Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2002, Page 18
Albert feiti á filmu
Fyrir nokkru síðan ákvað fyrirmynd-
arfaðirnn Bill Cosby að gera kvikmynd
eftir teiknimyndaþáttunum um Fat Al-
bert sem hann var framleiðandi að hér
á árum áður. Upphaflega
þetta að vera jólamyndin íA
ár en nú hafa komið upp^
deilur á milli Cosby og i
Forest Whitaker seml
átti að leikstýra mynd-
inni og þvf hefur fram-
leiðsla myndarinnar verið'
sett í bið um óákveðinn 1
Vangaveltur hafa verið um hver
komi til með að leika Albert hinn þétt-
vaxna og hafa menn einna helst leitt get-
ur að þvf að Jamal Mixon muni leika boll-
una. Hann er þekktastur fyrir að vera
eini meðlimur Klump-fjölskyldunnar f
myndunum um The Nutty Professor sem
ekki er leikinn af Eddie Murphy en nú lít-
ur út fyrir að fitan muni fleyta honum
enn frekar upp á stjörnuhimininn. Svo er
bara að bíða og sjá hvenær Albert kemur
f bíóhúsin.
SPIDER-MAN 2 ÞEGAR Á
LEIÐINNI
Það er þegar komið á hreint að gerð
verður önnur mynd um Spiderman og
kemur það kannski fæstum á óvart. Allir
sem einhverju máli skipta og koma að
gerð myndarinnar hafa skrifað
undir nýja samninga og því
er þeim ekkert að van-
búnaði að hefja fram-
leiðslu hennar. Meðal
þeirra eru aðalleikar-
arnir Kirsten Dunst og
Tobey Maguire ásamt
leikstjóranum Sam Raimi
en nú er bara beðið eftir að
handritið verði tilbúið en gerð þess er
nú þegar vel á veg komin. Áætlað er að
hefja tökur á henni í byrjun næsta árs og
verður hún svo vonandi tekinn til sýn-
inga sumarið 2004.
SlR Ian lemur vondu
KALLANA
Sir lan McKellen heldur áfram að
koma á óvart en hann byrjaði á þvf að
koma út úr skápnum fyrir ekki svo löngu
og nú hefur hann lýst því yfir hversu
ánægður hann er með leikföngin sem
hafa verið gerð eftir persónu hans,
Gandálfs úr Lord of the
Rings. „Hver hefði hald-
ið, eftir öll þess ár í
klassískri leiklist, að
ég myndi verða að
dúkku sem litlir
krakkar leika sér
með?“ sagði McKellen.
„Mest alla ævi hef ég verið
að leika á sviði rétt eins og góð-
vinur minn Anthony Hopkins en hann
sagði mér eitt sinn að eftir að hann lék
Dr. Hannibal Lecter hefði viðhorf ann-
arra í hans garð breyst mikið og ég er að
upplifa það sama núna. Tony er eigin-
lega bara þekktur fyrir að éta andlitið á
fólki og ég er þekktastur fyrir að fara
með galdraþulur og sveifla galdrastaf.
En ég hef gaman af þessu og ég bókstaf-
lega elska þessar Lord of the Rings-
dúkkur sem allir eru að leika sér með. Ég
á nokkrar sjálfur og nota tækifærið á
hverjum degi til þess að láta Gandálf
berja aðeins á vondu köllunum. Það veit-
ir mér ákveðna drottnunartilfinningu.“
Mannlegt eðli frumsýnt
Sýningar á kvikmyndinni Human Nat-
ure hófust f Bandaríkjunum f vikunni
sem leið. Myndin kemur úr „listræna“
geiranum en hefur þrátt fyrir það hlotið
ágætis viðtökur. Leikstjóri myndarinnar
er Michel Gondry en hann hefur
meðal annars leikstýrt mynd-
böndunum Human
Behaviour, Army of Me,
Isobel, Hyperballad,
Jóga og Bachelorette
fyrir Björk en höfund-
ur handritsins er
Charlie Kaufman sá hinn
sami og gerði handritið að
Being John Malkovich. Mynd-
in fjallar um konu sem er ástfangin
af manni sem er ástfanginn af annarri
konu en saman finna þau mann úti f
náttúrunni sem er alinn upp af öpum.
Þau taka hann að sér en hafa mismun-
andi hugmyndir um hvað eigi að gera við
hann og hvort þau eigi að „ala hann upp“
á siðmenntaðan hátt eða ekki. Með aðal-
hlutverk fara Patricia Arquette og Tim
Robbins en ekki er víst hvort dúddamir
sem stjórna bíóunum hér á landi taka
myndina til sýningar eður ei.
f ó k u s
Kvikmyndin Blade II verður frumsýnd í kvöld kl. 20 í Laugarásbíói, Regnboganum
og Borgarblói á Akureyri. Að þessu sinni þurfa Blade og óvinir hans að sameinast
því stærri og enn meiri hætta steðjar að þeim frá nýjum vampírustofni sem nærist
ekki bara á mannablóði heldur vampírum líka. Að sjálfsögðu er það Wesley Snipes
sem leikur Blade sjálfan og er hann flottastur að venju.
BloSþyrstir
Sjaldgjæf stökkbreyting hefur
átt sér stað innan vampírusamfé-
lagsins. Svokallaðir Reaperar
hafa látið á sér kræla en það eru
vampírur sem nærast á blóði
annarra vampíra sem og
mannablóði. Þeir sem eru svo
óheppnir að lifa árásir þeirra af
breytast sjálfir í Reaper-vampír-
ur og þannig fjölgar stofninum á
miklum hraða sem ógnar tilvist
annara vampíra því ef áffam
heldur sem horfir verða ekki
naegilega margar mannverur
eftir á jörðinni til að svala blóð-
þyrstum vampírunum. Blade og
The Shadow Council, sem voru
yfirlýstir óvinir í fyrri myndinni,
verða þar af leiðandi að sameina
krafta sína til þess að reyna að
stöðva Reaperana áður en þeir
ná heimsyfirráðum sem myndi
leiða til útrýmingar alls mannkyns sem og annarra vampíra. Vopnasérffæð-
ingurinn Scud fer ásamt Blade og Reinhardt fyrir sérvöldu liði vampíra
sem kallast The Bloodpack. Allir sem tilheyra þeim hópi eru sérvaldir og
sérþjálfaðir til þess eins að hafa uppi á Blade og koma honum fyrir kattar-
nef en nú þurfa þessar tvær stríðandi fylkingar að sameinast til að stöðva
valdafíklar
Reaperana.
Alveg síðan að fyrri myndin um Bla-
de kom út árið 1998 hafa aðdáendur
hennar beðið með eftirvæntingu eftir
þeirri næstu og nú er hún loksins
komin. Leikstjóri myndarinnar er
Guillermo del Toro og er það mál
manna að hann hafi staðið sig með prýði
við gerð Blade II. Mikið er um bardaga-
atriði, rétt eins og í fyrri myndinni, en
þá voru slagsmálasenumar með þeim
flottari sem gerðar höfðu verið, hugsan-
lega að The Matrix undanskilinni en
hún var gerð um svipað leyti og Blade.
Nú hafa bardagaatriðin hins vegar ver-
ið bætt enn ffekar þannig að við meg-
um eiga von á að sjá einhverja fárán-
lega vel ffamkvæmda bardaga á milli
Blade og hans liðsmanna og vondu
kallanna hins vegar.
Að venju er það Wesley Snipes sem
fer með hlutverk Blades og ef leikur
hans verður eitthvað í líkingu við síðustu mynd þá mega áhorfendur svo
sannarlega eiga von á góðu. Með önnur hlutverk fara Donnie Yen, Ron
Perlman, Leonor Varela, Norman Reedus og Kris Kristofferson en mynd-
in verður eins og áður sagði ffumsýnd á morgun kl. 20 í Laugarásbíói, Regn-
boganum og Borgarbíói á Akureyri.
David Lynch hefur löngum þótt stórfurðulegur gaur. Síðan hann gerði Eraserhead
árið 1977 hefur hann staðið að gerð margra stórfurðulegra mynda, svo sem Wild
at Heart, Blue Velvet, Fllamaðurinn og auðvitað Twin Peaks sem voru bæði sjón-
varpsþættir og kvikmynd. Mulhoiland Drive er nú tekin til sýningar hér á landi en
hún hefur fengið rífandi góða dóma hjá almenningi.
Hringavitleysa af bestu gerð
Sem fyrr eru myndir Lynch í óvenjulegri kantinum og söguþráðurinn ekkert léttmeti.
Myndin tekur á því sem virðist vera nokkrir aðskildir atburðir.
Kona ein sem gengur undir nafninu Rita lendir í árekstri á Mulholland Drive veginum f
Hollywood í Kalifornfu ásamt tveimur mönnum sem eru víst slæmur félagsskapur. Þeir deyja
í slysinu en Rita sleppur. Allt hennar minni þurrkast út í slysinu en hún nær að skríða í
burtu. Hún kemur sér að íbúðarblokk og felur sig í runna þar fyrir utan.
Á sama tíma eru á veitingastað tveir menn sem heita Herb og Dan. Sá síðamefhdi er að
segja hinum ffá martröð sem hann fékk um veitingastaðinn sem þeir eru á og þegar hún byrj-
ar að rætast forða þeir sér þaðan. Þeir fara inn í húsasund þar nálægt og þá deyr Dan skyndi-
lega án sýnilegra ástæðna.
Nokkru síðar kemur ung kona að nafni Betty til Los Angeles til þess að verða leikkona og
tekur leigubíl til fbúðarblokkarinnar þar sem ffænka hennar Ruth býr. Hún hittir þar Coco
sem er húsráðandi blokkarinnar og vfsar henni á herbergi Ruthar þar sem hún er ekki heima.
Þegar Coco skilur hana effir sér Betty að Rita er í felum þar. Hún segir Betty frá minnisleysi
sfnu og þau reyna að komast að hvað hafði komið fyrir hana.
I öðrum borgarhluta Los Angeles er leikstjóri nokkur, Adam Kesher, og er verið að reyna
að fá hann til að ráða leikkonu eina í mynd af tveimur bræðrum, þeim Luigi og Vincezno
Castigliane. Hann harðneitar og fer heim til sfn þar sem hann finnur konur sína í rúminu
með hreingemingarmanni. Sá tuskar Adam til og fer því næst á hótel þar sem hann kemst
að því að hann hefúr aðeins efhi á einni nótt þar þar sem Castigliane-bræðurnir eru búnir að
þurrka upp alla banka- og kreditkortareikninga hans.
Þar hafið þið það. Mulholland Drive verður ffumsýnd í Háskólabíói f dag.
Mean Machine
Harðnaglinn, leikarinn og fyrmm
knattspymukappinn Vinnie Jones
er nú mættur á tjaldið á ný með
endurgerð af gamalli breskri knatt-
spymumynd sem hann kallar Mean
Machine. Vinnie er hér á heima-
velli því hann leikur knattspymu-
kappa sem er sendur í fangelsi þar
sem hann þarf að venjast nýjum
lífsháttum. Myndin er ffamleidd af
sömu aðilum og gerðu Snatch og
Lock Stock þannig að það er óhætt
að mæla með þessari.
The Royal Tenenbaums
Myndin var valin sú besta á
Golden Globe-verðlaunahátíðinni
og inniheldur hún fjölda þekktra
leikara. Meðal þeirra em Danny
Glover, Gene Hackman, Bill
Murray, Gwyneth Paltrow, Ben
Stiller, Luke Wilson og Owen Wil-
son. Myndin fjallar um Tenen-
baum-fjölskylduna sem kemur sam-
an í fyrsta skipti í langan tíma þeg-
ar einn meðlimurinn verður alvar-
lega veikur. Myndin hefur hlotið
mikið lof og er bráðfyndin.
The 51st State
Samuel L. Jackson og Robert
Carlyle em sagðir fara á kostum í
þessari bresku hasarmynd þar sem
einn helsti töffari Bandaríkjanna
fer með aðalhlutverkið. Saman ætla
félagamir að græða stórfé á einni
stórri fíkiefnasölu en það er hægara
sagt en gert að draga sig út úr þeim
heimi. Þeir komast því í alls konar
klandur sem kostar þá meira en
bara peninga. Fyndin og fjömg
mynd f anda Snatch.
E.T.
Flestir hafa líklega einhvem tíma
á ævinni séð myndina um litla
brúna kallinn utan úr geimnum
sem kallast E.T. en núna hefur
Steven Spielberg, leikstjóri mynd-
arinnar, séð sér leik á borði og end-
urbætt myndina til að þéna smá
vasapeninga. Myndin er náttúrlega
fyrir löngu orðinn klassík og því er
tilvalið að grípa tækifærið til að sjá
myndina á stóm tjaldi í almenni-
legum gæðum.
18
12. aprfl 2002