarmenn. Sjálfsagt hafa flestir orðið varir við
vikivaka-hevfistana i' Tý sem hafa verið að troða upp með
Stuðmönnum undanfarið og sem eiga vinsælasta lagið á
Rás 2 í langan ti'ma, Orminn langa. Fyrir þá sem ekki eru al-
vegað sleppa séryfir þjóðlegu þungarokki þá hefur Hljóma-
lindin upp á ýmislegt annað að bjóða, t.d. hina færeysku
Dead Kennedys, pönkhljómsveitina 200%, en samnefnd
plata hennar er á köflum stórskemmtileg.
Pet Shop Boys uppgötva gítarinn
í si'ðustu viku kom út ný plata með breska dúóinu Pet
Shop Boys, en þeir Neil Tennant og Chris Lowe hafa mokað
út danspoppinu allt frá þvi' að West End Girls kom út árið
1984. Á nýju plötunni, sem heitir Release, nota þeir félagar
meira af hcfðbundnum hljóðfærum en áður og ber þar mest
á gítarnum, en gi'tarleikurinn er í höndum fyrrverandi
Smiths-meðlims, Johnnys Marr ... Release er áttunda plata
Gæludýrabúdar-drengjanna og inniheldur lög eins og
fyrstu smáskífuna Home And Away, E-Mail, London, The
Samurai In Autumn og The Night I Fell In Love sem segir
sögu skólastráks sem
fer á tónleika með
Eminem og upp á hót-
el með honum á eftir
þar sem þeir eiga
ástríðufulla nótt sam-
an. Hvað ætli Mars-
hall Mathers finnist
um það?
Á næstu dögum kemur í versianir fyrsta plata Eivis Costello í sjö ár.
Eins og Trausti Júlíusson komst að þegar hann hlustaði á gripinn
þá hefur Costello kosið að hvíla ballöðurnar um sinn og er mættur
með hráa og kraftmikla plötu í anda This Year's AAodel, Blood 8t
Chocolate og Brutal Youth.
RöSirt komin aS
ruddoskapnum aftur
I yfirlýsingu í tilefni af útkomu
nýju plötunnar, When I Was
Cruel, segir Elvis Costello að
hann hafi verið að syngja svo mik-
ið af ballöðum á annarra manna
plötum undanfarin ár að honum
hafi þótt tími til kominn að búa
til „ruddalega rytmaplötu". Ef fer-
ill Costellos er skoðaður sér maður
að þó að hann hafi komið víða við í
tónlistinni leitar hann alltaf
reglulega aftur f tvennt:
melódískar ballöður og hrátt rokk.
Nú er röðin sem sagt komin að
rokkinu.
Fæddur inn í tónlistarfjöl-
SKYLDU
Elvis Costello heitir réttu nafni
Declan Patrick MacManus og er
fæddur í London 25. ágúst 1954.
Pabbi hans var trompetleikari,
söngvari og hljómsveitarstjóri en
mamma hans var verslunarstjóri í
plötubúð. Declan var frá fyrstu tíð
mikill tónlistaráhugamaður. Sem
gutti hélt hann upp á Frank
Sinatra og fyrsta platan sem hann
keypti sér, þá níu ára gamall, var
Please, Please Me með Bítlunum.
Declan hóf ferilinn í pöbbasveit-
inni Flip City árið 1973 en hóf
nokkru seinna að koma fram einn
undir nafninu DP Costello, en
Costello-nafnið var eftimafn
langömmu hans. Þegar fyrsta plat-
an hans, My Aim Is True, kom út
hjá Stiff'útgáfunni árið 1977 hafði
nafhið þróast í Elvis Costello og
það nafin hefur hann notað síðan.
Mikil afköst
Elvis Costello á að baki á vel
annan tug sólóplatna, auk safn-
platna, tónleikaplatna og sam-
starfsverkefna með öðrum lista-
mönnum. Það væri of langt mál að
rekja feril hans allan hér en und-
anfarin ár hefur hann verið að
vinna að plötum með jafh ólíkum
listamönnum og klassísku sveit-
inni The Brodsky Quartet (sem
Björk réð til þess að spila með sér
nokkrum árum seinna), Burt
Bacharach, klassísku söngkon-
unni Anne Sofie van Otter og
svo hljómborðsleikaranum úr
hljómsveitinni hans, The
Attractions, Steve Nieve. Auk
eigin platna hefur Costello lfka
verið duglegur að semja lög fyrir
aðra og að taka upp. Hann
pródúseraði t.d. meistarastykkið
The Specials með samnefhdri
sveit og Rum, Sodomy &. The
Lash með írsku þjóðlagapönk-
sveitinni The Pogues.
Bjagaðir gítarar og æstur
SÖNGUR
Eins og áður segir er nýja plat-
an hrá rokkplata eftir alla
klassíkina og melódíupopp-sam-
starfsverkefnin undanfarin ár.
Costello samdi öll lögin á gaml-
an Silvertone-gítar og bítbox.
Hann hóaði svo í Steve Nieve
hljómborðsleikara og Pete
Thomas, trommara úr Attract-
ions, og Dave Faragher bassa-
leikara og þeir fjórir tóku plötuna
upp í Dublin. Blásturshljóðfærum
var svo bætt við einhver lög í
New York. Platan inniheldur 15
lög, þ.á m. fín stykki eins og 45,
Tart, When I Was Cruel No 2
(sem notar textabrot úr Dancing
Queen með Abba), Spooky Girl-
friend, Alibi og Tear Off Your
Own Head. Textamir og lögin
eru f hrárra lagi, gítaramir em
bjagaðir, orgelsándin feit og kraft-
mikil og söngurinn á köflum æst-
ur og reiðilegur, rétt eins og á
This Year’s Model eða Bmtal
Youth. Þó að lögin séu kannski
ekki öll jafn góð þá er þetta samt
flott plata sem sýnir að það er enn
líf f karlinum. Hans besta í lang-
an tíma.
Nýjar endurútgáfur af
GÖMLU PLÖTUNUM
Auk nýju plötunnar sem kem-
ur út hjá Island koma út á árinu
endurútgáfur af flestum plötum
Costellos hjá Rhino-fyrirtækinu
sem er rómað fyrir vönduð vinnu-
brögð. Costello er sjálfúr mikill
tónlistaráhugamaður og veit
hvemig á að gæða endurútgáfúr
lífi. Hann skrifar texta í bæk-
linga þessara platna og velur
aukalögin en allar þessar plötur
koma nú með aukadiski í fúllri
lengd með óútgefnu eða sjaldgæfú
efni. Það má deila um hvaða plöt-
ur em bestar í Costello-safninu
en fyrir mig eru meistaraverkin
hiklaust This Year’s Model
(1978), Blood & Chocolate
(1986), Brutal Youth (1994),
Imperial Bedroom (1982) og
fyrsta platan, My Aim Is Tme -
allt ómissandi gripir í safnið og
tilvalið að tékka á þeim núna þeg-
ar aukadiskar fylgja með.
Elvis Costello á að baki vel á
annan tug sólóplatna, auk safn-
ptatna, tónleikaplatna og sam-
starfsverkefna með öðrum lista-
mönnum. Nú er að koma ný plata
frá Costello og þykir hún hrá og
kraftmikil.
ómar
Útgefandi: dodwe/Edda
Lengd: 33:20 mín.
hvo 8
Johnny Cash
Platan:
Útgefandi: Columbia/Skífan
Lengd: 119:42 mín. (2 diskar)
rvrir
vern
skemmtileai
staðreyndir
Hér er á feröinni ný safnplata meö Johnny Cash sem spannar feril hans frá fyrstu árunum hjá Sun-útgáfunni 1 Memphis, árin hjá Columbia og Merc- ury og fram til ársins 1993, þegar hann geröi lagiö The Wanderer meö U2. Platan er gefin út í tilefni af 70 ára afmæli hans 26. febrúar sl. Svartklæddi útlaginn hefur notiö vin- sælda og virðingar frá því hann hóf fer- ilinn hjá Sun-útgáfunni um miðjan sjötta áratuginn. Honum hefur tekist aö endurnýja sífellt aðdáendahópinn og síðustu ár hafa American-plöturnar, sem hann hefur gert meö Rick Rubin, bætt enn fleiri í hóp hinna sannfæröu. Þessi plata er fullkomin byrjun á kynn- um viö Cash. í plötubæklingnum eru afmæliskveðj- ur frá ýmsum kollegum Cash i tónlist- arbransanum, þ.á m. Merle Haggart, Bono, Tom Waits, Henry Rollins, Kurt Hammett, Keith Richards, Elvis Costello og Nick Cave sem segist hafa misst tónlistarlegan sveindóm sinn þegar hann, niu ára gamall, sá þátt meö Cash í sjónvarpinu. Þessi 40 lög spanna 50 ára feril Cash og flest frægustu lögin hans eru hér. Cash hefur einstaka rödd sem eldist ekkert og lögin hans, hvort sem þaö eru rokkabillýblúsar frá Sun-tímabilinu, kántrý eða þjóðlagatónlist, eru sifersk. Cash litar þetta allt með töffaraskapn- um sem hefur fylgt honum í gegnum öll árin. Snilld. trausti júliusson
Þetta er ný plata frá þeim Birgi Hilm- arssyni og Kjartani Ólafssyni, sem skipa rafpoppóúóiö Ampop, en fyrsta stóra platan þeirra, Nature Is Not A Virgin, sem kom út áriö 2000, vakti mikla athygli. Hér eru á feröinni tvö glæný lög og svo fimm remix, gerö af Natrajk, Plastik, Heckle & Jive og Rux- pin. Tónlist Ampop er sambland af til- raunakenndri raftónlist og sveimpoppi og ætti aö höföa til þeirra sem kunna aö meta stemningarfullt og þægilegt rafpopp. Þeir sem vinna endurgeröirn- ar eru heldur ekki af verri endanum - nöfn eins og Plastik og Ruxpin gera hvaöa útgáfu sem er áhugaverða. Ampop varð til í kringum safnplötuna Rugan sem kom út á vegum Error músik árið 1998. Á henni áttu þeir fé- lagar tvö lög, þ.á m. lagið Ampop/per- iod sem gaf hljómsveitinni nafn. Fram undan er smáskifuútgáfa hjá enska plötufyrirtækinu Static Caravan, en það hefur m.a. gefiö út nöfn eins og Isan, Telefunken og Plastik. Bæöi nýju lögin, Made For Marttet og Human Made, eru fín, sérstaklega það fyrmefnda, Ampop hefur oröiö lýrir áhrif- um frá nýjum straumum í raftónlistinni og innlimar þau I sinn stíl meö ágætum árangri. Remixin eru flest ágæt en Heckle & Jive-remixið stelur senunni og sannar aö þar er á ferðinni nafn sem vert er aö fylgjast með í framtíðinni. traustl júlíusson
f ó k u s I2.apríl2002